Morgunblaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 22
22 MORGUNBL4Ðlh Miðvikudagur 11. okt. 1961 Vanfar sjálfboða- lida til lokaátaksins SKÍÐASKÁLI ÍR stendur nú senn fullgerður í Hamragili við Kolviðarhól. Herzlumun- inn vantar á, að ganga frá skálanum að fullu. ÍR-ingar hafa mikinn hug á að það tak izt fyrir veturinn og átakið sem á vantar er svo lítið að unnt væri að ljúka þvi um eina helgi, ef nægilegur vinnu kraftur fenglst. Sigurjón Þórffarson, for- maður byggingarnefndar. hef ur beðið íþróttasíðuna fyrir þá áskorun til yngri og eldri félaga ÍR að fjölmenna nú uppeftir til lokaátaks. Þyrfti helst eina 10 trésmiði og 3 múrara. Sigurjón effa einhver skíða- deildarmaður gefur allar nán ari upplýsingar. Sigurjón er í síma 17360. Góður árangur í sundi á ísafirði Ingemar ÍSAFIRÐI, 9. okt. — f gærdag fór fram sundmót í Sundhöll ísa- f jarðar. Keppí var um fagra verð launagripi, sem ýmis fyrirtæki og einstaklingar höfðu gefið. Úrslit í sundinu urðu þessi: 100 m skriðsund karla: Björn Egilsson, Herði 1:05,7 sek. Jó- hannes Jensson, Vestra 1:05,8. — 50 m baksund karla: Jóhannes Jensson, Vestra 36,7 sek. (Vest- fjarðamet), Finnur Birgisson, Herði 37,9. — 100 m bringusund karla: Fylkir Ágú'stsson, Vestra, 1:22,6, Frank Herlufsen, Vestra, 1:26,0. f þessu sundi keppti sem gestur Árni Þ. Kristjánsson, sund meistari frá Hafnarfirði. Tími hans var 1:16,2 sek. — 100 m skriðsund kvenna: Margrét Ósk- arsdóttir, Vestra, 1:12,7 sek., Helga Sveinbjarnardóttir ,Vestra 1:20,7. — 100 m bringusund kv.: Birna Eyjólfsdóttir, Vestra, 1:41,5 sek. — 50 _m baksund kvenna: Margrét Óskarsdóttir, Vestra, 41,4 sek. (Vestfj.met), Helga Sveinbjarnardóttir, Vestra, 46,1. — 50 m flugsund kvenna; Birna Eyjólfsdóttir, Vestra, 52,2 sek., Eyrún Gísladóttir, Barnaskóla ísa fjarðar, 56,7, Sigr. Vigfúsdóttir, Barnaskóla ísafj., 60,2. — 4x50 m boðsund kvenna frjáls aðferð: Sveit Vestra, 2:36,3 (Vestfj.met). — 4x50 m boðsund karla, frjáls aðferð: A-sveit Vestra 2:02,2 mín. (Vestfj.met), A-sveit Harðar, 2:03,7. — A.K.S. Keflavík vann Akur- eyri 4-2 BÆJARKEPPNI Keflavíkur og Akureyrar í knattspyrnu fór fram sl. laugardag. Rigning var og veður Og aðstæður á vellinum mjög óhagstæðar. Keflavík sigr- aði að þessu sinni með 4 mörk- um gegn 2. Bæði liðin tefldu fram sínum sterkustu mönnum. Keflavík náði í upphafi for- ystu í mörkum og í hálfleik stóð 2:0 þeim í vil. Síðari hálfleikur var jafn og lauk leik með 4:2. Þetta er í 2. sinn secm Keflvíking- ar sigra í keppninni. Akureyri hefur sigrað þrívegis, þar af í röð 1959 og 1960. Keflvíkingar komu því í veg fyrir það með sigri sínum nú, að Akureyringar færu heim með bikar Aðalstöðv- arinnar. Bikarinn vinnst sé hann unninn 3 í röð eða 5 sinnum alls. enn SÆNSKI boxarinn og fyrrver- andi heimsmeistari í þungavigt Ingemar Johannssön, hefur lítið komið fram í fréttum undanfar- ið, eða síðan Floyd PattersOn rotaði hann og endurheimti titil sinn sem heimsmeistari. En nú berast þær fregnir af honum, þar sem hann dvelur í Sviss, að hann æfi af kappi og sé í góðri þjálfun. Fer hér á eft- ir