Morgunblaðið - 11.10.1961, Síða 11
Miðvikudagur 11. okt. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
11
Burt með kommúnismann
úr landinu
Eftir Jón H. Þorbergsson, Laxamýri
EF kommúnistar hér í landi geta I ir mikið skoðanaleysi og hálf-
ekki hreinsað sig af því að þeir
gangi erinda ,,höfðingjanna“ í
Kreml og vinni að því að koma
íslandi undir rússnesk yfirráð,
þá eru þeir landráðamenn, sekir
við íslenzk lög og réttlausir þjóð-
félagsþegnar.
Starfsaðferðir kommúnista
fara ekki leynt: að koma þeim
glundroða á hjá þjóðum, sem
eiga að verða fórnardýr þeirra,
að þær fái ekki haldið sjálfstæði
eínu, svo að þeir geti tekið við
ítjórninni.
Það sem kommúnistar vilja
með okkur íslendinga, er að við
verðum ósjálfstæð þjóð, bæði
fjárhagslega Og andlega. Andlega
þannig, að við verðum hugsjóna-
lausir og skoðanalausir aumingj-
ar, en þó fullir andúðar og lítils-
virðingar gagnvart guðdóminum,
eða hreinir Og beinir heiðingjar.
Trúarsannindi kristninnar vilja
þeir og verða að strika út, til
að koma fram sínum guðlausu
áformum. Mannréttindi, kærleik
og sannleik meta þeir að engu
gagnvart náunganum, Og hika
ekki við að myrða hann með
köldu blóði, ef hann gerir kröfu
til að njóta sjálfsagðra mannrétt-
inda, samanber Ungverjaland,
Eystrasaltslöndin o. fl., o. fl.
Eg hef heyrt hérlendan komm-
únista segja á fjölmennum stjórn-
málafundi, að hér í landi þyrfti
að renna blóð. Svo að ekki fellur
þá eplið hér langt frá eikinnL
Næðu „höfðingjarnir“ í Kreml
yfirráðum hér í landi, mundu
þeir ekki taka okkur neinum
vettlingatökum. Þeir myndu afmá
okkar litlu þjóð og alla hennar
menningu. Kommúnistar hér á
landi eru ginningarfífl þessara
fanta Og láta þá teyma sig, án
möglunar, út í hvaða ófæru sem
er gagnvart þjóð sinni og bræðra
þjóðum.
Það hefir bandarískur stjórn-
málamaður sagt að ráðandi komm
únistar í Rússlandi ljúgi öllu og
sviki allt, sem þeir segja og lofa
í rnilliríkjamálum. Blað páfastóls-
ins segir meðal annars um komm-
únismann: „Þessi tilfinningar-
'lausa dýrkun efnishyggjunnar hef
ír ekki neinar hugsjónir, enga
trú og engan Guð.“
Það er vissulega ólík aðstaða —
menningarlega séð — á milli
þeirra, sem trúa á skaparann og
þexrra, sem trúa á mátt fjand-
ans í kommúnismanum. Eg hefi
heyrt hérlendan kommúnista
segja það að engir ættu hugsjón-
ir í heiminum nema kommúnist-
ar. Það, sem átt er við með orð-
inu hugsjónir, er að þá stefnir
hugur fólks í fullri einlægni að
því, sem er nauðsynlegt, háleitt
og göfugt og fullkomið. Þetta fólk
getur haft nautn af því að fórna
fyrir hugsjónir sínar en fæst
minna um tímanleg gæði og gerir
ekki kröfur til annarra, néma til
aukinna lifnaðarhátta. Allar
framfarir í mannheimi eru ár-
angur fólks, sem lifað hefir og
lifir fyrir hugsjónir. Sterkar hug-
sjónir geta orðið að vakningu í
orði Drottins. En þá er fólkið
komið á næsta svið mannlegra
hugsjóna, því að þær eru á vegi
trúarinnar. Hún er ekki eingöngu
undirstaða allrar menningar,
heldur menningin sjálf. Er þá
glöggt hvar kommúnisminn
stendur?
