Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 3. jan. 1962 Það er einkum manngiidið, sem gefur og tryggir smábjóðum tilverurétt 4ramótaávarp Asgeirs Asge>rssonar forseta Ásgeir Ásgeirsson forseti í skrifstofu sinni. 1. janúar 1962. GÓÐIR fslendingar,, nær og fjær! Enn höfum vér lifað ein sól- hvörf, leggjum gamla arið við liðna tíð, og byrjum nýtt ár í Guðs nafni, vongóðir og ful’/r eftirvæntingar. Á þessum tíma- mótum þökkum við hjónin gamla árið innilega, og óskum yður, hverjum einstökum og þjóðinni íheild, hjartanlega gleðilegs nýj- árs, friðar og farsældar á kom- andi tímum. Þetta er í tíunda sinn, sem ég ávarpa yður, landar minir, íbéðan frá Bessastöðum. Það hefir margt skeð og breytzt á þessum árum, og sem betur fer flest til batnaðar, hygg ég. Hinn síðasti áratugur er merkur kafli í sögu íslendinga. Unga kynslóðin tek- ux við betra landi og á fleiri úr- kosti en áður hefir þekkst, vísast allt frá landnámstíð. Það hefir löngum verið kvartað um að vér séum fáir, fátækir, afskektir og einangraðir. Og hvernig er þá hægt að gera oss til hæfis ef vér aukum á kveinstafina, þegar fólkinu fjölgar, efnahagurinn batnar, og einangrunin hverfur að mestu úr sögunni? Oss eru að vísu búin fleiri viðfangsefni en áður, og sum vandasöm, en vér höfum málefnin í vorri eig- in hendi, eins og þjóðin hefir þráð um aldir. Vér metum for- feður vora og erum að mörgu ieyti stoltir af þeirri sögu í harð- býlu landi. Og því skyldum vér þá vantreysta vorum eigin mann dómi til að mæta þeim viðfangs- efnum í innan- og utanríkismál- um, sem uppfylling margra óska og vona flytur óhjákvæmilega með sér? Hitt liggur nær, að líta einbeittir fram í tímann, eins og sjómaðu'rinn á hafinu, þó báturinn sé lítill og úthafið stórt. Örugg trygging fæst ek!ki á lífsins sjó, en það veldur miklu um örlögin, hverjir sitja undir árum og við stýrisvöl. Ég minntist á, að við hjónin höfum nú setið hér á Bessastöð- um tíu jól. Það þarf alltaf nokk- urn tíma til að venjasþ nýjum bústað og nýju starfi. í minni stöðu þarf að fylgjast með mörgu, og vera viðbúinn. Þekking á mönnum og málefnum er nauð- synleg, og skal slíkt ekki rekið nánar. En því fagna ég meðal margs annars, að á þessum tæp- lega tíu árum hefir hver ný stjórn tekið við af annarri án teljandi tafar. Það er ekki Mtils um vert, að ábyrg stjórn sitji við völd á hverjum tíma hjá þing- ræðisþjóð, og því nauðsynlegra sem ágreiningur er meiri, og við fangsefni erfiðari. Að þessu sinni læt ég nægja að þakka innilega fyrir hönd okkar hjónanna alla þá vinsemd og hjálp, sem við höfum orðið aðnjótandi á þessu tímabili. Guð launi sagði gamla fólkið. Ekki verður annað sagt en að gamla árið hafiv verið gott og farsælt til lands og sjávar. Þó er alltaf héraðsmunur á veðurfari í þessu landi. Og togaraaflinn brást. En allt verður það rakið betur og rætt annarsstaðar nú um áramótin. Ég læt þó ekki hjá líða að minnast þess, að á ný- liðnu ári má telja að úrslit hafi orðið í handritamálinu, þó bið verði á afgreiðslu þess. Hinar miklu gersimar íslenzkrar menn- ingar, handritin, sem