Morgunblaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 11. okt. 1961 MORGVIVBLAÐ1* 13 Háskólaforlagið norska Greiðir gðtu íslenzkra stjóri Háskólaforlagsins í Nor- egi. Andenæs hefur árum sam an gefið gaum íslenzkum mál- efnum og eignast marga vini hér á landi. Með það í huga — og um leið sökum þess, að út- gáfustarfsemi Háskólaforlags- ins er á margan hátt athyglis- verð frá íslenzkum sjónarhóli, fór Mbl. þess á leit við forstjór ann, að fá að hitta hann að máli. — Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem þér komið til íslands? Á síldveiffum hér. .— Nei, það var áríð 1946. Eg var þá á norskum fiskibát, sem stundaði síldveiðar við ísland. Eftir að vertíðinni lauk, gekk ég á land og vann um skeið við upp skipun á rússnesku sementi hér á Eyrinni í Reykjavík. í>að var erfitt, en kaupið var gott. Mér féll svo vel við land og þjóð, að síðan hef ég gripið hvert tæki- færi til að koimast hingað. Var ég hér á Snorrahátíðinni og eftir það é norrænu. lagamóti, sem hér var haldið. Bókagjöf til H.f. — Og nú eruð þér komið hing- að enn einu sinni? — í þetta sinn er tilefnið nor- ræn ráðstefna, sem m.a. fjallar um möguleikana á samstarfi Norð urlandanna við útgáfu kennslu- bóka; sit ég hana sem ráðunaut- ur. Þar á ofan hlotnast mér sú énægja, að taka þátt í hátíða- höldunuim vegna afmælis Má- skólans — og afhendi í því sam- foandi dálitla bókagjöf. Eru það iiýrri norsk vísindarit og norsk tímarit um vísindaleg efni. Áhugi á íslenzkum rannsóknum .— Hvað er að segja um áhuga Norðmanna á íslenzkum fræðum? — í Noregi ríkir mikill áhugi á að fá sem mestan og gleggstan fróðleik um niðurstöður íslenzkra rannsókna. Okkur fannst það því eðlilegt verkefni fyrir forlag okk ar, sem er opinbert fyrirtæki á vegum háskólanna í Bergen og Osló að greiða götu slíkra rit- verka í Noregi. Og eina leiðin til jþess er sú, að láta þýða íslenzk vísindarit yfir á norska tungu. íltgáfa íslenzkra bóka — Hvaða bækur af þessu tagi tiafa verið gefnar úr á ykkar veg um fram til þessa? — Fyrst er að nefna bók pró- fessors Einars Ól. Sveinssonar „Á Njálsbúð", sem á norsku nefnist „Njalssaga — kunstverket". Einn ig höfuim við gefið út ritgérða- eafn eftir Ólaf heitinn Lárusson prófessor og ber það heitið ,Lov Og ting — Islands forfatning og löndunum. Satt að segja höfum við haft upplagið of lítið. í undirbúningi er svo m.a. út- gáfa á báðurn bindum af fs- lendingasögu prófessors Jóns Jó- hannessonar. Fyrir okikur Norð- menn er það svolítill hængur, að hún nær ekki lengra en fram að tíma upplýsingastefnunnar. En við vonumst til að finna fslend- ing, til að skrifa lokabindið, er fjalli um það, sem skeð hefur síðan og til þessa dags. Eg er þeirrar skoðunar, að þetta rit- verk Jóns Jóhannessonar muni hafa mikið gildi fyrir okkur. Það getur verið mjög gagnlegt fyrir okkur Norðmenn að sjá hvaða augum íslendingar sjálfir líta sögu sína, t.d. það tímabil, sem fsland laut Noregskonungi. Þá eru nú uppi áform um út- gáfu á fleiri verkum íslenzkra fræðimanna, m.a. dr. Sigurðar Nordal. — Ritstjóri íslenzka bóka flokksins hjá Háskólaforlaginu er Ludvig Holm-Olsen, rektor há- skólans í Bergen, sem einnig dvelst hér á landi þessa dagana. Vísindarit á ensku. ■— Þið gefið út bækur á fleiri tungumálum en norsku. — Já, útgáfa fræðibóka á enska tungu fer stöðugt vaxandi hjá Norðmönnum. Háskólaforlagið er nú umsvifamest á sviði útgáfu norskra vísindarita og er heim- ingur allra bóka okkar á ensku. Við viljum helzt ná til heimsins alls og höfum í því sambandi m. a. komið okkur upp víðtæku sölu- kerfi. Úr því að minnst er á ensku útgáfurnar er kannske rétt að drepa á, að innan skamms er væntanleg á markaðinn bok um tengsl íslenzkrar og norskrar tungu eftir bandarískan fræði- mann, Kenneth A. Chapmann: — „Iceland — Norwegian Lmgu- istic Relations". Varla verður hún nú metsölubók, segir Ande- næs og hlær við. Og enn segir hann: Það má líka skjóta því inn í, að sú bóka okkar í ár, sam fjallar um hvað afmarkaðast efni, er ritgerð eftir próf. Hrein Benediktsson: „The Vowel Syn- cope in Uscan-Umbrrian“. Er þetta fyrirbrigði eitt í tungu, sem töluð var á Ítalíu fyrir daga Krists. Tönnes M. Andenæs er hér meff í höndun- um eina af útgáfubók- um norska Háskólafor lagsins, „Norges Histor ie“, skrifaffa af prófess or Andreas Holmsens. Hún er metsölubók í Noregi — og ekki er