Morgunblaðið - 11.10.1961, Side 24
Rogalandsbréf
Sjá blaðsíðu 8.
Kvennadálkar
Sjá bls. 14.
230. tbl. — Miðvikudagur 11. októbcr 1961
WNGSTÖRFTN AÐ HEFJAST. — Myndin var tekin í Arþingishúsinu í gær og sýnir þrjá aí
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þá Bjartmar Guðmundsson frá Sandi (t.v.), Birgi Kjaran og
Svein S. Einarsson, en sá síðastnefndi tekur nú sæti á þingi í fyrsta sinn. (I.jósm-: Ól. K. M.)
Járnskortur algengur kvilli
ísl. kvenna á barneignaraldri
Blátind rak í rúma
tvo sólarhringa
Þórshöfn í Færeyjum, 10. okt.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt einkaskeyti frá Færeyjum
með frásögn af hrakningum Blá-
tinds GK. Þar segir svo:
Vélarbilun varð í Blátindi 11
tímum eftir að hann hafði lagt
upp frá Þórshöfn á miðvikudags-
kvöld. Svartaþoka var á, þegar
bilunin varð. í ljós kom, að
olíuþrýstidæla var í ólagi, og að
ein legan hafði brætt úr sér.
Áhöfnin reyndi sjálf að gera við
vélina, en án árangurs. Rak bát-
inn allan fimmtudaginn og að-
fararnótt föstudags, en á föstu-
dagsmorgun sendu skipverjar út
neyðarskeyti. Þá var enn þoka
Og þungur sjór. Brezki togarinn
Lochdoon fór þá Blátindi til
hjálpar og íslenzkt skip sömuleið
is, en hvorugu tókst að finna Blá-
tind, þar sem miðurnartæki
þeirra voru ekki nógu góð. Síðar
náði Halkíon VE, sem var á leið
til Hamborgar með ísfisk, sam-
bandi við Blátind. Gat hann mið-
að Blátind út og fann hann kl.
7.45 á laugardagsmorgun. Var
nú Blátindur tekinn í tog og dreg
inn til Þórshafnar, en þangað
var komið á miðnætti aðfaranótt
f NÝÚTKOMNU hefti af
Læknablaðinu er grein eftir
Theodór Skúlason og Guðmund
Georgsson, er nefnist: Búa ís-
lenzkar konur við járnskort?
Er niðurstaða greinarhöfunda
sú að járnskortur virðist algeng
ur kvilli íslenzkra kvenna á
barneignaraldri. Telja þeir að
skipulegar athuganir til að
ganga úr skugga um þetta
þurfi að fara fram, þar eð bæta
mætti með einföldum ráðum úr
vanheilsu þessa stóra hóps þjóð-
arinnar. Eðlilega skýringu á
mismuninum á kynjunum í
þessu sambandi telja þeir aukið
járntap kvenna á því ævi-
skeiði, er þær hafa á klæðum.
Skoðun sína byggja læknarn-
ir á athugun, er þeir gerðu á
4013 sjúklingum á lyflæknis-
deild Landspítalans á áratugn-
um 1950—1959. Voru í hópnum
álíka margir karlmenn og kon-
ur, eða 1942 karlar og 2071
kona. Hins vegar reyndist mik-
ill munur á tíðni blóðleysis í
konum og körlum. Af konum
reyndust 38.5% blóðlitlar en
21.3% karlanna. Kom þessi mis-
munur eftir kynjum enn skýrar
fram er vinsaðir höfðu verið úr
þeir sjúklingar, sem haldnir
Gaiðahreppur
FYRSTA spilakvöld Sjálfstæðis-
félags Garðahrepps verður annað
kvöld, fimmtudaginn 12. okt. kl.
8:30 síðd. í samkomuhúsinu á
Garðahöltinu.
í vetur verður spilað annan
hvern fimantudag eða 5 sinnum
til áramóta. Verðlaun verða veitt
hvert kvöld en auk þess heildar-
verðlaun fyrir allan veturinn, en
þau eru hringferð uin landið.
Allt Sjálfstæðisfólk og gestir
þess er velkomið.
HÉRAÐ8IUOT
Sjálfstæðismanna
að Félagsgarði í Kjósarhreppi
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna verður að Félagsgarði
í Kjósarhreppi, laugardaginn 14. október klukkan 21.
Á móti þessu munu þeir
Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, og Matthías
Á. Mathiesen, alþm., flytja
ræður.
