Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVTSBLAÐIÐ Miðvikudagur 3- jan. 1962 Fjölmennt spila- kvöld Sjálfstæðis- félaganna í kvöld Annar verður Kl. 11.30 á nýj ársdag'smorg- un kom í heiminn ungur mað- ur, sonur Sveins Guðmunds- sonar, garðyrkjubónda á Reykjum og Þuríður Si'gur- jónsdóttir konu hans. Hann er nr. 1. á Fæðingardeild Land- spítalans á árinu 1962 og fyrsta barnið sem við vitum um að fæðst hafi á bessu ný- byrjaða ári. Pilturinn var bú- inn að þrjóskast lengi við að koma í þennan heim, móðir hans kom á fæðingardeildina fimmtudaginn 28. desember. Öðrum ungum manni lá meira á að sjá þessa syndum spiltu veröld og ruddi sér braut í heiminn á tveimur tímum. Þar með hafði hann Litli hr. Höirus varð seinastur það af að fæðast á árinu 1961, er hann Wpífpii . Illlll ÁRAMÓTASPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélaganna hér í Reykjavík verður að vanda mjög fjölmennt og fer fram í tveimur skemmtihúsum bæjarins, Sjálfstæðishúsinu og Hótei Borg. Verður það í kvöld og hefst kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist á báðum stöðunum og verða góð Höfrungur II. aflahæstur AKRANBSI, 2. jan. — Á gaml- ársdag lönduðu hér 3 bátar, þeir einu sem úti voru, samtals 2070 tunnum af síld. Aflahæst var Anna með 1050 tunnur, annar Sæfari 670 og þriðji Sigurfari 350 tunnur. Hinar stóru þrær Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- unnar hér eru kúffullar og tvo síðustu daga ársins var á 6 þús. tunnum af bræðslusíld ekið í binginn í holt, sturtað ofan í mal- argryfju og breitt yfir þéttriðin nót vegna veiðibjöllunnar. Á gamlársdag var Höfrungur II. búinn að fiska 18756 tunnur síldar, hæstur Akranesbáta. Landlega er hér í dag, enda suðvestan ruddi og brim tals- vert. — Oddur. verðlaun veitt. Þá mun Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, flytja ávarp í Sjálfstæðishúsinu, en Birgir Kjaran, alþingismað- ur, ávarpar gestina að Hótel Borg. Þá verður happdrætti í sambandi við spilakvöldið og verður dregið í því áður en skemmtuninni lýkur. — Arni Tryggvason leikari mun syngja gamanvísur, m.a. eftir nafna sinn Helgason frá' Stykkishólmi, en hann er kunnur fyrir gam- anskáldskap og ekki hvað sízt á fundum og þingum Sjálfstæðis- manna. Spilakvöldinu lýkur með því að stiginn verður dans. Viscount í innanlandsflugi VEL hefur gengið hjá Flug- félagi íslands í innanlands- og utanlandsflugi að undanförnu og mikið hefur verið um flutning, bæði farþega og vörur. í gær voru farnar 3 ferðir til Akureyr- ar, 2 til Egilsstaða og ein til Kirkjubæjarklausturs, Fagurhóls mýrar, Hornafjarðar, Sauðár- króks og Húsavíkur. Báðar Vis- countvélamar voxru í innanlands- fluginu og verða þær öðru hvoru í innanlandsflugi á næstunni. Fara m.a. tvær ferðir til Isafjarð- ar í dag, ef veður leyfir. ári á undan í skóia kl. 19.40. Þetta er Keflvíking- ur, sonur Önnu og Knúts Höir- us, verkstjóra hjá Esso, og hann fæddist á Fæðingarheim ili Reykjavíkurbæjar við Eiríksgötu. Báðir snáðamir hafa sýni- lega haft sínar eigin skoð- anir á því hvoi-t hagkvæmt sé eða ekkí að vera skóla- skyldur árinu fyrr eða seinna. Sá sem fæddist á árinu 1961 verður einu ári á undan þeim sem fæddist fyrsta dag ársins 1962 í skóla. Við heimsóttum báða þessa ungu menn í gær. Sveinn Guðmundsson var að líta á son sinn á Fæðingardeildinni, og átti það Mbl. að þalcka að hann þurfti ekki