Morgunblaðið - 16.12.1961, Side 9
Laugardagur 16. des. 1961
MORGJJTSBLAÐÍÐ
9
Smábókaflokkur
Menningarsjóðs
r
Konráð Gíslason
NÝLEGA eru komnar út l>rjár
bækur í Smábókaflokki Menn-
ingarsjóðs, Litli prinsinn eftir
Saint-Exupéry, Undir vorhimni
(bréf Konráðs Gíslasonar) og Við
opinn glugga (laust mál eftir
Stein Steinar).
Smábókaflokkur Menningar-
sjóðs hefur hlotið góðar undir-
tektir bæði gagnrýnenda og al-
menning.s.
Ritstjóri bókaflokksins er
Hannes Pétursson. skáld.
Þessar bækur eru nýkomnar út:
Litli prinsinn (Le Petit Prince)
eftir Antoine de Saint-Exupéry.
Þórarinn Björnsson, skólameist-
ari þýddi bókina úr frönsku, og
er þýðingin frábær og á einkar
fögru máli. Ævintýri þetta er
þegar orðið sígilt verk í heims-
bókmenntunum, þótt það kæmi
ekki út fyrr en árið 1943. Sagan
af litla prinsinum hefur fangað
hugi manna um heim allan, ekki
síður barna og unglinga en full-
orðinna. Sagan er þannig skrifuð,
Á bókaflokki þessum var byrj
©ð fyrir u.þ.b. tveimur árum.
Markmið Menningarsjóðs með út
igáfu þessa flokks er að koma á
framfæri ýmsum smærri ritum
bókmenntalegs eðlis bæði inn-
iendum og erlendum, gömlum og
nýjum. Stefnt hefur verið að því
að vanda vel efni og frágang, en
bækurnar hafðar íburðarlausar
til þess að geta stillt verði í hóf.
Engu að síður' eru þær mjög
smekklegar í útliti. Þessi bóka-
flokkur er sem sagt tilraun til
þess að gefa út góðar bækur,
smekklegar og ódýrar. Bækurnar
bafa allar ótvírætt menningar-
gildi, og er ekki sízt mikilvægt,
að verð þeirra sé unglingum við
ráðanlegt. Jafna má þessum
ibókaflokki við ýmsa erlenda
flokka, svo sem t.d. Hasselbalchs
Kulturbibliotek og Insel Biicher.
Líklegt má telja, að sumar smá-
ibókanna gerist torfengnar með
timanum, þar sem upplag þeirra
er yfirleitt lítið.
Hverri bók fylgja vandaðir for
milar og er kostað kapps um að
fá hina hæfustu menn í hverri
grein til þess að sjá um útgáfurn-
ar. Meðal þess sem komið er út
í flokknum eða væntanlegt er,
Stcinn Steinarr
að bæði ungir og aldnir hafa af
henni yndi. Talið er, að ekkert
annað skáldrit hafi verið vin-
sælla í Frakklandi síðan í styrj-
aldarlok. Bókin er prýdd mynd-
um eftir höfundinn.
Undir vorhimni nefnist bók,
sem hefur að geyma bréf frá
Konráði Gíslasyni. Eins og kunn-
ugt er var Konráð einn helztur
Fjölnismanna og bezti vinur Jón-
asar Hallgrimssonar. Svo að segja
öll bréfin eru áður óprehtuð, og
veita þau merkar og skemmtileg
I ar upplýsingar um líf íslendinga
má nefna skáldrit, heimspekileg
rit, ritgerðir, bréfasöfn merkra
manna og sagnfræðileg rit. —
Geta má þess, að þýðingar eru
jafnan gerðar beint úr frummál-
um.
Litli prinsinn hreinsar eldfjöllin sin vendlega. — Mynd úr
,,LitIa prinsinum".
MANCHETTSKYRTUR
hvítar og mislitar, margar teg.
HÁLSBINDI
HÁLSTREFLAR
NÁTTFÖT
N Æ R F Ö T
SOKKAR
SKINNHANZKAR
margar tegundir
HERRASLOPPAR
SPORTSKYRTUR
SPORTPEYSUR
RYKFRAKKAR
POPLÍNFRAKKAR
H A T T A R
H Ú F U R
VANDAÐAR VÖRUR
SMEKKLEGAR VÖRUR
Gjörið svo vel og skoðið í gluggana
CEVSIR H.F.
Fatadeildin
Hannes Pétursson hefur þýtt
>kina og skrifað um söguna og
öfundinn.
Sólarsýn, kvæði séra Bjarna
issurarsonar í Þingmúla. ná-
ænda séra Stefáns Ólafssonar
Vallanesi. Bjarni var eitt bezta
:áld íslendinga á 17. öld. Hann
• ljóðrænni í kveðskap sínum
1 flestir samtímamenn hans, en
nnars einkennast kvæði hans af
lunsæi og ádeilum á umhverfi
og samtíma. Jón M. Samsonar-
son magister sá um útgáfuna og
hefur ritað mjög ýtarlega um
höfundinn og verk hans, enda
hefur hann kynnt sér það efni
sérstaklega.
