Morgunblaðið - 03.01.1962, Síða 3

Morgunblaðið - 03.01.1962, Síða 3
Miðvikudagur 3. jan. 1962 MORGVJS BLAÐIÐ 3 STÚDENTAR efndu sem kuiinugt er til áttadagsgleði í Haskóiabíói á gamlárskvöld, en áramótafagnaður þeirra þykir áva'llt nokkur viðburð- ur. Ljósmyndari Morgunblaðs ins, Sveinn Þormóðsson, brá sér á staðinn ©g fréttamaður náði tali af Herði Sigurgests- syni formanni stúdentaráðs, og spurðist fyrir um, hvernig til hefði tekizt. — Gleðin fór ákaflega vel og skemmtiiega fram og með friðsamlegum hætti, þannig að ekki kom til neinna árekstra. — Gleðin var mjög fjöl- sótt? — Já, þar voru urn 530 hafi orðið frá að hverfa. k... , Höskuldur Jónsson stjórnar dansi (Ljósm. Mbl.: Sveinn Þormóðsson) Attadagsgleði stúdenta tókst með ágætum manns og ég hygg, að um 300 — Veiztu, hvort aðrir dans- leikir fjölmennari hafi verið haldnir? — Ég býst við, að hægt sé að halda því fram, að svo sé ekki. A. m. k. ekki um þessi áramót. — Og var þetta ein-göngu skolafólk? — Já, skólafólk og gestir þess. Svo vitaskuld prófessor- ar_ þarna voru um 20 pró- fessorar ásamt kon-um sínum og háskólarektor, Armann Snævarr. — Menn setja þennan fa-gn- að mjög í samband við fagn- að þann sem á sínum tíma var hal-dinn í háanddyri há- skólans? — Já, þar var efnt til ára- mótafagnaðar á árunum 1940- 1947, en þá var því hætt fyrst og fremst vegna mikill-ar slysahættu. Þeir voru orðnir svo fjölmennir að menn ótt- uðust, að illa kynni að fara. — Og hvert rennu-r svo á- góðinn að þessu sinni? — Hann rennur að öllum líkindum í félagsheimilis-sjóð. Mikill áhugi er á því meðal stúdenta að ráða bót á þeirn skorti sem verið hefur á fé- lagslegri aðstöðu, þótt nokk- uð hafi rætzt úr á síðastliðnu ári. — Hvað vil-tu svo segja að lokurn? — Ég vil taka það fra-m að nefnd sú, er undirbjó hátíða- höldin, gerði það með mikl- um á-gætum. T. t. var all-t komið í samt lag um hádegi á nýársda-g, svo sýningar gátu hafizt m-eð eðlil-egum hætti. Ég vil einnig taka það fram, að gleðin var stúdentum ti-1 sóma og a-Ilir vænta þe-ss, að hún ve-rði endurtekin að ári. Hafeteinn Hafsteinsson, formaður nefndar þeirrar, er sá um fagnaðinn, kvaðst sér- staklega vilja þakka aðstoð þá, sem ýmis fyrirtæki og stofnanir hefðu látið í té. en án hennar, hefði naumast verið unnt að efna ti-1 hans. Anna-rs hefði gleðin farið vel fram, menn skemmt sér vel og farið ánægðir heim. Væri því sízt á-stæða til að óttast, að hún komi í veg fyrir, að . áttada-gsgleði verði haldin á sama stað að ári. Séð yfir salinn Á veggjum sjást skopmyndir af pró- fessorum og helztu forystu- mönnum stúdenta. IHeiddust á auga AKRANESI, 2. jan. — Kl. h-álf ellefu kvöldið fyrir gamlársdag var 17 ára piltur, Jóhannes Ei- leifsson, Mánabraut 4, búinn að bera logandi eldspýtu að stórum kínverja. Ekki vildi kvikna á. Beygði Jóhannes sig niður að kínverjanum til þess að gá að hvað valdi. í því gaus bloesinn framan í hann og í vinstra aug- að. Stökk Jóhannes hálf blindur til læknis síns og áfram til Torfa héraðslæknis, sem átti vaktina, m-eð svíðandi sársauka Og ösku- lag yfir auganu. Torfi hreinsaði upp óhreinindin og bar smyrsl á. Morguninn eftir hreinsar Torfi enn augað og ræður Jóhannesi að fara til augnlæknis. Líðan Jó- hannesar er góð eftir atvikum. A-ugað skemmdist ekki, en hvarmar eru bólgnir eftir brun- ann. 12 ára drengur, Kári Geir- laugsson, til hei-milis á Heiðar- brau-t 7. ætlaði ása-mt jafnaldra sínum að tend-ra ýlusprengju kvöldið 28. f.m. þegar féla-gi hans kvei-kti á eldspýtunni þeyttist logandi brennisteinninn upp í sjáldrið á hægra auga Kára, brenndi sár á sjáaldrið og augna- hárin ofan og neðan. Varð Kári að fara til augnlæknis í Reykja- vík. Hefur hann von um að verða albata.