Morgunblaðið - 06.12.1961, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 06.12.1961, Qupperneq 20
20 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. des. 1961 r Margaret Summerton HÚSIÐ VID SJÚINN Skáldsaga 14 Það get ég sagt þér. Eg minnt ist þess, að þegar ég horfði rétt í svip framan í Timmy, hafði ég séð það. Hann er lifandi eft- irmynd hennar mömmu. Meira að segja með grænu augun hennar. Hann fór að hlæja, fyrst lágt en síðan fullum hálsi. Nú, þá þarf ekki lengur vitnanna við. Það koma stundum þeir dagar, þegar Edvina þolir ekki að líta hann augum. Hláturinn stöðv- aðist, en hanp horfði ennþá glettnislega á mig. Maður veit aldrei hvaða grillur erfðirnar geta gert manni. I>að þarf ekki annað en líta á þig. Og hvað um mig? spurði ég hissa. Áttu við það í alvöru, að þú vitir ekki, að þú sért áber- andi lík neinum af Elliot-slekt- inu? Nei. Líttu þá dálitið vandlega á alla myndahrúguna af honum afa 'þínum, sem hér eru dreifðar um ailt húsið. Hann stóð upp eins og hann ætlaði að ganga út. Hár- ið, já . . . og jafnvel hinar höfð- inglegu augnabrúnir. Örlögin hefðu ekki getað reynzt þér betur, Charlotte. Við skildum, þegar við yfirgáf um borðið. Hann fór að lesa dag- bókina góðu, en ég til þess að skoða garðinn á þessum skamma tíma, sem eftir var þangað til ég átti að hitta ömmu mína. Stundvíslega hálfellefu var Edvina tilbúin að sýna mér hús- ið. Við eyddum hundleiðinlegum klukkutíma í að ganga stofu úr stofu, þar sem allt lauslegt var yfirbreitt og loks komum við í setustofuna. EdVina stanzaði fyrir framan málverkið af afa. Þessi mynd er bezt af þeim öll- um, sagði hún. . Myndin, sem sólin skein á beint inn um gluggann, var það eina í stofunni, sem alls ekki var breitt yfir Húsgögnin voru á kafi undir rykhlífum, svo að ekki var strax hægt að þekkja sköpulagið á nokkrum hlut þarna að flyglin um undanteknum. Grófur ullar- dúkur var ofan á gólfábreiðunni, en yfir myndunum var eitthvert hálfgagnsætt efni og ljósakrón- urnar voru í einhverju, sem líkt- ist pokum. En William Elliot, glæsilegur og kjólklæddur, var einn til sýnis. Eg fylgdi með augunum stafn- um, sem amma mín benti með og tókst þannig að koma óþolinmæði hennar til að sjóða upp út. Ekki þarna, sagði hún. Þetta er alveg bandvitlaus staður að horfa á hann frá. Komdu hingað. Ég hlýddi, en ég var annars þegar búin að skoða fimm mál- verk af afa mínum. A þessum fjörutíu og þrem árum, sem hann lifði, hafði honum unnizt alveg furðanlega tími til að standa og láta gera sig ódauðlegan. Eg kveinkaði mér enn undan skilnaðarháði Marks Halliwell og hafði skoðað tvær fyrstu mynd- irnar vandlega, en gat enga lík- ingu í þeim fundið við mitt and lit, nema kannske svipaðan hör- undslit. Og nú gat ég ekkert fundið að segja, sem ég hafði ekki þegar sagt fimm sinnum. Edvina hafði setzt ofan á ein- hverja rykhlífina, sem líklega hef ur hulið stól. Síðasta klukkutím- ann hafði hún alveg gengið fram af mér með áframhaldi sínu og dugnaði. Nú var hún í betra skapi en kvöldinu áður og það var enginn vafi, að hún skemmti sér konunglega. En nú var þreytan farin að segja til sín á andliti hennar, sem var fölt og hendurnar hvíldu máttlausar í-kjöltunni. Hún hefði vel getað verið hundrað ára núna. Eg gáði í kring um mig, að ein- — — Þá er það ákveðið. Við förum til Chile í sumarfríinn. hverju, sem hefði getað verið stóli, en fann ekkert og hélt því áfram að standa upp á endann. Allt í einu færðis^ máttur