Morgunblaðið - 15.11.1961, Qupperneq 3
Miðvikudagur 15. nóv. 1961
MORCVNBLAÐ1Ð
3
EINS og frá sagði í frétt-
um í gær kom óvenjulegt
úrfelli á Suður- og Vest-
urlandi og mun það hafa
náð allt norður í Skaga-
fjörð. Mest mældist úr-
koman í Kvígindisdal í
Rauðasandshreppi og á
Eyrarhakka og var um 100
mm á sólarhring. Á Rauða
sandi varð úrkoman 70
mm á 9 tímum og er það
gífurleg úrkoma á svo
skömmum tíma.
Vitað er þó um að mesta
l»essi mynd sýnir hvar jarðýta
ing-abifreið eftir vegi, sem er
mun hafa verið víða í gær og fyrradag.
er að draga stóra fólksflutn-
hoi finn undir vatn. Þannig
ir á Barðaströnd og segir frá
þeim í frétt á öðrum stað í
blaðinu.
★
Til fróðleiks leituðum við
til Ólafs .Jónssonar búnaðar-
ráðunauts á Akureyri og
spurðum hann um skriður á
Barðaströnd, en hann hefir
ritað mikla bók um skriðú-
föll og snjóflóð, eftir öllum
hugsanlegum heimildum frá
fyrstu tíð.
Ólafur segir að um Hvíta-
sunnuna vorið 1672 hafi orð-
ið mikil skriðuföll á Barða-
strönd. Á 30 hundraða jörð
tók nærri allt túnið og á
Amórsstöðum -í sömu sveit
tók mikið af engjum en í
Hlíð, sem síðar nefndist Mos-
hlíð, tók af hús og slapp fólk
nauðuglega. Síðan er ekki
getið skriðufalla á þessum
sldðum fyrr en 19.—20. maí
vorið 1941 en þá urðu geysi-
miklar skemmdir og féllu
m. a. 35 stórskriður. Þá rigndi
STAKSTEI!\IAR
Annálar segja ekki f rá jafn
miklum skriðufollum á vetri
úrkoma hér á landi hafi
mælzt allt að 200 mm á sól-
arhring og mældist það í
Öræfum. 170 mm hafa mælzt
inni í Hvalfirði. Þótt rigning-
in í fyrradag sé ekki með
því allra mesta sem vitað er
um má telja hana mjög mikla
á þessum árstíma. Þó kemur
svona mikið úrfelli jafnan
fram sem rigning.
★
Skemmdir af völdum þessa
úrfellis urðu talsverðar og þá
einkum á vegum, svo og á
ræktuðu landi. Mestar hafa
skemmdirnar orðið á
Vestfjörðum, á Barðaströnd
og Patreksfirði, einnig á Bol-
ungarvíkurvegi og á Fróðár-
heiði. Vegir skemmdust og í
Leirársveit, en vegamála-
stjóra var í gærkvöldi ekki
fullkunnugt enn um allar
skemmdir. Þó var vitað um
að flætt hafði yfir vegi í Ár-
nessýslu og vegurinn í Hjalta
dal í Skagafirði hafði grafizt
sundur.
★
I gær var unnið að viðgerð
um á þessum skemmdum og'
var búizt við að víðast hvar
yrðu vegimir færir mjög
fljótt, þótt að sjálfsögðu geti
fullnaðarviðgerð ekki farið
fram þegar í stað.
Slys urðu ekki af völdum
þessara flóða og skriðufalla.
Það var ekki einasta hið
geysimikla regn er flóðunum
olli.' Á Vestfjörðum var all-
mikill snjór kominn í fjöll og
jörð var nokkuð tekin að
frjósa. Með þessu steypiregni
kemur 9 stiga hiti og snjó-
inn tekur allan upp og belj-
ar hann fram sem viðbótar
vatnsflaumur við regnið. —
Fróðir menn telja að fátt sé
verra en að fá vatnsflóð und-
ir frostskán á jörðu. Vatnið
lyftir þá stórum jarðflögum
og það veldur skriðuföllun-
um. —
Sem fyrr segir urðu nú að
þessu sinni mestar skemmd-
þarna vestra 121 mm á ein-
um sólarhring og töldu menn
að slíkt vatnsflóð hefði ekki
orðið um fjölda ára og jafn
mikið jarðrask ekki svo
hundruðum ára skipti.
★
Enn er sagt í annálnum að
í maí 1952 hafi orðið mikl-
ar skemmdir á vegum við
Patreksfjörð.
Það er. athyglisvert að í öll
skiptin eru þessi flóð í vor-
leysingum en aldrei hendir
það að flóð og skriðuföll geri
þarna í miðjum nóvember,
enda eðlilegast að þá sé jörð
orðin harðfrosin og úrkoman
fremur snjór en rigning.