að skoða harm gegnum gler, heldur fór hann inn til móðurinnar. Þetta er myndarlegasti piltur, 16 merkur og 200 gr. á þyngd og 53 sm. á lengd. Og hann hafði náð sér í glóðarauga um áramótin, að dæmi ýmissa honum eldri og reyndari í því sem við á. Sá litli á fjögur eldri systkini, trvo bræður og tvær systur. — Það er alltaf jafn gaman að þessu, sagði Þuríður móðir hans. Ég gæti hugsað mér að eignast strax annað. Og þegar við höfum orð á því við föður- inn að gott sé að fá nóg af strákum til að hjálpa til í gróðurhiisunum, bætir hún við. — Það er skrýtið með pabbana, þeir eru alltaf svo stoltir af að fá stráka, en svo eru það stelpumar sem alveg eiga þá. Mínar stelpur vefja pabba sínum um fingur sér. Ég get lært heilmikið í þeim efnum af þeim. Þá heimisóttum við seinasta barnið á gamla árinu, barn nr. 927 á Fæðingarheimilinu við Eiríksgötu. — Hann átti ekki að koma fyrr en 10.—15. jan. sagði Anna Höirus, móðir hans. En honum lá svo mikið á, að aka varð í hvelli með mig frá Keflavik og hann var kominn í heiminn klukkutíma eftir að ég kom hér. Þetta er annar þeirra hjón- anna, allra kröftugasti snáði, rúmar 13 merkur á þyngd og 50 sm. langur. Ljósmóðirin sem kom inn með drenginn til að við gæt- um myndað hann, Arndís Hólmsteinsdóttir, segir að ekki sé fyllilega að marka númerið 927, sem fest er við úlnliði Önnu og sonar hennar. Ekki hafi alveg svo margar konur fætt á heimilinu yfir árið, nokkrar hafi komið og farið aftur án þess að fæða, — lxklega hætt við allt saman. Arndís sagði að rólegt hefði verið á fæðingarheimilinu á gamlárskvöld, en annríki á nýjársdag, . \ S HA IS hnúior !'*/■ SV S0 hnútar K SnjóÁomo 9 Oði V Strúrir II Þrumur WSs, Kuhkihil Hihskit H Hml L* Lmq1 /; ->m 't%i tz VEÐUR er nú gerbreytt frá því sem var fyrir áramótin. Á hádegi var frostlaust um allt land. Hitiim var þá 2 til 8 stig hlýjast á Austfjörðum eins og tíðast er með vestan- átt. Um vestanvexrt landið var kominn útsynningur með élja- gangi, og fór kólnandi, þegar leið á daginn. Horfur eru á óstiiltu tíðar- fari og vindasömu næstu dag- ana, því að undan Labrador- strönd er lægð á breytingu í áttina að Islandi og önnur á eftir henni suður af Nova Scotia. Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land tii Vestfjarða og miðin: Allhvass SV með hvöss um slyddu-eða hagléljum í nótt og aftur annað kvöld, hvass sunnan og rigning um miðjan daginn. Norðurland og miðin: SV stinningskaldi, él vestan til. NA-land, Austfirðir og mið- in: SV kaldi eða stinnings- kaidi, léttskýjað. SA-land og miðin: SV stinningskaldi. slydauei vest- an til. v. Hann þrjóskaðist við að koma í heiminn fyrr en árið 1962 var geng-ið í garð. Fyrsta barnlð & ár- inu ásamt foreldrum sinum, Sveini Guðm.undss yni, garðyrkjubónda, og Þuríði Sigurjónsdóttur. — Hollendingar Frh. af bls. 1. tion öryggismálaráðherra lýsi því yfir að áframhaldandi stuðningur Ástralíu við málstaS Hollands varðandi Nýju-Guineu mæti vaxandi fjandskap 1 lndó> nesíu. Ulbricht Frh. af bls. 1. i milljónir marka eru eins árs ' tap Austur-Þýzkalands eða tap i undanfarinna 16 ára. ■ Ulbricht sagði að eina leiðin til sameúungar Þýzkalands vseri að „framfaraöfl" í Vestur- Þýzkalandi veltu stjórn Aden- auers úr sæti. Þá sagði hann að múrinn í Berlín væri til þess gerður að halda vestrænum njósnurum burtu frá Austur-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.