Morgunblaðið - 22.10.1961, Side 9

Morgunblaðið - 22.10.1961, Side 9
Sunnudagur 22. oltt. 1961 MORGVKBLAÐIÐ 9 } >f MW í VOR var sagt frá því í frétt- um, að Alþjóða kjarnorku- stofnunin hefði veitt íslending um styrk til kaupa á geisla- | 1 mælingatækjum, sem notuð yrðu á Landspítalanum, og mundi stofnunin jafnframt senda hingað mann til að koma tækjunum upp. Nýlega var svo á ferðinni hér eðlis- fræðingur frá Kj arnorkustofn uninni. í því tilefni snerum við okkur til prófessors Davíðs Davíðssonar, sem veitir for- stöðu rannsóknardeild Land- spítalans, og spurðum hann hvort geislamælingatækin væru komin eða um það bil að ■ koma. Próf. Davíð sagði að tækin væru enn ókomin, eh húsnæði er að verða tilbúið undir þau í nýju Landspítalabygging- unni, þar sem þeim verður komið fyrir í f jórum herbergj- !>etta eru dýrmæt tæki, ' 4 i Próf, Davíð Davíðsson Ný geislamælingatæki Landspítalanum munu kosta um 10600 dollara í innkaupi og koma frá ýmsum löndum, svo sem Englandi, Bandaríkjunum og Rússlandi. Kryfja lifandi líkama — En hvað gera slík (geisla- mælingatæki? — Isotop er geislandi af- brigði af fruimefni, segir próf. Davíð. Það sem slík tæki gera er að mæla þessi geislandi afbrigði. Með þeim er því hægt að rekja ferðir einstakra efnasambanda og magn þeirra í öllum líkamanum eða ein- stökum hlutum hans. Þetta hefur stundum verið orðað þannig að með geisla- mælingatækjum væri fært að gera efnafræðilega krufningu á lifandi líkama. Þegar tækin verða komin upp hér á spítalanum, verða þau notuð í þrenns konar til- gangi: 1) til að greina sjúk- dóma 2) til lækninga 3) til sjálfstæðra rannsókna. — Hvers konar sjúkdómar eru það helzt sem hægt verður að greina með tækjunum. Gæt irðu gefið okkur hugmynd um það? — T.d. verður þeim beitt við greiningu skjaldkyrtilssjúk- dóma, þegar um óeðlileg joð- efnaskipti er að ræðá. Þar sem geislavirk efni hegða sér eins og náttúrleg frumefni, má einnig merkja fitu með ísótóp um og fylgjast þannig með nýt ingu fæðuefna í þörmunum. Þá má nota geislamælingatæki við greiningu ýmissa blóðsjúk dóma t.d. merguna, en þá er raunverulega ákvörðuð nýting merkts B 12 vítamíns í þörm unum. Blóðleysi stafar stundum af því að rauðu blóðkornin eru of skammlíf, en auðvelt er að ákvarða meðalæfi þeirra með því að merkja þau með ísótóp um. í fyrstu heppnaðist að ákvarða með ísótópum heild armagn ýmissa efna í lifandi líkama. Þeirri aðferð er nú lækna og greina sfúkdóma beitt til ákvörðunar ýrnissa ó- lífrænna efna, svo sem ýmissa málma, salta og vatns og rösk un þessara efna í líkamanum. Gegn hvítblæði og skjald- kyrtilseitrun — En á hverju byggist lækningamáttur þessar nýju geislamælingatækja? — Það er eiginlega. mjög einfalt lögmál. Geislandi efni hafa þann eiginleika að stöðva frumuvöxt og deyða frúmur. — Gegn hvaða sjúkdómum verður þessu beitt? — Skjaldkyrtilseitrun t.d. og þá með inntöku eða inn- gjöf stórra skammta af geisla joði. Einnig gegn blóðsjúk- dómum, svo sem hvítblæði og þá notaður geislafosfór. Þetta eru þeir sjúkdómar sem þess ari aðfefð verður áreiðanlega beitt gegn, og svo ef til vill ‘ fleiri, sem ekki er tímabært að tala um. Lækning með geisla tækjunum verður undir stjórn yfirlæknis röntgendeildarinn- ar, dr. Gísla Petersen. ' — Þú talar um að geisla- mælingatækin verði notuð til sjálfstæðra rannsókna?