Morgunblaðið - 27.10.1961, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ'
Föstudagur 27. okt. 1961
- ÖSKJUGOS
Frh. af bls. 1
Kofoed-Hansen osr, Birgi Kjaran alþm. Fréttamaður
Mbl. var þá staddur í flug-turni Reykjavíkurflugvall-
ar og hlustaði á lýsingarnar jafnóðum og þær bárust
flugstjórnarmönnum til eyrna. Fara þessar lýsingar
hér á eftir í höfuðdráttum:
KI. 22,30 sagði Björn Pálsson: Við erum suður af
Hofsjökli í 10 þús. feta liæð. Bjarmi á háum skýjum
er að sjá til Öskju, gott veður. Dökk gossúla blasir
við, gosið virðist í Öskju.
Skömmu síðar sagði Björn: Alskýjað í 5 þús. fetum.
Við erum í 10 þús. fetum. Vindurinn blæs mekkinum
frá, já gosið virðist vera í Öskju og sést því bjarminn
betur vegna vindstöðunnar, sem er norðan 30 hnútar.
Kl. 23.46: Erum yfir Öskju, sjáum ekki niður, en
eldbjarminn stendur upp í gegnum skýin.
Nokkur þögn. Síðan hélt Björn áfram:
Mikið gos, stórir eldar. móða á rúðum, sjáum illa
út, því strókurinn er í 15 þús fetum.
Nú þurfti Björn að beina allri athygli að stjórn
flugvélarinnar, svo að Agnar Kofoed-Hansen tók við
lýsingunni.
Þetta er mjög merkilegt eldgos, sagði hann. Eld-
súlurnar ná hátt í loft upp, hraunelfan er stórkost-
leg. Nú sjáum við austurhlíðar og niður í Öskju. Um
mörg gos gæti verið að ræða, því miklir eldar sjást.
Sjáum nú þrjár eða fjórar eldsúltu*, sem ná upp í
1000 feta hæð. Tunghð sést á heiðum himni. Hraun-
gosið er mun stórfenglegra en í Heklu. Mökkurinn
nær í um 20 til 25 þús. feta hæð.
Eldstólparnir eru stórkostlegir, ótrúlegir. Hraun-
straumurinn er svo stórkostlegur, að við höfum
aldrei séð neitt þvílíkt. Hraunið rennur eins og bráð-
ið smjör, jafnhratt að sjá og Jökulsá á Dal. Stórkost-
legt, stórkostlegt . . .“
Þannig voru lýsingar þeirra íslendinga, sem fyrst-
ir sáu þetta feiknmikla Öskjugos. Þannig hljómuðu
þær í eyrum okkar, sem fyrstir heyrðum þær í
Reykjavík.
Eins og áður segir voru fréttamenn Mbl. með í
þessari ferð og fer nákvæm lýsing þeirra hér á eftir.
Eldarnir lýstu upp flugvélina
Grunur fór að vakna um að nú
væri öskjugosið að byrja, er far-
þegar og flugstjóri í áætlunar-
flugvél Flugfélags Islands til Ak-
ureyrar sáu mikla reyksúlu koma
úr öskju um kl. 2,30 í gær. Er
bandarískir þotuflugmenn höfðu
svo séð eldana um kl. 6,30, var
farið að undirbúa flugferðina,
sem farin var um kvöldið.
Fyrsta eldbjarmann bar við á
bláum himni með gulu tungli,
stjörnum og norðurljósum, er
kornið var norður á Hofsjökul og
skær eldsúla sást greinilega
liggja upp með reykjarmekkin-
um, sem lagði í suður. Þeir sem
höfðu séð Heklumökkinn full-
yrtu umsvifalaust að þessi væri
meiri.