að efa, aff hún mundi einnig reyniast mörgum íslendingi ákjósanlegt lesefni. ið frá dögum Kalmar-sambands- ins fram til ársins 1945. Saga heimspekinnar í tveim bindum er einnig mjög athyglisverð lesning. V Gamanleikurinn „Sex effa^ 7“, sem Leikfélag Reykjavík- ur hefur sýirt aff undanförnu viff ágæta aðsókn, verffur sýndur annaff kvöld (fimmtu dag) kl. 8,30. Verður nú gert hlé á sýn-l ingum um tíma, vegna þess að einn leikandinn er á för um til útlanda og verffur þetta síðasta sýningin. skozka lá Pálssyni) og konu hans (Helgu Valtýs-, dóttur). Myndin er af >varffinum (Guðm. Mörg skip í höfninni Mörg skip voru í höfniníii um helgina. Gullfoss kom á sunnu- dagsmongun, Fjallfoss á mánu- dagsmorgun frá meginlandinu, Moormaok Bay á laugardags- 'kvöld og átti að fara aftur í gær. ÞfP var flutningaskipið Anders að fara úr höfninni í gær og þar var hollenzikt flutningaskip, Cornelia. Einnig lá þar herskipið Russel, sem var að taka olíu. í dag var Katla væntanleg með timburfarm. Björn og Jónas af vorum við í Þingeyjarsýslu meðal ættfólksins. Þegar við fórum að norðan kom það saman til þess að kveðja okk- ur. Þetta voru um 80 manns, fullorðið. Enginn smáhópur, enda var okkur ekki kotvís- að fyrir nOrðan — frekar en annars staðar þar sem við kom um. — Við förum héðan með góð ar minningar og höfum frá mörgu að segja, þegar vestur kemur, hélt Björn áfram. í minni sveit er margt íslend- inga. I rauninni er þetta al- þjóðleg byggð, því okkur tald- ist einu sinni til, að þar væru innflytjendur frá 21 landi. Og Það er e'ns og maður hafi þekkt alla í 100 ár“ — BÖRNIN okkar tala ís- lenzku, en það gengur ekki jafnvel með barnabörnin. Eg er hræddur um að þeim fari nú óðum að fækka, sem tala íslenzkuna í vesturheimi, sagði Björn Jónassön, Vestur-fslend- ingur, sem hér dvaldist í sum- ar ásamt Jónasi bróður sínum. Þeir fluttust utan árið 1893 með foreldrum og 5 systkin- um og í vor ákváðu þeir loks, komnir á efri ár, að láta verða af því að heimsækja ísland. Foreldrar þeirra voru úr Þingeyjarsýslu, Þorlákur Jón- asson frá Grænavatni og Kristrún Pétursdóttir frá Reykjahlíð. Þau settust að í Argyle- byggð í Manitoba, brutu þar land og reistu bú — og síðan hélt Björn búskapnum áfram, en Jónas stundaði kennslu- storf í Winnipeg þar til hann fór á elliheimilið að Gimli fyrir þremur árum. — Eg mundi lítið eftir fs- landi, sagði Björn. Eg var ekki nema 9 ára, þegar við fórum. En ég minntist þó alltaf fugla lífsins við Mývatn og mikið hefur mig alltaf langað til þess að sjá Mývatn aftur. — Og það voru þessir gömlu minningar, sem alltaf hvöttu mann til þess að fara til fs- lands. Ekki varð þó af því fyrr en nú — og við höfum farið víða hér í sumar. Lengst fólki líður vel þar, þrátt fyrir óþurrka, sem valdið hafa erfið leikum í akuryrkjunni. En nautgriparækt er þarna líka mikil svo að við erum ekki algerlega háðir kornuppsker- unni. Þeir Björn og Jónas báðu Mbl. fyrir beztu kveðjur til allra, sem greitt höfðu götu þeirra hér og tekið á móti þeim. Síðasta daginn í Reykja- vík voru þeir gestir á heimili Péturs H. J. Jakobssonar, læknis, sem þeir höfðu hitt vestra fyrir nokkrum árum. — Maður er fljótur að eign- ast kunningja hér, sagði Björn og brosti. Það er eins og mað- ur hafi þekkt alla í 100 ár. fræða í Noregi Undirbýr nú útgáfu á Islendingasögu próf. Jóns Jóhannessonar - Spjallað við Tönnes Andenœs háskólaforleggjara EINN ÞEIRRA góðu gesta, sem ísland hafa gist síðustu daga, er Tönnes Andenæs, for- lover i fristatstiden". Báðar hafa bækur þessar fengið prýðilegar viðtökur, ekki aðeins í Noregi, heldur einnig á hinum Norður- Góff Nóregssaga. — En, svo að við vendum okk ar kvæði í kross, gefur ekki Há- skólaforlagið út eitthvað af bók- um, sem þér munduð vilja ráð- leggja íslendingum að lesa? — Víst tel ég það. Detta mér í því sambandi sérstaklega í hug vísindalegi vasabókaflokkurinn, sem við erum komnir á stúfana með, svonefndar U-bækur. Með- al þeirra er t.d. mjög góð Noregs- saga. Hún er notuð sem námsbók fyrir stúdenta í sögu við norsku háskólana og er talin bezta norska sögubókin á markaðinum. Við höfum á þessu ári einu látið prenta tvær útgáfur, 20.000 ein- tök alls. „Juridiske stridsspþrs- mál í Nöregs politiske historie" nefnist bók eftir prófessor Frede Castberg, setm nær yfir tímabil-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.