Morgunblaðið - 22.12.1961, Qupperneq 20
20
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. des. 1961
JÓLATRÉSSERÍUR
JÓLATRÉSSERÍURNAR sem fást
hjá okkur eru með 17 ljósum. Það
liefir komið I ljós að vegna mis-
jafnrar spennu sem venjulega er
um jólin endast 17 Ijósa-seríur
margfalt lengur en venjulegar 16
Ijósa.
Mislitar seríupcrur kr: 5,—
Blubble light- Austurstræti 14
perur kr: 16,— Sími 11687
TIL JÖLAGJAFA
ÓDÝRU VÖRURNAR FRÁ NINON.
STÍF SKJÖRT 8 gex ðir
kr. 235,—
Greiðslusloppar tvöfalt nælon
Greiðslusloppar vatteraðir
Brjóstahöld 3 gerðir
Golftreyjur 100% ull
Peysur 100% ull
Terylenepils slétt og felld
Stromphúfur í stíJ.
Treflar
Mohair treflar
Xoðhúfur í gjafakössum
Loðkjusur í gjafakössum
Slæður í gjafakössum
Skinnhanzkar 5 litir
Poplinúlpurnar vinsælu m. vatt
eða loðfóðri
Poplinkápur m. loðfóðri, loðkraga og
lausri hettu m
Poplinhettukápur m. loðfóðri
Nælon kápur 4 gerðir, 8 litír
— 390,—
— 520,—
— 70,—
— 341,—
— 265,—
— 580,—
— 70,—
— 110,—
— 126,—
— 199,—
— 130,—
— 27,—
— 235,—
— 940,—
— 1150,—
— 1000,—
— 798,—
(----------\
Margaret Summertorf
HÚSIÐ
VIÐ
SJÚINN
Skáldsaga
Einskis! Röddin þagnaði snöggt
og höndin herti takið á öxlinni
á mér. Við skulum halda áfram.
Þetta sýnist vera allt í lagi. Ég
varð bara að vita fyrir víst, hvar
hún væri. Þó að við látum eitt-
hvað til okkar heyra, þá gerir
það henni ekkert til, en ég vildi
bara ekki koma að henni ef hún
hefði verið eitthvað á flakki uppi
á lofti. Jæja, hér er skúrinn. Held
urðu, að þú komist upp? Ég ætla
að fara á undan og toga í þig.
i Áður en við komumst upp á
hai'lit þakið, var ég hrumluð og
lafmóð. Mark lét mig halda mér
í þakrennu meðan hann skáskaut
sér eftir þakbrúninni og yfir í
gl'uggakistu. Ég heyrðí tré núast
við tré og svo opnaðist glugginn.
Ég mjakaði mér og blifraði
og svo þegar hann sagði mér til,
etökk ég. Við vorum komin inn
í húsið.
Allt í einu varð allt koldimmt.
Tunglskinið var horfið í einu vet
fangi, rétt eins og blásið hefði
verið á kertaljós. Ég var gripin
skelfingu og langaði svo ti'l að
vera sloppin út úr húsinu, að ef
Mark hefði gefið mér tækifæri til
þess á þessu augnabliki, hefði ég
afsalað mér þessum bjánalega
draumi mínum.
Ég hvíslaði nafn hans í mesta
ákafa. Höndin á mér greip í ermi
hans, en í sama bili kveikti hann
á vasaljósinu og beinti örmjóum
geislanum beint fram fyrir okk-
ur. Um leið og hræðsla mín var
búin að jafna sig, skein ljósið á
efsta þrep í sitiga. Þá beindi Mark
því á þrennar dyr, hverjar eftir
aðrar, sem allar voru lokaðar.
Við vorum stödd á þröngu stiga
gati.
Án þess að svara gekk ég að
ustu dyrunum og hvíslaði: Við
ættum að fara að leita fyrir okk-
ur. Við skulum prófa allar hurð-
irnai.