geymzt hafa í Danmörku, verða afhent fslendingum. Það verður fagnað- arstund þegar að því kemur. Og það skulum vér muna vel og meta, að þá eru jafnframt leyst þau ágreiningsmál Danmerkur og fslands, sem fólust í sjálfstæð isbaráttunni. Dönum hefur farist vel, og ber þess að minnast með þakklæti og virðingu. Handritin eru hið ytra tákn íslenzikrar bókmenningar. Ég hygg að íslendingar séu mest metnir meðal erlendra þjóða fyr ir bókmenning og fornt stjórn- skipulag. Edda, Saga og Alþingi eru þau íslenzk orð sem flestir kannast við — auk Geysis og Heklu. Öðru máli gegnir að vísu um þá fáu útlendinga sem þekkja vora íslenzku samtið af sjón og raun. Menning nútímans í listum og atvinnulífi nýtur álits í þröng um hóp erlendra manna. En það hygg ég, að vér munum um lang- an aldur eiga orðstir vorn meðal erlendra þjóða mest undir bók- menntum og stjómarfari enda er nú betur fylgst með en áður vegna aukinna viðskipta og sam- starfs þjóða á milli. Það eru gerð ar háar kröfur til þjóðar, sem hefir auglýst það fyrir umheimin um, að hún eigi elzta þing, sem enn er við Mði, ekki sízt nú á þessum síðustu tímum, þegar svo margt gengur af göflunum meðal nýfrjálsra smáþjóða. íslendingar eru ótvírætt vel ættaðir, en það hrekkur öllum skammt, sem ggr- ast ættlerar. Vér höfum á liðnu ári rækt frændsemi vora við Norðmenn. Heimsókn Ólafs Noregskonungs, og afhending Ingólfsstyttunnar má hvorttveggja telja til merk- isatburða. Vér veittum Snorra- styttunni í Reykholti viðtöku á sinni tíð, án þess að minnast hans síðustu stundar, og Norðmenn þáðu með fögnuði Ingólfsstytt- una, án þess að minnast við- skilnaðar ýmsra íslenzkra land- námsmanna við sitt forna föð- grafið fyrir öldum, og eingöngu minnzt frændseminnar og menn- ingararfsins. En það er önnur þjóð, sem stendur oss næst Norð- mönnum að skyldleika, sem vér höfum þó orðið algerlega við- skila við, og fennt í sporin. Það eru frar. Til þess liggja skiljan- leg rök, sem ekki verða hér rak- in, en fjarskyld tungumál eru þó sjálísagt ein höfuðorsökin, og hitt, að land þeirra liggur ekki í vorri þjóðbraut. En niú er svo komið bæði samgöngum og mála- kunnáttu, að ég hygg, að hvorugt þurfi að standa í vegi fyrir aukn- um samskiftum við þá, sem vér rekjum ætt til, og hinna sem út- um heiminn búa og geta rakið ætt sína til fslands. fslendingum munu nú duga tvö mál, sem flest ir valda, eitthvert Norðurlanda- málanna og enskan, til samskifta og frændrækni um allar jarðir. Á ferðum okkar um Norður- lönd áttum við hjónin kost á að hitta ótrúlega marga íslendinga, sem sezt hafa þar að, og þeirra afkomendur. Þó tvær aldir væru liðnar frá brottflutning ættföð- urins, þá leituðu ýmsir gamalla kynna á okkar fund. í Kaup- mannahöfn hafði ég til fylgdar einn konungsstallara. Hann hét Asger að fornafni, og taldi lang- ömmu sína hafa verið af íslenzk- um ættum. „Þér eruð þó ekki kominn af sira Ásgeiri á Stað í Steingrímsfirði", spurði ég út í bláinn. Hann sótti ættartölu, sem afi hans hafði látið gera, og það stóð heima, þarna var síra Ás- geir Jónsson á