frásögn sænsks blaðamanns, sem heimsótti kappann nú fyrir stuttu. Það var 25 stiga hiti, þegar ég kom til Genf og yndisleg veður- blíða, en ég hafði tekið mér þessa ferð á hendur til fundar við Inge- mar Johannsson. Eg hafði reynt að ná sambandi við hann, enginn svaraði í símann, en klukkan eitt eftir hádegi var svarað og kunn- ugleg Gautaborgarrödd bauð mig velkominn til Genfar. Hann kvaðst mundi æfa innanhúss þá um eftirmiðdaginn og bauðst til að taka mig með. Og nákvæmlega á tilsettum tíma renndi glæsilegur sportbíll upp að hótelinu þar sem ég bjó. Ingemar var klæddur í hvítan íþróttabúning og hinn hressasti. Við héldum nú til þess staðar, sem hann hefur á leigu Og notar fyrir æfingastöð. Þetta er gamalt hús, sem á að rífa inn- an fárra ára, en var áður í eigu háskólans í borginni. Þar hefur Ingemar komið sér vel fyrir og útbúið æfingahring. Einn daginn ætlaði kona húsvarðarins að gera verulega fínt hjá hinum fræga leigjanda sínum Og bónaði gólfið í hringnum og má geta nærri, að Ingemar og aðstoðarmaður hans máttu hafa sig alla við til að standa á fótunum. Og þegar Ingemar klæddi sig úr æfingabúningnum, sá ég, að hann er vissulega í mjög góðu r Oskalagaþáttur RÍFLEGA hefur safnast í styrkt- arsjóð Ríkharðs Jónssonar nú um helgina. Nýstárlegust var söfnun Svavars Gests í Lido. Hann og hljómsveit hans tilkynntu gest- um Lido á laugardagskvöldið að hljómsveitin mundi leika „óska- lög“ en aðeins gegn einhverju framlagi í Ríkharðssjóð. Fólkið tók þessu mjög vel og bað óspart um lög og greiddu menn frá 10 krónum og upp í 400 krónur í Rikharðssjóð. Alls komu inn á þennan hátt 2600 krónur. Hljóm- sveitin bætti svo við 400 krónum og skilaði í gær til blaðsins kr. 3000,00. Aðrir sem komu með framlög voru: Starfsmenn við byggingu nýja Gnoðarvogsskólann kr. 950, starfsmenn við byggingu Iðnað- arbankans 650, starfsfólk í ísa- foldarprentsmiðju 1335, starfs- menn Rafveitunnar við Barónstíg 1520, kr, starfsfólk Skeljungs 1300, og loks kom félagi í knatt- spyrnufélaginu Reyni í Sandgerði og afhenti kr. 1545, sem var greiddur aðgangseyrir að kapp- leik Reynis og Kópavogs. Báðu allir aðilar fyrir kveðjur til Ríkharðs og óskuðu honum skjóts og góðs bata. Islenzkur þjálfari fær hrús í Svíþjdö Sænska ibróttablaðið gefur i skyn að Guðm. Þórarins on ilendist i Svibjóð „MAÐURINN, sem stendur á bak við framfarir skólaæsk- unnar í Norrköping í frjáls- um íþróttum, er íslenzki þjálfarinn Guðmundur Þór- arinsson. Hann hefur unnið framúrskarandi vel um mán aðartíma í Norrköping“. Þannig skrifar sænska íþrótta blaðið um dvöl Guðmundar Þór arinssonar í Svíþjóð. Guðmund- ur fór utan með dóttur sína, sem varð að leita sér lækninga, og notaði tímann til að vinna að sínu starfi — kenna frjáls- íþróttir — en um árabil hefur Guðmundur verið þjálfari í frjálsum íþróttum hjá ÍR. Það er gaman að þeirri viðurkenn- ingu sem Guðmundur fær nú ytra eftir svo stuttan tíma. Ingemar Johannsson líkamlegu formi. Þó segist hann þurfa að ná af sér einu til tveim kílóum í viðbót til að vera ánægð ur. Síðan fylgdist ég með langri og alhliða