Morgunblaðið - 10.12.1961, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 10. des. 1961
Ulla Dahíerup:
ÆSKUÞRÁ
ÞESSl 18 ára dansLa skáldkona, er ágætur full-
trúi og málsvari hinnar rótlausu, tápmiklu æsku
nútímans. Hún stendur sjálf mitt í ölduróti þeirra
tilfinninga og hugsana, sem bærast með æskunni
í dag, og henni hefur tekizt af sjaldgæfu innsæi
að færa þessar tilfinningar og hugsanir í búning
skáldsögunnar. Það var haft á orði í Danmörku,
eftir að bókin kom þar út nú í haust, að nú hefðu
Danir eignast sína FAANCOISE SAGAN.
Vafalaust birtir þessi saga hinnar ungu skáld-
konu mikið af lífsreynslu hennar sjálfrar. Um
það er vitni hið heita hjarta, sem slær að baki
frásagnarinnar. Hún liður ekki fram sem lygn
straumur heldur byltist fram með boðaföllum,
sveiflast á milli nöturlegs raunsæis og harns-
legrar einlægni, milli skerandi beiskju og him-
inhrópandi fagnaðar. Þetta er ný rödd, sem sker
sig úr, rödd, sem stundum er skræk og hörð,
stundum bljúg og hrædd, en alltaf einlæg og
þess virði, að á h uua sé hlustað.
Ib Henrik Cavling;
KARLOTTA
KAR.LOTTA er undurfögur dönsk alþýðustúlka,
alin upp í smábæ, en missir ung foreldra sína og
fer til Kaupmannahafnar til að vinna fyrir sér.
Sem umkomulaus einstæðiiiigur kynnist hún
spillingu stórborgarlífsins, og um skeið liggur
við borð að hún sökkvi þar til botns . . .
Sögusviðið er stórt: Danmörk, Frakkland og
Þýzkaland í ölduróti styrjaldar og hernáms, þar
sem hættur leynast í hverju spori. En þótt at-
burðir sögunnar séu merktir ógn og hörmunigum
stríðsins, er hún fyrst og fremst heillandi ástar-
saga, saga um göfugmennsku og fórnfúsa ást,
saga um eigingirni og ástríður, saga um efa-
gimi og óráðið hjarta . . .
SÖ GUHET.fAN er ung og falleg stúlka, sem
kynnst því snemma, að fegurð er eign, sem auð-
velt er að ávaxta og nota sér til framdráttar. En
sú reynsla færir henni litla hamingju. Kynni
hennar af ástinni fullnægja á engan hátt ham-
ingjuþrá heunar og vekja hjá henni efasemdir
um, að til sé nokkuð, sem heitið geti því nafni.
Ástarþráin, sem bærist í hverju ungu brjósti, er
höfð að háði og spotti, og viðkvæmt hjarta, sem
vill ekki hljóta sár, verður að brynja sig . . .
Hún trúir ekki á ástina, hún. er búin að lesa
svo mikið um hana í litprentuðum vikublöðum,
að hún lítur á hana sem lélegan skáldskap, sem
ekki sé til í veruleikanum. En ástin er söm við
sig, og þegar hún ber að dyrum hjá henni, verð-
ur hún ráðvillt og veit ekki hvort húni á að þora
að opna . . .
Ræningjar á reikistjornum
Eftir Carey Rocwell.
ÞETTA ER NÝ SAGA um loftliðann Tómas
Corbett og vin.i hans Astro og Roger Manning og
hin furðulegustu ævintýri í allri geimferðasög-
unni. Þeir komast í kast við geimræningja, sem
ætla sér að stela dýrmætu málmgrýti á einni
reikistjömunni. Hér er ekki um að ræða baráttu
við bófa eins og hún gerist á jörðinmi, enda að-
stæður harla ólíkar því, sem þar gerist. Tilraunir
eru gerðar til að stjórna reikistjörnum og beina
þeim á nýjar brautir, og annað álíka nýstárlegt.
Sagan er spennamdi frá upphafi til enda og
stendur ekki að baki fyrri sögu Rocwells um þá
félaga: „Fcrðbúinn til Marz“.
Bókaútgdfan HILDUR
UHo Doklcr*íp
Æsku-
prá
U CÁ- m
TTcraSs P4
Iæknirini}!
sAsl&wiemMliM
m
SEGIR frá ungum lækni, sem
sezt að í smábæ í Danmörku.
Greinir frá kynnum hans af
irem stúlkum, sem verða ör-
lagavaldar í lífi hans, hver
með sínium hætti. — Spenn-
andi og hugnæm ástarsaga.
GERIST ÖÐRUM ÞRÆÐI á
spítala. Aðalpersónur eru f jór-
ar, og eru örlög þeirra á flók-
inn hátt samantvinnuð. Heill-
andi ástarsaga um sorg og
gleði, breyskleika og göfug-
mennsku.
BÓK Carey
Rockwells
um loftlið-
ann Tómas
Corbett og
vim hans
Astro og
Roger Man-
ning. Spenn
andi og æv-
intýrarík
bók fyrir
stálpaða
drengi.
ÞESSAR BÆKUR FÁST
ENN í FLESTUM
BÓKABÚÐUM.
Hjúkiunorkona ú næturvnkt
óskast að heilsuhætinu að Vífilsstöðum sem fyrst til
lengri eða skemmri tíma. Vaktin er 4 nætur á viku
— deildarhjúkrunarkvennalaun með næturvinnu-
álagi. Frekari upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkon-
an. Sími 15611 virka daga frá kl. 10—12 fyrir hádegi.
Söngsveifin Fílharmönía
tekur við nýjum söngfélögum.
Áhugamenn gefi sig fram við formanninn, frú
Aðalheiði Guðmundsdóttur, í síma 1 01 46 kl. 5—8
síðdegis.
llffe
*-*&<>■ i'í
mM
1
■ftttÉtf
IMtJ SEM FYRR...
JOLAFÖTIIY FRÁ OKKUR
CLÆSILEGT ÚRVAL
FCÍTSM SEM FARA REZT