Morgunblaðið - 11.10.1961, Síða 16
16
MORCVNBLAÐlÐ
Miðvikudagur 11. okt. 1961
Gaboon nýkoanið
Þykkt
16 mm
19 —
22 —
Stærð Verð:
4x8’ 526.00
4x8’ 606.75
4x8’ 682.00
Kristján Siggeirsson hf.
Laugavogi 13 — Sími 13879.
D ÖM U R!
Dagkjóltu og kvöldbjólar
HJÁ BÁRU
Austurstræti 14.
íbúð óskast
4—6 herbergja íbúð, helzt í grennd við Miðbæinn
óskast til leigu frá 1. nóv. n.k.
ÖRN BJARTMARS, tannlæknir
Sími 24828 og 10933 eftir kl. 8 á kvöldin.
Húsnœöi til sölu
5—6 herbergja hæðir í byggingu og langt komnar
í tvíbýlishúsum. Stærð 138—153 ferm.
Víða allt sér.
Einbýlishús í Vogehverfi. Á 1. hæð 2 stórar stofur,
eldhús o. fl. Á 2. hæð 4 herbergi, baði o. fl.
Steinhús ca. 4ra ára. Mjög góð lán áhvílandi
með lágum vöxtum.
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi.
3—4 herbergja íbúðir víðs vegar í bænum í byggingu
og fullgerðar.
2ja herbergja íbúðir í byggingu.
4ra herbergja hæð fullgerð á 3. hæð í vesturenda á
sambýlishúsi við Stóragerði. Innrétting með því
bezta, sem gerist. íbúðarherbergi fylgir í kjallara.
Upplýsingar eftir kl. 20 í síma: 34231.
ÁRNI STEFÁNSSON hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími 14314.
— Kennedy
Frh. af bls. 10.
forstöðumaður skipulagsdeild-
ar bandaríska utanríkisráðu-
neytisins.
• „Hættulega" valdamikill?
„ KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR *
Elzti maður „eldhúsráðu-
neytisins“ hjá Kennedy er
ekki gamall í starfi. Hann er
Maxwell Taylor, sem er sér-
legur hermálaráðgjafi forset-
ans. Hann er rétt orðinn sex-
tugur. Þegar Kennedy út-
nefndi hann sem hermálaráð-
gjafa sinn í sumar, skömmu
eftir að hin misheppnaða inn-
rás var gerð á Kúbu (sem
margir töldu sérstakan ósigur
fyrir Bandarikjastjórn), tóku
ýmsir það sem tákn þess, að
forsetinn teldi sig vanhaga
um ráð reyndari manna en
þá þegar skipuðu „eldhúsrúðu-
neytið“. — Maxwell 'Taylor,
hefir langan hermennskuferil
Og glæsilegan að baki sér.
Hann var t. d. á sínum tíma
yfirhershöfðingi í Kóreu og
í Berlín — og á síðari árum
vakti hann sérstaka athygli
á sér fyrir gagnrýni sína á
varnarmálastefnu Eisenhow-
ers, sem hann taldi byggja
allt Of mikið á kjarnorkuvopn-
um. Undanfarið hafa heyrzt
ýmsar raddir um það, að
Taylor sé ,,hættulega“ valda-
mikill — að Kennedy fari að
ráðum hans fremur en nokk-
urs annars, ekki aðeins í varn-
armálum, heldur og að því er
varðar utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna yfirleitt.
• Aldrei hvild /
Eins og áður segir, þykir
mörgum sem Kennedy sé
störfúm hlaðinn mest-allan
sólarhringinn — og þykir nóg
um. Telja þeir, að hann muni
slíta sér út löngu fyrir tímann.
— Hvað sem um það er, má
tilfæra ummæli konu hans,
Jackie Kennedy, sem hún við-
hafði í sjónvarp rétt áður en
þau héldu í Evrópuför sína í
vor, sem léið. Þá sagði hún
um mann sinn:
— Hann er maður, sem
kann alls ekki að slaka á spenn
unni eða taka sér fri frá starfi.
