Morgunblaðið - 27.10.1961, Side 24
Tibor Meray
Sjá bls. 13
244. tbl. — Föstuda&af 27. oi.tfifier 1961
SUS-síða
Sjá bls. 15
Umræðurnar i gærkvöldi:
Viö missum ekki trúna
á landið og lífið sjálft
Varanlegar kjarabætur eru aðalmark-
mið viðreisnarinnar
UMRÆÐUR um vantrausts-
tillögu þeirra Hermanns Jón-
assonar og Eysteins Jónsson-
ar héldu áfram í gærkvöldi
og var sem fyrr útvarpað. —
Leituðust þingmenn þá eink-
um við að svara ummælum
og staðhæfingum frá fyrra
kvöldi umræðnanna. Stuðn-
ingsmenn ríkisstjórnarinnar
sýndu jafnframt fram á
batnandi efnahagsástand, síð-
an viðreisnaraðgerðirnar hóf-
ust og kváðu þeim aðeins
stefnt í voða með skemmdar-
verkum þeirra, sem van-
trauststillöguna styddu. Áður
hefði hins vegar sýnt sig, að
þeir væru allsendis ófærir um
að stjórna landinu. Andstæð-
ingar núverandi stjórnar
töldu viðreisnaraðgerðirnar
hafa gjörsamlega brugðizt og
væri ástandið nú verra en
nokkru sinni fyrr.
FYRSTI ræðumaður kvöldsins
var fjármálaráðherra Gunnar
Thoroddsen, sem kvaðst mundu
verja ræðutíma sínum til að eyða
misskilningi og rangfærslum
Sigurður A. Magnússon
stjórnarandstæðinga frá kvöld-
inu áður. Vísaði hann á bug þeim
staðhæfingum Hermanns Jónas-
sonar og Eysteins Jónssonar, að
reikningsbrellum hefði verið beitt
il þess að koma
;aman hallalaus-
ím fjárlögum og
;ýndi fram á að
?ar væri um ein-
'öld og auðskilj-
mleg reiknings-
iæmi að ræða.
É>á vék ráðherra
ið þeirri fullyrð
ingu, um að 800
tnillj. kr. eyðslu-
lán hefðu verið
tekin í tíð núver-
indi ríkisstjórn-
irinnar. Hið
sanna í málinu
væri það, að til
þess að gera við-
■eisnina mögu-
ega hefði þurft
tarasjóð, y3 hluti
fjárhæðarinnar væri enn ónotað-
ur en % hefðu verið notaðir til
greiðslu á lausaskuldum erlendis
Og söfnunar gjaldeyrisforða
Ekki einn eyrir hefði farið til
eyðslu. Og í septemberlok hefði
gjaldeyrisforði landsins, að skuld
þessari frádreginni, verið 251
millj. kr. Svipaðar rangfærslur
hefðu stjórnarandstæðingar í
frammi, þegar talað væri um gíf-
urlegan greiðsluhalla gagnvart
útlöndum. Ráðherrann minnti á,
að verðhækkanir gætu orðið án
þess að um verðbólgu væri að
ræða, t. d. við gengisbreytingar,
þegar verðlag innfluttra vara
hækkaði fyrst í stað en stæði
síðan stöðugt. Svo hefði verið
komið í fyrra og yrði nú brátt
aftur, nema ný skemmdarverk
yrðu unnin. Þá gat ráðherra þess
að gefnu tilefni, að sparifjáraukn-
ingin á síðasta ári hefði verið 353
miilj. kr. eða stórum meiri en
árin á undan og virtist sá vöxtur
ætla að halda áfram. Hann minnti
á, að í tíð vinstri-stjórnarinnar
hefði allur kaupskipaflotinn stöðv
ast í 14 vikur og verkföll skollið
á í mörgum stéttum. Fyrirhugað-
ar breytingar á skattamálum at-
vinnufyrirtækja yrðu fyrst og
fremst til hagsbóta almenningi,
sem bæri meira úr býtum, þegar
atvinnulífið blómgaðist. I tilefni
af þeim orðum Lúðvíks Jósefs-
