Morgunblaðið - 03.01.1962, Síða 20

Morgunblaðið - 03.01.1962, Síða 20
Fréttasímar Mbl. — eftir lokun — Innlendai Iréttir: 2-24-84 Erlendar fréttir: 2-24-85 Áramótaávörp Sjá bls. 8 og 11. Verksmiðjan á Kietti: 10 þús. tonn af síld í haust Móttöku hætt í bili — slæmar söluhorfur á lýsi Hér sést hiuti af síidarbingunum miklu inni við Klett. Verksmiðjan þar tók á móti um 14 þús. tonnum af síld á s.l. ári. Hún hefur ná hæ tt móttöku í bili vegna óvenju mikillar sýru- myndunar í hráefninu. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.). Stálu peningum og víni i Naustinu SÍLDAR- og fiskimjölsverk- smiðjan hf. á Kletti við Köllun- arklettsveg hefur haft ærið nóg að starfa að undanförnu, eftir að haustsíldin fór að veiðast við Suður- og Vesturland. Hún hef- ur alls tekið á móti um 10 þús- und tonnum af síld í október, nóvember og desember, en fyrr á árinu 1961 hafði hún tekið við 4 þúsund tonnum. Móttöku hætt vegna sýrumyndunar í síldinni Afköst verksmiðjunnar eru þau, að hún getur unnið úr um 500 tonnum af hráefni á sólar- hring. Nú liggja inni á Kletti vikubirgðir af hráefni, og verð- ur verksmiðjan að hætta að taka við meiri síld í bili, senni- lega um nokkra daga. Ætlunin er að vinna upp það, sem fyrir hefur safnazt. Ástæðan til þess, að verksmiðjan neyðist til að hætta móttöku um stundarsakir, eru þær, að þessi síld geymist ekki vel. Hráefnið súrnar ó- venju fljótt, svo að há sýrutala verður í lýsinu. Þetta mál er nú Karl A. Jónasson vélsetjari, látinn Karl Adolf Jónasson vélsetjari við Morgunblaðið lézt í Heilsu- verndarstöðinni á gamlárskvöld eftir langa og erfiða legu. Hann var einn af þremur elztu starfs- mönnum blaðsins og átti að baki lengstan starfsferil af prenturum þess eða 46 ár, þar af starfaði hann 38 ár sem vélsetjari. Hann hóf nám í ísafoldarprentsmiðju 1. sept. 1915, en þar var Mbi. prentað, eins Og kunnugt er, og síðan fylgdi hann ætíð blaðinu og var í senn góður starfsmaður og tryggur félagi. Karl A. Jónasson var fæddur í Brunnhúsum í Reykjavík og varð 61 árs í nóv. s.l. Hann lætur eftir sig konu og eina dóttur bama. Þeir, sem unnið hafa með Karli minnast þessa prúða og um- gengnisgóða manns með þakk- læti og hlýju, og samstarfsmenn hans hér við Morgunblaðið senda konu hans og dóttur sínar inni- lcgustu samúðarkveðjur. til athugunar í Rannsóknarstofn un Fiskifélags Islands. Verksmiðjan á Kletti tók fyrst í haust á móti síld af öll- um bátum, sem til hennar leit- uðu, en neyddist síðar til þess að takmarka sig við báta frá Reykjavík og báta, sem hafa haft og hafa föst viðskipti við Reykjavík. Slæmar horfur á síldar- lýsismarkaðnum Lýsismarkaður hefur hríðfall- ið imdanfarið, og eru nú miklir örðugleikar á sölu lýsis, aðal- lega vegna framboðs Perú- manna. Þeir veiða ansjósu, sem er feitur fislcur, en þó ekki eins feitur og síldin. Hins veg- ar veiða þeir svo mikið magn af henni, að framleiðsla þeirra hefur mikil áhrif á heimsmark- aðsverð, en fiski olíumarkaður er tiltölulega takmarkaður. Áð- ur þótti framleiðsla Perúmanna léleg vara, vegna þess hve mik- il feitisýra var í lýsinu. Nú hafa þeir hins vegar reist sér- stakar hreinsunarstöðvar („raf- fineringar“-stöðvar), þar sem þeir hreinsa lýsið. Framleiða þeir nú mun betra lýsi og bjóða það til sölu með mjög lágri fitu sýrutölu. Þykir það jafnvel betra en framleiðsla okkar ís- lendinga, og eru menn ekki bjartsýnir, að þetta ástand Frh. á bls. 19 Á laugardaginn kl. 5 e.h. fór fram í salarkynnum Þjóðminja- safnsins hin árlega styrkveiting úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarps- ins. Formaður sjóðsstjórnar, dr. Kristján Eldjám, flutti stutta tölu og Skýrði frá því, að sjóður- inn hefði starfað síðan 1956 og hefðu alls verið veittir úr honum styrkir til átta skálda og rit- höfunda á síðast liðnum fimm árum. Hann gat þess, að til- gangurinn með styrkveitingunum væri m.a. sá, að gera rithöfund- um kleift að fara utanlands, og Mikið sjúkraflug fyrir norðan í SKÝRSLU Slysavamafélags- ins, sem birtist hér í blaðinu á gamlársdag, vantaði frásögn um sjúkraflug Tryggva Helgasonar á AkUreyri. Tryggvi flaug samtals með 64 sjúklinga í 61 ferð frá 18 stöðum á landinu og þá aðallega frá Norðausturlandi. Flestir hafa sjúklingarnir verið sóttir til Vopnafjarðar eða alls 11 og þar næst 8 frá Þórshöfn. Samtals hafa þessi sjúkraflug tekið 126 klst. 35 mín. og vegalengdin