Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 3. jan. 1962 Konan mín SIGURDÍS B. LAXDAL, andaðist að heimili sínu Nesi, Höfðahverfi á nýársdag. Fyrir mína hönd og barna okkar. Grímur Laxdal Eiginmaður minn I»ORVALDUR HELGASON andaðist að heimili sínu Otrateig 5 1. þessa mánaðar. Margrét Hallgrímsdóttir. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför EINARS H. SIGURÐSSON Þórunn Jónsdóttir, börn og tengdabörn. Eiginmaður minn KARL A. JÓNASSON prentari, andaðist 31. desember. Ragnliildur Þórarinsdóttir. Bróðir okkar HALLDÓR JÓN JÓNSSON símamaður, andaðist í Bæjarspítalanum 31. desember síðastliðinn. Gunnhildur, Kristín, Margrét og Dagbjört Jónsdóttir. Hjartkær eiginmaður og faðir , , KJARTAN EINARSSON trésmiðameistari Hvolsvelli, andaðist í Landsspítalanum 31. des. Fyrir hönd aðstandenda. Katrín Aðalbjörnsdóttir og börn. Okkar hjartkæri eiginmaður og faðir GEORG ÖSTLUND andaðist að sjúkrahúsi Keflavikur laugardaginn 30. des- ember 1961. Jarðarfö.'in fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 6. janúar 1962 kl. 1,30 eftir hádegi. María Maikan Östlund, Pétur Davíð Östlund. Föðursystir mín MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR sem andaðist 23. des. s.i. á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund Rvík., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Rvík. fimmtudaginn 4. þ.m. kl. 13,30. Ingibjörg Jónsdóttir. Jarðarför móður okkar KATRÍNAR KRISTINSDÓTTUR frá Bjarnahúsi, Stokkseyri, fer fram frá Stokkseyrarkirkju fimmtudaginn 4. janúar klukkan 2. Börnin. Jarðarför INGVELDAR ÞORSTEINSDÓTTUR fer fram frá heimili hennar Laugardalshólum og hefst með húskveðju kl. 12 á hádegi. Jarðað verður að Miðdal. Bílferð verður frá B.S.Í. kl. 8. Fyrir hönd vandamanna. Stefán Ingvarsson. Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför AAGE KRTSTINS PEDERSEN Mávahlíð 9, Rósa Jónsdóttir, Aðalsteinn Kristinsson, Karen Marteinsdóttir, Hörður Kristinsson, Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Haukur Kristinsson. Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og jarðarför ÁSGEIRS J. JAKOBSSONAR málarameistara. Valgerður Pétursdóttir og systkini. Þorbjörn Þórðarson læknir Minn'ngarorð í G Æ R var gerð bálför Þor- bjarnar Þórðarsonar, fyrr- um héraðslæknis í Bíldudals- héraði. Hann lézt á jóladag, 86 ára gamall. Með honum er horf- inn af sjónarsviðinu sérkenni- legur persónuleiki og mann- kostamaður, sem lengi mun verða hugstæður þeim, sem þekktu hann gjörla. Þorbjöm er fæddur í Laxár- nesi í Kjós 21. apríl 1875, son- ur Þórðar hreppstjóra og danne- brogsmanns Guðmxmdssonar og fyrri konu hans, Guðrúnar Guð- mundsdóttur bónda í Þórukoti á Álftanesi. Snemma bar á óvenju skarpri greind hjá Þorbimi og var hann settur til náms. Hann lauk stúdentsprófi 1896, en kandi datsprófi í læknisfræði 5 ámm síðar, með hárri 1. einkunn. Sigldi hann þá til Kaupmanna- hafnar til framhaldsmenntunar og vann þar m. a. á fæðingar- stofnun. Haustið 1901 var hann skipaður héraðslæknir í Nauteyr arhéraði við ísafjarðardjúp, en fluttist 1906 til Bíldudals, er hann var skipaður héraðslæknir þar. Gegndi hann því starfi I þangað til hann lét af embætti fyrir aldúrs sakir og fluttist til Reykjavíkur, en þar stundaði hann læknisstörf enn um skeið. Skapgerð og framkoma Þor- bjamar læknis vakti virðingu og traust. Hann var mjög sam- vizkusamur læknir, hikaði aldrei við erfiðar og hættulegar ferðir, hvort sem var á sjó eða um veglaus fjöll, ef hans var vitjað. Langt fram eftir þessari öld ræktu íslenzkir sveitalækn- ar störf sín við mjög örðug skilyrði. Öll tæki til vísinda- legrar sjúkdómsgreiningar skorti, samgönguerfiðleikar- útilokuðu flutning sjúklinga til Reykjavík- ur, þar sem þó var helzt rann- sóknaraðstaða. Úti á landi varð læknir því að treysta á glögg- skyggni sína, en hana sameinaði Þorbjörn læknir með stakrl samvizkusemi og umhyggju fyr- ir sjúklingum sínum. Því var einkum við bmgðið, hversu ná- kvæmur og farsæll fæðingar- læknir hann var. í vitjun lagði hann af stað umsvifalaust, eins og hann hefði beðið sendimanns ins. Svo reið hann, eins og hann hélt að hestamir þyldu, þangað til hann náði til sjúkl- ingsins. Á heimleiðinni fór hann aftur á móti rólega. Þorbjöm var gæddur ljósri og óvenjulega raunsærri hugsun, sem sópaði hiklaust burt marg- víslegum kreddum og hjátrú. Að sama skapi