Bætt meðferð á fiski
Þingsálykiunarfillaga á Alþingi
TJTBYTT hefur verið á Alþingi
þingsályktunartillögu, er Einar
Sigurðsson fiytur. Fer þingsálykt
unartillagana hér á eftir.
Alþingi ályktar að skora á rík-
isstjórnina að skipa 7 manna
nefnd til að undirbúa löggjöf um
veiðar og stórum bætta meðferð
á fiski. Sex r.efndarmenn skulu
skipaðir eftir tilnefningu Lands-
sambands ísienzkra útvegsmanna,
Sjómannasambands Islands, Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
Sölusambands íelnzkra fiskfram-
leiðenda, Samlags skreiðarfram-
leiðenda og Sambands ísl. sam-
vinnufélaga. Sjöunda mann nefnd
arinnar skipar ríkisstjórnin án
tilnefningar, og er hann formaður
hennar. Nefndin athugi sérstak-
lega, hvermg auka megi verð-
tnæii fisks rheð því aþ ísa hann
í kassa um borð í fiskiskipunum
Og veita styrk og lán til þess
að afla slíkra kassa. Ennfremur
láti hún athuga, hvernig megi
draga úr skemmdum á fiski í net
um, m. a. með því að kveða á um
þann tíma, sem stunda megi veið-
er með þorskanetum á hverju
ári. Skal störíum nefndarinnar
hraðað svo. að unnt verði að
leggja frumvarp um þetta efni
fyrir næsta reglulegt Alþingi.
I greinargerð er lögð á það
áherzla, að mikill munur sé á
verðmæti aflans til útflutnings
eftir því, hvort hráefnið sé fyrsta
flokks eða ekki. Hér sé því mikið
i húfi. Þá er á það bent, að ekki
dugi að fara vel með fiskinn,
eftir að hann er kominn inn fyrir
borðstokkirm, ef hann er skemmd
ur i veiðavfærunum. I tillögunni
sé því gert ráð fyrir, að væntan-
leg löggjöf fjalli jafnt um veið-
arnar sem meðferðina á fiskin-
Taflfélag ísa-
fjarðar 60 ára
ISAFIRÐI, 14. nóv.: — Um þess-
ar mundir er Taflfélag Isafjarðar
60 ára. Var félagið stofnað vet-
urinn 1901—1902 af þeim Willard
Fiske -og Þorvaldi J ónasyni
lækni. Hefur skákáhugi jafnan
viðhaldist síðan á Tsafirði og
verið mjög mikill hin síðari ár.
Tvö undanfarin ár hefur bæjar-
stjórn Isafjarðar veitt félaginu
fjárstyrk til eflingar starfisem-
inni, auk þess að láta félaginu
ókeypis.í té sal bæjarbókasafns-
ins tii æfinga og taflfunda þrjú
kvöld í viku.
I tilefni afmælisins hyggst fé-
•lagið gangast fyrir afmælisskák-
móti ásamt fleiri mótum síðar í
vetur.
Stjórn Taflfélags Isafjarðar
skipa þessir menn: Magnús Aspe
lund formaður, Einar S. Einars-
son gjaldkeri, Birgir Valdimars-
son ritari, Magnús Kristinsson og
Kalfdán Hermannsson. — Skák-
meistari félagsins nú er Magnús
Alexanderssón. — AKS.
Rætt
um
olíu
Rússa
PARlS, 14. nóv. — Þingmanna
fundur Atlantshafsbandalagsins
hélt áfram störfum í dag fyrir
luktum dyrum. Var rætt um
Berlinarmálið og viðbúnað vest
urveldanna um að mæta sér-
hverri ógnun eða árás. Þá var
rætt um vaxandi veldi Rússa á
olíu-markaðnum á vesturlöndum,
svo og hinar rússnesku aðferðir
í verzlun og viðskiptum við
Afríku, Asíu og S-Ameríku. Þá
var rætt um markaðsmál Evrópu
og hugmyndina um að „Atlants
hafs-markaður“ gæti sprottið upþ
úr efnahagssamvinnu V-Evrópu
þjóða.
„Rauði kötturinn“ fyrsta
skáldsaga ungs höfundar
UNGUR höfundur, Gísli Kolbeins
son, sendir nú frá sér fyrstu
stóru skáldsögu sína. Nefnist hún
„Rauði kötturinn". Þetta er nú-
tíma saga, sem segir frá íslenzk-
um sjómönnum og suðrænu fólki
á Kúbu um það leyti, sem Castro
var að brjótast til valda.
Gísli Kolbeinsson stundaði far
mennsku um nokkurt árabil og
kom þá víða við, meðal annars
á Kúbu. „Rauði kötturinn“ dreg-
ur nafn af knæpu í Havana, höf-
uðborg Kúbu. Á „Rauða kettin-
um“ hittast sjómenn hvaðanseva
úr heiminum og gera sér dátt við
fagrar, íturvaxnar stúlkur með
eld í augum.
