Morgunblaðið - 27.10.1961, Blaðsíða 14
/
14
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 27. okt. 1961
# KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR *
kvikmyndir * skrifar um kvikmyndir * kvikmyndir
N Ý J A B I o :
Æðstu gæðin
Í>ESSI ameríska mynd, sem tekin
er í litum og Cinemascope, gerist
í New York. Segir þarna frá ung-
um stúlkum, sem starfa við stórt
útgáfufyrirtæki í borginni, bar-
20 þús. fjár slátrað
í Búðardal
BÚÐARDAL, 24. okt. — Sauð-
fjárslátrun lauk í gær hjá Kau'p
félagi Hvammsfj arðar. Hefur
hún staðið yfir í 31 dag. Daglega
hafa unnið við slátrun uim og
yfir 60 manns. Slátrað var alls
um 20.500 fjár. í fyrra var slátr-
að um 16.500. Meðalþungi dilka
mun vera heldur betri eða jafn-
vel heldur betri en í fyrrahaust.
1 yngsti dilkskrokkur vóg 27 kg.
Eigandi er Jón Jósefsscxn. bóudi,
Núpi, Haukadal.
í>á er lokið slátrun í Hjalla-
nesi á Fellsströnd. Slátrað var
um 1100 fjár. í Hnúksnesi uam
1400 fjár. I Skarðsstöð um 1200
fjár. Kaupfélag Saurbæinga hef
ur látið slátra um 7000 fjár í
Salthólmavik. Loks hefur verið
slátrað í Brautarholti í Hauka-
dal um 3000 fjár á vegum Verzl-
unarfélags Borgarfjarðar.
I dag hefst stóirgripaslátrun
hjá K. Hv. í Búðardal og stendur
væntanlega yfir í 3—4 daga að
' , sinmi. — F. Þ.
áttu þeirra fyrir frama og ör-
uggri stöðu, og þrá þeirra til að
njóta hamingju ástarinnar, að
eignast menn og börn og gott
heimili. Barátta þeirra er örðug
og þær verða margar fyrir sár-
um vonbrigðum, sem reynast sum
um þeirra um megn og aðrar
verða að vera eftirlátar yfirboð-
uium sínum og kaupa þannig
dýru verði oft aðeins stundar
frama. Stúlkur þessar eru yfir-
leitt gott fólk, en margar þeirra
verða leiksoppar ófyrirleitinna
manna, sem nota aðstöðu sína til
þess að tæla þær til fylgilags
við sig, en kasta þeim frá sér,
þegar þeir eru orðnir leiðir á
þeim.
Mynd.þessi er mjög efnismikil,
sönn og áhrifarik lýsing á þeim
erfiðieikum og hættum, sem
verða á vegi ungra kvenna, sem
leita sér frama og lífsfyllingar í
stórborgum heimsins, en varast
ekki, í reynsluleysi sinu Og trúnni
á samferðarmönnunum, þær hætt
ur og blekkingar, sem svo oft
villa þeim sýn og ráða þungbær-
um örlögum þeirra.
Lað yrði of langt mál að rekja
hér frekar efni myndarinnar,
enda gerist þess ekki þörf því að
hún talar glöggt sínu máli. Þess
skal aðeins getið að myndin er
afbragðs vel gerð og leikurinn
ágætur, enda fara þarna margir
mikilhæfir leikarar með hlutverk
svo sem Hope Lange, Stephen
Boyd, Martha Hyer og síðast en
ekki sízt Joan Crawford og Louis
Jourdan.
Fimleikadeild KR
ÆFINGATAFLA:
Karlar 16 ára ogf eldri:
Iþróttahús Háskólans: Mánud., fimmtud., föstud.
kl. 9,15.
Öldungaflokkur (menn á öllum aldri):
Austurbæjarskólanum: Mánud., miðvikud. kl. 7,15.
Drengjaflokkur 14 ára og eldri:
Austurbæjarskólanum: Mánud., miðvikud. kl. S.
Frúarflokkur:
Miðbæjarskólanum: Mánud., fimmtud. kl. 9,30.
Kennarar eru:
Benedikt Jakobsson, Jónas Jónsson,
Þór Olafsson og Gunnvör Björnsdóttir.
VELKOMIN Á ÆFINGAR!
