Morgunblaðið - 10.12.1961, Blaðsíða 9
Sunnudagui 10. des. 1961
M O R C V *v n r á ni D
FRÁ SKUGGSJÁ
Lúðvík Kristjánsson:
Á slóðum Jóns Ssgurðssonar
Vegleg og fögur bók um ævi og störf Jón's Sig-
urðssonar forseta. Allt efni bókarinnar er
byggt á rannsókn frumheimilda og í bókimni
eru fleiri myndir af skilríkjum, varðandi Jón
Sigurösson, en áður hafa komið fyrir almenn-
ingssjónir. Þetta er tvímælalaust merkasta rit,
sem skráð hefur verið um Jón, og ættu allir,
sem kynnast vilja frelsisbaráttu íslendinga á
19. öldinni, sögu þjóðarinnar og ævi og störf-
um Jóns Sigurðssonar, að eignast þessa bók.
Guðmundur Gíslason Hagalín:
Það er engin þörf að kvarta
Endurminningar Kristínar Kristjánsson, sem
fædd er i Borgarfirði, en fluttist ung að aldri
til Vesturheims og bjó í íslendingabyggðum
Kanada í 11 ár. Kristín er merk kona og stór-
brotin og mörgum kunn fyrir skyggni sína og
dulargáfur og auk þess svo mikillar gerðar, að
allt, sem fram við hana hefur komið, engu
síður illt en gott, hefur aukið reisn hennar
og styrkt hana. Þetta er mikil saga, frásagnir
úr tveimur heimum og tveimur heimsálfum.
Guðmundur Gíslason Hagalín:
Töfrar draumsins
Saga um ástir og lífsdraum karls og konu,
töfrar lífsbiekkingarinnar og óskhyggjunnar, þá
töfra, sem löngum hafa verið skjólið í hretum
og hríðum hversdagsleikans, einmanaleika og
vonbrigða. Rammíslenzk skáldsaga, sem gerist
að mestu i íslenzku sjávarplássi. Ef til vill
bezta skáldsaga Hagalíns.
•JM
Gretar Fells:
Það er svo margt
Safn erinda um margvísleg efni, sálfræðileg,
heimspeki, dulfræðileg og fagurfræðileg.
Bókin er mótuð guðspekilegu lífsviðhorfi, en
ekki sálunjálparboðskapur eða áróður, heldur
frjálsar hugleiðingar um háleit og mikilvæg
efnt. sem allir verða fyrr eða síðar að taka
afstöðu til.
Alfred Lansing:
Harðfengi og hetjulund
Hin ótrúlega hrakningaför Ernest Shackdetons
til Suðurskautsins....einhver mesta ævin-
týraferð vorra tima . . . hrottalegur lestur, en
eigi síður hrífandi", segir í ritdómi í New York
Times. Stórfengleg lýsing á hetjubaráttu og
þreki maniia, sem virtust vera i vonlausri að-
stöðu og olurseidir hungri og kulda.
Jörgen Bitsch
Sandur og sól
Fróðleg og skemmtileg ferðasaga frá Arabiu,
lanoi hinna miklu auðna, fornlegu lífshátta,
fátæktar og auðæfa. Þar ríkir unaður og áþján
miðaldanna enn við hliðina á nútima lúxus og
framförum Þar eru enn við líði refsingar eins
og húðstrýkingar og limlestingar, og þar má
enn ekki taka ljósmyndir, þar sem spámaður-
inn hefur bannað það. Eigi að síður eru í þessari
bók 55 storfagrar litmyndir.
Peter Freuehen:
Sléttbakurinn
Frásagnir af hinu miskunnarlausa og harða lífi
hvalveiðimanna við Grænland á timum segl-
skipanna. Æsileg saga harðgerðra og ófyrir-
leitinna manna í stórbrotnu og miskunnarlausu
umhverfi. Hörkuspennandi og harðsoðin sjó-
mannabók, ósvikinn Peter Freuchen.
m
Taylor Galdwell:
Lœknirinnn Lúkas
Töfrandi skáldsaga og hcillandi og stórbrotið
verk um lækninn og guðspjallamanninn Lúkas.
Lesandinn kynntist taumlausum veizluhöldum
í keisarahöll, takmarkalausri fátækt hafnar-
borganna við Miðjarðarhaf, hann ferðast um
glæstar marmarahallir Rómaveldis og kynnist
eymd og fátækt galeiðuþræla. En yfir allt
gnæfir mannkærleikur Lúkasar og leit hans og
þrá eftir því, sem gott er og fagurt. Formála
fyrir þessari fögru bók hefur séra Bjarni Jóns-
son, vígslubiskup ritað.
Margit Söderholm:
Saman liggja lesðsr
Ný skáldsaga eftir höfund hinna vinsælu
Hellubæjabóka. Ileillandi fiásögn um örlög og
ástríður sundurleits hóps samferðamanna. Les-
andinn kynnist nýrri hlið á höfundarferli þess-
arar snjöllu skáldkonu.
Therese Charles:
Seiður hafs og asfar
Fögur ástirsaga, um unga stúlku, sem giftist
ríkum manni, til þess að sjá sjálfri sér og
systkinum sínum farborða. En ástin lætur ekki
að sér hæða, Daginn sem hún sá Byrne, íturvax-
inn, útitekinn og brosandi, þar sem hann stóð
um borð í ninum fagra báti sínum, varð breyt-
ing hið innra með henni . . .
Eva Ramm:
Allt fyrir hreinlœtið
Ein fyndnasta og skemmtilegasta bókin á
markaðnum. Saga af frú Svendsen, sem þvær
og skúrar svo gólfin hennar verða gerilsneydd.
En hún þvær burt allan notaleikann af litla
notalega heimilinu, nuddar gyllinguna af ást-
inni og hellir hamingjunni út með uppþvotta-
vatninu. Kn af hverju gerir frú Svendsen
þetta?
Ingimar Óskarsson:
Fiskar s litum
Falleg handbók, með nær 200 litmyndum af
fiskum. Myndirnar eru prentaðar erlendis, en
texti Ingimars sniðinn við íslenzka staðháttu
og gefur greinagóða lýsingu á fiskunum, lifn-
aðarháttum þeirra, útliti og vengum. Þessi bók
er ætluð ollum, ungum sem gömlum, atvinnu-
fiskimönnum og sportveiðimönnum og yfir-
leitt öllum þeim sem skyggnast vilja undir
yfirborð vatna og sjávar og kynnast nýjum,
fögrum heimi.