æfingu heimsmeistar- ans okkar, og eftir þessa heim- sókn er ég viss um að Ingemar er ekki úr sögunni; hann kemur aftur. Cuðmundur Gísla- son þjálfar í Keflavík SUNDÆFINGAR f.B.K. í Kefla- vík hófust 5. Oikt. sl. Hinn kunni sundimaður ÍR, Guðmundur Gísla son mun verða þjálfari fyrri hluta vetrar, og er þess því vænzt að þeir, sem hafa hugsað sér að sækja sundæfingar í vetur, mæti iþá strax. Æfingar verða, sem hér segir: Mánud., fimmtud., og föstudaga kl. 6:30—8:00. _ & SKIPAUTGtRB RIKISINS M.s. HEKLA vestur um land í hringferð hinn f 15. þ. m. Tekið á móti flutningi í dag og árdegis á morgun til Patreksfjarðar, Bíldudals, Þing- eyrar, Flateyrar, Súgandafjarð- ar, ísafjarðar, Siglufjarðar, Ákur eyrar, Húsavíkur, Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar. — Farseðlar seldir á föstudag. ic Haldgóð þekking Sænska blaðið segir enn- fremur á þá leið að Guðmund- ur komi sér einkar vel og þekk- ing hans á sviði þjálfunar sé mjög mikil og góð. Hann þjálf- ar eftir bandarískum aðferðum og á mjög auðvelt með að fá nemendur sína til að læra rétt- ar aðferðir. „Það er bara verst að Guðmundur er senn á förum heim“, segir sænska blaðið. Ar Fjársöfnun En nú er hafin fjársöfnun í Norrköping, og er borgarstjór- inn í broddi fylkingar. — Tak- markið er að æskan geti áfram haft þjálfara og notið tilsagnar hans. Hafa menn þar í borg tvo þjálfara í huga. Annar heitir Svanberg, hinn er Guðmundur Þórarinsson. Umræddur Svan- berg starfar í Nigeríu og þess vegna mun verða lagt hart að Guðmundi Þórarinssyni að vera áfram. Blaðið getur þess ekki, hvað Guðmundur hefu>- í hyggju í þeim efnum. Félagslíf Skíðadeild K.R. í vetur verða innanhússæfing- ar í íþróttasal K.R. á miðviku- dögum kl. 10.15. Stjórnin. Knattspyrnufélagið Valur Knattspyrnudeild 3. flokkur Fundur verður eftir æfinguna á miðvikudagskvöld. Fjölmennið á æfinguna og fundinn. Stjórnin. Körfuknattleiksfélag Rvíkur Fyrstu æfingar verða sem hér segir: 3. fl. fimmtudag kl. 20.30. 4. fl. er beðinn að mæta til við- tals á fimmtudag kl. 20.30. K. F. R. V Knattspyrnufélagið Fram Handknattleiksæfingar verða sem hér segir í vetur: Meistara-, 1. og 2. fl. karla: Þriðjud. kl. 7.40 í Hálogalandi. Miðvikud. kl. 10.10 í Valsheimili. Föstudag kl. 9.20 í Hálogalandi. Meistara- og 2. fl. kvenna: Þriðjudag kl. 6.50 í Hálogalandí. Föstudag kl. 8.30 í Hálogalandi. 3. flokkur karla: Þriðjudag kl. 6 í Hálogalandi. Sunnudag kl. 3.50 1 HálogalandL 4. flokkur karla: Föstudag kl. 6 í Hálogalandi. Nefndin. KR knattspymudeild Innanhúsæfingar byrja nk. fimmtudag og verða sem hér segir: 5. flokkur Fimmtudaga kl. 6.55. Sunnudaga kl. 1.00. 4. flokkur Mánudaga kl. 6.55, séræfing. Fimmtudaga kl. 7.45 Sunnudaga kl. 1.50. 3. flokkur Mánudaga kl. 7.45, séræfing. Fimmtudaga kl. 8.35. Sunnudaga kl. 2.40. 2. flokkur Mánudaga kl. 8.35. Fimmtudaga kl. 9.25. Miðvikudaga kL 7.40, séræfing. 1. og me/staraflokkur Mánudaga kl. 9.25. Fimmtudaga kl. 10.15. Miðvikudaga kl. 7.40, séræfing. Komið og verið með frá byrjun, K.R. knattspyrnudeild.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.