Mark hélt ljósinu föstu á sío-
hurðinni sem ljósið skeii. á og
opnaði hana. Hann kom fast á
eftir mér og beindi Ijósdeplinum
víðsvegar um herbergið, þangað
til við vorum búin að sjá það
allt. Við endjurtókum þetta þris-
var en létum svo hurina aftur á
eftir okkur. Þetta voru þrjú
svefnherbergi og öl:l svo sviplaus,
að þau gáfu engar bendingar um
íbúana. Fjórða hurðin lá að stiga
upp á háaloftið.
Mark skildi mig þarna eftir en
athugaði stigann og kom svo aft-
ur til mín. Það er enginn þarna
úp-pi. Við verðum að fara niður
á neðri hæðina.
Ég gekk á undan honum að
aðálstiganium. í krók við hann
hér um bil miðjan stóð olíu-
lampi. Mark'Slökkti ljósið sitt og
við fetuðum okkur niður, þrep
fyrir þrep. En þegar ég átti eftir
þrjú þrep niður. Sitahzaði ég.
Beint á móti mér sá á ílanga úti
dyrahurðina, en milli hennar og
stigans voru, hvor gegnt annarri
tvennar aðrar dyr — aðrar lokað
ar en hinar ofurlítið opnar, og
út um þær kom otfurlítill ljós-
geisli út yfir forstofugólfið.
Ég fann ofurlítinn þrýsting af
hönd Marks á handlegg mér. um
leið og hann hljóp fram fyrir
rnig, liðugur eins og köttur. Ég
fékk ákafan hjartslátt og snögg-
vast fannst mér ég alls ekki ná
andanum.
í herberginu til vinstri fékk ég
svarið við spurningunni minni.
En nú þegar það barst mér upp
í hendurnar, var ég huglaus
lydda. Mark skaut sér inn í
skuggann, þar sem hann gat þó
séð inn í herbergið, án þess að
vera séður.
Hann kom hljóðlaust aftur að
stigafætinum. Skuggarnir féllu
yfir andlitið á honum. Ég gat
mér enn ekki til um, hvað hann
hafði fundið og gat ekkert sagt.
Hann hvíslaði: Þú getur farið
inn.
Sjólfstæðiskvennafélagið Edda
í Kópavogi heldur
I Sími 13669 Ingólfsstræti 8.
VEGLEG GJÖF
NÆLONPELS
F R Á
Sími 13669 Ingólfsstræti 8.
jálatrésskemmtun
í Félagsheimilinu föstudaginn 29. des. kl. 3—7 e.h.
Verð aðgöngumiða kr. 45 —
Miðasala fer fram miðvikudaginn 27. des. hjá gjald-
kera félagsins, frú Guðnýju Kristjánsdóttur, Hóf-
gerði 16. Sími 10794.
Félagar, pantið miða tímanlega.
Dansleikur fyrxr unglinga um kvöldið kl. 20,30.
Aðgöngumiðar við innganginn á kr. 25.—
STJÓRNIN
BINGO
í LIDO í kvöld kl. 8,30
STÓRT IÍRVAL: Silfur — Stál og Teak munir
Allir aukavinningar úr TEAK og STÁLI.
SkRETTIAIGARMADUR skreytir alla vinninya
STJÓRNANDI SVAVAR GESTS
DANSAÐ TIL KL. 1. — Sími 35936.
VI.
Ég stóð þarna við hlióina á
Mark í litlu dimmu forstofunni
og fyrst í stað gat ég hvorki
hreyft mig né komið upp orði.
Þar eð enginn gl^ði var í rödd
’hans. gat ég ekki trúað því, að
nú væri hann að tilkynna mér,
að ágizkun mín hefði verið rétt.
Loks hvíslaði ég: Áttu við,
að....?