Þeir, sem bezt þekkja til,
telja þetta nokkuð rétta lýs-
ingu á vinnubrögðum forset-
ans: Hann virðist a. m. k.
sinna embættisstörfum á hin-
um ólíklegustu tímum, því að
samstarfsmenn hans geta
aldrei vitað fyrir fram, hvenær
hann gefur mikilvægar fyrir-
skipanir.
Þannig var það t. d. einu
sinni með Sörensen, sem fyrr
var nefndur. Hann var skyndi
lega kallaður til svefnherberg-
is forsetans. Kennedy var þá.
að hafa fataskipti vegna mið-
degisverðar, er hann átti (sam-
kvæmt fyrir fram gerðri dag-
skrá) að sitja með erlendum
sendimanni. — Þegar Sören-
sen kom á fund Kennedys,
bað forsetinn undirmann sinn
að skrifa hjá sér eftirfarandi
athugasemdir í sambandi við
heildaráætlun ríkisstjórnarinn
ar um varnarmal:
— Frekari framleiðsla B-70
sprengjuflugvéla skal stöðvuð.
í -stað tveggja sveita Títan-
eldflauga, sem hingað til hefir
verið gert ráð fyrir í varnar-
málaáætluninni, skal nú leggja
megináherzlu á framleiðslu
Minuteman-eldflauga. — í
sama boðskap tilkynnti
Kennedy og, að 100 milljónir
"dollara, sem áður hafa verið
gert ráð fyrir að verja til
smíði varnareldflauga af gerð-
inni Nike-Zeus, skyldu nú
sparaðar til annarra hluta, er
kynnu að þykja mikilvægari.
Eftir þennan úrskurð var for
setinn tilbúinn til miðdegis-
verðar.
HAFNARBÍÓ:
Afbrot Iæknisin:
Mynd þessi er amerisk, tekin í
litum. Leikstjórinn Michael Gor-
don, er með þekktustu leikstjór-
um kvikmynda í Bandaríkjunum
og þykir gefa þeim myndum, sem
hann stjórnar, fastan og glæsileg
an stíl. Það leynir sér heldur
ekki að mikill kunnáttumaður
hefur annazt leikstjórnina á
þeirri mynd sem hér er um að
ræða. Efni myndarinnar er áhrifa
mikið og á því haldið af næm-
um sálfræðilegum skilningi.
Segir þarna frá leynilegum ást-
um þeirra Davids Rivera læknis
og Sheila Cabot, konu hins auð-
uga skipaeiganda Matthews
Cabot’s, en hann liggur sjúkur,
lamaður að mestu. David læknir
ætlar að fara á brott og slíta sam-
bandi sínu við Sheilu. Er hún
þrábiður lækninn að fara ekki
frá sér. Læknirinn á nú í miklu
sálarstríði, og grípur til þess
óhelláráðs að gefa Cabot sjúkl-
ingi sínum of sterkan skammt af
kvalastillandi lyfi, með þeim
afleiðingum að Cabot deyr. —
Engan grunar neitt, að þeim
virðist, — en dag einn fær þó
Sheila bréf óundirritað, þar sem
henni og lækninum er óskað til
hamingju með velheppnað morð.
Þeim hjúunum bregður illilega
við þetta bréf og David er ljóst,
að bréfritarinn verður líka að
deyja. En hver er hann? Það er
helzt um þrjá menn að ræða:
bílstjóra frúarinnar, Cob að nafni
Howard M'ason, lögfræðing Matt-
hews, sem lengi hefur verið ást-
fanginn af Sheilu og Blake Ric-
hards, ungan mann, sem er unn-
usti Cathy, dóttur Mathews af
fyrra hjónabandi. — Howard
lendir kvöld eitt í mikilli sennu
við Sheilu, en Davið ber þá að og
skýtur Noward til bana. Berast
böndin að Blake um morðið á
Howard, en s'akleysi bans sann-
ast. Catley er orðið áskynja um
ástir stjúpmóður sinnar og lækn-
isins, og fer því að gruna margt.
Læknirinn eltir hana en hún flýr
undan honum og lýkur þá mynd-
inni á mjög dramatískan hátt.
