Morgunblaðið - 03.01.1962, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 3. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
19
— Klettur
Framh. af bls. 20.
breytist okkur 1 vil á næstunni.
Framboð Perúmanna hefur orð-
ið til þess, að fiskiolíur hafa
lækkað mjög í verði.
Mjölmarkaðurinn
hagstæðari en í fyrra
Síldarmjölsmarkaðurinn hefur
lagazt frá því, sem hann var í
fyrra, en er hins vegar ekki
nándar naerri því eins góður og
hann var áður beztur. Ástæður
þess, að markaðurinn hefur
batnað, eru þser, að Perúmenn
hafa breytt um sölufyrirkomu-
lag hjá sér. Útflutningurinn er
kominn í færri hendur, svo að
spekúluasjónir eru nær útilok-
aðar og markaðurinn orðinn
mun stöðugri. Gera menn sér
því fastlega vonir um, að mjöl-
verðið verði ekki eins lágt og
það var á síðastliðnu ári.
Verksmiðjan á Kletti
endurbætt
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
an á Kletti hefur verið endur-
bætt allverulega að undan-
förnu, og hún gerð hæfari til
síldarvinnslu. Hafa því afköst
hennar aukizt, en hún er, eins
og kunnugt er, eina starfandi
síldarvinnsluverksmiðjan í
Reykjavík. Vélakostur hennar
hefur verið bættur, og hefur
hún t.d. fengið nýja pressu af
amerískri gerð, síldarsjóðara og
önnur tilheyrandi tæki. Þá hef-
ur verið lagt í byggingu á mjög
Fágætar stillur eystra
SKRIÐUKLAUSTRI 28. des. —
Nú eru liðin að þessu sinni
,Litlu branda“-jól. Veðrið var
hér ágætt á aðfangadag. Á jóla-
dag var hreinviðri og stiila,
dýrðarfagurt veður — en mjög
kalt, frost 12—13 stig. Annar
jóladagur var mildari, en lítils
Þessir piltar, sem vinna að því að fyila síldarmjölspoka í verk-
smiðjunni á Kletti, standa fyrir neðan eina pokastæðuna í
mjölskemmu verksmiðjunnar. AUt fyrirkomulag í sambandi
við stöflun, kælingu og útskipun hefur verið endurbætt ný-
lega og vélakostur verksmiðjunnar aukinn.
stórri mjölskemmu, en það hef-'S'
ur háð verksmiðjunni, hve mjöl-
geymslur hennar hafa verið tak
markaðar. Allt fyrirkomulag í
sambandi við stöflun, kælingu
og útskipun hefur verið gert
hagkvæmara.
illÍÉIIÍiliII
Þetta er þurrkarinn mikli í Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni
við Klett. Hann mim vera um 30 m langur. (Ljósm. Ól. K. M.)
Vinningsnúmer
í happdrætti styrktarfélags vangefinna
dregið 23. desember síðastliðinn.
11612 - 69685 - 73901
Vinningar 3 Volkswagenbifreiðir.
STYRKTARFÉLAG VANGEFINNA.
Skrifstofustarf
Iðnaðarfyrirtæki viU ráða áhugasaman reglumann
í framtíðarstarf við bókhald, vinnulaunaútreikning
og til almennra skritstofustarfa. Mikillar vinnu verð
ur krafist en góð laun greidd. Eiginhandarumsóknir
er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist af-
greiðslu Morgunblaðsins merkt: „Framtíðarvinna —
7488“ fyrir n.k. föstudagskvöld.
Kona fyrir bíl á
Hafnarfjarðar-
vegi
Á NÝÁRSDAG um kl. 21 varð
það slys á Hafnarfjarðarvegi að
stúlka varð iyrir bifreið, er ók
suður veginn á móts við Hlíðar-
veg í Kópavogi. Ökumaður segist
hafa séð stú^kuna, er hafi verið
á hpaðri ferð, og beygt yfir Hafn-
arfjarðarvegmn í veg fyrir bíl-
inn. Hafi hann reynt að sveigja
frá henni en hún skollið á hægra
frambretti bifreiðarinnar. Talið er
er að stúlkan hafi mjaðmargrind-
arbrotnað. Hún heitir Svanhild-
■ur Vagnsdóttir til heimilis í
Kópavogi.
í fyrrinótt valt jeppabifreiðin
Y-397 austur við Hveragerði og
skemmdist verulega. Ekki er
kunnugt um að þar hafi orðið
slys á fólki.
Rólegt gamlárs-
kvöld hjá bruna-
liðínu
Á GAMLÁRSDAG kl. 16,18 síð-
degis kom upp eldur í gróður-
húsinu Birkihlíð við Nýbýlaveg
7. Er slökkviliðið kom á vett-
vang var mikdl eldur í húsinu en
það tókst skjott að slökkva hann,
en skemmdir urðu talsverðar.