sínum stað Hann sagði mér, að raunar hafi þessi ættartala verið gerð til að koma afa hans í ætt við dönsku kon- ungsfjölsikylduna, en slíkt er oft j ast eingöngu fært um íslenzkar j heimildir. Þessvegna, meðal j annars, voru islenzk handrit eft- irsótt fyrr á tímum. Annar ' „danskur fslendingur“ sagði mér að þrátt fyrir illan kurr, sem oft hafi gerst milli Dana og fslend- inga, þá væru flestir stoltir af því, að geta rakið ætt sína til íslands, og varðveittu þær minj- ar. f Osló hittum við myndarlegan mann í virðingarstöðu, sem sagði okkur að hann væri kominn af Gísla Jónssyni, hálfbróður Jóns sýslumanns Espólín. Hann gaf mér niðjatal Gísla, skráð á helj- armikla örk. Á þeim ættstofni var geysimikið og þétt lim. og margt þjóðkunnra manna í Noregi. Eg nefni þessi atriði sem dæmi. En skrítnast þótti mér, þegar ég hitti negrann, blásvart- an, en að öllu leyti vel á sig kominn, sem sagðist sennilega vera ættaður frá fslandi. Eg spurði, hvað væri til marks um það. en hann sagði það vera arf- sögn í sínum ættbálki, að ætt- faðirinn bafi komið frá landinu, þar sem vatnið væri eins og grjót á vetrum. Þarna býzt ég , við, að fsland hafi notið nafns I fremur en frændsemi. — En j þetta er mín ítrekuð reynsla, að j það er víðar en á íslandi, höfuð- | bóli ættfræðinnar, lengi munað til góðra forfeðra. íslendingar erlendis og aflkom- endur þeirra eru mér sérstak- lega hugstæðir nú eftir ferð okk ar í haust þvert um Canada, frá Quebec til Vaneouver. Þar birt- ust tugir og hundruð fslendinga, hvar sem numið var staðar. Það j er talið líklegt að í Canada búi j um fjörutíu þúsundir manna af íslenzkum stofni. Það trúa því víst fáir, sem ekki bafa kynnzt því af eigin raun, hváð íslend- ingurinn er ríkur í þessu fólki, jafnvel þeim sem eingöngu mæla á enska tungu. Það er rangt að segja um þá, að þeir hafi „týnt“ MÁLASKÓLI HALLDÓRS ÞORSTEINSSOIMAR 3-79-08 - SÍMÍ - 3-79 08 Kennsluaðferð: Kennsla byrjar með talæfingum þegar í fyrsta tíma í byrjendaflokki. í framhaldsflokkum er reynt að . auka orðaforða nemenda, fá þá til að segja frá í samfelldu máli, hvetja þá til að ræða áhugamál sín eða dægurmál sem vakið hafa athygli þeirra, en síðast en ekki sízt er reynt að leysa tunguhaft þeirra, sem hafa flest ef ekki allt lært á bók. Aldursflokkar: Nemendum er skipað í flokka eftir aldri að svo miklu leyti sem því verður við komið. Sú nýbreytni verður teKÍnn upp að hafa sérstaka síðdegistíma fyr- ir húsmæður. Auk þess eru: sérstök námskeið fyrir börn. Innritun daglega frá ki. 5—8. Kennsla hefst 8. janúar. 3-79-08 SÍMI 3-79 08 íslenzkunni. Þriðji og fjórði ætt- liðurinn er oftast alinn upp á ensku. Skólinn. félagamir, starfs bræður, blöð og bækur, allt er enskt, og Vestur-íslendingar sjálfir kanadiskir eó•. bandarísk- ir borgarar. En þar íynr lifir ótúlega mikið af íslenzikri menn- ing og ræktarsemi í þessu góða og myndarlega fólki, hvort sem það talar íslenzku eða ensku eingöngu, og enginn árekstur á milli hins erlenda þegnréttar og hins íslenzka arfs, eins og þegar má sjá í kvæðum og ræð- um Stefáns