er samtals 30490 km. AÐFARANÓTT gamlársdags var brotizt inn í veitinga- húsið Naust og þar stolið bæði peningum og víni. Ekki hefur enn tekizt að hafa hendur í hári þjófanna. Á gamlársdag varð þess vart er starfsfólk Naustsins kom til vinnu smnar, að brotizt hafði verið inn væri til þess ætlazt að Ríkisút- varpið nyti góðs af nýju efni, sem frá þeim kæmi á árinu, en hér væri þó fremur um að ræða ábendingar en fyrirmæli. Dr. Kristján gat þess að styrk- urinn í ár væri nokkru riflegri en áður, eða 30,000 krónur, og hefði sjóðsstjórnin ákveðið að skipta honum milli tveggja fel- þekktra Ijóðskálda, Jóns úr Vör og Matthíasar Johannessens. Að svo mæltu afhenti hann styrk- þegunum tilkynningu og ávísion sjóðsstjórnar. f stjórn Rithöfundasjóðs Ríkis- útvarpsins eiga sæti fimm menn, tveir skipaðir af Ríkisútvarpinu, tveir af rithöfundafélögunum og einn af menntamálaráðherra, og ér sá formaður sjóðisstjórnar. Auk dr. Kristjáns Eldjárns eiga sæti í stjórninni þeir Vilhjálmur Þ. Gíslason og Andrés Björnsson, tilnefndir af útvarpinu, og Helgi Sæmundsson og Ólafur Jóhann Sigurðsson, tilnefndir af rithöf- undafélögunum. Þess má að lokum geta, að síðustu ljóðabækur Jóns úr Vör voru „Vetrarmávar“ (1960) og „Þorpið" (2. útg. aukin, 1956), en síðustu ljóðabækur Matthíasar Jóhannessens voru „Hólmgöngu- | ljóð“ (1960) og „Jörð úr ægi“ 1 (1961). þar um nótlina. Við nánari at- Imgun Kom í ljós að þjófurinn, eða þjófarnir, höfðu farið inn um bakdyr, eftir að hafa verið búnir að losa gluggarúðu úr á jarð- hæð. Höfðu þeir lösað lista er héldu rúðunni, en síðan gátu þeir opnað dyr hússins. Nokkurn usla gerðu þeir í eldhúsi staðarins, en höfðu þó ekkert á brott með sér þaðan. • Fóru á barinn Síðan munu þeir hafa farið upp á loft og þar brutust þeir inn í skápa, er þjónar hafa, og geyma í ýmislegt er þeim heyrir til. Á barnum höfðu þeir brotið upp skápa og höfðu þaðan á brott með sér 15 flöskur af víni, ýms- um tegundum, og er það metið á um 4.500 kr. Þá fóru þeir í peningakassa barþjónsins og stálu úr hönum skiptimynt alls um 2500 kr. Einnig höfðu þeir á brott með sér gjaldeyri, sem svarar 1000 ísl. krónum, en þráfaldlega kemur fyrir að útlendingar greiða beina sinn með erlendum pening- um. • Brutu upp sex skápa Alls brutu þjófarnir upp 6 skápa á barnum og í herbergi inn af honum. Alla jafna er þarna ekki skilið eftir teljandi veiðmæti, en skiptimynt var að þessu sinni venju fremur mikil. Vínföng eru hinsvegar oft tals- verð í læstum skápum barsins. Kristján Alberts- son kominn heim KRISTJÁN ALBERTSSON, rit- höfundur, var meðal farþega með Loftleiðaflugvél er kom hingað til Reyikjavíikur frá New Yo<rk á Gamlársdag. Hann hef-ur eins og kunnugt er verið einn af fulltrú- um íslands á 16. Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. BAIMASLVS Á ÍSAFIRÐI I fsafirði 2. jan. Það sviplega f | slys varð hér skömmu eftir I | hádegið á gamlársdag að 101 jára telpa, Helga María Frið-j I riksdóttir, rann á Ijósastaur, | [ er hún var að ieika sér á | ■ skíðasleða á Urðarvegi og slas-f i aðist svo illa, að hún var flutt j [á sjúkrahúsið og lézt skömmuj j síðar. j Helga María var dóttir h jón- f janna Friðriks Bjarnasonarj ! málarameistara og Finnborg- j| jar Jónsdóttur. A.K.S.! i • Júlatrésskemmt- anir Varðar í gær var haldinn í Sjálfstæðis- húsinu Jólatrésfagnaður fyrir börn á vegum Sjálfstæðisfélags- ins Varðar og sóttu hann á þriðja hundrað börn. Skemmtunin verður endurtek- in í dag. Þarna koma fram jóla- sveinar, en Baldur Hólmgeirsson stjórnar skemmituninni. Veiting- ar eru fyrir börnin Og þau fá sælgætispoka með sér heim f nesti. Leitin ber engan árangur EINS og skýrt hefir verið frá I fréttum hvarf ungur sjómaður af togaranum Frey, þar sem hann lá í Bremerhaven (Þýzkalandi) aðfaranótt 27. desember. Maður- inn heitir Hilmar Guðmundsson og er 23 ára að aldri. Hefir tals- vert verið leitað að honum í borg inni, en sú leit hefir enn engan árangur börið. Lögreglan hefir framkvæmt leit á hótelum, sjúkra húsum og víðar, en ekki eir ráð- gerð nákvæmari leit að sinni, enda ekki verið farið fram á það. Hilmar er kvæntur maður og á tvö ung börn. Hann á heima við Hjarðarhaga í Reykjavík. Hann hafði verið um skeið á Frey, nú síðast smyrjari í véL Tvö IJóðskáld hlutu styrk 'úi RithÖfundasjóði Ríkisutvarpsins Jón úr Vor og Matthías Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.