Morgunblaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 11. okt. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
15
Saknar starfsins í Norræna
ráðinu en ekki ríkisþingsins
Viðtal við Nils Herlits
EINN þeirra fraeðimanna, sem
sæmdur var nafnbót heiðurs-
doktors við Háskóla íslands á
laugardag, var Svíinn dr. phil. et
jur. Nils Herlitz, einn þekktasti
sérfræðingur um stiórnarfar og
stjórnlög, sem nú er uppi á
Norðurlöndum. Morgunblaðið
átti viðtal við hann á mánudags-
morgun, en það varð styttra en
etni stóðu til, þar eð prófessor
Herlitz hafði kennt lasleika dag-
inn áður, og var enn fremur
máttfarinn.
— Þér hafið bæði kennt sögu
og lögfræði við háskóla, er ekki
svo?
— Jú, upphaflega var ég docent
í sögu við Uppsalaháskóla, en
á'hugi minn beindist smám sam-
an að stjórnarfarsrétti. Fyrsta
verk mitt var um pólitík Karls
XII, en síðar skrifaði ég sögu
Ibæjarstjórnar í Svíþjóð. Það
verk var e.k. millistig, áður en
ég sneri mér að lögfræði og lauk
prófi í henni. Sérgreinar mínar
eru ríkisréttur og þjóðaréttur, og
érið 1927—1955 var ég prófessor
í lögum við háskólann í Stokk-
hólmi. 1938 hélt ég fyrirlestra við
háskóla í Bandarikjunum.
— Hvað fáizt þér einkum við
um þessar mundir?
— Seinustu árin hef ég lítið við
ennað sýslað en samningu geysi-
mikils ritverks, „Nordisk Offent-
lig Rett“. Fyrstu tvö bindin eru
komin út. í því sambandi hef ég
feynt að ráða mig fram úr
,4,Stjórnarfarsrétti“ eftir Ólaf Jó-
hannesson. Ég skil að vísu ekki
mikið í íslenzku, en get þó skilið
nokkurn veginn víðast hvar, við
hvað er átt. Hér hef ég svo feng-
ið aðstoð lögfræðinga við að lesa
bókina.
— Þér hafið haft talsverð af-
skipti af stjórnmálum.
— Á tímabili gerði ég það. Ég
var kosinn fulltrúi hægri flokks-
ins á ríkisþingið 1939 og sat á
þingi í 17 ár.
— Hvað viljið þér segja um
stjórnmálaástandið í Svíþjóð?
— Ég vil helzt tala sem minnst
um það, þar sem ég er ekki leng-
ur virkur þátttakandi í stjórn-
málabaráttunni. Ég sit við skrif-
borðið og stunda fræði mín, sem
liggja á öðru sviði. Ég er ekki
nógu vel að mér lengur um gang
stjórnmálanna.
.— En viljið þér segja nokkuð
um samstarfstilráunir borgara-
flokkanna?
— Þær ganga ekki nógu vel.
Hægri flokkurinn og Þjóðflokk-
urinn standa nærri hvor öðrum,
en sá síðarnefndi kærir sig e.t.v.
ekki um of náið samstarf af ótta
við, að ýmsir hópar innan hans
myndu þá fara yfir um til Hægri
flokksins. Samstarfið ætti að
vera betra en það nú er. Það er
að visu töluvert, en þó ekki svip-
að því eins mikið og t. d. sam-
vinnan milli Vinstri manna og
íhalcLsflokksins í Danmörku. Hins
vegar er allt samstarf við Mið-
flokkinn (Bændaflokkinn) örð-
ugra, því að þeir reyna ávallt að
stjórna hlutunum eftir sínu höfði.
Þeir hafa líka viss tengsl við
Sósíaldemókrataflokkinn.
— Þér hafið dvalizt hér áður?
— Já, tvívegis. í fyrra skiptið
kom ég hingað árið 1936 til þess
að halda fyrirlestur á „sænsku
Nils Herlitz
vikunni", sem þá var haldin hér.
Það voru yndislegir og ógleym-
anlegir dagar. Næst kom ég hing
að í ágúst 1955. Þá var ég aðal-
forseti þings Norræna ráðsins.
Ég tel mig einn upphafsmanna
Norræna ráðsins, og ég ber mál-
efni þess æ fyrir brjósti. Norræna
ráðið er mér mikið hjartans mál.
