Morgunblaðið - 11.10.1961, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIfí
Miðvikudagur 11. okt. 1961
Færeyska sendinefndin
mðtmælti danska fánanum
Fáni Færeyja blaktir nu einn við Listasafnið
LEIÐINLEGUR atburður varð í
sambandi við opnun færeysku
listasýningarinnar í húsakynnum
Listasafns ríkisins á laugardag-
imn. Ákveðið hafði verið, að þar
skyldu blakta þrír þjóðfánar:
Færeyskur, danskur og íslenzkur.
Færeyslka sendinefndin neitaði
bins vegar að mæta við opnuniina,
ef danski fáninn yrði ekki tekinn
niður. Endanleg úrslit málsins
urðu þau, að færeyski fáninn
blaktir nú einn við Listasafnið og
mun engin breyting verða þar á.
— Samkvæmt upplýsingum, er
Mbl. aflaði sér í stjórnarráðinu í
gær, var forsendan fyrir upphaf-
legri ákvörðun um að hafa fán-
ana þrjá, sú, að samkvæmt regl-
um, sem danska utanríkisráðu-
neytið hefur birt, er færeyski
fánánn einungis notaður í Færeyj
um og á færeyska skipaflotanum.
Annars danskur. Mun því hafa
átt að gera báðum jafnhátt und-
ir höfði með því að hafa bæði
fána Danmerkur og Færeyja.
★
a
Annars barst Mbl. í gær frétta-
tilkynning frá menntamálaráðu-
neytinu, sem skýrir málið frekar.
Fer tilkynningin hér á eftir:
„í dagblaðinu „Þjóðviljanum"
f dag er grein undir fyrirsögn-
unum „Heimtuðu danskan fána
við færeyska myndlistarsýningul
Furðuleg framkoma danska sendi
herrans og Gylfa Þ. Gíslasonar
menntamálaráðherra“. í upphafi
greinarinnar segir: „í sambandi
við færeysku myndlistarsýning-
una, sem hér er haldin um þess-
ar mundir gerðust þeir furðu-
legu og ósæmilegu atburðir, að
sendiherra Dana á íslandi, Bjarne
W. Paulson og Gylfi Þ. Gísla-
son menntamálaráðherra kröfð-
ust þess, að danski fáninn yrði
látinn blakta fyrir utan Þjóð-
minjasafnshúsið þar sem sýning-
in er haldin. Gekk ofurkapp
þeirra svo langt, að á sunnudag
var enginn fáni fyrir utan húsið,
þar sem menntamálaráðherra
lagði bann við því, fyrst sá danski
væri ekki hafður þar með. í
gær gáfu þeir félagar sig loks og
blaktir færeyski fáninn nú einn
á stöng fyrir utan hina merku
sýningu".
Þar sem hér er rangt sagt frá
því, sem gerzt hefur, telur
menntamálaráðuneytið rétt að
skýra frá gangi þess máls, sem
um er rætt, að því er mennta-
málaráðuneytið snertir.
Fimmtudaginn, 5. október kom
framkvæmdastjóri Menntamála-
ráðs, Gils Guðmundsson, á fund
ráðuneytisstjóra menntamálaráðu
neytisins, Birgis Thorlacius, Og
ræddi við hann um, hvaða til-
högun skyldi hafa á notkun fána
við opnun sýningarinnar. Taldi
ráðuneytisstjórinn eðlilegast, að
þrír fánar yrðu hafðir uppi við
Opnun sýningarinnar, íslenzki,
danski Og færeyski fáninn. Voru
þeir fyrir sitt leyti sammála um
þá tilhögun og að rétt væri að
ræða hana við hlutaðeigandi að-
ila. Skýrði ráðuneytisstjórinn
menntamálaráðherra, Gylfa Þ.
Gíslasyni, frá þessu 'samdægurs.
Hafði ráðherrann ekkert við
þessa tilhögun að athuga, en bað
um, að danska sendiráðinu yrði
skýrt frá því fyrirfram, að til-
högunin yrði þessi. Ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins
skýrði sendiherra Dana, Bjarne
W. Paulson, frá því, hvernig ætl-
unin væri að haga notkun fána
við opnun sýningarinnar, og hafði
hann ekkert við það að athuga.
