Morgunblaðið - 03.01.1962, Page 18

Morgunblaðið - 03.01.1962, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 3. jan. 1962 — Aramótaávarp Framh. af bls. 11. iftnd*. Hitt er annað mál, að menn þurftu að vinna langan tíma, lengur en yfirleitt tíðkast í nágrannalöndum okkar, til að ná þeim tekjum, er þeir raun- verulega höfðu. Sæmileg af- koma manna nú, sem m. a. lýs- ir sér í óvenju mikilli verzlun nú um jólin, bendir til þess, sem önnur rök styðja einnig, að vinnutími í ár hafi sízt verið skemmri. Viðfangsefnið hlýtur að vera að stytta þennan tíma án þess að launþegar eða vinnu veitendur missi nokkurs í. Ef marka má reynslu annarra, hlýt ur að vera unnt að ná þessu marki í mörgum atvinnugreinum. En það krefst góðvildar og ein- beitts'vilja allra aðila til að ná árangri. Tillöguflutning Bjöms Jóns- sonar og félaga hans varð að skoða sem útrétta hönd til sam- starfs um að brjótast úr sjálf- heldunni og taka up árangurs- vænlegri vinnubrögð en nú um langt skeið hafa verið tíðkuð. Með þeim skilningi var tillaga þeirra að meginefni samþykkt einum rómi á Alþingi. Nú er eftir að sjá, hvort hugur fylgir máli — hjá öllum aðilum. Fyr- irfram vil ég ekki efa að svo sé, svo mikið sem er í húfi, ekki einungis fyrir afkomu og lífs- kjör einstaklinga og þjóðar- heildar, heldur og um, að þjóð- in standi sem styrkust að vígi, þegar að því kemur að ákveða, hvort og ef á reynir með hverj- um hætti eigi að taka þátt í því nána efnahagssamstarfi, sem nú er verið að efna til meðal þeirra þjóð, sem við höfum nánust samskipti við. Þá ríður á, að ekki þurfi vegna sjálfskapaðra erfiðleika að ganga að neinum nauðungar-skilyrðum. ★ Því miður hefur það oftar en einu sinni hent í stjórnmálabar- áttu okkar á þessari öld, að menn hafa haldið áfram að deila eftir að deiluefnið sjálft var úr sögunni. Þaer aðfarir hafa ætíð orðið þjóðinni til tjóns og eru eftir á taldar til ávirðingar þeim, sem hlut áttu að máli. Látum þau víti verða okkur til vamaðar. Hættum þráteflinu og þeirri gagnslausu kjarabaráttu, sem allir flokkar hafa þegar þeir báru ábyrgð á stjóm landsins, neyðzt til að gera ráðstafanir gegn. Tökum í þess stað upp heilshugar bar- áttu fyrir þeim kjarabótum, sem eins og nú til háttar einar megna að verða að gagni og all- ir hafa lýst sig samþykka. Eng- in hætta er á, að ekki verði samt nóg um að deila. En deil- um ekki einungis til að deila heldur þar sem raunverulegur málefna-ágreiningur er fyrir hendi. Látum ekki persónlegar vær- ingar eða flokksstreitu róða gerðum okkar. Sýnum í verki, að þrátt fyrir smæð þjóðarinnar kunnum við að hugsa stórt. Að svo mæltu óska ég öllum íslendingum árs og friðar og vona, að þjóðar okkar bíði gæfa og gengi nítján hundrwð sextíu og tvö. <■ Enska knattspyrnan Markfhæstu leikmennimir í Englandi eru nú þessir: 1. deild. Phillips (Ipswich) 25 m.irk — Aramótin Framhald af bls. 6. gekk Kvenfélag Sauðárkróks fyr- ir barnaskemmtun kl. 5 og skemmtun fyrir fullorðna kl. hálf níu. Var dansað á eftir skemmti- atriðum. — Jón Á SIGLUFIRÐI SIGLUFIRÐI: — Siglfirðingar áttu ánægjuleg og róleg áramót. Þó skyggði það á gleði borgar- anna að fresta varð fyrirhuguð- um álfadansi og brennu þar eð vindátt olli því að talið var að hættulegt yrði fyrir nærliggjandi hús. Hinsvegar tókst vel skreyt- ingin í Hvanneyrarskála og fjalls hlíðinni fyrir ofan bæinn. Þar hafði verið komið fyrir blysum sem mynduðu ártölin 1961 og 1962. Ennfremur voru nokkrar áramótabrennur í fjallshlíðinni. Álfabrennan mun fara fram við fyrsta h^ntugt tækifæri. Óvenju mórg skip voru hér í höfn og miklu skotið af flugeldum. Ára- mótadansleikur var að Hótel Höfn og fór hann vel fram. — Stefán 1 STYKKISHÓLMI STYKKISHÓLMI: — Hér var SV gola og gott veður fram eftir nóttu, en þá gerði þíðu og rign- ingu og á nýársdag var rigningar- slitur. Fjórar brennur voru í bænum og um kvöldið gekkst Lúðrasveit Stykkishólms fyrir dansleik. Var hann mjög fjölsótt- ur og fór hið bezta fram í alla staði. Heldur minna var skotið af flugeldum og blysum en oft áður en þó mikið víðar um bæ- inn en áður. — Fréttaritari. HÖFÐASTRÖND BÆ: — Skemmturi var hér á gamlárskvóid eins og vanalega og niun hún hafa farið vel fram. Brennur voru á nokkrum stöðum, en végna sunnan storms ekki eins víða og búizt hafði verið við. Hér héfur verið sunnan hálka yfir áramótir og er snjóa óðum að taka upp. Dálítið er þó enn hállt á vegum. Töluvert var skotið af flugeldum á gamlárskvöld. — Björ-i Chamley (Blackpool) 22 — Charnley (Ipswich) 22 — Dick (West Ham) 17 — Kevan (W.B.A.) 17 — Pointer (Burnley) 17 — Tambling (Chelsea) 17 — 2. deild. Thomas Scunthorpe) 30 — Clough (Sunderland) 24 — Hunt (Liverpool) 2' — Peacock (Middlesbrough) — 3. deild. Holton (Northampton) 25 — Bedford (Q.P.R.) 22 — Hunt (Port Vale) 21 —. Atyeo (Bristol City) 20 — 4. deild. Hunt (Colchester) 25 __ King (Colchester) 21 — Metcalf (Wrexham) 21 — Lord (Crewe) 19 — Eins og áður hefur verið skýrt fró, fer 3. urnferð ensku bikar- keppninnar fram n. k. laugardag. 