Ég sakna starfsins þar, en ég
sakna ríkisþingsins ekki.
Langhelle
endur k j örinn
OSLÓ, 6. okt. — Einkaskeyti til
Mbl. Nils Langhelle var end-
urkjörinn forseti Stórþingsins í
dag en embætti varaforseta féll
í hlut Hægri flokksins. — Skúli.
S íldarverksm jð|usamtök
Austur- og Norðurlands
STOFNUÐ hafa verið samtök
þeirra verksmiðja á Austur- og
Norðurlandi, sem vinna sumar-
veidda síld og eru í eign ein-
etaklinga, félaga og bæja- eða
rveitarfélaga, en innan þeirra
•ru síldarverksmiðjur, er bræddu
*im helming þess síldarafla, sem
*1. sumar fór í bræðslu. Nefnast
eamtökin Síldarverksmiðjusam-
töik Austur- og Norðurlands,
ekammstafað S.A.N. og eru stað
•ett á Akureyri.
Aðaltilgangur samtakanna er
dð vinna að hagsmunamálum
verksmiðjanna, m.a. að því: 1.
Að tekið verði tillit til sjónar-
miða þessara samtaka um verð-
lagningu hráefnis. 2. Að endur-
bæta skipulagningu á sölu af-
urða, sjá um athugun á hag-
kvæmum innkaupum reksturs-
vara og miðlun tæknilegra upp-
lýsinga. 3. Að samtökin styrki
meðlimi gína við útvegun rekst-
ur« og stofnlána.
Tildrög stofnunar þessara sam
taka voru þau að haustið 1960
komu fulltrúar frá síldarverk-
smiðjum á Austur- og Norður-
landi saman til fundar í Egils-
staðakauptúni, en hvatamaður
þess var Guðmundur Guðlaugs-
son, framkvæmdastjóri Krossa-
nesverksmiðjunnar. Var þá kos-
in undirbúningsnefnd til stofnun
ar samtakanna en hana skipuðu
Thor R. Thors, Reykjavík, Sigur
jón Þorbergsson, Vopnafirði og
Jóhannes Stefánsson, Neskaup-
stað. Hélt hún fund á Hjalteyri
í byrjun september og varð síð-
an boðað til stofnfundar á Akur
eyri 23. þ.m.
í Stjórn voru kosnir: Vésteinn
Guðmundsson, Hjalteyri formað-
ur, Sigurjón Þorbergsson, Vopna
firði, gjaldkeri, Jóhannes Ste-
fónsson, Neskaupstað, varafor-
maður og varamenn Gunnlaugur
Jónasson, Seyðisfirði, Thor R.
Thors Reykjavík og Kristinn
Jónsson, EskifirðL
BARNIÐ fær fyrstu tennurn-
ar um 6 mánaða gamalt og
tveggja ára, er það oftast bú-
ið að fá allar barnatennurn-
ar. Nauðsynlegt er að hirðing
tannanna hefjist eins fljótt og
auðið er og alls ekki síðar en
þegar barnið er tveggja ára,
svo að hreinsun tannanna
verði því eins sjálfsögð og að
Hiröing tanna
þvo sér um hendurnar og and-
litið.
Tennurnar þarf að bursta að
lokinni hverri máltíð og um-
fram allt að sofa með hreinar
tennur.
Börnin eru ekki sjálf fær
ixm að annast hreinsun tanna
sinna fyrr en þau eru 7—8 ára
gömul og jafnvel eftir þann
aldur þurfa foreldrarnir að
fylgjast vel með því, að tann-
burstunin sé rétt framkvæmd.
Við burstun ber að gæta
þess að hár burstans nái inn
milli tannanna í skorur og ó-
jöfnur á öllum flötum þeirra
og fjarlægi leifar, sem þar
kunna að leynast. Ein aðferð
er sú, að leggja burstann þann
ig að tönnum þeim, sem
hreinsa skal, að hár hans bein
ist að rótum. þeirra og leggist
skáhallt að tannholdinu, en
dragist síðan niður eftir því
og eftir yfirborði tannanna í
átt að bitfleti þeirra. Þannig
eru tennur efri góms burstað-
ar niður, en neðri tennur upp
á við; bitfleti skal bursta fram
og aftur.