KOPAVOGSBIO
Blái engillinn
Þeir munu margir hér, sem
kannast við efni þessarar myndar
því að Þjóðverjar gerðu kvik-
mynd um þetta efni 1930, með
hina frægu kvikmyndaleikara
Marlene Dietrich og Emil
Jamings í aðalhlutverkunum. Var
sú mynd sýnd hér á sínum tíma
við mikla hrifningu áhorfenda:
Marlene Dietrich varð filmstjarna
fyrir leik sinn i þessari mynd
enda var hún fríð og heillandi
kona og söngur hennar mjög að-
laðandi. Emil Jannings var og
einn af mikilhæfustu leikurum
síns tíma. Fyrir frábæran leik
þessara tveggja leikenda varð
myndin áhrifarík og minnisstæð.
„Blái engillinn*, sem hér er um
að ræða er amerísk útgáfa með
May Britt hinni sænsku kvik-
myndaleikkonu og Curt Júrgens í
aðalhlutverkunum. — Myndin
fjallar um miðaldra prófessor,
sem er virðulegur kennari við
þýzkan Menntaskóla. Hann verð-
ur svo gagntekinn af dans- og
söngkonunni Lola-Lola að hann
kvænist henni og fórnar henni
öllum frama sínum, lífsstarfi og
áliti samborgara sinna og starfs-
bræðra. Hann sekkur æ dýpra í
niðurlægingu og vonleysi og ger-
ist að lokum trúður í heimaborg
sinnL En þegar hann er á svið-
inu, sér hann konu sína daðra
við ungan flagara að tjaldabaki.
Þá er mælirinn fullur. Hann þýt-
ur af sviðinu, ræðst á konu sína
og ætlar að kyrkja hana. . .
Mynd þessi er ekki nema svip-
ur hjá sjón í samanburði við hina
gömlu þýzku mynd, fyrst og
fremst vegna þess að May Britt
skortir allan þokka og söngur
hennar er auk þess leiðinlegur,
enda röddin fremur gróf. Júrgens
fer hinsvegar mjög vel með hlut-
verk prófessorsins þó að hann
að vísu, þoli ekki samanburð við
Janning.
Myndin er áhrifamikill harm-
leikur að efni til, með léttu ívafi
í byrjun, — og þó að hún standi
að baki þýzku útgáfunni, sem að
framan greinir, er hún vissulega
þess virði að hjá hana.
Dr. Jan Seex
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig á
áttræðisafmæli mínu og gerðu mér daginn ógleyman-
legan.
Margrét Þorsteinsdóttir, Kambsveg 36..
Hjartanlega þakka ég öllum vinum mínum og vanda-
mönnum, sem á einn og annan hátt sýndu mér ógleyman-
lega vinsemd og vinarhug á sjötugsafmæli mínu þann
20. okt. sL — bæði með gjöfum, heimsóknum og heilla-
óskum.
Guð blessi ykkur öli á ókomnum árum.
jF Akranesi, 25. okt. 1961.
Jón Bjarnason.
Maðurinn minn
ÓLAFLR ÞÓRARINSSON
andaðist að heirnili sínu Njálsgötu 32 B 26. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Björnína Kristjánsdóttir.
Elsku litli drengurinn okkar
GUÐJÓN YNGVI
andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu 18. október. Útförin hefur
farið fram.
Ragna Eyjólfsdóttir, Ingimar Guðjónsson.
látinn
Þann 5. þ. m. lézt háls-, nef-
og eyrnalæknirinn dr. Jan Seex
í Inverness í Skotlandi. 54 ára
að aldri. Banamein hans var
hjartabilun, en bame hafði kennt
sjúkleika undasnfarin ár.
Dr. Seex var mörgum íslend-
ingum að góðu kunmur en til
hains munu hafa leitað hátt á
2. hundrað íslendingar. Naut
'hann álits sem mjög fær sérfræð
ingur á símu sviði. Það tengdi
hamn og íslandi, að hann var
kvæntur íslenzkri komu, frú
Esther Poulsen. dóttur frú Kir-
sten og Valdemars Poulsen kaup
manms hér í bæ, og lifir hún
mamn sinin ásamt tveimur böm-
um þeirra. 18 ára og 21 árs.