i augu hennar. Hún laut fram og starblíndi á mig, biðjandi. Sérðu það ekki sjálf, Charlotte? Hvað þú ert lík honum afa þínum? Ég sá það á svipstundu, þegar þú komst inn í gærkvöldi, en nú er það ennþá meira áberandi. í>að færðist einhver gleði í röddina, en svo dofnaði hún aft- ur og var loks orðin að skjálf- andi hvíslungum. Hárið á þér . . . það er ekkert síðara en var á honum: Eg horfði feimnislega á mynd- ina. Víst var um það að afi minn hafðj verið hreykinn af hárinu á sér, svona síðu. Svo sagði hún, og það var rétt eins og hún væri að sæma mig heiðurspeningi: Og þú hefur lika þessi dásamlegu brúnu augu hans. Þegar ég hafði gefið það, sem ég taldi viðeigandi svar, hélt hún áfram í einkennilega skörpum tón: Hefur mamma þín aldrei sagt þér, að þú sért lík honum? Nei, hún sagði bara, að ég likt ist í Elliot-ættina. Kannske hefur hún verið búin að gleyma, hvern ig hann leit út. Enda sá hún hann nú aldrei nema á málverkum. Munnurinn á gömlu konunni varð hálfskakkurý er hún svar- aði: Mamma þín, væna min, gleymdi nú annars aldrei neinu, sem hún hefði getað haft hag af. Ertu búin að sjá Timmy? Rétt sem snöggvast. Það var eins og henni iétti. Hvernig leizt þér á hann? Græn- eygður, svarthærður lítill Volo- lowski, Auðvitað getur blessað- ur krakkinn ekki gert að því, 'hvernig hann lítur út, og hann er gott barn, þegar rétti flöturinn snýr upp á honum, en það þýðir bara ekki að ætlast til, að ég sé að hossa honum á hnénu. Eg hreyfði mig órólega. Eru til nokkrar myndir af Esmond, sem ég gæti fengið að sjá? Það er ein hjá arninum. Eg lyfti rykhlífinni og leit nú Esmond augum í fyrsta sinn. Þetta var olíumynd af strák- hnokka, sjö- átta ára gömlum, í einhvers konar grimubúningi með háan hatt, síðbuxur og her- mannatreyju. Andlitið var ósköp alvanalegt, þetta var lítill dreng- ur sem var upp á sitt prúðasta, ljós á hörund og rjóður, bláeygð ur. Lokkur af ljósu hári kom uDdan hattinum. Eg lét hlifina falla fyrir aftur. Enga af honum uppkomnum? spurði ég. Hún hristi höfuðið og ég sagði: Hann var Ijóshærður eins og pabbi. Líktist hann honum ui# fleira? Jú, hann giftist laglegri stúiku, sem hafði augastað á aurunum hans, sagði Edvina. Það gerði pabbi þinn líka, var það ekki? Hún snuggaði með fyrirlitningu. Hann var fæddur bjáni og dó bjáni. Það er engin ástæða til að fara að vola yfir honum bróður þínum, Charlotte. En ég var ekki af baki dottin, heldur sagði: Og samt gafst þú honum og konunni hans og barn- inu heimili hérna, þegar þau komu aftur frá Ródesíu? Það var nú ekki nóg með það, heldur borgaði ég líka skuldirn- ar hans óg farið þeirra heim. Það var upp undir átta þúsund pund, sem þetta gönuhlaup hans kostaði mig. Og hvers vegna gerði ég það? Af því að ég er kristin kona. Eg sagði lágt: Já, kristnir menn fyrirgefa. Þú skalt ekki fara að reyna að segja mér fyrir Um skyldur mín- ar, Charlotte. Þú veizt ekkert Um bróður þinn. Eða gerirðu það kannske? Hvernig ætti ég að geta það? spurði ég. Alveg rétt. Þú veizt ekki, að það, sem hann gerði, var ófyrir- gefanlegt. Og viltu kannske vita, hvernig hánn endurgalt mér það sem ég gerði fyrir hann? Hvern- ig hann notaði peningana, sem ég gaf honum, og voru mínir pen- ingar? Sjálfur átti hann ekki grænan eyri. Viltu það? Þegar ég svaraði engu, sagði hún, til þess að ég skyldi að minnsta kosti ekki verða af svar- inu: Hann sigaði njósnurum á Danny og greiddi'þeim með mín- um peningum. Allt til þess að sanna að Danny