Þegar menntamálaráðherra,
sem Menntamálaráð hafði beðið
að opna sýninguna, að viðstödd-
um forseta íslands, kom til sýn-
ingarinnar laust fyrir kl. 5, blöktu
tveii' íslenzkir fánar Og einn fær-
eyskur við hún. Þegar ráðherra
spurði formann og framkvæmda-
stjóra Menntamálaráðs, hvers
vegna sú tilhögun væri ekki á
höfð, sem um hefði verið rætt
milli ráðuneytisstjórans og fram-
kvæmdastjórans, kom í ljós, að
af hálfu Menntamálaráðs hafði
málið ekki verið rætt við fær-
eysku listamennina fyrr en sama
dag og sýninguna átti að opna,
en þeir hafi þá skýrt frá því,
að þeir mundu neita að vera við-
staddir og jafnvel taka niður
* Smáborgarháttur
og stórborgarsnið
Oft finnst okkur, sem í
Reykjavík búum, bærinn helzt
til lítill og smáborgaralegur
og afskiptasemi íbúanna hvers
um annars gerðir nær óþol-
andi. Ekki sízt þar sem það
virðist í mannlegu eðli að taka
af litlum velvilja á málefnum
sem lítt er um vitað jafnvel
þó sjálfsagt þyki að fjalla um
þau.
En allt hefur tvær hliðar.
Jafnvel smábæjarhátturinn
getur haft sína kosti. Algert
afskiptaleysi stórborgarbúans
um örlög náungans er ekki
alltaf sem geðfeldast. Það
fannst mér a. m. k. er ég varð
vitni að einu slíku atviki á
götu í Paris fyrir skömmu.
•jLítið^^atvil^ið^ignu
Við vorum á gangi við
Signu í glaða sólskini og hugs
uðum okkur að taka okkur
far með einum af skemmti-
bátunum upp eftir ánni. Allt
í einu komum við þar að sem
nokkrir smábátar voru að
myndir sínar, ef danski fáninn
væri notaður. Ráðherrann lét í
ljós óánægju yfir því, að fá ekki
um þetta vandamál að vita fyrr
en á síðustu stundu og taldi sér
nauðsynlegt að skýra ríkisstjórn-
inni frá málinu. Þar eð hann hafi
ákveðið ferð í Borgarfjörð með
Jörgen Jörgensen, fyrrverandi
menntamálaráðherra Dana, á
sunnudag, gat hann ekki náð til
ráðherranna fyrr en á mánudags-
morgun og taldi því rétt, að ekk-
ert yrði flaggað við Þjóðminja-
safnshúsið á sunnudag, eða þang-
að til tóm hefði gefist til þess að
ræða þetta deilumál. Fyrir hádegi
á mánudag skýrði menntamála-
herra samráðherrum sínum frá
málavöxtum, og varð það ein-
róma álit ráðherranna, að úr því
að ágreiningur væri um þá til-
högun, sem upphaflega hefði ver-
ið rætt um væri heppilegast, að
færeyski fáninn einn væri notað-
ur. Var hann því dreginn að hún
við Þjóðminjasafnið í gær.
Sendiherra Dana á fslandi hef-
ur engin afskipti haft af þessu
máli, Og harmar ráðuneytið mjög,
að honum skuli hafa verið bland-
að í málið, eins og gert er í frá-
sögn Þjóðviljans."
★
Mbl. náði í gær tali af formanni
færeysku sendinefndarinnar,
sveima. Þeir voru mannaðir
björgunarmönnum sem voru
með hjálma á höfði og árbakk
inn var þakinn lögreglumönn
um. Það leyndi sér ekki að
þarna var verið að slæða og
leita einhvers á botni árinnar.
Rétt í þann mund sem við
komum þarna að, sá á manns-
fót, sem kom upp með einum
bátnum, dreginn af kaðli.
Mannslíkami fylgdi á eftir,
óhugnanlega bleikur og linur,
klæddur sundskýlu. Sá hafði
sýnilega verið að synda í
ánni, svo óhrein sem hún er.
Maðurinn var dreginn upp í
bátinn.
Við undruðumst það, að
ekki skyldu hafnar björgunar
Hanusi við Högadalsá, og vildi
hann fátt um atburðinn segja ann
að en það að hann hefði ekkertvið
endanlega niðurstöðu málsins að
athuga. Sagði hann, að íslands-
ferðin hefði verið mjög ánægju-
leg að undanskildu fyrrnefndu
atviki. Sá vandi hefði nú verið
leystur og mundu Færeyingar
fara ánægðir heim á fimmtudag-
ínn.
Ný tegund
kartöfluupptöku-
vélar
AKUREYRI, 23. sept. — Ný-
lega var tekin í notkun hjá Til-
raunastöð ríkisins í Gróðrarstöð
inni á Akureyri mjög fullkom-
in kartöfluupptökuvél. Vél þessi
er af svissneskri gerð — Samro
Spezial.