Er nær dró bar geysimikla
birtu upp á fiugvélina, svo hún
lýstist upp að neðan er yfir
eldana var flogið. Olafur Magnús-
son, Ijósmyndari, sem hafði tal-
ið öll tormerki á að fá næga birtu
um hánótt til ljósmyndunar:
sagði: — Nú skil ég hvað Sigurð-
ur átti við, er hann fullyrti að
eidgos væri bjart!
ALÞINCIS
SAMEINAÐ ALÞINGI kemur saman
til fundar kl. 13:30 í dag og eru þessi
mál á dagskrá:
1. Vantraust á ríkisstjómina, þáltill.
Frh. einnar umr. (Atkvgr.).
2. Fyrirspum:
Öryggisráðstafanir á leiðinni Reykja
vík—Hafnarfjörður. — Hvort leyfð
skuli.
3. Kaup Seðlabankans á víxlum iðn-
aðarins, þáltill. — Hvemtg ræða
skuli.
4. Verðtrygging lífeyris, þáltill. —
Hvemig ræða skuli.
5. Kísilgúrverksmiðja við Mývatn,
þáltill. — Hvemig ræða skuli.
6. Verndun fiskistofna við strendur
íslands, þáltill. — Hvernig ræða
skuli.
7. Mótmæli gegn risasprengingu Sovét
ríkjanna, þáltill. — Hvernig ræða
akuli.
S. Fyrirspumir:
- a) Rafstraumur til Vestmannaeyja.
w — Ein umr.
b) Hækkun ^"wíXær^uvííútöliv —
Ein umr.
Eins og Hawai-kvikmynd
Nú fórum við að sjá niður í
gegnum skýjaglufurnar, hitinn
hafði sópað göt á skýjabreiðuna,
en hann mun vera um 1100
gráður í sjálfu hrauninu. Við
sáum þunna hraunleðjuna
sprautast upp eins og úr gos-
brunni, allt upp í 200—300
metra, og eldglóandi leðjuna
flóa út yfir balkkana á fjórum
sprungum. Til samanburðar má
geta þess að hæsta gossúla sem
mæld hefur verið var 400 m.
Þetta var eins og Hawai-kvik-
mynd, enda sagði dr. Sigurður að
þetta væri alveg eins og Hawai-
eldgosin, þar sem hraunbunan
stendur eins og úr gosbrunni,
en lítil sem engin aska fylgir.
Erfitt var að átta sig á gíga-
sprungunum, en þær virtust
vera á sama stað og hverimir
voru áður, austast. í Öskju,
skammt sunnan við Öskjuop.
Hraunstraumurinn vall síðan
svo langt sem augað eygði í nOrð
ur, eldrauður og á mikilli ferð.
Gufumökkur yfir Öskjuvatni
gaf vísbendingu um að einhver
hraunstraumur lægi einnig í
suður og færi hraunið e.t.v. út
í Öskjuvatn, en þá glóð sáum
við aldrei fyrir gufumekki.
Hraunfljótið vall fram
Við eltum hraunstrauminn til
austurs. Hann náði út í gegnum
Öskjuopið, búinn að hylja slóð-
ina okkar frá því við gengum í
Öskju til að Skoða fyrstu um-
merki eldsumbrotanna þar. Er
við fórum úr Öskju í það
skipti, hafði dr. Sigurður tekið
gestabókina, sem ávallt er
geymd þar í vörðunni og farið
með hana niður í skálann í
Herðubreiðarlindum. — Ef
Askja gerir eitthvað, er ekki
vert að hafa hana hér, sagði
hann þá ofur rólega, og allir
hlógu að honum. Nú er bókin
heil á húfi niðri í Herðubreiðar-
lindum.
Hraunstraumurinn var greini-
lega mjög þunnur, enda hraunið
þarna áreiðanlega mun basísk-
ara en t. d. Hekluhraunið. Það
vall fram eins og fljót, svo
greinilega sást úr flugvélinni,
j sem var } nokkur hundruð
Jmetra hæð. Er neðar dró fór
yfirborðið að dökkna en glytti
í glóðina alls staðar í gegn og
jaðrar harunsins eins og skreyttir
eldrauðum blúndum. Hæðin á
hraunjaðrinum hefur varla ver-
ið meiri en 1—2 metrar, en dr.