Annars var rólegt gamlárskvöld
hjá brunaliðinu og var það aðeins
tvívegis kvatt á vettvang en í
bæ,ði skiptin var um lítilvægilega
bruna að ræða.
Frjáls verzlun -
6. hefti 1961
FYRIR nokkru kom út 6. hefti
tímaritsins „Frjálsrar verzlunar
1961. Hefst það á jólahugleiðingu
eftir séra Bjarna Sigurðsson á
Mosfelli, en af öðru efni má
nefna:
Frelsi og framfarir öllum til
handa, grein eftir ritstjórann,
Valdimar Kristinsson. — Um
verðlagshöft og frjálsa álagningu
eftir Svein Ásgeirsson, hagfr. —
Framkvæmdir Björgvinjarmanna
á ísafirði á árunum kringum 1790
eftir Sigfús Hauk Andrésson,
cand. mag. — Þá er grein eftir
Jónas H. Haralz: Framvinda án
verðbólgu. — Þór Guðjónsson,
veiðimálastj., skrifar greinina
Fiskeldi — ný atvinnugrein. —
Þá er fróðleg grein um íslenzk
tímarit til síðustu aldamóta eftir
Magnús Kjarnn. — Birt er smá-
sagan Stefnumót eftir Þóri Bergs
son. — Guðmundur G. Hagalín
skrifar um himda og menn. — í
þættinum Úr gömlum ritum birt-
ist nú þriðja grein Vestur-íslend
ingsins Friðriks J. Bergmanns
um framfarir á íslandi um síð-
ustu aldamót.
—★—
Ýmislegt fleira efni er í ritinu.
— Það er vel úr garði gert og
mjög myndiskreytt að venju. m.a.
eru birtar nokkrar litmyndir frá
Öskjugosinu.
Togarasölur
ASKUR seldi í gær í Bretlandi
151 lest fyrir 8816 sterlings-
pund. Einnig átti Egill Skalla-
grímsson að selja, en ekki er
blaðinu kunnugt um hvérnig
salan fór.
háttar él í kring og út um Hérað.
I gær og dag er grimmdarkuldi,
norðvestan stormsteyta og froat
12—14 stig. Bjartviðri hefir ver-
ið en séð í káfgarra niður af
heiðarbrúnum. einkum „á milli
ánna“.
Annars var fágætur stilliu-
kafli fyrir jólin, með óvenju-
miklu háþrýstisvæði hér yfir og
langvarandi. Voru blíðuveður
flesta daga, þótt hiti væri lágur,
þá var stillan svo frábær að
sjaldan blakti hár á höfði. Voru
það mikil umskipti frá harð-
viðrakaflanum um mánaðamótin
síðustu.
Kvénfélag hreppsins hafði-
fyrirhugað barnasamkomu i Vé-
garði í dag, en samkomunni var
frestað vegna kuldans.
Dalurinn er að eins gráhvítur
yfir að sjá en annars er enginn
snjór — og gott umferðar. — J.P.
Pólýfónkórinn
efnir til söng-
námskeiðs
f DAG hefist á vegum Pólýfón-
kórsins söngnámskeið fyrir
félaga kórsins og nýja kórfélaga,
sem hafa í byggju að bætast í
hóp söngsveitarinnar nú í byrj-
un ársins, þegar kórinn byrjar
æfingar á nýrri efnisskrá, en
hann hélt tónleika á jólum, eins
og áður hefur verið getið, bæði í
Reykjavik, Keflavík og á Kefla-
víkurflugvelli.
Kennari á námskeiðinu verður
Sigurður Björnsson, söngvari,
sem stundað hefur framhaldsnám
1 Miinohen s.l. 5 ár og lokið námi
frá tónlistarháskólanum þar með
lofsamlegum vitnisburði. Sigurð
ur dvelst þó enn við nám í Þýzka
landi en er staddur hér heima í
jólaleyfi og hefur fengið leyfi
sitt framlengt út janúarmánuð
til þess að raddþjálfa Pólýfónkór
inn.
Áhugafólk um söng, sem kynni
að vilja bætast í kórinn nú og
njóta góðs af þessu námsskeiði,
gefi sig fram við söngstjórann,
Ingólf Guðbrandsson, í síma
2 35 10 kl. 6—7 síðdegis.
Brunaliðsmenn að tengja slöngurnar.
Hér sést hvar reykurinn gýs upp úr gróðurhúsinu við Nýbýlaveg 7, þar sem kviknaði í á
gamlársdag. (Ljósm. Mbl.: Sveinn Þormóðsson)