Morgunblaðið - 11.10.1961, Síða 14
14
MORGUTSBLÁÐlb
Miðvikudagur 11. okt. 1961
Ég þakka innilega þeim mörgu, sem glöddu mig og
sýndu mér vináttu á sextíu ára afmæli mínu 7. þ.m. með
heimsóknum, gjöfum, símtölum, blómum og skeytum.
Guð blessi ykkur.
Kristín Friðriksdóttir,
Grettisgötu 4, Reykjavík.
Eiginmaður minn og íaðir okkar
ÞÓRARINN BENEDIKZ
lézt 2. október. Útförin hefur farið fram. Þökkum inni-
lega sýnda samúð.
María Benedikz og synir.
Útför konunnar minnar
AÐALHEIÐAR AÐALSTEINSDÓTTUR
frá Þúfnavöllum
og LITL.A SONAR okkar
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtud. 12. okt. kl. 10,30
f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sævar Sigurpálsson.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
HELGU JÓNSDÓTTUR
(áður til heimilis að Þrastagötu 9),
fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 12. þ.m. kl. 13,30.
Jarðað verður í kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Jón Jónsson frá Þinganesi,
og börn hinnar látnu.
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
HÓLMFRÍDAR BJÖRN SDÓTTUR
frá Litla Hálsi í Grafningi,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. október
kl. 1,30.
Jóhannes Helgason, Eirný Guðlaugsáóttir,
Sigurbjörn Á. Einarsson, Helga Halldórsdóttir,
og barnabörn.
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
FRIÐRIKS HAFLIÐA LÚDVÍGSSONAR
Vesturgötu 11,
fer fram fimmtudaginr. 12. okt. kl. 2,30 frá Dómkirkjunni.
Anna Benediktsdóttir,
Guðmundur Friðriksson, Guðrún og Brían Holt.
Jarðarför föður okkar
INGVARS S. JÓNSSONAR
frá Seyðisfirði,
fer fram föstudaginn 13. október kl. 1,30 frá Foss-
vogskirkju.
Jón Örn Ingvarsson, Ólafur Ingvarsson
Jarðarför
HANNESAR GÍSLASONAR
frá Eskiholti,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. þ.m. kl. 3.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda .
Guðrún Halldórsdóftir, Sigfús Magnússon.
Jarðarför
VIGDÍSAR KRISTMUNDSDÓTTUR
Suðurgötu 26,
er andaðist 5. þ.m. fer fram föstudaginn 13. október
kl. 1,30 e.h. frá Fríkirkjunni. — Afþökkum blóm og
kransa.
Systur hinnar látnu.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall
og jarðarför
ÞORSTEINS LOFTSSONAR
véltræðiráðunauts.
Pálína Vigfúsdóttir, Sólveig Þorsteinsdóttir,
Erna Mattíasdóttir, Loftur Þorsteinsson,
Friðrika Geirsdóttir, Leifur Þorsteinsson,
Helga Snæbjörnsdóttir, Gústaf Þórðarson.
Um
bleyjur
Það vakti mikla kátínu, þeg-
ar fyrirtæki eitt hér í bæ
sendi okkur bleyjupakka „til
reynslu“. En þar sem allir eru
vaxnir úr grasi hér og löngu
hættir að nota bleyjur, send-
um við tveim systkinum í Há-
túni 5 pakkann. Þau heita Sól-
veig, sem er á fyrsta árinu, og
Gunnar, sem er á öðru árinu.
Umræddar bleyjur eru þann
ig úr garði gerðar að þær er
aðeins hægt að nota einu sinni.
Þær eru í lengjum, hæfilega
stór bútur er klipptur af og
settur á barnið, og honum síð-
an fleygt, þegar barnið er bú-
ið að væta sig.
Þegar við spurðam Gunnar
hvernig hann kynni við bleyj-
urnar, kom út úr honum runa
af allskyns orðum: ísa, bílla,
golla, eda, dudu, pabba, bíla —
en þau voru túlkuð jafnóðum
Listsmíði úr stáli í stað silf-
urs eru æ tíðari á listasýning-
um erlendis. Þessi fallega stál-
kanna var á sýningunni
„Svensk form“, teiknuð af
Folke Arström.
af móður hans. Sagði hún,
að þetta þýddi að hann væri
næstum hættur að nota svOna
hluti, þyrfti aðeins á þeim að
halda á morgnana, þegar hann
gerði „stórt“. Annars væri
hann farinn að segja til.
