Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 3. ian. 1962 MORGUTSBLÁÐIÐ 13 Þórunn Bjarnadóttir ÞÓRUNN Bjarnadóttir frá Núpi á Berufjarðarströnd er lézt 22. des. frílega 101 árs gömul verður jarðsungin í dag frá Fríkirkjunni. Þórunn var fædd 2. nóv. 1860 og hefur því lifað heila öld og þó hálfum öðrum mánuði betur. Á hundrað ára afmæli hennar í fyrra haust. Skrifaði ég greinar ífeorn i Mbl., um Þórurmi frænku m.ína og læt ég þá umsögn gilda hér sem eftirmæli hennar- Þór- unn var kunnug mér um hálfrar aldar skeið og að góðu einu, enda ekki annars að vænta af þessari ágætis feonu. Mátti segja að hjá þeirn hjónum væri öruggt athvarf og ókeypis veitingahús, efeki sízt fyrir Aust- firðinga, sem a.m.k. á fyrstu árum þeirra hjóna hér syðra, áttu ekki í mörg hús að venda og var ég einn þeirra. Geta má þó nærri að ekki hef- ur alltaf verið miklu af að má þar sem treysta skal á handafla eins einasta manns. En gjöfull er góður vilji. Aldrei skorti góðgjörðir hjá Þórunni og Jóni, og þá var nú ekki að tala um atlætið. Þórunn er af hinni fjölmennu Núpsætt sem áður var kennd við Keldu- skóga á Berufjarðarströnd. Móð- ir Þórunnar var Málfríður Jóns- dóttir frá Núpsihjáleigu, systir Jóns hreppstjóra í Borgargarði við Djúpavog, Ásdísar í Stafcka- gerði í Vestmannaeyjum, og El- ísabetar sem kölluð var Lísa- bet, föðurömmu minnar á Núpi. Faðir Þórunnar var einnig af sömu ætt að nokkru. „Ekfei fell- ur eplið langt frá eikinni" hefur það sannast á Þórunni því að a. m. k- móðir hennar og móður- systkini hafa undantekningar- laust verið úrvalsfólk sinnar tíð- ar. Veit ég það bæði af eigin reynd og annarra manna um- sögn þar eystra og sama segir Sigfús Johnsen fyrv. bæjarfógeti mér um Ásdísi frá Núpshjáleigu, sem giftist til Vestmannaeyja og er formóðir margs ágætis fólks í Eyjum m,.a. frú Ásdísar John- sen og þeinra systkina. Margt Og mikið var ég búinn að heyra austur þar um Jón í Borgargarði en Einar Þórarinsson á Núpi syst ursonur hans, orðhagur maðtir mjög, sagði svo: „Ja, hann Jón í Borgargarði sá blessaðj maður, sem öllu vildi hjálpa og viðbjarga, hvar sem hann feom, og öllu gat bjargað hvar, sem hann kom, dauðu og lifandi, já dauðu og lifandi, hvar sem hann kom“. Frú Þórunn Ríkharðsdóttir Sí- vertsen í Höfn í Borgarfirði syðra var frændíkona þeirra beggja, Jóns og Þórunnar Bjarna dóttur. Á gullbrúðkaupsdegi þeirra 11. júlí 1941 sendi hún þeim fagurlega stílað ávarp, þar segir hún m.a. þetta: „Eins og gullið er hreinast í eldinum þannig hafa þessi hjón komist gullhrein og giftudrjúg gegnum eldraunir þær og erfiðleika sem heimurinn hefur lagt á veg þeirra í þessi 50 ár“. Og enn- fremur tilfærir Þórunn þessd spaklegu orð eins djúpvitrasta skálds Íslendinga. „Forngrikkir sögðu bezt er hóf að hafa því hamingjan þeim tryggust reyn- ist lýðum sem hvorki fljúga djarfast, dýpst né kafa, en drjúgir eru á skriði, í miðjum hlíðum“ Og verður æviferli þeirra Fögrueyrarhjóna trauð- lega betur lýst í 'vo fáum orðum. Og á þessi umsögn sannarlega við Þórunni. Þórunn Bjarnadóttir var gift Jóni Bjarnasyni frá Dölum í Fá- skrúðsfirði, sem var hinn mesti dugnaðár- og heiðursmaður bóndi sjómaður og verkamaður. Þau hjónin eignuðust fjórar efnilegar dætur og teljast afkomendur þeirra að vera orðnir 69 að tölu þar af 65 lífs. Eg vil geta þess hér að á aldar afmæli Þórunnar skrifaði Jón Þórðarson prentari fróðlega grein í Mbl. um ætt og lífferil Þórunn ar og verð ég að nægjast með að vísa til hans. Allar dætur Þórunnar og einn ig fjöldi afkomenda hennar hef ur reynst henni frábærlega trygg lynt og umhyggjusamt fólk. En mestar þafekir vil ég flytja þeim mæðgunum Málfríði dótt ur hennar, og Maríu dóttur dótt ur hennar, fyrir þrotlausa um- hyggju og hjálp í hinni löngu og þungu hjálpvana elli. Ríkharður Jónsson. t I vestri er sól að viði gengin. Vaknar margt í huga mér Hún er dáin. Hvíld er fengin. Hennar stríði lokið er f hundrað ár hún hafði barizt. Hafði í fátækt ótal ráð. öldufjöllum öllum varizt. Ávallt treyst á Drottins náð. Við sérhvern eins og systir breytti sinna vina græddi und. Henni góða hjúkrun veitti hjartkær dóttir alla stund. Eiginmanni trúum, tryggum tryggðir gaf og sína ást. Það er gleði huga hryggum hún má ekki lengur þjást. Þó dagur frá oss fagur renni og fækkí þeim, sem veittu skjól, bjart er alltaf yfir henni sem Okkur kvaddi um þessi jól. Það er á svo margt að minnast. Margir þakka hljóðir nú. Á æðra landi allir finnast. Ein og sönn var hennar trú. Aðalsteinn Gíslason. Gott innflutniiigsfyrlrtæki í fullum rekstri, með umboð fyrir heimsþekkt firmu og fasta viðskíptavini, óskar vegna aukinnar veltu, meðeigandi. — Tilboð merkt: „Meiðeigandi — 7486“ sendist afgr. Mbl sem fyrst. Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar í Rauðar- árporti fimmtudaginn 4. þ.m. kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Sölunefnd varnarliðseigna. VÖRUHAPPDRÆTT! SÍBS Hálfrar milljón króna vinningur í hverjum mánuði og auk þess margir tugir annarra stórvinninga 1000 vinningar að meðaltali útdregnir mánaðarlega Heildarfjárhæð vinninga hækkar um nær 5 milljón krónur Endurnýjunarverð heiimiðans aðeins 40 krönur. Sala og endur- nýjun stendur sem hæst +■ \ Dregið 5. hvers mánaðar, nema í 1. flokki, þá 10. janúar Umboð í Reykjavík og nágrenni: Reykjavík: Vesturver, Aðalstræti 6 Grettisg. 26. Halldóra ólafsdóttir Laugavegur 74, Verzl. Roði Hreyfilsbúðin, Hlemmtorgi Söluturninn við Hálogaland Kópavogur: Ólafur Jóhannesson Vallargerði 34 Sigurjón Davíðsson Verzl. Mörk, Álfhólsv. 34 Hafnarfjörður: k'él. Berklavörn, afgr. sjúkrasaml. Hafnarfj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.