sonar, að ríkissjóður lifði af
náð Seðlabankans, upplýsti
fjármálaráðherra, að viðskipta-
lán ríkissjóðs þar væri ætlað til
þess að mæta árstíðasveifluim og
hefði orðið hátt á miðju ári, þeg-
ar verkföllin stöðvuðu aðaltekju
stofn ríkissjóðs en hefði hæst orð
ið aðeins tæp 13% ríkisútgjald-
anna og hefði verið talsvert hærra
á stjórnarárum Lúðvíks. Þegar
.kommúnistar héldu því fram að
18% kjararýrnum hefði orðið
slepptu þeir gjörsamlega þeirri
miklu aukningu sem orðið hefði
á almannatryggingunum og
skattalækkunum sem koma ættu
á móti, en að því með-
töldu hefði Hagstofan reiknað út
að kjararýrnunin væri ekki nema
4%. Skattaframtöl hefðu og sýnt,
að meðaltekjur verkamann sl. ár
hefðu verið 75 þús. kr. eða hærri
en áður. Undir lok ræðu sinnar
minnti ráðherra á, að launin
væru ekki nema eirm þáttur lífs-
kjaranna og verð nauðsynja yrði
einnig að taka með í reikninginn.
Samanburður sýndi, að lífskjör
væru að öllu meðtöldu mun hag-
stæðari í Reykjavík en t.d. Kaup-
mannahöfn. Alkunnugt væri, að
lífskjör almennings á Islandi
væru mun betri en í mörgum
lönd'um öðrum. En þótt svo væri,
bæri enn að vinna að því að bæta
kjör landsonanna. Og meginmark
Frh. á bls. 23
A himun fjölmenna borgarafundi.
Kjarnorkusprengingarnar ræddar í Gamla híó:
Borgarafundur lýsir sök
á hendur Sovétríkjunum
Islendingum meiri hætta búin af
geislun en nokkru sinni fyrr
Nœturgestir
44
>/
Skáldsaga eftir Sigurð A. Magnússon
í DAG kemur í bók-abúðir frá
forlagi ísafoldar skáldsagan
„Næturgestir" eftir Sigurð A.
Magnússon. Bókin er 167 bls. í
Skírnisbroti og hefur Halldór
Pétursson gert káputeikningu.
„Næturgestir" er fyrsta skáld-
saga Sigurðar, en hann hefur
áður gefið út ferðabókina „Grísk
ir reisudagar" (1953), ljóðabók-
ina „Krotað í sand“ (1958), greina
safnið „Nýju fötin keisarans“
(1959) og ljóðabókina „Dauði
Baldurs og önnur ljóð“ á grísku,
og kom hún út í Aþenu í fyrra.
Þá er von á nýrri ljóðabók eftir
hann seinna í haust.
Skáldsagan „Næturgestir" var
ökrifuð í New York sumarið
1956, en höfundurinn gekk ekki
endanlega frá henni fyrr en í
júlí 1959. Veturinn eftir fór hann
til Grikklands og Indlands og
kom ekki heim aftur fyrr en
síðla vetrar í ár.
Sigurður hefur verið blaðamað
ur við Morgunblaðið síðan haust-
ið 1956, að frátöldum þeim tíma
sem hann dvaldist erlendis, og
skrifað bókmenntagagnrýni fyr-
ir það síðan haustið 1957. Áður
en hann hóf blaðamennsku stund
aði hann nám í bókmenntum íj
Kaupmannahöfn, Aþenu, Stokk-1
hólmi og New York, þar sem
hann lauk B.A.-prófi í þeirri
grein. Á árunum 1954—56 vann
hann hjá Sameinuðu þjóðunumj
í New York, aðallega sem frétta
þulur fyrir íslenzka útvarpið. I
STÚDENTAFÉLAG Reykja-
víkur og Stúdentaráð Há-
skóla íslands gengust í gær
fyrir almennum borgara-
fundi í Gamla bíói um kjarn
orkusprengingar Sovétríkj-
anna. Var húsfyllir og ræð-
um manna vel tekið.