Dr. Seex kom hingað oft í
sumarleyfum ásamt fjölskyldu
sinni og eignaðist hér marga
kunningja, þar á meðal í lækna-
hóp, em með honum og íslenzk-
um starfsbræðrum muin hafa
tekizt góð samvinna. bæði hér
og í Ivemess. Dr. Seex var ridd-
ari af hinni íslenzku fáfkaorðu.
AA-samtökin svna
norska kvikmynd
AA-SAMTÖKIN hafa fengið að
láni frá Noregi kvikmyndina
„Leiðin til baka“, sem sýnd hef-
ur verði víða á Norðurlöndum
að undanfömu. Myndin fjallar
um áfengisvandamálið og hlut-
verk AA-samtakanna í sam-
bandi við það.
Þekktir norskir leikarar fara
með aðalhlutverkin.
Kvikmynd þessi verður sýnd
í Tjarnarbíó laugardaginn 28.
október kl. 3 og 9,15.
A undan sýningu flytiur Jón-
as Guðmundsson formaður AA-
samtakanna erindi um starf-
semi þeirra og Ævar Kvaran
leikari les upp.
Þetta er i fyrsta sinn sem AA-
samtökin efna til opinberrar
kynningar á starfsemi sinni hér
á landi og gefst þeim sem vilja
kynnast þessari starfsemi nú
gott tækifæri til þess.
N Y J U N G
:-k
K
I
W
I
m e <
- SKÓREIMAR
*
A R S - end i ngu
(Renna ekki til í hnútum)
E
HEILDSOLUBIRGÐIR:
. JOHNSON & KAABER H/r
Nýr prédikunarstóll
í Grafarneskirkju
SNÆBJÖRN Jónsson, húsgagna-
smiður frá Sauðeyjum á Breiða-
firði, hefur gert mjög vandaðan
prédikunarstól, sem hann ætlar
að gefa Grafamesskirkju. Mynd-
Náðar fanga
uppreisnarmanna
Djakarta, Indónesíu, 21. okt.
— (NTB — AFP).
AHMED Sukarno, Indónesíufor-
seti hefur náðað alla uppreisnar-
menn, sem teknir hafa verið til
fanga eða gefizt upp fyrir lög-
reglu stjórnarinnar á síðustu
þrem árum.
Sukarno forseti undirritaði til-
skipun um náðun allra slíkra
fanga á mánudaginn, áður en
hann hélt flugleiðis til Vínarborg
ár, en þar verður gerður á hon-
um nýrnauppskurður. Meðal
hinna náðuðu verður flugmaður-
inn Daniel Mauker, sem gerði á
sl. ári harða skothríð að landsetri
forsetans í því skyni að koma hom
um fyrix kattarnef.
irnar af stólnum eru innlagðar og
útbúnar í Danmörku og er stóll-
inn allur hið fegusta listaverk.
Næstkomandi laugardag verð-
ur hann afhentur prestinum f
Grafarnesi, sr. Magnúsi Guð-
mundssyni á Setbergi, og fer sú
athöfn fram í Breiðfirðingabúð
kl. 4 s.d. Æskilegt væri að Breið-
firðingar hér í Reykjavík legðu
þangað leið sína til að sjá þemnan
fallega kirkjugrip áður en hann
verður fluttur burt úr bænum.
Stóllinn á að fara í hina nýju
kirkju. sem hefur verið unnið við
af fólki frá Alikirkj uráðinu.
VINN A
Menntuð stúlka 18—25 óskast til
að búa hjá ungri hefðarkonu. —•
Lítið nýtízku hús, mjög létt
vinna og matreiðsla. Dagleg að-
stoð. Einhver enskukunnátta
æskileg, nægur frítími til lesturs.
Frídagar eftir samkomulagi. Fap
gjald borgað. Skrifið Miss Lud-
man, 1, Nab Wood Drive, Shipley
England.
Til sölu
Einbýlishús. Lítið og snyrtilegt með fallegum garði
við Þrastargötu. Væg útborgun. Tækifæriskaup.
EINAR ÁSMUNDSSON, hrl.
Austurslræti 12 in hæð — Sími 15407.
Prentarar
Viljum ráða 2 prentara nú þegar.
Kassagerð Reykjavíkur h.f.
sími 38383.
Húseignin
Vík í
er til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Tilboðum sé
skilað fyrir 31. þ.m. til Sveinlaugar Sveinsdóttur
eða Péturs Björnssonar sama stað. Réttur áskilinn
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.