Morgunblaðið - 19.11.1961, Síða 5
Sunnudagur 19. nóv. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
5
A FÖSTUDAGINN opnaði
Magnús A Arnason sýningu í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. A
sýningunni eru 40 málverk og
5 höggmyndir, verður hún op-
in til 26. nóv. Myndirnar eru
allar til sólu, nema manna-
myndirnar, sem málaðar eru
eftir pónvun.
Fréttomaður blaðsins hitti
Magnús að máli í Bogasalnum
í gæt og spurði hann:
— Eru þetta %llt nýjar mynd
ir?
— Já, þær eru allar gerðar
á sl. ári. Til dæmis eru hér
fimm myridir frá Kaldadal,
níu úr Borgafirði, fimm úr
Hvaifiiði og fjórar frá Frakk-
iandi.
— Voruð þér í Frakklandi
i sumar?
— Já, við hjónin ferðuðumst
til Parísar og nokkuð suður
eftir Frakklandi. Vorum við
þar í lanai manaðartíma.
— Hvenær hélduð þér sýn-
ingu síðast?
— í>að var í Kópavogi í
fyrra. Þá sýndum við hjónin
(kona Magnúsar er frú Bar-
bara Arnason) í óinnréttaðrL
hæð í Féiagsheimili Kópavogs.
Er það fyrsta og eina listsýn-
ingin, sem haldin hefui verið
í Kópavogi. Það er langt síð-
an ég hef sýnt hér í Reykja-
vík.
— Hver.ær var það?
— Ja, það^ hefur verið 1953,
þá fcófðum við hjónin dvalið
2 ár í Prakklandi. Eftir að við
komum heim sýndum við sam-
an í Listamánnaskálanum.
Annars höfum við sýnt víða
um land. Ein þeirra sýninga
er mér sérstaklega minnisstæð.
Við dvöldum um tíma í tjaldi
í Haganesvík í Fljótum og
vorum að mála í nágrenninu.
Þorpsbúa langaði til að sjá
myndir okkar og báðu okkur
um að haida sýningu. En þarna
var ekkert hentugt húsnæði,
svo við hengdum myndirnar
utan á vöruskemmu, sem
þarna var og fólkið gekk í
kringum hana og skoðaði.
— Það hefur ekkert verið
að veðri?
— Nei, nei, það var indæl-
isveður og sýningin stóð ekki
nema rúman klukkutíma. Eitt
sinn sý;.dum við líka í Gríms-
ey, það var sumarið 1948, en
þá dvöldum við þar tvo mán-
uði. Það hafði aldrei verið
haldin íistsýning áður, svo við
urðum við ósk eyjarskeggja
og sýr.dum myndir okkar þar
17. júni.
— Munið þér eftir fyrstu
sýningu yðar?
— Já, mér er hún í fersku
minni. Það var 1918, sem ég
hélt haná og stóð hún þrjá
daga í iiusi templara. Að henni
lokinm hafði ég uppboð og
seldi al.'ar myndirnar. Fyrir
andvirði þeirra fór ég til
Ameríku og gat kostað mig til
eins árs námsdvalar þar. Þá
var gengi dollarsins þrjár krón
ur.
— Hafið þér ekki málað
neitt i Kopavogi, þar sem þér
búið?
— Það er ein mynd hérna
úr í'essvcginum. Annars hef
ég ekkert málað í Kópavogi.
Við höfum þar ljómandi út-
sýni, en ekki mótív til að
mála. Birian á kvöldin er oft
mjög íaiieg.
— Þér hafið málað Esjuna?
— Já, þessi mynd er útsýn
yfir Viðey frá Skúlagötu. En
útsýnið hérna uppi á' næstu
hæð i Þjóðminjasafninu er
alveg stórkostlegt, húsin með
Esjuna í baksýn, en það þarf
að vera nokkuð stór mynd.
— Þér málið fremur litlar
myndir?
— Já, ég er farinn til þess
upp á -'síðkastið. Þessar stóru
myndir njóta sín ekki nema á
söfnum, þar sem er nægilegt
rúm.
Söfnin
I.istasafn íslands er opi6 sunnudaga,
Jiriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 1:30—4 e.h.
Asgrifnssafn, Bergstaðastrætl 74 er
©pið priðjud., fimmtud. og sunnudaga
íiá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið sunnud.,
|>riðjud., fimmtud. og laugard. kl.
1.30— 4 e. h.
Lístasafn Einars Jónssonar opið
Bunnudaga og miðvikudaga frá kl.
1.30— 3,30.
Tæknibókasafn IlVfSÍ, Iðnskólanum:
Opið alla virka daga kl. 13 til 19. —
Laugardaga kl. 13—15.