Gísli hefur áður skrifað nokkr
ar smásögur. Hann er 34 ára gam-
all, búsettur í Vestmannaeyj-
um og stundar þaðan sjómennsku
og siglingar.
Isafoldarprentsmiðja h.f. gef-
ur bókina út.
Sprengið ekki
í Afríku
NEW YORK, 14. nóv. St.iórnmála
nefnd SÞ. samþykkti í dag álykt
unartillögu þar sem skorað var
á kjarnorkuveldin að gera ekki
kjarnorkutilraunir í Afríku,
geyma þar ekki kjarnorkuvopn
né flytja þau um eða yfir þá
heimsálfu. Þessari tillögu greiddu
57 ríki atkvæði, þ.á.m. ísland,
ekkert var á móti, en 42 ríki sátu
hjá, m.a. Bretland og Bandarík
in. Fjögur ríki voru fjarverandi.
um síldamætur
Á aðalfundi Landssambánds
íslenzkra útvegsmanna var nokk
uð rætt um rányrkju og sam-
þykkt ályktun um bann við veiðl
smásíldar og smáufsa. í fram-
haldi a.f þessum fundi var svo
haldin ráðstefna um síldamæt-
ur, þar sem rætt var um að sam
ræma stærðir nóta og ýmislegt
fleira í sambandi við betri nýt-
ingu þeirra. Þessum aðgerðum
útvegsmanna ber að fagna. Ýms-
ir hafa áfellzt þá fyrir slóða-
skap, rányrkju og skeytingar-
leysi, en þeir sýna nú. að þek:
hafa fúllan hug á að gera allt,
sem unnt er, til fyllstu hag-
kvæmni. Afnám uppbótakerfis-
ins þýðir líka. að nú hagnast þeir
einir, sem vel reka báta sína,
en tilgangslaust er að leggja
fram útreikninga þeirra. sem iUa.
fara með eignir sínar.
Vantar liörkuna
V
f Moskvumálgagninu segir i
gær í ritstjórnargrein, þegar
rætt er um ágreining innan
Framsóknarf lokksins:
„Slík vinnubrögð eiga að sjálf
sögðu ekkert skylt við lýðræðl
og sá flokkur er illa á vegi stadd
ur, þar sem forystan lætur ánd-
stæðingaflokkum haldast uppi
skipulögð klíkustarfsemi og
beygir sig fyrir henni.“
Þarna er verið að áfellast þá
Hermann Jónasson og Eystein
Jónsson fyrir það að hafa látið
undan síga fyrir þeim mönnum
innan Framsóknarflokksins, sem
andvígir eru algerum samruna
hans við kommúnistaflokkinn.
Leiðarahöfundinum finnst það
Iítil stjórnsemi að flokksforysta
skuli líða „klíkustarfsemi“ inn-
an flokks síns, enda er hann upp
alinn í marxisma og hefur
lengst af verið hlynntur
einræðis- og öfgastefnum.
Þess er svo líka að gæta. að
hann er sjálfur í flokksforyst-
unni, sem flokksbróðir hans
nefndi KIu-Klux-Klan-klíkuna
og þar af leiðandi finnst honum
sjálfsagt að aðrir eigi ekki að
vera með ,.klíkustarfsemi“. Leið
arahöfundurinn heitir Magnús
Kjartansson.
344% tollar íráleitír
ToIIalækkunin, sem nú verð-
ur framkvæmd, er fyrsta alvar-
lega skrefið til að snúa við af
braut síhækkandi tollaálaga.
Fram að þessu hefur það verið
aðalmál hverrar stjórnar að
finna upp nýja skatta og tolla,
en Viðreisnarstjórnin hefur far-
ið þveröfuga leið. Hún byrjaði á
því a,ð lækka skatta á einstakl-
inga og hefur gefið fyrirheit um
að Ieiðrétta skattgreiðslur fyr-
irtækja. Nú hefur stjórnin farið
inn á nýjar brautir. þar sem eru
tollalækkanimar. Verulegur
árangur mun verða af þeirri
lækkun, sem frumvarp það boð-
ar. sem þessa dagana er rætt á
Alþingi, en jafnframt er kunn-
gerð heildarendurskðoun allra
tolla. sem lögð verður fyrir
næsta Alþingi. Landsmenn fagna
að sjálfsögðu mjög þessari stefnu
breytingu. enda eru allir fyrir
löngu orðnir langþreyttir á toll-
og skattáþjáninni. sem lamað
hefur framtak einstaklinganna
og skert hag almennings. Engum
dylst að nokkurn tíma tekur að
rétta við, .eftir tímabil „vinstri
stefnu“ og hvers kyns sukks, en
árangurinn fer þeim mun fvrr að
koma í liós sem hraus*legar ec
við vandanum brugðizt.