Hann er hugsjónalaus. En þjóð,
sem á ekkert hugsjónafólk er
dauð þjóð, menningarlega séð.
iÞví þarf vissulega að koma inn
hjá öllu fólki. Það mundi slá á
kommúnismann. Hér í landi rík-
velgja í hugsun fólks, gagnvart
þessari voðalegu stefnu, sem
kommúnisminn er. Fólk hér á
landi skortir mjög tilfinnanlega
hreinar línur í hugsun sinni, í
stjórnmálum, í trúmálum o. s.
frv. Hugsanagrauturinn — að
gera ekki hrein skil milli þess,
sem er eftirsóknarvert og þess,
sem miðar til tjóns fyrir þjóðar-
sálina — er vissulega ekki sigur-
sælt. En þessi sálarlegi kvilli þjá-
ir fjölda fólks í landinu. —
Svo langt hefir þetta gengið
hér gagnvart kommúnismanum,
að þjónar Rússa hér hafa skipað
sæti í ráðherrastólum og forseta
stólum á Alþingi. Á sama tíma
hafa nágrannaþjóðir okkar losað
sig við þennan ófögnuð, sem
kommúnisminn er. íslenzku þjóð-
inni er það mikill álitshnekkir
meðal menningarþjóðanna að
kommúnisminn skuli vera svo að-
sópsmikill í landinu sem raun ber
vitni, af því þær vita að hann
er hættulegur allri monningu og
míðar til ills eins. Þar, sem
mikil menning er, hefir hann eng
an farveg.
Atlantshafsbandalagið er stofn-
að til að vernda þjóðirnar fyrir
þessu hræðilega afli, kommúnism
anum. íslenzkir kommúnistar
vilja hrekja þjóðina úr því skjóli,
sjálfsagt að boði húsbændanna í
Kreml. En án Atlantshafsbanda-
lagsins getur þjóðin alls ekki ver-
ið, eins og nú horfir. —
Eg hefi að sjálfsögðu oft átt
tal við kommúnista. Mér hefir
fundizt sameiginlegt með þeim,
hvað sálin er lítil í þeim, jafn-
vel þótt þetta séu rithöfundar.
Það er af því að þeir elska hvorki
né virða Guð og ekki heldur hið
göfugasta í fari mannsins og eru
hugsjónalausir.
Flokkadrættirnir í stjórnmálum
hér á landi eiga mikla sök á því,
hve kommúnistar eru fyrirferð-
armiklir hér. Flokkarnir hafa
beinlínis og óbeinlínis, með of
miklu þrasi og í þeirri óheilla-
vænlegu von, að þeir gætu eflt
sína flokka með stuðningi komm-
únista, haldið þeim í vexti í land-
inu. Nú þegar það er augljóst
að sæmd þjóðarinnar Og sjálf-
stæði eru í veði, ef kommúnism-
inn næði hér yfirráðum, ættu
hinir innlendu stjórnmálaflokkar
að sjá sóma sinn í þessu máli og
leggjast allir á eitt um það að
útrýma kommúnismanum úr
landinu.
Við öll, sem viljum okkar þjóð
gæfu og gengi til vaxandi menn-
ingar, verðum nú þegar að hefja
harða baráttu til að losa hana við
kommúnismann. í þeirri baráttu
verður að skýra línurnar: Segja
eins Og er að kommúnistar hér,
sem vinna fyrir Rússa eru ginn-
ingarfífl þeirra eru landráðamenn
eru hugsjónalausir, ganga eins og
blindir inn í heiðindóm, og dæma
þar með sjálfa sig úr leik sem
menningarfólk. En við megum
ekki hata þá, heldur í fullum
drengskap reyna óaflátanlega að
géra úr þeim nothæft fólk fyrir
þjóðfélagið.
íslenzka þjóðin er nýlega slopp-
in undan erlendu valdi. Ef hún
lenti undir Rússann væru taldir
dagar hennar. En þetta væri bara
orðið, ef við nytum ekki sam-
taka þjóðanna á móti þessum ó-
fögnuði.