G. Stefánssonar. Þeir eru ekki týndir fslandi heldur, og mikils um vert að vér réttum þeim vinarhönd yfir hafið. Hand tak þeirra er sterkt, svipurinn hýr, og séð hefi ég tár glitra í auga, eins og dögg af himni, — gleðitár. Það er fjöldi Íslendinga og afkomenda þeirra út um heim allan, sem varðveitir í hjarta sínu dýrmætar endurminningar sínar eigin eða frásögur afa og öm-mu, og sjá í hyllingum Fjall- konuna út við sjóndeildarhring i átt sólaruppkomu hádegisstaðar eða sólarlags. Það má segja að vesturfarir hefjist um það leyti, sem fslend- ingar fengu stjórnarskrá, og straumurinn harðnar svo á hallær isárunum frá 1880 til aldamóta. Nú er að mestu tekið fyrir þann straum, lífskjörin orðin svo áþekk. Nokkur fólksflutningur á sér þó stað árlega, sem dreifist nú orðið til mafgra^ landa og aldrei er að vita hýar íslendingar bittist fyrir. Það má búast við að sHkur tilflutningur haldist framvegis frá landinu og til þess. Eins Og nú er komið samgöng- um, málakunnáttu og sérmenntun verður ekki varizt fólksflutning- um, og margar þjóðir gera ser að skyldu að halda uppi lifandi sambandi við landa sína Og frænd ur í framandi löndum um alla heimskringluna. Það er verkefni, sem vér íslendingar megum ekki vanrækja öllu lengur. fslendingur inn erlendis er fulltrúi sinnar þjóðar. Sú utanríkisþjónusta get ur verið bæði kostnaðarlaus og verðmæt um verklega og andlega menningu, auk þess sem ættjarð- arböndin grípa oss föstum tökum. Þegar vesturfarir hófust fyrir rúmlega áttatíu árum voru íbúar landsins tæplega sjötíu þúsund. Nú eru íslendingar búsettir í heimalandinu um eitt hundrað og sjötíu þúsund. Það má sennilega áætla, að erlendis búi nærfelt sex tíu þúsund manns af íslenzkum ættum. Þetta er mikil viðkoma, og hvað verður um næstu alda- mót, sem óðum nálgast? Eigum vér, sem heima sitjum, að láta þetta fólk hverfa í alþjóða út- hafið, eða eigum vér að gera oss far um að styrkja bróðurbönd- in og rétta þeim hönd, sem fús- lega vilja taka á móti? Ég hygg að svarið verði á eina leið hjá allflestum. Ég mun ekki ræða í þessu stutta ávarpi einstök atriði um framkvæmd slíkrar starfsemi. Þar er mikla og góða reynslu annarra Norðurlanda við að styðj ast. Vafalaust má um skráningu fslendinga erlendis, styðjast við Þjóðskrárdeild Hagstofunnar, og frjáls samtök áhugamanna gætu unnið mikið og gott starf. Og eng in ofætlun er það, að halda á Þingvöllum, á tilteknum fresti, hátíð fyrir þá sem heimsækja land og þjóð feðra sinna og for- feðra. Vér fslendingar erum fámenn þjóð og þurfum að vaxa bæði að mannfjölda og manngildi. Það er einkum manngildið, sem gefur Og tryggir smáþjóðum tilverurétt. Horfnar kynslóðir búa enn í land- inu á bókfelli, og máli, sem hef- ir varðveitzt. Komandi kynslóðir eru nálægar í framtíðardraumum þjóðarinnar. Og allir fslendingar, hvar sem þeir búa á jörðunni, eru boðnir og hjartanlega vel- komnir til þátttöku í þjóðlífi líð andi stundar. Góðir íslendingar! Að svo mæltu endurtek ég beztu nýárs- kveðjur, og árna þjóðinni árs og friðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.