64 lið eru nú eftir í keppninni og munu þau berjast næstu vik- urnar um að komast í úrslita- leikinn, sem fram fer á Wem- bley-leikvanginum 5. maí n. k. Hér er ekki eingöngu verið að berjast um heiðurinn heldur og er það mjög mikið fjárhagslegt atriði fyrir félög að komast áfram í bikarkeppninni. Athygli flastra beinist venju- lega að liðunum úr I. deild og þó sérstaklega þeim, sem skipa efstu sætin í deildinni. Að þessu sinni fara fram þrír leikir milli liða úr I. deild. þ.e. Manohester U. — Bolton; Birmingiham — Totten- ham og Blackpool — W. B. A., srvo þrjú lið úr I. deild falla því örugglega úr í þessari umferð. Einnig má reikna með að ýmis önnur falli úr og má í því sam- bandi minna á, að í 3. umferð í fyrra féllu úr t.d. Arsenal, Chelsea, Everton, Fulham, Black- pool, W. B. A. og N. Forest. Ekki hefur verið rætt og rit- að um hvaða lið muni sigra, í þessari vinsælu keppni, að þessu sinni. Hafa margir talað um Everton, Burnley og Tottenham og í því samibandi bent á hve vel þessum liðum hefur gengið það, sem af er keppnitímabilinu. Nokkrir hafa minnst á West Ham, Arsenal og Liverpooi og bent á að þessi lið geti leikið vel og sigrað hvaða lið sem er. tw. Ói iífe Meinhægt gamlárskvöld í höfuðstaönum SAMKVÆMT umsögn lög- reglunnar var gamlárskvöld- ið hér í Reykjavík í heild fremur rólegt, þótt að vísu hafi lögreglan haft nokkuð umleikis og verið mikið á ferðinni. Kom þó ekki til al- varlegra átaka né neinna æsinga. Rúmlega 100 brennur loguðu víðsvegar um bæinn við enda ársins og dreifði það mjög fólki og var þetta vinsælt. — Fjöldi Unglinga, og raunar einn- ig fullorðinna, horfði á brennur þessar, sem flestar voru tendr- aðar um kl. 22. Kl. 23 var kveikt í brennu Reykjavíkur- bæjar í Kringlumýri, en hún var hið mesta mannvirki. Við margar brennurnar var söngur og gengið í kringum þær á meðan. Einna mestur virtist Hvernig nú sem keppnin fer, þá er eitt öruggt, að það lið sem sigrar þarf að vera heppið. Ekki i eingöngu í leikjum sínum, held- ; ur og í sambandi við það, að I lenda ekki gegn öllurn sterku lið- unum og að leika sem oftast á heimavelli. Einnig hefur mikið að segja í þessari keppni að þurfa j ekki að hafa áhyggjur af deildar- ' keppninni, því bi'karkeppnin ein er nægilega erfið hverju liði. Tottenham sigraði í bikarkeppn- i inni í fyrra. gleðskapurinn við stærstu brennuna við Ægissíðu. Logandi köttur Þar gerðist hinsvegar hinn raunalegi atburður, að nokkru eftir að loga tók í brennunni stökk út úr henni lifandi köttur og logaði feldur hans allur. Voru vein kattarins ömurleg en unglingar brugðu við hart og kæfðu í honum eldinn með snjó, en hann var þá svo illa brunninn að ekki var fært ann- að en stytta honum aldur. Tal- ið er líklegt að þarna hafi verið um flækingskött að ræða, en talsvert er um þá í bænum. Hafi hann verið búinn að koma sér fyrir í bálkestinum, sem hefur verið í byggingu í nokkr- ar vikur. í Fossvogi var allmikil brenna innarlega í dalnum. í bálinu varð mikil sprenging nokkru eftir að hún tók að loga. Gaus upp geysihá eldsúla og við enda hennar myndaðist eld- og reykjarkökkur, líkt og er, er atomsprengjur sundrast. Af þessu hlauzt ekkert slys svo vitað sé, en hús og gluggar nötruðu í nágrenninu. Niðri í bænum var að vanda allmikið um sprengingar og þar var margt um uhglinga, en ekki urðu þó illindi þótt galsi væri í strákunum. Umferð var geysimikil S gamlárskvöld og nýársnótt en ekki hlutust þó slys af. Nokkr- ar rúður voru brotnar en ekki tilkynnt um þær fyrr en á ný- ársdag og er talið að þær hafi sprungið vegna þess að sprengj- ur hafi komið of nálægt þeim. Dansleikir stóðu yfirleitt til kl. 4 í samkomuhúsum. Pústrar urðu nokkrir í sambandi við þá og höfum við fregnað að þurft hafi að lagfæra eina tvo manns- kjálka. GleðSkapur var hinsvegar all- mikill og söngur kvað víða við, sem telst þó ekki til stórtíð- inda,' á þessum tómamótum. Unglinga vantar til að bera blaðið víðsvegar um bæinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.