Morgunblaðið - 09.12.1961, Qupperneq 22
22
MORCVHBLAÐIÐ
Laugardagur 9. des. 1961
Handboltaspil um
HANDKNATTLEIKUR er
vinsæl íþrótt og fleiri iðka
þá íþrótt hér en nokkra aðra.
Og vegna vinsælda þessarar
íþróttar hefur Handknatt-
leikssambandið ráðizt í það
fyrirtæki að gefa út hand-
knattleiksspil. Er það hin
bezta dægradvöl og á án efa
eftir að hljóta vinsældir hjá
almenningi.
Handknattleiksspilið er
byggt á gangi drottningar á
skákborði. Spilið býður upp
á ótal möguleika til skorunar
marka og sá er beztur í þessu
spili sem hefur þekkingu á
skák — og han.lknattleik.
Handknattleikssambandið
fer með þessu inn á nýja
braut til fjáröflunar, en fjár-
skortur háir starfsemi sam-
bandsins. Er það von stjórn-
arinnar að spilið geti nokkuð
bætt um þröngan f járhag um
leið og það er vissa sam-
bandsins að fólk almennt hafi
gaman af spilinu.
Á myndinni sést ein kunn-
asta handknattleikskona lands
ins, Gerða Jónsdóttir, KR,
vera að leika spilið og mót-
herjinn er ekki minna þekkt-
ur — það er stórmeistarinn
Friðrik Ólafsson. Við vitum
ekki hver vann leikinn, en
þeim leizt mjög vel á spilið
og höfðu gaman af því.
HÉR er Gísli Halldórsson for-
maður ÍBR að afhenda fyrirliða
KR í 3. flokki félagsins í körfu-
knattleik sigurlaunin á Reykja-
víkurmótinu í þeirri grein. Kol-
beinn Pálsson heitir hinn ungi
piltur og vakti sérstaka athygli
fyrir lagni sína og kunnáttu í
leiknum. Hann hefir einnig sýnt
nijö'g góðan handknattleik. Er
þarna mikið og gott efni á ferð-
inni.
Svíar unnu
DANIR og Svíar léku landsleik
í handknattleik á þriðjudags-
kvöldið og fór leikurinn fram í
Gautaborg. Svíar sigruðu með
eins marks mun.
Leikurinn var æsispennandi.
í hálfleik höfðu Svíar náð for-
ystu, 10:9. í síðari hálfleik tókst
þeim að auka bilið og ná 5
marka forskoti. En Danimir
sóttu sig og áttu glæsilegan leik
kaflau ndir lokin, breyttu þeir
stöðunni á örfáum mínútum úr
15:19 í 18:19.
Einar Sæmundsson endur-
kjörinn formaður KR
AÐALFUNDUR KR var hald-
inn miðvikudaginn 29. nóvem-
ber í Félagsheimili KR. Form.
félagsins, Einar Sæmundsson,
setti fundinn og tilnefndi sem
fundarstjóra Gísla Halldórfeson,
og fundarritara Sigurgeir Guð-
mannsson.
Ritari félagsins, Gunnar Sig-
urðsson, flutti skýrslu aðal-
stjórnar og útdrátt úr skýrslum
íþróttadeildanna. Stjórnin hefur
yfirstjórn sameiginlegra mála
félagsins og skipar árlega rekstr
arnefndir íþróttamannvirkja fé-
lagsins, íþróttaheimilisins, skíða
skálans og skiðalyftunnar, og
stjórn Minningarsjóðs Erlendar
Ó. Péturssonar. Einnig skipaði
stjórnin sérstaka fjáröflunar-
nefnd til þess að afla fjár hins
sífellt vaxandi og fjárfreka
reksturs félagsins.
Fimleikadeild: — Á vegum
deildarinnar æfði aðeins einn
flokkur, úrvalsflokur karla.
Sýndi hann 4 sinnum á árinu,
m. a. á Þjóðhátíðardaginn og
lokadegi Reykjavíkursýningar-
innar. Kennarar voru Benedikt
Jakobsson og Jónas Jónsson.
í haust hóf deildin æfingar í 3
nýjum flokkum, frúarflokki, öld
ungaflokki og drengjaflokki.
Sunddeild: Starfsemi deildar-
innar var svipuð og undanfar-
andi ár og tók KR þátt í öllum
sundmótum, sem haldin voru á
á árinu. Þjálfari deildarinnar
var Kristján Þórisson.
Körfuknattleiksdeild: Starf-
semi deildarinnar hefur verið
ört vaxandi á árinu og með
umönnun yngri flokkanna und-
anfarið, er deildin nú að koma
sér upp góðum meistaraflokk-
um. Á árinu vann KR 3. fl.
karla og meistaraflokk kvenna
á íslandsmótinu. Aðalþjálfari
deildarinnar var Þórir Arin-
bjarnarson.
Handknattleiksdeild: Starf-
semi deildarinnar var með líku
fyrirkomulagi og undanfarin ár.