Já. Esmond er þarna. ’
Snöggvast varð ég algjör'.ega
tilfinningalaus, en leið bara á-
fram eins og vél. Hann sté til
hliðar og þegar ég hafði gengið
tvö skí-ef, sneri ég mér til baka
og rétti út höndina. Við gengurn
svo áfram saman, en þegar við
vorum komin nokkuð yfir gólÆ
ið í forstofunni. dró hann hönd-
ina til baka, hægt og ákveðið. •
Mark..! hvíslaði ég. '
Hann hristi höfuðið og gekk
að lokuðu dyrunum hinumegin.
Þær opnaði hann og hvarf síðan
út í myrkrið.
Ég hvíslaði nafn hans ákaft,
en kom fyrir ekki, Ég hugsaði:
Hann hefur fengið mér sigurinn
upp í hendurnar og svo reynist
hann vera ósigur. Eða ímyndaði
hann sér kannske, að ég vildi
engan hafa viðstaddan — ekki
einusinni hann — til að verða
vitni að fyrsta móti okkar Es-
monds.
Líklega í heila mínútu stóð ég
grafkyrr, rugliuð og efabland-
in. En svo hvarf allur efinn og
ég fann ekki til neins nema sig-
urgleðinnar. Ég sté fram og
horfði inn í herbergið.
Það brakaði í gólffjöl, svo að
þessi allsráðandi þögn í húsinu
rofnaði. og maðurinn, sem sat i
armstól og sneri að glugganum,
með olíulampa við hlið sér, leit
upp.
Við störðum hvort á annað i
nokkrar sekúndur, en svo stóð
hann snöggt upp. Charlotte! Þú
ert Charlotte, er það ekki?
Og af því að hann kom til móts
við mig með svona sýnilegri
gleði og röddina svo hlýja og
vinigjarnlega, af því að hann fann
sýnilega til einskis annars eni
gleði. við að sjá mig, þá fór ég
að gráta.
Hann stóð þétt úpp að mér og
héit utan um mig og horfði nú
framan í mig. Þú ert ekkert sér-
lega stór, Charlotte, en þú ert of-
stór til að fara að gráta. i-
Þegar ég þurrkaði tárin af kinn
um mínum, brosti hann og leiddi
mig að stólnum, sem hann hafði
setið í. Ég er feginn, að Lísa
skyldi afráða að segja þér fná
því. Ég hef lengi óskað þess. að
hún léti verða af því.
Það var eins og einhver kald-
ur fingur potaði í gleði mína.
Lísa sagði mér ekki frá því.
gníltvarpiö
Föstudagur 22. desemeber.
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik-
ar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón-
leikar — 9:10 * Veðurfregnir. —
9:20 Tónleikar).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. mm
— 12:25 Fréttir og tilk.). \
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir, tilk.
Tónleikar — 16:00 Veðurfr. -•
— Tónleikar — 17:00 Fréttir —
Endurtekið tónlistarefni).
17:40 Framburðarkennsla í esperanto
og spænsku.
18:00 í>á riðu hetjur um héruð“: Guð
mundur M. Þorláksson segir frá
Agli Skallagrímssyni.
18:20 Veðurfregnir — 18:30 Þingfréttir.
— Tónleikar.
18:50 Tilkynningar — 19:30 Fréttir.
20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson
cand. mag.).
20:05 Lestur úr nýjum bókum —
Tónleikar.
21:30 Útvarpssagant „Gyðjan og ux-
inn eftir Kristmann Guðmunds
undur les).
son; XXXIX. — sögulok (Hö#«
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Um fiskinn (Thorolf Smith frétta
maður).
22:30 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tón-
list.
a) Grant Johannesen leikur á
píanó impromptu og vals
caprice eftir Fauré.
b) Maria Callas og Giuseppe ái
Stefano o.fl. syngja atriði úr
óperunni „La Bohéme'* eftir
Puccini.
c) Nathan Milstein og Concert
Arts hljómsveitin leika Indrod
uktion og Rondo capriccioso
op. 28 eftir Saint-Saéns og
Rómönsu nr. 2 í F-dúr op.
50 eftir Beethoven; Walter
Susskind stjórnar.
23:25 Dagskrárlok.