- — Já, það hafa komið fram sjúkdómar, sem augljóst er að heppilegt verður að beita þessari rannsöknartækni við. Eg hefi rekist á sjúkdóma, sem við getum ekki rannsakað hér eins og er, en verður gert þeg- ar þessi tæki eru komin í notk un. Hagnýtari vinnubrögð " Herbergin fjögur, sem ætluð eru undir nýju geislamælinga tækin, eru í nýbyggingu Land spítalans og verða tilbú- in á næstu vikum. Það her- bergið sem geymir ísótópana er í tengiálmunni, þar sem ekkert herbergi er uppi yfir. Þetta er gert til öryggis. Þó fullvissar próf. Davíð okkur um að lítil hætta sé á geislun. Sú hætta sem starfsfólki kunni að stafa af þessu sé fjarlægð með einum saman þrifnaði, sem að sjálfsögðu þurfi að vera í góðu lagi. Þessi deild verður hluti af rannsóknarstofu Landspítal- ans. í sambandi við nýju við bygginguna er verið að stækka rannsóknardeild sjúkrahúss- ins mikið. Er það í samræmi við þá stefnu að um leið og spítalinn er stækkaður sé hann gerður færari til að gegna hlutverki sínu, en þróun in er hvarvetna í þá átt að auka rannsóknarstarfsemina. — Tilkcma þessara nýju geislamælingatækja bætir ( mjög aðstöðu okkar hér, sagði próf. Davíð í lok samtalsins. Það þýðir færri legudaga, hnitmiðaðri meðferð ýmissa sjúkdóma og leiðir fljótt til hagnýtari vinnubragða. — E. Pá. MW ‘ •V Körfuknattleik.smeistaramót Reykjavíkur hefst laugardaginn 4. nóv. kl. 20 að Hálogalandi Keppt verður í sömu flokkum og undanfarin ár Þátttökutilkynningum sé skil að á skrifstofu íþróttabandalags Reykjavíkur fyrir 28. október. — Þátttökugjald kr. 50 fyrir liðið skal fylgja tilkynningu. Stjórn K. K. R. R. Knattspyrnufélagið Valur Knattspyrnudeild Aðalfundur deildarinnar verð- ur haldinn mánudaginn 30. þ.m. í félagsheimilinu að Hlíðarenda kl. 8,30. Venjuleg aðalfundar- störf. — Stjórnin Bifieiðoi lil sölc Eftirtaldar vörubifreiðar okkar eru til sölu: Austin, smíðaár 1964 Ford, smíðaár 1942 International, smíðaár 1942. Star, smíðaár 1958. Bifreiðarnar verða til sýnis á lóð verk- smiðiu okkar við Köllunarklettsveg, mánu- daginn 23. okt. n.k. Tilboð óskast. Sanitas hf. Glæsilegt einbýlishús (raðhiis) Til sölu, fokhelt, stórt og glæsilegt raðhús (suðurendi) við Hvassaleiti. Húsið er 95 ferm. að flatarmál, kjallari og tvær hæðir með innbyggðum bílskúr, stórum. í kjallara getur verið góð tveggja herb. íbúð með snyrt- ingu ásamt þvottahúsi og geymslum. Neðri hæð Hall, 3 svefnherbergi, bað og forstofuherbergi. Efri hæð 2—3 stofur eftir vild(kamina) eldhús og snyrting. Tvennar stórar svalir eru á efri hæð og einar minni á neðri hæð með tröppum út ígarð. Góð lóð. Til greina kemur að taka nýjan eða nýlegan evrópskan bíl upp í kaupverðið. Upplýsingar í dag í síma 36528. Auhið yndisþokhonn með snyrtivörum frá okkur. SNYRTIVORUBUÐIN Klapparstíg 27 (milli Hverfisgötu og Laugavegar), pappaílát fyrir heita og kalda drykki, sultu o. fl. PRAHA — CZECHOSLOAKIA Upplýsingar gefur: Páll Jóh. Þorleifsson h.f. Reykjavík — Símar 15416—15417

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.