Morgunblaðið - 10.12.1961, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.12.1961, Blaðsíða 17
Sunnudagur 10. des. 1961 MORGUNBLAÐIÐ 17 „Litli Siggi og kálfurinn46 BÓKAÚTGÁFAN Dímon hefur sent á markaðinn sérkennilega barnabók eftir færeyska höfund- inn Sigurð Joensen. Bókin nefn- ist „Litli Siggi og kálfurinn“. Hiún er 40 blaðsíður í stóru broti og á hverri síðu er teikning eftir færeysku listakonuna Fridu í Grótinum, sem er mjög vinsæl í heimalandi sínu. Höfundur sögunnar um Litla Sigga er málaflutningsmaður við Landsréttinn í Þórshöfn og er þegar kunnur í Færeyjum fyrir þrjár bækur sínar um Litla Sigga. Er þessi bók sú fyrsta í röðinni. Kaffisala Styrktar félags vangefinna Hafnarfjörður SUNNUDAGINN 10. des. hafa konur í Styrktarfélagi vangef- inna kaffisölu í Tjarnarcafé og hefst hún kl. 2 e.h. Sú nýlunda verður í sambandi Við þessa kaffisölu, að þar verða seld sætindi, kökur niðursuðu vörur o.fl. sem konur í erlendum sendiráðum í Reykjaví'k hafa gefið af rausn og miklum hlýhug í garð félagsins. Gefst bæjarbúum. feostur á að kaupa til jólaglaðn ings nokkuð af varningi, sem annars er hér ekki á boðstólum, jafnhliða því að fá kaffi. Erlendu konurnar hafa sjálfar búið til ýmislegt góðgæti, sem siður er að útbúa fyrir jól í þeirra heima löndum, en auk þess hafa þær .gefið sitthvað af verzlunarvarn ingi, sem sjaldan sést hér. Allt fé sem konur í Styrktar- félagi vangefinna safna, rennur í sérstakan sjóð, sem varið er ti’l kaupa á húsbúnaði, leiktækjum og öðrum góðum munum handa þeim stofnunum, sem annast van gefið fólk. Málverkasýning á Akranesi AKRANESI, 8. des. — Málverka sýningu opnaði frú Gréta Björnsson í Iðnskólahúsinu í dag kl. 5. Málverkin eru 48 talsins, allt frá myndunum „við fjalla- vötnin“ og til „Síldarstúlkna". Listakonan er heppin að hitta á landlegu. Sýningin verður opin laugardag og sunnudag. — Mál- verkin bera með sér, að frúin hefur ferðazt um land allt. — Einnig sýnir hún myndir úr Jórsalaför sinni. — Oddur. 44 Vandað ,,Púkkspil komið út KOMIÐ er á markaðinn spil, iem gefið hefur verið nafnið „Púkkspilið“. Var þetta áður fyrr mjög vinsæl dægrastytting «— og ekki sízt spilað um jólin. Það var „púkkað" á flestum heimilum og oft notaðar kaffi- baunir í stað spilapeninga. „Púkkspilið“ er því kærkom- |n endurvakning og verður án efa mikið spilað. Þetta spil er fjórþætt og því fjölbreyttara en gamla púkkspilið. Plattinn, sem púkkað er á, er úr brenndum fínvið með níu skálum. Litlum spilum er komið fyrir á platt- anum og 200 spilapeningar íylgja með og svo leikreglur. Spilið og það sem fylgir því er hið vandaðasta og snyrtilegt að frágangi. Verður það því góður jólaglaðningur. VINSÆLASTA JÚLAGJÚFIN TIL TIL E I O I IM K O IM IJ IM IM A R Fyrir þær: Aðe/ns það bezta Áðeins það smekklegasta butterfly — cambridge — náttfötin ■> 4/ Old Fashion 44 fást í öllum belztu kvenfataverzlunum butterfly-umboðið: E. TH. MATHIESEN H.F, Laugavegi 178 — Sími 36570 « BÆKIiR Æ8KIÍMIMAR Höfum ennþá til ýmsar úrvals barna- og unglingabækur með lágu verði: Bjarnarkló (Sigurður Gunnarsson þýddi) .... kr. 32,00 Bókin okkar (Hannes J. Magnússon)............— 24,00 Dóra sér og sigrar (Ragnheiður Jónsdóttir ) .... — 35,00 Didda dýralæknir (Sig. Gunnarsson þýddi) .... — 50,00 Dagur frækni (Sig Gunnarsson þýddi) .........— 25,00 Elsa og Óli (Sig. Gunnarsson þýddi) .........-— 48,00 Eirílcur og Malla (Sig. Gunnarsson þýddi) .... — 23,00 Ennþá gerast ævintýri (Óskar Aðalsteinn) .... — 25,00 Græniandsför'mín (Þorv. Sæmundsson) .........— 19,00 Geira glókollur (Margrét Jónsdóttir) ........— 45,00 Geira glókollur í Reykjavík (Margrét Jónsd.) — 45,00 1 Glaðheimum (Ragnheiður Jónsdóttir) ........— 32,00 Horður á Grund (Skúli Þorsteinsson) .........— 35,00 Hörður Og Helga (Ragnheiður Jónsdóttir) .... — 28,00 Glaðheimakvöld (Ragnheiður Jónsdóttir) .... — 35,00 Kappar úr íslendinga sögum (Marmó Stefánss.) — 28,00 Kibba kiðlingur (Hörður Gunnarsson þýddi) .. — 18,00 Oft er kátt í koti (Margrét Jónsdóttir) .....— 17,00 Stellu-bækurnar (Sig. Gunnarsson þýddi) .... — 30,00 Snorri (Jenna og Heiðar) ....................— 32,00 Steini í Ásdal (Jón Björnsson) .............. — 45,00 Snjallir snáðar (Jenna og Heiðar) ...........— 45,00 Tveggja daga æviniýri (G. M. Magnússon) .... kr. 25,00 Upp í öræfum (Jóh. Friðlaugsson) ............— 30,00 Vaia og Dóra (Ragnheiður Jónsdóttir) ........— 38,00 Vormenn íslands (Óskai Aðalsteinn) ..........— 30,00 Sumargestir (Sig. Gunnarsson) ...............■ — 45,00 Útilegubörnin (Guðm. Hagalín) ...............— 30,00 Ljóð eftir Sig. Júl. Jóhannesson ............— 75,00 án söluskatts ★ Flestar eru bækur þessar eftir þekkta, íslenzka höfunda í kennarastétt. Þá má geta þess, að verð bókanna er langt undir nuverandi bókhlöðuverði. \ Kaupið því góðar bækur fyrir lítið verð. FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM. Bókaúigáfa Æskunnaer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.