Morgunblaðið - 10.12.1961, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.12.1961, Blaðsíða 4
4 J/ORGUNnr. A Ð1Ð Sunnudagur 10. des. 1961 íslenzk kona vinnur bókmenntaafrek. Guðrún P. Helgadóttir ritar bók um skáld- konur fyrri aida. Komín er á bókamarkaSinn ný bók „Skáldkonur fyrri aidd“ eftir GuSrúnu P. Heigadóttur, skólastjóra Kvennaskólans í Reykjavík. í bók þessari segir höfundur á látlausan og alþýðlegan hátt frá menntun kvenna til forna og hlutdeild þeirra í sköpunarsögu bókmenntanna. í bókinni er m. a. sagt frá einsetukonum seiðkonum og völvum og lýst nunnu- klaustrunum tveim. Þar segir frá Ásdísi á Bjargi, Steinunni Refsdóttur, Þórhildi skáldkonu, Steinvöru á Keldum og ungu stúlk- unni, Jóreiði í Miðjumdal. Þá er þar athyglisverður kafli um dansa og rímur og rakin þróunarsaga íslenzku stökunnar. Þetta er óskabók allra, sem unna þjóðlegum fróðleik. Þetta er óskabók íslenzkra kvenna í ár. K V ÖLDV ÖKUÚTGÁFAN. Skúli Guójönsson ur myrkri K Kunnið þér að umgangast bliait fólk? Bók Skúla Guðjónssonar, bónda að Ljótunnarstöð- um, Bréf úr myrkri, er einstætt verk, karlmannleg og vekjandi bók rituð í gamansömum stíl, en þó er hún fyrst og fremst bréf frá blindum manni til okk- ar, sem sjón höfum. Sá sem les þessa bók, fær ekki aðeins aukinn skiln- ing á lífi og hugarástandi blindra manna, heldur lær- ir hann einnig að umgangast blint fólk þannig, að það veiti báðum aðilum gleði. „Þegar ég hafði lokið við að skrifa verkið, fann ég að ég var búinn að skrifa mig í sátt við lífið“, segir höfundur í blaðaviðtali. HEILDSÖLUBIR3ÐIR Sími 12804 eða Box 6 Reykjavík Öldin átjánda síðara bindi — og fleiri bækur frá Iðunnarufgáfunni IÐUNN hefur sent á markaðinn síðara bindi Aldarinar átjándu, sem nær yfir árin 1761—1800. En fyrra bindi þessa verks, sem náði yfir árabilið 1701—1760. kom út fyrir síðustu jóL Bók þessi er með sama sniði og „Aldirnar“, sem áður eru komn- ar út. Allar frásagnir ritaðar í stíl samtíma blaðafregna og fyr- irsagnir með sama hætti og í nú- tíma fréttablaði. Bókin er prýdd yfir 150 myndum, og eru margar þeirra fáséðar, eins og að líkum lætur. — Jón Helgason ritstjóri hefur tekið saman bæði bindin af Öldinni átjándu. Prentsmiðjan Oddi annaðisi prentun; en mynda mótin gerði prentmyndastofan Litróf. Er allur búnaður bókar- innar hinn vandaðasti. „Aldirnar", sem Iðunn hefur gefið út, eru nú orðnar sex tals- ins og greina frá sögu vorri í 250 ár samfleytt. Bækurnar eru þess ar: Öldin átjánda I—II (árin 1701—1800) Öldin sem leið I—II (árin 1801—1900) og Öldin okkar I—H (árin 1901—1950). Bækur þessar eru bæði nýstárlegar og skemmtilegar, enda mjög vin- sælar. Stærð þessara ritverka samanlagt er sem svarar 3350 venjulegum bókarsíðum, og er þá einnig miðað við venjulegt letur magn á síðu. Myndirnar eru sam tals yfir 1500 að tölu og æði fjöl breyttar, eins og gefur að skilja. í þessum ritverkum er saman komið hið mesta safn margvís- legra íslenzkra mynda: frétta- myndir alls konar, mikill fjöldi mannamynda, myndir af bygg- ingum og mannvirkjum, fjöldi staðamynda frá ýmsum tímum o.m.fl. Aðrar bækur. sem IÐUNN sendir á markað nú fyrir jólin eru þessar: íslenzkar gátur, heild arsafn Jóns Árnasonar, eina heildarsafnið, sem til er af ís- lenzkum gátum, þessum gömlu góðkunningjum, sem alltaf eiga vinsældum að fagna. ekki sízt hjá börnum og unglingum, enda er góð dægradvöl að ráða gátur. Nóttin langa, spennandi bók eftir metsöluhöfundinn Alistair Mac Lean, þann hinn sama, er skrif- aði Byssurnar í Navarone. —. Frúin á GammsstöSum, skáld- saga eftir John KnitteL Þetta er ástarsaga og örlagasaga, er gerist í svissneskum fjalladal. Saga þessi hefur verið kvikmynduð fyrir skömmu. Barna- og unglingabækur: — Baldintáta verður umsjónaniaður þriðja og síðasta bókin um Bald- intátu og heimavistarskólann að Laufstöðum. — Fimm á fornum Jón Helgason slóðum, ný bók í bókaflokknum um félegana fimm. — Dularfulla herbergið, þriðja bókin í flokki leynilögreglusagna handa börn- um og unglingum. — Ofantaldar þrjár bækur eru allar eftir Enid Blyton. höfund ævintýrabók- anna og allar prýddar myndum, — Tói strýkur með varðskipi, unglingabók eftir Eystein unga, Segir frá munaðarlausum dreng, sem strauk með varðskipi, þegar átökin við Breta stóðu sem hæst, og lenti í sögulegum ævintýrum. — Petra litla, saga handa telpum eftir hinn kunna norska höfund, Gunnvor Fossum./Og loks er það svo Óli Alexander á hlaupum, ný saga um Xítinn og kátan snáða, Fílibomm — bomm — bomm. sem nefndi sig Óla Alexander Fyrsta sagan um Óla Alexander hefur verið lesin í útvarp við miklar vinsældir yngstu hlust- endanna. Hér og þar og allstaðar HRINGUNUM. c/if}

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.