Sólveig litla brosti bara, þeg
ar við spurðum sömu spurning
ar. Brosið þýddi, að gott væri
að hafa lengjubleyjurnar með
í förum, þegar hún færi í heim
sókn til ömmu og allra frænk-
anna, og á daginn, þegar
mamma væri vakandi til að
skipta reglulega á henni. En
betra væri að hafa grisjubleyj
ur yfir nóttina, því þá vöknaði
hún svo mikið að lengjubleyj-
urnar leystust næstum upp.
En aðalkostinn við bleyjurn
ar taldi móðir hennar vera:
þær spara bleyjuþvott.
Fyrir altari Selárdalskirkju. Talið frá vlnistri: Sr. Þórarinn Þór,
sr. Tómas Guðmundsson, Sigurbjörn Einarsson biskup, sr,
Grímur Grímsson og Ingólfur Ástmarsson, biskupsritari.
Ljósm.: V.B.O.
Kirkfan í Selárdal 100 ára
Skötuselur út-
flutningsvara
SKÖTU SELURINN, eða öðru
nafni sædjöfullinn hefir lengi
verið talinn með þeim allra ljót-
ustu fiskum, sem hér við land
finnast. Það ætlar að verða eins
með þann fisk og marga aðra,
sem áður voru taldir til ónytja,
að hann færist ofar í virðingar-
stigum fiska, þá er erlendir fara
að leggja hann sér til munns, og
gróði fer að verða að veiði hans
og verkun. Á Hornafirði er nú
byrjað að verka skötusel, bæði
heilfrysta og flaka, og hefir
fyrsta salan farið fram. Næstu
daga tekur skip rúmt tonn af
heilfrystum og nokkra tugi kassa
af flökuðum skötusel og flytur
á Frakklandsmarkað. Gæti hér
orðið um að ræða nýja fiskteg-
und til útflutnings. (Úr „Fréttir
frá Sjávarafurðadeild SÍS“),
Vinna óskast
Norðlenskur búfræðingur sem
er 25 ára og hefur bílpróf ósk
ar eftir vinnu í Reykjavík
frá miðjum nóv. næstkom
andi, margskonar vinna kem-
ur til greina, frekari uppl.
gefur Jón Kjartansson sími
35381.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa.
Austurstræti 10 A — Sími 11043
BÍLDUDAL, 28. sept. — Kirkjan
í Selárdal í Arnarfirði átti 100
ára afmæli sl. sunnudag. Messað
var ki. 2,30 e.h. Biskup Islands,
herra Sigurbjörn Einarsson, end-
urvígði kirkjuna. í prédikunar-
stóli var sr. Tómas Guðmundsson,
sóknarprestur á Patreksfirði.
Einnig voru þarna viðstaddir
sr. Þórarinn Þór, prófastur á
Reykhólum, sr. Grímur Grímsson
prestur í Sauðlauksdal og biskups
ritari Ingólfur Ástmarsson. Kór
Patreksfjarðarsafnaðar söng. Við
Orgelið var Jón Bjarnason organ-
isti frá Patreksfirði. Formaður
Sóknarnefndar í Selárdal er
Elías Melsted hreppstjórL
Á sunnudaginn var veður hið
ákjósanlegasta, margt var um
manninn, sennilega 100—200
manns.
Gerðar hafa verið miklar endur
bætur á kirkjunni, sem var orðin
hrörleg. M. a. var kirkjunni lyft
upp og steyptir sökklar undir
hana, en kirkjan var talsvert sig-
in. Nýtt járn var sett á kirkjuna
alla, ýmislegt tréverk að innan
lagað, hún máluð að utan Og inn-
an, en fyrra form á henni breytt-
ist ekki. Umsjá með verkinu hafði
Davíð Jónsso* frá Reykjavík,
Bjarni Valdimarsson málari frá
Bíldudal sá um málun. — Hannes,