KR sendi lið í öll handknatt-
leiksmótin, sem haldin voru, og
varð Reykjavíkurmeistari í
Meistara- og 1. fl. kvenna, og
einnig sigraði félagið í Haust-
móti 4. fl. Á árinu tók KR á
danska handknattleiksliðinu Eft
erslægten. Náði meistaraflokkur
karla jafntefli gegn Dönunum
og einnig gegn Tékkunum, sem
komu hingað sl. haust. Þjálfar-
ar deildarinnar voru Heinz
Steinmann, Bára Guðmannsdótt
ir, María Guðmundsdóttir, Reyn
ir Ólafsson, Karl Jóhannsson,
Pétur Stefánsson og Sigurður
Óskarsson.
Skíðadeild: — Eins og undan-
farin ár var töluvert unnið að
ER ODYRAST
ER STERKT OG ENDINGARGOTT
ER AUÐVELT AÐ ÞVO
HEFUR FAGRA ÁFERÐ
framkvæmdum við skíðaskálann
og skíðalyftuna og var lyftan
vígð 12. marz sl. Árangur skíða-
fólks KR var hinn bezti sem
náðst hefur um árabil.
Af 66 einstaklingsverðlaunum
í mótum hér stmnanlands unnu
KR-ingar 38, og af 17 sveita-
keppnum vann KR 8.
Frjálsíþróttadeild: — Fyrir-
komulag var svipað og verið
hefur undanfarin ár. Teknar
voru upp séræfingar fyrir stúlk
ur. Deildin náði góðum árangri
á mótum sumarsins,. fékk 10
meistara af 17 á MMÍ og á
MMR fékk KR 13 meistara af
18. Af yngri félögum deildar-
innar, er þess helzt að geta, að
KR vann 12 meistarastig af 14
talsins.
KR-ingar kepptu víða á ár-
inu: Akureyri, Akranesi, Hel-
sinki, Rostock, Turku, Osló,
Malmö, Dresden og víðar.
Þjálfari deildarinnar var Bene
dikt Jakobsson.
Knattspyrnudéild: — Deildin
starfaði af miklum þrótti sem
fyrr. Vann KR íslandsmótið í
17. sinn og vann hinn sö^ulega
grip, sem um hefur verið keppt
síðan 1912, en nú var um keppt
í 50. og síðasta sinn. Alls vann
KR sigur í 12 knattspyrnumót-
um af 31, sem haldin voru á
vegum KRR og KSÍ. Beztum
árangri af flokkum deildarinn-
ar náðu meistaraflokkur og 4.
flokkur, sem vann 4 mót af 6
í A og B liðum.
Þjálfarar knattspyrnumanna
voru Óli B. Jónsson (Mfl., 1. fl.
og 2. fl.), Ragnar Guðmundsson
og Guðmundur Haraldsson (3.
fl.), Guðbjörn Jónsson (4. fl.),
Gunnar Jónsson (5. fl.) og
Gunnar Felixson (Knattþraut-
ir).
Á árinu tók deildin á móti
tveim unglingaliðum, Bagsværd
frá Danmörku og Blau Weiss
frá Vestur-Berlín.
Á árinu fóru tveir þjálfarar
deildarinnar, Öli B. Jónsson og
Guðbjörn Jónsson á námskeið
fyrir þjálfara, sem haldið var í
Vejle á Jótlandi.
Eins og aðrar deildir félags-
ins á knattspyrnudeildin við
mikla fjárhagsörðugleika að
að stríða. Til þess að yfirstíga
þá örðugleika var innheimta fé-
lagsgjalda deildarinnar endur-
skipulögð og innheimtust kr.
36.700,00, sem er 50% meira en
hæst hefur verið innheimt áð-
ur. Alls innheimtust hjá öllu
félaginu í árstillögum og styrkt
argjöldum kr. 128.000,00 frá fé-
lagsmönnum.
Gjaldkeri félagsins, Þórgeir
Sigurðsson, lagði fram reikn-
inga félagsins. Alls nam rekst-
urskostnaður félagsins kr. 627.
000,00.
Á fundinum voru samþykkt-
ar breytingar á lögum félags-
ins varðandi veitingu heiðurs-
merkja.
í stjórn voru kosnir:
Form.: Einar Sæmundsson.
Varaform.: Sveinn Björnsson.
Gjaldkeri: Þorgeir Sigurðsson.
Ritari: Gunnar Sigurðsson.
Fundarritari: Birgir Þorvalds-
son.
Spjaldskrárritari: Ágúst Haf-
berg.
Form. hússtjórnar: Gísli Hall-
dórsson.
Formenn deildarstjórna eru:
Fimleikadeild: Árni Magnús-
son.
Handknattleiksdeild: Sigur-
geir Guðmannsson.
Handknattleiksdeild: Sigurð-
ur Halldórsson.
Frjlásíþróttadeild: Óskar Guð
mundsson.
Körfuknattleiksdeild: Helgi
Sigurðsson.
Skíðadeild: Þórir Jónsson.
Sunddeild: Józi Otti Jónsson.
J