var réttlætis- kennd hans næm og örugg. Hvert sinn sem eg hugleiði sögu Gests Pálssonar: Grímur kaup- maður deyr, sé ég Þorbjörn fyrir mér í hlutverki læknis- ins, sem segir: „Vísindin þekkja ekki neitt til þess, að til sé djöfull eða helvíti“, en bætir svo við, rétt þegar Grímur þykist sloppinn frá óvænlegum reikn- ingsskilum, að hann trúi engu síður á óbrigðult réttlæti, sem veiti hverjum manni makleg málagjöld. Þannig var Þorbjörn. Enginn, sem þekkti hann, gæti hugsað sér að hann hikaði nokkm sinni frá því, sem hann áleit rétt. Hann var hreinn og beinn allt í gegn. Hann var því frábitinn að koma sér í mjúk- inn hjá öðrum eða sækjast eft- ir lýðhylli. Margvíslegt traust, sem honum var sýnt, spratt ein- göngu af hæfileikum hans sjálfs. Hann gat verið stuttur í spuna og hrjúfur á ytra borði, en öll störf sín leysti hann þannig af hendi, að honum varð til álitsauka. Þorbjörn hafði ímugust á öllu lýðskrumi. Eg varð á unglings- aldri heyrnar- og sjónarvottur að einu slíku viðbragði hans. Frambjóðandi var á þingmála- fundi að ræða um skyldu þing- manns til að túlka vilja kjós- enda sinna á þingi, en komst svo klaufalega að orði, að ekki varð á annan veg skilið, en að þingmaður ætti enga sannfær- ingu að hafa í þjóðmálum, held- ur aðeins að túlka vilja kjós- enda. Undir þessum orðum hnippti Þorbjörn læknir í föður minn og sagði stundar hátt: „Finnst þér þetta ekki fullvæm- in kosningabeita, Jónas, komdu, við skulum fá okkur einn bitt- er.“ Við slíkum skeytum hlífði hann flokksmönnum sínum engu fremur en pólitískum andstæð- ingum. Þorbjörn læknir gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum í hér- aði sínu, þótt eigi verði talin hér. Hann gekkst ásamt fleiri mönnum fyrir stofnun Sparisjóðs Arnfirðinga 1911 og var forstöðu maður ög féhirðir sjóðsins alla tíð, Unz hann fluttist frá Bíldu- dal 1938. Þorbjöm var óvenju glöggskyggn á fjármál og efld- ist sparisjóðurinn því mjög und- ir stjórn hans og varð lyfti- stöng / margvíslegra framfara, enda mat Þorbjörn ávallt dug- mikið framtak og studdi það eftir megni. Þorbjöm hefir sjálfur viðhaft þau orð, að hann væri sumar- barn og ævi sín hafi verið ein óslitin sumartíð. Þetta táknar ekki að aldrei hafi mætt um hann né neinir erfiðleikar orðið á leiðinni. Dauðinn hefir kvatt dyra á heimili hans, fyrr en hann átti erindi við Þorbjöm sjálfan. En maðurinn var þann- ig skapi farinn, að hann fjöl- yrti lítt um erfiðleika sína, Og í raun var hann mikill gæfu- maður. Ég hygg það ekki of- mælt, að mesta hamingju sína sótti hann í Vatnsfjörð, er hann kvæntist hinni glæsilegu heima- sætu, Guðrúnu, sem þá var einn bezti kvenkostur þar vestra, dóttir Páls prófasts Ól- afssonar, komin af merkum og hæfileikamiklum ættum. Frú Guðrún var manni sínum ein- staklega samhent og hjónaband þeirra óvenju farsælt, svo að orð var á gert, að á milli þeirra félli aldrei styggðaryrði. Börn þeirra tóku hæfileika foreldra sinna í arf og urðu framsækin til mennta. Þau, sem náðu full* þroska aldri eru: Arndís, gift Marteini Björnssyni verkfræð- ingi, Guðrún, kona dr. Brodda Jóhannessonar, nú látin, Krist. ín, gift Guðmundi Ingva Sig- urðssyni lögfræðingi, Páll skip- stjóri, dr. Þórður, forstöðumað- ur Rannsóknarstofu Fiskifélagg íslands, Sverrir, forstöðumaður Tryggingarstofnunarinnar og prófessor Björn, læknir í New York. Ég veit ég mæli fyrir munn margra, er ég votta frú Guð- rúnu, ekkju Þorbjarnar, og börnum hans innilega samúð. Þorbjörn læknir er horfinn. En þeim, sem meta hljóðláta skapgerð, næma réttlætisvitund og sannleiksást mun hann lengi verða minnisStæður. Matthías Jónasson, Þökkum hjartanlega gjafir og alla vinsemd okkur sýnda á 70 ára afmæli okkar 23. des. ’ Guð gefi ykkur gott og gleðilegt nýtt ár. Járngerður Jónsdóttir, Miðey. Eyjólfur Jónsson, Snoirabraut 42. Kona eða stúlka sem fengist hefur við matreiðslu óskast. Auslurb ar Sími 19611. Nýlenduvöruverzian i til sölu Tvær nýlenduvöruverzlanir í eigu sama manns eru til sölu, vegna skorts á rekstrarfé. Seljast báðar saman eða hvor fyrir sig. Salan í báðum verzlununum rúm 200.000,00 á mánuði. Það rekstrarfé sem vantar ca. 125.000,00 þarf kaupandi að borga út. Núverandi eigandi er fús að sjá um rekstur verzlananna til vors. Tilboð leggist inn á afgr. Morgunblaðsins merkt: „Verzlun — 7484“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.