Flutt verður óperan La
Serva Padrona eftir Pergo-
lesi. — Með hlutverk fara
óperusöngvararnir Sigurveig
Hjaltested og Kristinn Halls-
son og Þorgils Axelsson,
leikari. Við hljóðfærið Ásgeir Beinteinsson, píanóleikari. —
Dansleikur verður uin kvöldið.
voru sjúkdómum sem valda
blóðleysi.
Hjá 635 sjúklingum reyndist
ekki önnur ástæða fyrir blóð-
leysinu en hugsanlegur jám-
skortur eða hjá 52.4% allra
sjúklinganna, og voru konur í
þessum hópi í miklum meiri-
hluta eða 498 alls á móti 137
körlum. Meiri hluti kvennanna
reyndust vera á bameignaraldri
eða 57% þeirra, en 43% eldri.
í hópi karlmannanna voru hlut-
föllin alveg öfug, aðeins 27.1%
á aldrinum 15—47 ára, en 72.9%
eldri.
Margvíslegir fylgikvillar
í greininni er frá því skýrt
að verulegur hluti þessara
sjúklinga hafi verið haldnir
eftirtöldum kvillum: 1) ýmiskon
ar meltingaóþægindum, 2)
dreifðum vöðvaverkjum og oste-
orthroses, 3) taugatruflunum,
Framh. á bls. 23.
Samkomiilag til
áramóta
í GÆR náðist samkomulag til
áramóta í kjaradeilu lyfjafræð-
inga. Vinna þeir fram að þeim
tíma upp á væntanlega samn-
inga. Þá fá þeir 13,8% kauphækk
un frá 1. júlí, sem lyfjaverð-
lagsnefnd hefur fallizt á, að legg
ist á lyfjaverðið.
Síld í Eyjafirði
AKUREYRI, 10. ökt. — Undan-
farna daga hefur verið leitað að
síld á Akureyrarpolli og í Eyja-
firði af smábátum. Þeir munu
hafa örðið varir við einhverja
síld, og í morgun fór vélskipið
Vörður, um 70 lestir, til síldveiða.
Fékk hann um 6—700 mál í tveim
ur köstum. Þetta er meðalstór
millisíld og miun fara í bræðslu í
Krossanesverkamiðjunni, en und-
ir helgina mun niðusuðuverk-
smiðja Kristjáns Jónssonar hefja
niðursuðu á síld. Búizt er við
að fleiri skip munu fara til síld-
veiða út í Pollinn. — St.E.Sig.
sunnudags. Halkíon hélt þegar
út aftur og fór nú til Aberdeen
en ekki Hamborgar til að selja
fiskinn, svo að hann kærni fyrr
á markað eftir töfina.
Fjórir menn eru á Blátindi, Og
líður þeim öllum vel. Þeir búast
við að vélarviðgerð verði lokið á
miðvikudagskvöld og halda þeir
þá til Frederikshavn og fá nýja
230 ha. Alpha-dieselvél í staðinn
fyrir gömlu vélina, sem er 120—*
130 ha. •— Arge. '
Hjálparbeiðni
afturkölluð
VÉLBÁTURINN Kristbjörg frá
Vestmannaeyjum sendi út neyð-
arkall aðfaranótt þriðjudags, þar
sem hann var staddur í Pettlands
firði (Pentlinum.) Hafði skipið
tekið niðri. Skömmu síðar var
beiðnin afturkölluð, þar sem skip
inu mun ekki hafa hlekkzt á, og
það komizt klakklaust leiðar sinn
ar.
Með 140 tonn
f FYRRADAG landaði tógariníi
Uranus 140 lestum af fiski, er
hann hafði veitt á Grænlands-
miðum. Munu 1—2 togarar vera
á Grænlandsmiðum, en aðrir
stunda veiðar á heimaimiðum og
sigla utan með afla sinn. Kom
Marz í höfn í gær á útleið með
um 140 lestir.
I MBL. í gær sagði frá átök-
um á Schipol flugvelli við
Amsterdam, þegar starfsmenn
rússneska sendiráðsins í IIaag{
reymdu að fá afhent
vegabréf konu flóttamanns
frá Sovétríkjunum. Hollenzka
'lögreglan hélt að ef til vill
væri verið að flytja konuna,
frú Golub, nauðuga úr landi,'
og neituðu að afhenda vega-
bréfið öðrum en koniunni,
sjálfri. Seinna kom í ljós að
konan óskaði eftir að fara,
heim og var henni þá afhent
vegabréfið, sem maður henn-
ar hafði látið í hendur lögregl
unnar.
Myndin er frá átökunum &
flugvellinum og sést sendi-
herra Sovétríkjanna á miðri,
'myndinni á bak við lögreglu-
þjónana.
Bjarni
Matthías