Bókasafn Dagsbrúnar, Freyjugötu 27.
Opið á föstudögum frá 8—10 f.h., laug-
ardögum og sunnudögum kl. 4—7 e.h.
Ameríska Bókasafnið, Laugavegi 13
er opið 9—12 og 13—21, mánudaga, mið
vikudaga og föstudaga, 9—12 og 13—18
þriðjudaga og fimmtud.aga
Bókasafn Kópavogs: — Utlán þriðju
daga og fimmtudaga í báðum skólun-
um fyrir börn kl. 6—7:30 og fullorðna
kl. 8:30—10.
Bæjarbókasafn Reykjavíknr —
Sími 12308 — Aðalsafnið Þingholts-
stræti 29 A: Útlán; 2—10 alla virka
daga, nema laugardaga 2—7. Sunnu-
daga 5—7. Lesstofa: 10—10 alla virka
daga, nema laugardaga 10—7. Sunnu-
daga 2—7.
Útibú Hólmgarðí 34: Opið 5—7 alla
virka daga, nema laugardaga.
Útibú Hofsvallagötu 16: Opið 5:30—
7:30 alla virka daga, nema laugardaga.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið dag ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Loftleiðir h.f.: — Þorfinnur karls-
efni er væntanlegur kl. 05:30. Fer til
Luxemborgar kl. 07:00 og kemur aftur
kl. 23:00 og fer þá til N.Y. kl. 00:30. —
Leifur Eiríksson es væntanlegur kl.
08:00 og fer til Ósló, Kaupmannah. og
Hamborgar kl. 09:30.
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Gullfaxi er væntanlegur til Rvík
kl. 15:40 í dag frá Hamb., Kaupmh. og
Ósló. — Hrímfaxi fer til Glasg. og
Kaupmh. kl. 08:30 í fyrramálið. —
Innanlandsflug í dag: Til Akureyrar
og Vestmannaeyja. — Á morgun: Til
Akureyrar, Hornafjarðar, ísafjarðar og
Vestmanneyja.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Ventspils. — Askja er á
leið til Ítalíu.
H.f. Jöklar: — Langjökull fór í gær
frá Helsingfors til Leningrad. — Vatna
jökull er á leið til Grimsby.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell fer
í dag frá Haugesund áleiðis til Faxa-
flóa. — Arnarfell er á Akureyri. —
Jökuífell er í Rendsburg. — Dísarfell
er væntanlegt til Hafnarfjarðar á
mánudagsmorgun. — Litlafell fór í
gærkvöldi frá Rvík til Breiðafj.- og
Vestfj.hafna. — Helgafell er í Viborg.
— Hamrafell fer í dag frá Aruba til
Reykjavíkur.
- M E S S U R -
Dómkirkjan: — Síðdegismessa kl. 5
e.h. Séra Óskar J. Þorláksson.
Keflavíkurkirkja: — Barnaguðsþjón-
usta kl. 11 f.h. Messa kl. 2 e.h. Séra
Björn Jónsson.
Innri Njarðvík: — Mes*'*» kl. 5 e.h.
Björn Jónsson.
Bifreiöaeigendur
Hjólbarðar teknir
undan Og jafn-
vægi þeirra athug
að, rétt jafnvægi
stóreykur endingu
hjólbarðanna og
stýrisbúnaðarins.
Stór hluti af bíl-
um á Islandi hafa
ranga hjólastill-
ingu, eða eru stillt
ir fyrir hægri
handar akstur.
Hluti af skoðunar-
og stillitækjum
stöðvarinnar.
Lækkið viðhalds-
kostnað bifreiða
yðar — forðist
stór bilanir. —
Látið Bílaskoðun
h.f. segja yður um
ástand bifreiðar-
innar. I skoðunar-
gjaldinu er inni-.
falið framhjól-
og stýrisstilling á-
samt mótorstill-
inigu. —
Pantið tíma í síma
13-100.
Jafnvægi fram-
hjólanna Og fram-
hjólalegur athug-
að, hjólunum er
snúið upp í 122
km hraða.
Hemlar athugaðir
með fullkomnustu
tækjum, sem völ
er á. — Jafn-
ir hemlar minnka
hjólbarðaslit, og
stórauka aksturs-
hæfni bifreiðar-
innar.
Skoðun rafkerfis
og stilling hreyf-
ils er framkvæmd
með fullkomnustu
tækjum, sem völ
er á.
Framhjóla og stýr
isstilling og rann-
sókn á stýris-
búnaði er fram-
kvæmd með full-
komnustu tækjum
sinnar tegundar.
BÍLASKOÐLIM H.F.
Skulagötu 32 — Simi 13-100.