Mynd þess er afburðavel gerð
og e’ftir því vel leikin. Hinn bráð-
snjalli leikari Anthony Quiun
leikur David læknir af mikilli
snilld. Lana Turner ieikur Sheilu
og er leikur hennar ærið sviplaus
— Utan úr heimi
•
Framhald af bls. 12.
framkvæmdastjóra í stað Hamm-
arskjölds.
* Á SAMA STAÐ OG FYRIR
15 ÁRUM
Lökaályktun Lippmanns er sú,
að niðurstaða deilunnar um
framkvæmdastjóra SÞ verði
sennilega á þann hátt, að kjörinn
verði „valdalítill framkvæmda-
stjóri“. Hann verði ekki hlutlaus
með sama hætti og Hammar-
skjöld — sem „opinber starfs-
maður“ alls heimsins. Hins megi
vænta, að hlutleysi hans felist
í því, sem almennt sé neínt' að-
gerðaleysi. „Sameinuðu þjóðirn-
ar munu þá aftur standa í sömu
I sporum og fyrir 15 árum — sem
umræðuvettvangur“, segir Lipp-
mann. — Hins vegar bendir hann
á, að þar með megi ekki dæma
SÞ gagnslausar með öllu. Nauð-
syn vettvangs til alþjóðlegra við-
ræðna sé augljós í heimi, þar sem
svo margar „nýjar“ þjóðir séu
að reyna að finna rétta leið til
framtíðar sinnar. — Og, enda
þótt búast megi við, að fram-
kvæmdavald SÞ verði skert, beri
að hafa í huga, að innan samtak-
anna verði ráðandi menn, sem
ekki muni gleyma því, að sýnt
. hefir verið fram á möguleikann
* til að gera meira og ná lengra.
við hlið Quinns, en hins vegar er
leikar þeirra Sandra Dee í hlut-
verki Cathy’s og John Saxon’s í
hlutverki Blake’s mjög góður
TRÍPOLÍBÍÓ.
Sæluríki í Suðurhöfum.
Mynd þessi er frönsk-ítölsk og
fjallar um lífið á einni af hinum
mörgu Kóraleyjum í Kyrrahafi.
Hér er ekki um neinn vanalegan
söguþráð að ræða, heldur lýst
hinum frumstæða. en fagra og
hamingjusama lífi eyjaskeggja,
eins og það er enn í dag. Ber
þarna margt athyglisvert og sér-
stætt í lífi fólksins fyrir augu
áhorfandans, en fyrst og fremst
er það glaðværð og góðsemi
hinna frjálslegu náttúrubarna og
fegurð landsins, sem þau byggja
er heillar áhorfandann. Myndin
hlaut á sínum tíma verðaun á
kvikmyndahátíðinni í Berlín.
Ég hygg að flestir hafi ánægju
af því að sjá þessa sérstæðu og
fögru mynd, sem tekin er í litum.
úr LJulckuó
II lufauA 6nr\i I n i
Stá/uöfuf
íikjuV^óf Jónusor\ Sí co
f/í<ÍVwai','.L»‘n’tr l|.
Sendisveinn
óskast
hálfan eða allan daginn, eða
jafnvel hluta úr degi.
Prentsmiðja
Jóns Helgasonar
Bergstaðastræti 27.
Til sölu uieð
tækífærisverði
þvottavél (Hoover), hrærivél
borðstofuborð og stólar, eld-
húsborð og kollar dívanar o.
fl. Til sýnis eftir kl 7 í kvöld
og annað kvöld að Lyngási
Mosfellssveit (Reykjahverfi).
Nýir bilar
Ford Taunus ’61 2ja dyra
De Luxe gerð með útvarpi
og stærri gerð af vél.
Mercedes Benz ’61 glæsilegur
bíll, að mestu ókeyrður.
Bílasala Guðmundar
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 36870.
Reykjavik
Kópavogur
Óskum eftir 3ja herb. íbúð í
Reykjavík eða Kópavogi. Fyr
irframgreiðsla getur komið til
greina. Vinsamlegast hringið
í síma 12896 milli kl. 5 og 7
í kvöld og annað kvöld.