Tannbursti á að vera nægi-
lega lítill til þess að auðvelt
sé að koma honum að öllum
flötum tanna að utan og inn-
an. Burstunarflötur hans skal
vera beinn og hárin stinn.
Bezt er að eiga tvo bursta,
nota þá til skiptis, hreinsa þá
og láta þorna vel milli notkun-
ar. —
(Frá Tannlæknafélagi ísl.).
Yfirmerm á sildarbátum
vilja fá ákveðið
verð á haustsíldirmi
LAUGARDAGINN 30. septem-
ber sl. boðaði stjórn Farmanna-
og fiskimannasambands íslands
til sameiginlegs fundar í Reykja
vík með yfirmönnum á síldveiði-
skipum við Faxaflóa. Tilefni fund
arins var mikil óánægja yfir-
manna útaf því, að ekki hefir
ennþá verið ákveðið verð á haust
síldinni, hvorki í salt, frystingu,
bræðslu, eða annarar vinnslu. —
Fundinn sóttu um 50 yfirmenn á
síldveiðiskipum við Faxaflóa og
urðu miklar umræður um ýms
hagsmunamál sjómanna á síld-
veiðiskipunum. Eftirfarandi á-
lyktun var samþykkt samhljóða:
„Fjölmennur fundur yfirmanna
á fiskibátaflotanum haldinn að
Bárugötu 11 hinn 30. sept. 1961
skorar á ríkisstjórn og viðkom-
andi aðila, að ákveða nú þegar
verð á Suðvesturlandssjld og að
undirbúin verði móttaka og hag-
nýting aflans þannig, að þessar
veiðar megi koma að sem mest-
um notum fyrir sjómenn, útgerð
armenn og þjóðina í heild. Fund
urinn lýsir megnri óánægju yfir
því sleifarlagi, sem verið hefir
á verðlagningu og nýtingu sjávar
afurða á undanförnum árum.
Fundurinn kaus fimm manna
nefnd til þess að fylgja þessum
málum eftir og hlutu eftirtaldir
menn kosningu.
Andrés Finnbogason, skipstjóri
Reykjavík, Gunnar Hermanns-
son skipstjóri Hafnarfirði, Egg-
ert Gíslason skipstjóri Árbæ
Garðahreppi, Ingimundur Ingi-
mundarson skipstjórf Akranesi,
Einar Guðmundsson skipstjóri
Keflavík.
Fundarmenn voru sammála
um, að teljast mætti ótímabært
að hefja síldveiðar fyrr en ákveð
ið hefði verið fast verð á haust-
síldinni til allrar vinnslu og var
skorað á sjómenn og viðkomandi
útgerðarmenn, að sameinast um
aðgerðir í því efni.
Fundurinn skoraði ennfremur
á alla þá yfirmenn á fiskibátaflot
anum, sem kynnu að vera ófé-
lagsbundnir, að láta án tafar skrá
sig í viðkomandi félag. Að öðr-
um kosti væri hætta á, að samn-
ingsbundin tryggingarskylda á-
samt fleiru gæti fallið niður.
(Fréttatilkynning frá Farmanna
og fiskimannasambandi íslands)
Mannfall
í Vietnam
SAIGON, 7. okt. (AP) — Stjórn
Suður-Vietnam skýrði frá því í
dag, að herir hennar hefðu síð-
ustu 14 dagana fellt 374 kommún-
íska uppreisnarmenn og væri
þetta fremur rólegt tímabil. Harð
ari átök virtust hins vegar vera
framundan. — Ekki liggja á
lausu opinberar tölur um mann-
fall í liði Suður-Vietnamstjórnar,
en nýlega var því haldið fram. að
um 1500 suður-víetnamiskir
menn létu lífið hvern mánuð.
Siiffóniuhljómsveit íslands
Ríkisútvarpið
Fyrstu tónleikar ársins í Háskólabíói á fimmtudags-
kvöld kl. 9.
Verkefni:
Dvorák, Mendelssohn og Rimsky-Korsakoff
Einleikari:
M. RABIN
Áskriftir fást í Ríkisútvarpinu. Lausir miðar seldir
í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og Lárus-
ar Blöndal.
Penrose Annual 1961
Nauðsynleg handbók fyrir
prentara. teiknara
og bókautgefendur
Smty örtutonssím& Co.h.f
THE ENGLISH B00KSH0P
Hafnarstrœti 9 — Símar 1/936 10103