Eins og áður er sagt, einkenn-
ist bókaflokkur þessi af vönduð-
um útgáfum og eínisvali, en bæk
urnar láta lítið yfir sér innan um
allar skrautbækurnar í jólaflóð-
Litskuggtsxnyndir
ai Öskjugosinu
í Kaupmannahöfn á árunum 1830
—1890. Hér eru nokkur bréf frá
Konráði til Jónasar, sem sýna vel
hinn excentríska talsmáta Fjöln-
isklíkunnar bréf til Gísla Kon-
ráðssonar, föður Konráðs, til Is-
leifs etatsráðs á Brekku, Jóns
rektors Þorkelssonar, Benedikts
Gröndals Hannesar Árnasonar,
Eiriks Magnússonar og séra Ste-
fáns Þorvaldssonar. Eru hin síð-
asttöldu merkileg fyrir þá sök,
hve einlæglega Konráð opnar
hug sinn fyrir þessum æskuvini
sínum, tjáir honum ástarraunir
sínar og aðra harma.
Aðalgeir Kristjánsson, cand.
Franz Kafka.
mag. skrifar ýtarlegan formála
fyrir bréfunum og hefur samið
vandaðar skýringar.
Við opinn glugga er laust mál
eftir. Stein Steinarr, blaðagrein-
ar viðtöl og ýmist efni áður ó-
prentað. Um þessa bók hefur tals
vert verið ritað í blöð og hún
hlotið mikið hrós, enda athyglis-
verð og sérstæð. Gefur hún
glögga mynd af Steini Steinar.
Hannes Pétursson ritar inn-
gangsorð.
Áður eru útkomnar hjá Smá-
bókaflokki Menningarsjóðs:
Samdrykkjan eftir Platón, eitt
merkasta rit grískra fornbók-
mennta, og ekki vanzalaust, að
það skuli ekki áður hafa komið
út á íslenzku. Rit þetta hefur haft
mikil áhrif í bókmenntaheimin-
um og jafnvel á sálfræðilegar
kenningar síðari tíma. Steingrím
ur Thorsteinsson skáld þýddi
Samdrykkjuna á efri árifm, og er
bókin gefin út eftir handriti hans
á Landsbókasafninu. Dr. Jón
Gíslason sá um útgáfuna. Skrifar
hann vandaðan formála um Plat-
ón og heimspekikenningar hans.
Einnig gerir hann grein fyrir efni
ritsins og stöðu þess í heimsbók-
menntunum.
Platón
Trumban og lútan, ljóðaþýð-
ingar eftir Halldóru B. Björns-
son. Ljóðin eru eftir eskimóa í
Grænlandi og Kanada, svertingja
í Vestur-Indíum og Afríku og
Kínverja.
Skiptar skoðanir, hin fræga rit
deiia Einars H. Kvarans og Sig-
urðar Nordals á árunum 1925-’27.
Sú bók hefur vakið mikla athygli
enda er umræðuefnið enn í fullu
gildi, en það er nánast lífið og til-
veran.
Hamskiptin eftir Franz Kafka,
löng smásaga. Þetta er eitt helzta
skáldverk Kafka. en hann hefur
haft geysileg áhrif á bókmenntir
síðustu áratuga og á sér marga
lærisveina í þýzka, franska og
engilsaxneska bókmermtaheimin
um. Þetta er fyrsta meiri háttar
sagan, sem eftir Kafka hefur
birzt á íslenzku, og sýnir öll
helztu höfunóareinkenni hans.
ÚT ER KOMIN mappa með lit-
skuggamyndum til að varpa upp
á vegg, og eru bað 6 fallegar lit-
myndir af Öskjugosinu. Eru
myndir bessar algerlega unnar á
íslandi, bæði framköllun og um-
búðir, og mun það vera í fyrsta
skipti sem það er gert hér.
Það er fyrirtækið Geisli s/f.
sem gefur út þessar myndir, en
það reka tveir ungir menn, Sig-
mundur M. Andrésson og Ævar
Jóhannesson. Þeir hafa um skeið
útbúið filmur fyrir bíóauglýsing-
ar, en Öskjumyndirnar eru fyrstu
litskuggamyndirnar sem þeir
senda frá sér til almennrar sölu.
Er það ætlun þeirra að fjölga
myndunum og koma upp möpp-
um með íslenzkum litskugga-
myndum frá þekktum stöðum og
jafnvel sýna atvinnuhætti á ís-
landi og listaverk á slíkum lit-
myndum.
Öskjumyndirnar eru af venju-
legri stærð, 35 mm, en á undan-
förnum árum hefur það færzt
mjög í vöxt að ljósmyndarar eigi
litmyndir á filmum og varpi þeim
á vegg eða skoði í þar til gerðum
tækjum. Myndirnar eru í plast-
umbúðum og brjótast saman í
hylki, sem auðvelt er að stinga
í bréf til sendinga til kunningja
erlendis. Þeim fylgir stutt frá-
sögn af Öskju og rvafstöðnu gosi
á ensku.