—Oddur. ÞÚFUM, 29. des. — Veðráttan um hátíðarnar hefir verið stillt, oft ast allmikið frost en gott færi alls staðar á vegum. Ef frostin haldast lengi er hætta á að vík- ur og firði leggi, sem getur valdið miklum óþægindum með ferðir djúpbátsins. Heilbrigði er góð í héraðinu. — P. P. Kammermúsík- tónleikar í kvöld KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN heldur tónleika í samkomusal Melaskólans 1 kvöld kl. 21. Tón- leikar þessir heyra raunar ár- inu 1961 — eru merktir sem 4. tónleikar þi-ss árs — en ekki reyndist unnt að koma þeim á íyrir áramót. Á efnisskrá tónleikanna í kvöld eru þrjú verk: Fyrst Tríó í B- dúr, fyrir klarinettu, knéfiðlu og píanó, op. 11 eftir Beethoven. Flytjendur éru: Elísabet Haralds- dóttir (knéfiðla) (próf. Sigurðs- sonar píanóleikara) Milan Kant- orek sem leikur á klarinettu Og Árni Kristjánsson (píanó). Annað verkið er Sónata fyrir klarinettu Og píanó eftir Arthur Honegger (Elísabet og Árni). Loks verður Elísabet Haraldsdóttir, klarinett leikari. svo flutt Sónata í Es-dúr fyrir klarinettu og píanó, eftir Johann- es Brahms, og eru flytjendur himr sömu og i sónötu Honeggers. STÁKSTEÍMA Handritamálið og norræn samvinna í ávarpi því, sem forseti ís- lands, herra Ásgeir Ásgeirsson, flutti frá Bessastöðum á nýjárs- dag. minntist hann m. a. á hand- ritamálið. Komst forsetinn þá m. a. að orði á þessa leið: „Ég læt þó ekki hjá líða að minnast þess, að á nýliðnu ári má telja að úrsliit hafi verið í handritamálinu, þó bið verði á af'greiðslu þess. Hinar miklu gersemar íslenzkrar menningar. þau handrit, sem geymzt hafa í Danmörku, verða afhent tslend- ingum. Það verður fagnaðar- stund, þegar að því kemur. Og það skulum við muna vel og meta, að þá eru jafnframt leyst þau ágreiningsmál Danmerkur og íslands, sem fólust í sjálfstæðis- baráttunni. Dönum hefur farizt vel og ber þess að minnast með þakklæti og virðingu.“ Þetta er vel mælt og réttilega. Dönum hefur farizt stórmannlega í þessu máli. Ríkisstjórn þeirra og yfirgnæfandi meirihluti danska þjóðþingsins hafa sýnt mikla víðsýni með fyrrgreindri lausn handritamálsins. En það skulum við íslendingar gera okkur ljóst, að þessi niður- staða handritamálsins er fyrst og fremst ávöxtur af þátttöku ís- lendinga í norrænu samstarfi á undanförnium árum, bæði innan Norðurlandaráðs, Norrænu félag- anna og á f jöimörgum öðrum svið um. Hin merka lausn handrita- málsins er þess vegna glæsilegur vottur um arangur norrænnar samvinoiu. \ íslendingar erlendis Forseti íslands ræddi einnig um tengsl heimaþjóðarinnar við íslendinga erlendis. Komst hann þá m. a. að orði á þessa leið: „Þegar vesturfarir hófust fyrir rúmlega 80 árum voru íbúar landsins tæplega 70 þúsund. Nú eru íslendin-gar búsettir í heima- landinu um 170 þúsund. Það má sennilega áætla að erlendis búi nærfelt 60 þús. manns af ís- lenzkum ættum. Þetta er all- mikil viðkoma og hvað verður um næstu aldamót, sem óðum nálgast. Eigum vér sem heima sitjum að láta þetta fólk hverfa í alþjóðaúthafið, eða eigum vér að gera oss far um að styrkja bróðurböndin og rétta þeim hönid, sem fúsir vilja rétta hönd á móti? Eg hygg að svarið verði á eina lund hjá allflestum.“ Gildir gjaldeyrissjólfir Visir birúr i gær forystugrein um gjalucyrisstöðu þjóðarinnar nú um aiamótin. Ræðir blaðið m. a. um ástandið í efnahags- málunum, þegar vinstri stjórn- in skildi við og kemst þá að orði á þessa leið: „Þá var útlitið i peningamál- unum vægast sagt hörmulegt. Engir varasjóðir en f jöldi óreiðu- skulda á bankana erlendis, sem sífellt jukust. En á skammri stund hafa veður skipast í lofti. Svo gjörsamlega hefur tekizt að rétta við Ijárhag landsins, út á við sem ínn á við, að hrein gjald- eyriseign bankannia er nú 393 milj. kr. Hún var engin þegar stjórnin tók við. í stað þess að safna skulduin erlendis erum við nú farin að greiða skuldir okkar upp. Mánaðarlega hefur gjaldeyr- isstaðan batnað síðau stjórnin tók við.“ Það er við þessar staðreyndir um árangurinn af viðreisnarstefn unni, sem stjórnarandstaðan, kommúnistar og Framsóknar- menn, eru stöðugt að slást. Þeir halda áfram að berja höfðinu við steininn og tala um sín „móðu- harðindi"! En staðreyndirnar segja allt aðra sögu. Þær segja sannleikann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.