í lok fundarin| var gerð svo-
felld ályktun:
Almennur borgarafundur i
Reykjavík haldinn 26. október
1961 að tilhlutan Stúdentafélags
Reykjavikur og Stúdentaráðs
Háskóla íslands, lýsir megnri
andúð sinni á öllum tilraunum
með kjamorkusprengjur.
Harmar fundurinn að á ný
skuli hafa verið hafnar kjam-
orkusprengjutilraunir og lýsir
sök á hendur Sovétrikjunum í
því efni.
Fundurinn fordæmir harðlega
þá tvöfeldni, sem fram kemur í
því, að jafnframt því sem Sovét-
ríkin sátu að samningaborði um
algert bann gegn kjamorkutil-
raunum, undirbjuggu þau stór-
kostlegustu kjamorkusprenging-
ar, sem gerðar hafa verið.
Fundurinn vekur athygli á, að
hinar geigvænlegu kjamorku-
sprengjutilraunir Sovétríkjanna
i næsta nágrenni Islands yfir
norðurhöfum og neðansjávar
valda því að íslendingum er nú
meiri hætta búin af kjarnorku-
geislum en nokkm sinni fyrr.
Jafnframt er hugsanlegt að fisk-
stofninn umhverfis landið kunni
að spillast af völdum neðansjáv-
artilraunanna og aðalútflutnings-
Hamar As-
mundar í
höndum
IHongi Slim
AP-FRÉTTASTOFAN skýrði frá
því í gær í frétt frá New York,
að Thor Thors, sendiherra ís-
lands, hefði afhent Mongi Slim,
forseta AHsherjarþingsins, nýj-
an fundahamar sem gjöf frá ís-
landi til SÞ.
Eins og kunnugt er, hefur Ás-
mundur Sveinsson myndhöggv-
ari gert umræddan hamar, og
kemur hann nú i staðinn fyrir
annan hamar Ásmundar, sem
fyrrverandi forseti AHsherjar-
þingsins, Frederick Boland,
braut, þá er hann hastaði á
Krúsjeff, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, fyrir rúmu ári á ó-
rólegum fundi á þinginu.
atvinnuvegi landsmanna þvi
stefnt í voða.
Fyrir því krefst fundurinn
þess, að SoVétríkin hætti nú þe*
ar öllum frekari tilraunum með
kjarnorkusprengjur, þar sem
þær em bein ógnun við heims-
friðinn, stofna lífi og heilsu alls
mannkyns í bráða hættu og gætu
leitt tU þess að önnur stórveldi
teldu sig knúin til að hefja á ný
kjarnorkusprengjutiIraunir í and
rúmsloftinu.
Loks krefst fundurinn þess, að
þegar í stað verði samið um al-
gjört bann gegn tilraunum með
kjarnorkuvopn undir öruggu
eftirliti.
Hörður Sigurgestsson, formað-
ur stúdentaróðs, seitti fundinn,
en fundarstjóri var dr. Alex-
ander Jóhannesson, fyrrum há-
skólarektor. Ræður fluttu Sveinn
S. Einarsson verkfræðingur, Ar-
inbjöm Kolbeinsson formaður
Læknafélags Reykjavíkur, Jón
Skaftason hæstaréttarlögmaður
og Benedikt Gröndal ritstjóri.
Að lokum flutti Matthías Jó-
hannessen formaður Stúdenta-
félagsins ávarp og lagði fram
ályktunartillöguna. Var hún sem
fyrr segir samþykkt einróma og
stjómum Stúdentafélagsins og
stúdentaráðs falið að koma
henni á framfær: við sendiherra
Sovétríkjanna á íslandi. j
Framhald á bls. 23. ^