væri svikari og koma honum í bölvun, og sanna, að hann væri ekki heldur neitt skyldur mér. Og svo talar þú við mig um að fyrirgefa Esmond. Hún beindi tilliti sínu til mín1 og bætti svo við smjattandi af ánægju: Það var ekki nema rétt á hann þegar hann komst að því, að Danny var skyldur mér alveg eins og hann hélt fram. Ef svo hefur verið kemur mér það á óvart, að Esmond skyldi viðurkenna, hvað hann hefði gert. Það stafaði af öðru, svaraði hún íbyggin. Honum tókst að finna út af þessu grúski sínu, að Danny væri brjálaður; hefði ver ið á geðveikrahæli og væri því ekki trúverðugur. En það var ekki annað en andstyggðar lygi. Danny vitlaus, þó, þó! Röddin lækkaði niður í hvisl. En þetta bragð Esmonds kom bara ekki að gagni. Danny var búinn að segja mér þetta sjálfur. En af því að 'hann hafði engan til að hugsa um sig, varð hann veikur. Það kemur fyrir marga snillinga, sem erú vanmetnir af heiminum. Byrðin verður þeim of þung. Þú átt við. að hann hafi orðið fyrir einhverju andlegu áfalli. Já. Hún andvarpaði þungt, en svo liðkaðist um málið hjá henni. En nú, fyrst við erum einar, ætla ég að segja Þér, hvað ég hef í hyggju að gera. Eg ætla að setja allar myndirnar, sem Danny lét eftir sig, á sýningu í London. Það var hans mesti metnaður í lífinu. Við töluðum oft saman um það. Jafnvel þó að hann sé dauður, ætla ég að sjá til þess, að hann verði viðurkenndur sá snillingur sem hann var. Aftur var eins og hún ætlaði að fara að skjálfa, en hún hristi það af sér, og sagði einbeittlega: Það er þess vegna, sem hann Mark kom hingað frá London. Hann ætlar að sjá um það allt. James átti að réttu lagi að gera það fyrir mig, en nú er hann veikur. Hún snörlaði með gremju og fyrirlitningu: Eg hef nú aldrei vitað aðra eins kreistu. í hvert sinn, sem ég þarf á honum að halda, fer hann í bælið. En Mark er nú ágætis drengur, og hann mun sjá um, að Danny hljóti þá viðurkenningu, sem hann verðskuldar. Þegar maður verður gamall, Charlotte, fækk- ar stöðugt þeim hlutum, sem mað ur telur mikilsverða. Og það eru ekki margar konur yfir áttrætt, sem eiga enn ólokið mikilvægu erindi. En myndirnar hans Danny eru mitt erindi og hlutverk. Hún gerði ofurlitla þögn. Hann var mér eins og sonur, miklu meir en pabbi þinn var nokkurntíma. Ég þurfti hans með og hann mín. Þannig ráðstafar guð því stundum. Af miskunn sinni stefnir hann stundum sam- an tveim manneskjum, sem eiga engan annan til að elska. Eg 'horfði á í hreinustu vand- ræðum með sjálfa mig, þegar tár in runnu niður eftir kinnunum a henni og niður á hendurnar. Hann var hjá mér, af því að hann elskaði mig, en ekki vegna þess, sem hann hafði upp úr því, eins og hin gera. Hann elskaði mig, og mín gleði var, hans gleði. Við vorum hamingjusöm saman og meðan hann var hérna, hafði ég alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir stafni. Ef gott var veður, fór hann með mig út að aka . . . hvert sem ég vildi og hann ók svo hægt, að ég gat skoðað allt, sem fyrir augun bar, en ekki eins og Russell, sem hugsar um það eitt að geta komizt sem allra fyrst heim. Og svo þegar hann var hættur að mála og við gátum verið sam- an á kvöldin var hann vanur að leika á píanóið fyrir mig. Hann hafði ágætt söngeýra. Hann þurfti alls ekki nótur. Eg sagði honum bara nafnið á laginu og þá lék hann það, ekki einu sinni, heldur tuttugu sinnum, ef ég óskaði þess. * x- X- GEISLI GEIMFARI X- X- >f /ZV LUCY FOX'S ROOM.HEXT 70 £>#. &AR'£ SUJrE... WOW