Morgunblaðið - 10.12.1961, Síða 9

Morgunblaðið - 10.12.1961, Síða 9
Sunnudagui 10. des. 1961 M O R C V *v n r á ni D FRÁ SKUGGSJÁ Lúðvík Kristjánsson: Á slóðum Jóns Ssgurðssonar Vegleg og fögur bók um ævi og störf Jón's Sig- urðssonar forseta. Allt efni bókarinnar er byggt á rannsókn frumheimilda og í bókimni eru fleiri myndir af skilríkjum, varðandi Jón Sigurösson, en áður hafa komið fyrir almenn- ingssjónir. Þetta er tvímælalaust merkasta rit, sem skráð hefur verið um Jón, og ættu allir, sem kynnast vilja frelsisbaráttu íslendinga á 19. öldinni, sögu þjóðarinnar og ævi og störf- um Jóns Sigurðssonar, að eignast þessa bók. Guðmundur Gíslason Hagalín: Það er engin þörf að kvarta Endurminningar Kristínar Kristjánsson, sem fædd er i Borgarfirði, en fluttist ung að aldri til Vesturheims og bjó í íslendingabyggðum Kanada í 11 ár. Kristín er merk kona og stór- brotin og mörgum kunn fyrir skyggni sína og dulargáfur og auk þess svo mikillar gerðar, að allt, sem fram við hana hefur komið, engu síður illt en gott, hefur aukið reisn hennar og styrkt hana. Þetta er mikil saga, frásagnir úr tveimur heimum og tveimur heimsálfum. Guðmundur Gíslason Hagalín: Töfrar draumsins Saga um ástir og lífsdraum karls og konu, töfrar lífsbiekkingarinnar og óskhyggjunnar, þá töfra, sem löngum hafa verið skjólið í hretum og hríðum hversdagsleikans, einmanaleika og vonbrigða. Rammíslenzk skáldsaga, sem gerist að mestu i íslenzku sjávarplássi. Ef til vill bezta skáldsaga Hagalíns. •JM Gretar Fells: Það er svo margt Safn erinda um margvísleg efni, sálfræðileg, heimspeki, dulfræðileg og fagurfræðileg. Bókin er mótuð guðspekilegu lífsviðhorfi, en ekki sálunjálparboðskapur eða áróður, heldur frjálsar hugleiðingar um háleit og mikilvæg efnt. sem allir verða fyrr eða síðar að taka afstöðu til. Alfred Lansing: Harðfengi og hetjulund Hin ótrúlega hrakningaför Ernest Shackdetons til Suðurskautsins....einhver mesta ævin- týraferð vorra tima . . . hrottalegur lestur, en eigi síður hrífandi", segir í ritdómi í New York Times. Stórfengleg lýsing á hetjubaráttu og þreki maniia, sem virtust vera i vonlausri að- stöðu og olurseidir hungri og kulda. Jörgen Bitsch Sandur og sól Fróðleg og skemmtileg ferðasaga frá Arabiu, lanoi hinna miklu auðna, fornlegu lífshátta, fátæktar og auðæfa. Þar ríkir unaður og áþján miðaldanna enn við hliðina á nútima lúxus og framförum Þar eru enn við líði refsingar eins og húðstrýkingar og limlestingar, og þar má enn ekki taka ljósmyndir, þar sem spámaður- inn hefur bannað það. Eigi að síður eru í þessari bók 55 storfagrar litmyndir. Peter Freuehen: Sléttbakurinn Frásagnir af hinu miskunnarlausa og harða lífi hvalveiðimanna við Grænland á timum segl- skipanna. Æsileg saga harðgerðra og ófyrir- leitinna manna í stórbrotnu og miskunnarlausu umhverfi. Hörkuspennandi og harðsoðin sjó- mannabók, ósvikinn Peter Freuchen. m Taylor Galdwell: Lœknirinnn Lúkas Töfrandi skáldsaga og hcillandi og stórbrotið verk um lækninn og guðspjallamanninn Lúkas. Lesandinn kynntist taumlausum veizluhöldum í keisarahöll, takmarkalausri fátækt hafnar- borganna við Miðjarðarhaf, hann ferðast um glæstar marmarahallir Rómaveldis og kynnist eymd og fátækt galeiðuþræla. En yfir allt gnæfir mannkærleikur Lúkasar og leit hans og þrá eftir því, sem gott er og fagurt. Formála fyrir þessari fögru bók hefur séra Bjarni Jóns- son, vígslubiskup ritað. Margit Söderholm: Saman liggja lesðsr Ný skáldsaga eftir höfund hinna vinsælu Hellubæjabóka. Ileillandi fiásögn um örlög og ástríður sundurleits hóps samferðamanna. Les- andinn kynnist nýrri hlið á höfundarferli þess- arar snjöllu skáldkonu. Therese Charles: Seiður hafs og asfar Fögur ástirsaga, um unga stúlku, sem giftist ríkum manni, til þess að sjá sjálfri sér og systkinum sínum farborða. En ástin lætur ekki að sér hæða, Daginn sem hún sá Byrne, íturvax- inn, útitekinn og brosandi, þar sem hann stóð um borð í ninum fagra báti sínum, varð breyt- ing hið innra með henni . . . Eva Ramm: Allt fyrir hreinlœtið Ein fyndnasta og skemmtilegasta bókin á markaðnum. Saga af frú Svendsen, sem þvær og skúrar svo gólfin hennar verða gerilsneydd. En hún þvær burt allan notaleikann af litla notalega heimilinu, nuddar gyllinguna af ást- inni og hellir hamingjunni út með uppþvotta- vatninu. Kn af hverju gerir frú Svendsen þetta? Ingimar Óskarsson: Fiskar s litum Falleg handbók, með nær 200 litmyndum af fiskum. Myndirnar eru prentaðar erlendis, en texti Ingimars sniðinn við íslenzka staðháttu og gefur greinagóða lýsingu á fiskunum, lifn- aðarháttum þeirra, útliti og vengum. Þessi bók er ætluð ollum, ungum sem gömlum, atvinnu- fiskimönnum og sportveiðimönnum og yfir- leitt öllum þeim sem skyggnast vilja undir yfirborð vatna og sjávar og kynnast nýjum, fögrum heimi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.