Morgunblaðið - 11.10.1961, Page 5
Miðvikudagur 11. okt. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
5
IMh
MFNN 06
= MALÍFNI =
Ljósmyndarinn Anthony
Armstrong-Jones, eiginmaður
Margrétar Bretaprinsessu, hef
ur nú verið aðlaður og heitir
upp frá þessu jarlinn af Snow
don. En brezka þjóðin er
alls ekki uppnæm fyrir þess-
ari útnefningu og umtalið, sem
hún hefur vakið er sáralítið.
Ritarar slúðurdálkanna hafa
varla látið á sér kræla og flest
ir tóku fréttinni með hóg-
væru brosi.
Fréttin hefur í sjálfu sér
mjög litið gildi, en blöðin
hefðu ekki látið hjá liða að
gera mikið úr henni, ef þau
hefðu fengið hana fyrir nokkr
um mánuðum.
Alvarlegri blöðin hafa að-
eins minnst á þetta og nokkur
hafa drepið á, að hver ríkis-
erfingi eigi rétt á titli, en
barnið, sem Margrét pnnsessa
Sakrta
herra Jones
væntir um mánaðarmótin
verður 5. í röðinni til ríkis-
erfða. Hið íhaldsama blað
Daily Telegraph fagnaði ekki
einu sinni fréttinni. Daily
Mirror lýsti sig hinsvegar
andvígt útnefningunni og sú
staðreynd fer sennilega ekki
framhjá mörgum. Þó Daily
Mirror sé ekki mikið iesið með
al heldra fólks, þá líta flestar
konur í það. Blaðið endur-
speglar skoðanir almcnnings í
Bretlamli á hinum ýmsu
málum og stjórnmálamaður
eða útlendingur vill kynnast
þeim, er bezt fyrir hann að
lesa Daily Mirror.
Daily Mirror hefur hafnað
hinum nýja titli og segir að
blaðið muni halda áfram að
kalla unga manninn hcrra
Hennar konunglega tign Margrét prinsessa, greifafrú af
Snowdon og jarlinn af Snowdon vænta barns síns um máu-
aðarmótin.
Armstrong-Jones, eða „Tony“.
Það segir að flestir séu von-
sviknir yfir því að ekki sé
lengur neinn herra Jones með
al alls íburðarins innan kon-
ungsfjölskyldunnar.
Auðvitað þykir sjálfsagt að
aðla Armstrong-Jones og
ómótmælanlegt meðal flestra
þó að það veki enga hrifningu.
Barnið, sem í vændum er og
gengur næst hinum þremur
börnum Elísabetar drottningar
og móður sinni Margréti prins
essu að ríkiserfðum, þykir
næg ástæða.
Sennilegt er að eftir einn
eða tvo mánuði hafi Englend-
ingar vanist hinu nýja nafni,
en jarlinn mun áreiðanlega
ekki vekja eins mikla athygli
og herra Jones hefur gert til
þessa, en það mun frekar
gleðja hann en hryggja,
1
Fyrir síðustu helgi voru gefin
saman í hjónaband af séra óóni
Þorvarðssyni, ungfrú Ingibjörg
Vigfúsdóttir, Blönduhlíð 4 og
Baldur Davíðsson, mælingamað-
ur, Framnesvegi 57. — Heimili
þeirra verður að Framnesvegi 57.
Ennfremur ungfrú Guðrún
Hinriksdóttir, Eskihlíð 12b og
Kristján Bernódusson, vélvirkja
nemi, Lönguhlíð 29. Heimili
þeirra er að Miklubraut 74.
ÁHEIT OC GJAFIR.
Áheit og gjafir til Barnaspítálasjóðs
Hringsins: HCA 1000; J.Th. 150; Minn
ingargjöf um Jónu Jóhannesdóttur frá
Laxamýri, frá Arna Benediktssyni kr.
3000; Minningargjöf um Sigríðu Ing-
veldi Asmundsdóttur, frá P.Þ. 1000;
áheit frá AG 100, frá sjómanni 100; frá
ónefndri konu í Borgarnesi 200. —
Kvenfélagið Hringurinn færir gefend
um sínar innilegustu þakkir.
Gamla konan: HEA 100; KN 100; K
og P 100, Jónína 500; IS 500.
Fjölskyldan á Sauðárkróki: Bjarni
Kolbeinsson, Njálsg. 80 250 kr.; í».H.
100; Bjöm 200.
Lamaða stúlkan, afh. Mbl.: — K
og P kr. 100.
Ríkharður Jónsson: — Páll Jörunds-
son kr. 200.
Aldarafmæli séra Bjarna horsteins-
sonar: — Guðrún Olafsdóttir kr. 100.