PO YOi/ EXPLAIN MVSTICUS METALL1CUS CAPT. YOGttGT — Þetta veldur mér hugarangri Gar læknir .... Mér þykir leitt að deila við Lúsí og ég hata blekk- ingar! — Verið þér róleg frú Colby. Og við hofum okkar einkafund með Metallikus eftir samkomuna. í herbergi Lúsí Fox næst við íbúð Gar læknis .... — Hvaða skýringu gefur þú á Metallikus. Geisli? ÍUlItvarpiö Miðvikudagur 6. desember 8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik ar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tón- leikar — 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónleikar). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. -• 12:25 Fréttir og tilkynningar). 13:00 ,,Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar — 16:00 Veðurfr. — Tónleikar — 17:00 Fréttir — Tón leikar). 17:40 Framburðarkennsla 1 dönsku og ensku. 18:00 Útvarpssaga barnanna: i.Bakka- Knútur" eftir séra Jón Kr. ís- feld; III. (Höf. les). 18:20 Veðurfregnir — 18:30 t»ingfréttlr Tónleikar. — 18:50 Tilkynningar. 19:30 Fréttir. 20:00 Tónleikar: Bela Sanders og hljómsveit hans leika vaisa- syrpu. 20:20 Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Grænlend«« inga þáttur (Dr. Kristján Eld- járn þjóðminjavörður). b) íslenzk tónlist: Lög eftir Þór arin Guðmundsson. c) Sigurbjörn Stefánsson flytur siglfirzkar sagnir skráðar af Guðlaugi Sigurðssynl d) Jóhannes skáld úr Kötlum les úr þjóðsögum Jóns --rnasou ar. 21:45 íslenzkt mál (Jón AðaTsteijin Jónsson cand. mag.). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Upplestur: Dean Acheson rif.iar upp liðna tíð; III. Um Ernest Bevin (Hersteinn Pálsson ritstj.) 22:30 Næturhljómleikar: a) ,,För Gullivers til Putalands*\ sinfónía nr. 1 eftir Edgar Stillman Kelly (AmeriKU- hljómsveitin leikur; Richard Korn stjórnar). b) ..Grand Canyon", svíta eftir Ferde Grofé (NBC-htiómsveit in í New York leikur; Tosc- anini stjórnar). 23:30 Dagskrárlok. Fimmtudagur 7. desember 8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik ar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tón- leikar — 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónleikar). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. mm 12:25 Fréttir og tilkynningar). 13:00 ,,Á frívaktinni"; sjómannaþáttup (Sigríður Hagalín). 15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar — 16:00 Veðurfr. — Tónleikar — 17:00 Fréttir — T&1* leikar). 17:40 Framburðarkennsla í frönsku og þýzku. 18:00 Fyrir yngstu hlustendurna (Guð rún Steingrímsdóttir). 18:20 Veðurfregnir — 18:30 Þingfréttip Tónleikar. — 18:50 Tilkynningar, 19:30 Fréttir. 20:00 Af vettvangi dómsmálanna (Hé kon Guðmundsson hæstaréttar- ritari). 20:20 Einsöngur: Adele Stolte syngur lög eftir Reichardt, Zelter og Mozart. 20:35 Erindi: NATO-fundur og Berlfn arför (Gísli Jónsson alþingismaö ur). 21:00 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Þjóðleikhúsinu; fyrri hluti. Stjórnandi: Jindrich Rohan. Einleikari á píanó: Ás- geir Beinteinsson. a) Þrjár myndir op. 44 eftir Jón Leifs (frumflutn.). b) Píanókonsert í Es-dúr op. 71 eftir Beethoven. 21:45 Af blöðum náttúrufræðinnar: Elztu menjar um jarðlífið. (Örn ólfur Thorlacius fil. kand.). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Upplestur: Dean Acheson rifjaí upp liðna tíð; VI.: Syrpa fré Rússlandi (Hersteinn Pálsgon rit- stjóri). 22:30 Harmonikuþáttur (Högni Jón«- son og Henry J. Eyland). 23:00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.