Hjá ýmsum þjóðum liggur líf-
látsdómur við landráðastarfsemp
Eg er persónulega mótfallinn öll-
um líflátsdómum. Hér á landi
getum við og verðum að útrýma
kommúnismanum í „köldu stríði".
Líta má á það, að í raun Og veru
eru kommúnistar brjóstumkenn-
anlegir. Þeir eru andlegir sjúk-
lingar af því kommúnisminn er
andleg pest. — Þetta fólk er eins
og dæmt til þess að þjóna fjand-
anum. Þetta er sannleikur, sem
kommúnistar geta ekki skilið Og
verður varla skilinn af miklum
þorra annars fólks í landinu, sem
er undir sefjun og situr fast í
hálfum lærdómum gagnvart krist
inni kenningu. Almenn trúarleg
vakning, sem þjóðina skortir
mest af öllu, mundi verða beitt-
asta vopnið til útrýmingar komm
únismanum úr landinu.
Við verðum að trúa því, að
hinn góði málstaður í menningu
þjóðanna sigri að lokum og þá
verður harðstjórn, yfirdrottnun,
einvaldsstefna og guðleysi komm-
únismans að láta i minni pokann.
Eg bið alla góða krafta að
koma í veg fyrir það, að okkar
iitla íslenzka þjóð verði komm-
únismanum að bráð. Það er mik-
ið veikleikamerki í menningu
þjóðarinnar, að kommúnisminn
skuli vera til í landinu. Það hef-
ir vitúr maður sagt: „Sá sem
afneitar hinum eina sanna Guði,
föður allra manna, hann eyði-
ieggur í sjálfum sér og öðrum
allt siðgæði, meðaumkvun, bróð-
urást Og að lokum manneðlið
sjálft.“
Vantrúin, trúleysið á skapar-
ann, sem leiðir af sér hugsjóna-
leysi, er banvænt eitur fyrir þjóð
arsálina og loka henni leiðir
til vaxandi menningar og til við-
halds andlegra verðmæta.
Jón H. Þorbergsson
Samvínnuskólinn 1941
Vegna fyrirhugaðrar afmælissamkomu eru nem-
endur útskrifaðir úr Samvinnuskólanum vorið 1941
vinsamlega beðnir að hafa samband við Hermann
Þorsteinsson, Sambandshúsinu, Reykjavík —
sími 17080.
Undirbúningsnefndin.
Blikksmiðir
og aðstoðarmenn óskast.
Blikksmiðjan Sorli
Sörlaskjóli 66.
Sendisveinn
Röskur og ábygsilegur sendisveinn óskast
hálfan daginn.
CUDOGLER H.F.
Brautarholti 4.
Punkt suðuvél
ákast til kaups eða leigu.
Upplýsingar í síma 36562.
Sendisveinn óskast
strax hálfan eða allan daginn.
Heildverzlun
KRISTJÁNS Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
Einbýlishús
við Akurgerði 6 herbergi og bílskúr. Láust til
íbúðar fljótlega. Sanngjarnt verð.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl.
Laufásvegi 2 — Sími 19960.
ANGLIA De Luxe
ANGLIA De Luxe bifreiðin hefir fjögurra strokka
toppventlavél, 41 hestöfl.
ANGLIA De Luxe hefir fjögurra gíra gírkassa.
ANGLIA De Luxe er bifreiðin, ásamt Ford Consul
315, með hina sérstöku gerð á afturrúðu sem fyrir-
byggir, að á hana setjist snjór, vatn eða óhreinindi,
því ætíð óhindrað útsýni yfir umferð sem á eftir
kemur.
VERÐ FRÁ 128 ÞOSUND KRÓNUM.
Leitið nánari upplýsinga.
' FORD-nmboðið
KR. KRISTJÁNSSOIM HF.
Suðurlandsbraut 2 — Sími‘ 35-300.
Rafvirkjar — Bílaverkstæði
Prófunartæki
fyrir anker og
statora.
Fyrirliggiandi.