Sjóslysið á Hornafirði: — LL kr. 100;
NN 100; GG 100; PS og SP 500; NN
150; Skerfirðingur 200; mæðgur 100;
ómerkt 200; HEA 200; K og P 300; HG
100; DF 100; HS 500; NN 100; Kristjana
og Guðrún 1000; NB 100; NN 20; Krist-
mundur Gíslason 200; Anna 50; Erla
200; Guðrún Olafsd. 200; Runólfur
Jónsson 100; Sigríður Jónsd. 100; NN
200; SG 200; Starfsmenn Iþróttahall-
arinnar í Laugardal: Kristján Friðriks
son 100; Magnús Skarphéðinsson 100;
Sig. Tryggvason 100; Magnús Gíslason
100; JHG 200; I>orsteinn Stefánsson
100; John Petersen 50; Sigurjón I>or-
valdsson 150; Magnús Helgason 50;
Guðm. Sigurðsson 100; Einar Sturlaugs
son 50; Lúðvík Guðjónsson 100; Gunn-
ar Kristjánsson 100; Þórður Kristjáns-
son 50; Olafur Tynes Jónsson 100;
Jón Hermannsson 50; Emil Gíslason
100; Karl Guðlaugsson 50; Höskuldur
Guðmundsson 100; Gunnar Marinósson
100.
Mynd þessl var tekin af
hinum nýja forsætisráðherra
Sýrlands, dr. Kuzbari og
þremur af fjórum börnum
harrs á heimili þeirra í Dama-
scus. Börnin eru (frá vinstri)
Chafic, 12 ára, Sahira 4 ára,
situr í kjöltu föður síns og
Safwan 8 ára. Frú Kuzbari )
sagðist ekki vilja sitja fyrir ^
í
hjá ljósmyndurum.
íbúð til leigu
2—4 herb. í steinhúsi. Tilb.
sendist Mebl. fyrir annað
kvöld merkt „Miðbær“
Ráðskona
óskast í nágrenni Reykja-
víkur. Öll þægindi má hafa
með sér 1 eða 2 börn Uppl.
í síma 16937 eða 22641
Verkamenn
og húsasmiðir óskast nú
þegar í byggingavinnu. —
Innivinna að mestu. Uppl.
í síma 16362
Vinna
Óska eftir vinnu á kvöldin.
Ræsting á skrifstofu eða
verzlun æskileg. Tilb merkt
„Húsmóðir — 5648 ' send-
ist blaðinu fyrir laugardag
Gítarkennsla
Þau böm sem hafa áhuga
á að læra á gitar hringi í
síma 35725. Helga Jóns —
Gullteig 4.
Keflavík
Kærustupar óskar eftir 1
herb. og eldhúsi nú þegar.
Uppl. í síma 2394.
Keflavík
Vantar 1—2 herb. og eld-
hús eða eldunarpláss. —
Símaafnot nauðsynleg. Tilb
sendist á afgr. Mbl. merkt
„Sími 5646“
Rennibekkur
óskast til leigu. Uppl. í
síma 36562
A T H U G I Ð
að borið saman ð útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðiuu, en öðium
blöðum. —
Keflavík
Til sölu nýlegur stuttur
pels að Faxabraut 35B. —
Keflavík
Húsnæði það sem
Permanentstofan Ingólfs-
stræti 6 hefir starfað í, er
til leigu. — Uppl. í síma
11873.
3ja herbergja íbúð
óskast til leigu 1 nóv. Hjón
og tvö uppkomin börn. —
. Reglusemi. — Uppl. í síma
50626
Til sölu
ítalskur gólfdúkur A og C
þykkt, ennfremur nokkrar
rúllur múrhúðunarnet. —
Uppl. í síma 33590 milli
kL 7 og 8 e.h.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa.
Kjötbúð Norðurmýrar
Háteigsvegi 2.
Sími 11439 og 16988.
Húsbyggjendur
Vantar 1x6 mótatimbur í
skiptum fyrir efniskeyrslu
Uppl í síma 34669.
Stúlka c
með barn óskar eftir ráðs
konustöðu á fámennu heim
ili. Tilb. ásamt helztu uppl
sendist blaðinu fyrir 16 okt
merkt „Reglusöm — 7066“
Gítarkennsla
Uppl. í síma 33322 (milli
kl 6—7)
Svavar Lárusson
Selvogsgrunni 3.
Trérennibekkur
óskast Uppl. í síma 32256.
MUNIÐ
smurbrauðssöluna
SKIPHOLTI 21
Veizlubrauð og snittur afgreitt með stutt-
um fyrirvara.
Sæla café
Sími 23935 eða 19521
íbúð óskast
Höfum kaupanda að 5—6 herbergja nýlegri hæð,
sem mest sér. Mjög mikil útborgun.
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9 — Sími 14400.
linglingar óskast
TIL AÐ BERA BLAÐIÐ
í EFTIRTALIN HVERFI
Langhoftsveg II
Ví&imel og Grettisgötu 1
Sími 22480.