Vélin er dregin af meðal-
stórri dráttarvél, en á sjálfri
upptökuvélinni sitja 6 menn,
og fjarlægja þeir mold og ræt-
ur, sem kunna að sitja á kart-
öflunum. Þessi hreinsun fer
fram á færibandi úr rimlum.
Moldin og annar úrgangur fell-
ur niður, en kartöflumar halda
áfram eftir færibandinu og falla
síðan í poka, sem er fremst á
vélinni. Er pokamir fyllast,
skilur vélin þá eftir á jörðinni,
en heldur áfram upptökunni.
Ekki liggja fyrir neinar tölur
um hraðvirkni vélar þessarar,
en til að sjá virðist hún mjög
fljótvirk og sérlega vandvirk.
Ef þetta tæki reynist svo sem
sýnist, mun vera komið hér
kærkomið verkfæri fyrir þá,
sem stunda kartöflurækt í stór-
um stíl. — St. E. Sig.
æfingar strax í bátnum, og
enn meir er við sáum að róið
var í land og lögregluþjónar
tóku við líkamanum og stungu
án frekari umsvifa undir
strigaábreiðu.
Nú fóru allir að tygja sig
til brottfarar. Björgunarsveit-
in tók saman áhöld sín, lög-
regluþjónar og nokkrir aðrir
menn stóðu við strigann og
böðuðu út höndunum, voru
sýnilega að ræða það hvernig
slysið hefði orðið. áður en
þeir tíndust í burtu, og áhorf-
endur hurfu einnig á brott.
Ein ung stúlka hallaði sér upp
að manninum sem með henni
var, hafði sýnilega orðið
nokkuð urn þessa sýn.
Lárus Halldórsson
Lágafellsskóli
settur í 40. sinn
Reykjum, 3. okt.
UNGLINGA og barnaskólinn að
Brúarlandi var settur í g«er í
Lágafellskirkju að viðstöddu fjöl
menni.
Hinn góðkunni skólamaður og
æskulýðsleiðtogi Lárus Halldórs-
son setti skóla sinn í fertugasta
skipti. Á þessum merku tímamót
um vill svo skemmtilega til að
hluti af hinum nýja skóla verður
tekinn í notkun. Með hinum nýja
skóla leysast húsnæðisvan'dræði
skólans en hann var tvísettur og
hafði einnig húsnæði á leigu I
Hlégarði. Hinn mikli fjöldi nem-
enda Lárusar senda honum hlýjar
kveðjur í tilefni af þessum tíma-
mótum.
um. Nokkru ofar sáum við
hvar hópur manna stóð uppi
á götunni og horfði niður á
bakkann, þar sem maður hall-
aðist upp að veggnum, drukk
inn eða veikur? Er hann var
að hverfa okkur sýn, sáum
við að hann reikaði fram á
bakkann og datt endilangur,
án þess að hreyfa sig meir. Þá
fyrst kom einn maður úr
áhorfendahóp niður tröppurn-
ar til hans.
Er við 'sigldum fram hjá
staðnum, þar sem líkið hafði
verið slætt upp um tveimur
tímum áður, var striginn þar
enn og lögregluþjónn gekk
þar fram og aftur, aleinn. Er
við komum í land hálfri
stundu síðar, fórum við á stað
inn, kunnum ekki við þetta
algera afskiptaleysi. Við spurð
um lögregluþjóninn hvað
þarna hefði gerzt og hvers
vegna líkið væri ekki flutt í
líkhús.
— Ég hefi ekki hugmynd
um það. Ég kom á vagt hér
fyrir 15 mínútum og mér var
bara sagt að standa hér vörð,
var svarið.
• 60% fleirum bjargað
Nú héldum við á næsta
kaffihús, pöntuðum okkur
einn Dubonnet. veitti ekki af
hressingu eftir þetta, og keypt
um blaðið Figaro af næsta
blaðastráki. Við opnuðum það.
Þar blasti við heil síða,
skreytt teikningum, um hina
nýju aðferð til að lífga fólk
úr dauðadái með því að anda
ofan í lungu þess. Og yfir»
skriftin var: „Nú er hægt að
bjarga 60% fleirum frá
drukknun ef strax er beitt
öndunaraðferðinni“.
• Efiir 2 '/■» tíma
Við fórum líka. Náðum i
skemmtiferðabátinn og sigld-
um upp eftir ánni ásamt
hollenzkum nunnum, Ame-
ríkönum með kvikmyndavél-
ar og nokkrum Englending-