Sigurður sagði að úr þessu
mundi það sennilega fara að
hægja á sér og þá þykkna.
Hraunelfan beygði suður með
fjallshlíðinni eftir að hún náði
Niður í gegtmm skýjaþykknið sást öðru hverju ofan í eld-
rauða gígina, þar sem þunnt hraunið sprautaðist og vall upp.
A einu slíku augnabliki smellti ljósmyndarinn af þessari mynd.
þá elfan og skipti sér í þrennt myndarlegasta helluhraun ofan
er sunnar dró. Var þetta að sjá á vikrinum frá 1875.
eins og glóandi fingur, er teygðu
sig lengra og lengra. Var hraun-
straumurinn þegar, eftir þessa
fáu klukkutíma orðinn svo lang
ur, að Sigurður taldi að líklega
væri þetta lengsta hraun síðan
út úr Öskjuopinu og breikkaði 11875. Verður þarna áreiðaníega
Regnvatn Vestmanna-
eyinga óbreytt
I FYRRADAG sendu Vestmanna-
eyingar Eðlisfræðistofnuninni
sýnishorn af regnvatni, bæði af
húsþökum og úr brunni, en
drykkjarvatn Eyjaskeggja er sem
kunnugt er safnað regnvatn. Voru
Vestmannaeyingar uggandi um
að ekki væn óhætt að halda á-
fram að saína regnvatni í geyma
sína.
Prófessor Þorbjörn skýrði
blaðinu frá því í gær að _ lítii
geislavirkni hefði verið í sýnis-
hornunum, sem rannsökuð hafa
verið, enda ekki við því að búast
að geislavirkni frá sprengingum
Rússa væri farið að gæta hér.
Yrði rannsakað sýnishorn af regn
vatni frá Eyjum framvegis.
• Svipuð geislavirkni
Geislavirkn. hefur ekkert auk-
izt enn hér á landi, stendur þar
við það sama.
Þá ræddum við um kalktöflu-
gjöf þá, sem komið hafa uppá-
: stungur um að gefa í Svíþjóð til
að verjast geislaefnunum. Sagði
' prófessor Þorbjörn að þær væru
notaðar ti.. að hamla eitthvað
gegn þvi að strontium setjist í
beinin. En ekki væri geislun svo
mikil að enn væri komið að því.1 kraftur hafði verið í því.
Stutt en öflugt
Við flugum góða stund þarna
yfir. — Stórkostlegt! dásamlegt!
voru orðin, sem heyrðust í flug-
vélinni. En svo er annað mál að
gefa nokkra hugmynd um þá
stórkostlegu sýn, sem þarna
blasti við.
Loks lögðum við af stað heim
með brennisteinsbragð í munni
og þurr í kverkum eftir hitann í
véiinni.
Sigurður Þórarinsson var alls
ekki viss um að hann ætti aftur
köst á að sjá þvílíkt sjónarspil.
Hann taldi að gosið gæti alveg
eins verið búið í dag, svö mikill
NA /5 hnútor SV 50 hnútor ¥ Snjókoma > ÚSi \7 Skúrír Þrumur 'W&S, Ku/daM Hitaski! H.Hml li L?Lmg 1 11
—
NORÐANÁTTIN hefur náð
völdum í bili svo að kólnað
hefur í veðri. Til landsins
stefnir á kortinu loftstraumur
frá Norðaustur-Grænlandi og
íshafinu þar undan strönd-
inni. Var því búizt við vægu
frosti um vestanvert iandið í
nótt sem leið.
Á suðvestanverðu Græn-
landshafi er tiltölulega hlýtt
loft og þurrt. — Hefur það
komið norðvestan yfir jökul-
inn og hlýnað á leið sinni
niður.