Morgunblaðið - 18.01.1962, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 18. jan. 1962
Féll fyrir
borð og
drukknaði
Á þriðjudagsmorguninn er
togarinn Surprise lá í land-
vari undir Jökli, vildi það
slys til, að 33ja ára háseti á
skipinu féll fyrir borð og
drukknaði. — Hásetinn hét
Hans Hansson, til heimilis
að Sólvallagötu 34 í Reykja-
vík, og var 3ja barna faðir.
Nánari fregna af slysi
þessu er ekki að vænta fyrr
en togarinn kemur í höfn,
en hann var nýlega farinn
á veiðar.
I Meðfylgjandi mynd er frál
, dvöl Kekkonens Finnlands-]
> forseta á íslandi í ágúst-^
Imánuði 1957.
Fjögur tilboð í
gerð Þorlákshafnar
Á ÞRIÐJUDAG voru opnuð til-
boð í gerð Þorlákshafnar í skrif
stofu vita- og hafnarmála-
stjóra, Aðalsteins Júliussonar.
Fjögur tilboð bárust frá þrem-
ur aðilum (sex verktakafyrir-
tækjur.i). Tilboðin eru ekki
sambærileg, þegar eingöngu er
litið á verðið,
Verðlægsta tilboðið kom frá
Almenna byggingafélaginu hf. 1
Reykjavík og Pihl & S0n í
Kaupmannahöfn í sameiningu,
og hljóðar það upp á 40,4 millj.
ísl. króna.
Þá barst tilboð frá fyrirtækj-
unum Hochtief í Vestur-Þýzka-
landi, Verklegum framkvæmd-
um hf. í Reykjavík og Verki hf.,
þar sem 49,9 milljónir voru
boðnar í verkið. í þessu tilboði
er miðað við sömu grunnlínur
og í tilboði Almenna bygginga-
félagsins, en gerð hafnarinnar
og staðsetning mannvirkja er
önnur.
Tvö tilboð komu frá fyrirtæk-
inu John Howard & Co. í Lund-
únum, þar sem talsvert er vikið
frá útboðslýsingum. Annað til-
boðið er 61,8 millj. kr. að upp-
hæð, en hitt 51,8 milljónir.
Utsvör
í Hafnar-
firði hækka
um 17,5%
HAFNARFIRÐI, 17. jan. — í
gær var til annarrar umræðu og
lokaafgreiðslu fjárhagsáætlun
Hafnarfjarðarkaupstaðar. Heild-
arniðurstöður voru 29 millj. 98
þús. kr. Álögð útsvör 22 millj.
599 þús. og hafa hækkað frá því
sem þau endanlega voru á síð-
asta ári um 3 millj. 378 þús., eða
17,5%.
Kekkonen hiaut 45% atkvæða
SVO, sem frá var skýrt í
blaðinu í gær, lauk kjör-
mannakosingum í Finn-
landi svo, að Kekkonen
forseti er öruggur um
endurkjör. Kjörsókn var
óvenju mikil — 78% at-
kvæðisbærra kjósenda
neyttu kosningaréttar síns.
Kosið var í tvo daga og
talning hafin þegar kl. 8
á þriðjudagskvöld, er kjör
fundi lauk.
Kekkonen fékk sjálfur
45% atkvæða og 145 kjör-
menn af 300, sem kjörnir
eru. Auk þess á hann vísan
stuðning kjörmanna úr mörg
um flokkum, sem samtals
hlutu 53 kjörmenn. Fram-
bjóðandi kommúnista, Paavo
Cellótónleikar
í gærkveldi
íslendingar hafa á síðustu ára-
tugum bundið við tékknesku þjóð
ina gagnkvæma vináttu meiri en
líklegt mætti telja, miðað vxð
allar aðstæður og þær hindran-
ir sem hljóta að vera á slíku sam
bandi milli fjarlægra og óskyldra
þjóða, sem auk þess teljast á
öndverðum meiði í heimsmálun-
um. Það er tónlistin framar öliu
öðru, sem hefir hnýtt og treyst
þessi vináttubönd. Er í því sam-
bandi ánægjulegt að minnast
gagnkvæmra heimsókna nemenda
og kennara frá tónlistarskólun-
um í Reykjavík og Prag, og
margra annarra góðra gesta, sem
hingað hafa komið úr Bæheims-
byggðum. Undirritaður er einn
þeirra, sem átt hefir þess kost að
njóta gestrism heimamanna á
Moldárbökkam í sambandi við
hina miklu tónlistarhátíð, sem
Heimdallur
LESHRINGURINN um komm-
únismann kemur saman á
föstudagskvöld á venjulegum
stað og tíma. Hafið samband
við skriístofuna, sími 1-71-02.
—■ Sprunga
Frh. af bls. 1.
sáttir um orsakir þessara stóru
sprungna, sem liggja eftir miðj-
um úthöfunum, en nýjasta kenn-
ingin er að upp um þessar rifur
velli vegna meiri hita og þrýst-
ings stöðugt berg úr iðrum jarð-
ar, eins og hafragrautur sem
sýður hægt upp úr og breiðist
út á hafsbotni. Meginlöndin
fljóti ofan á af því þau séu úr
léttara bergi, en þyngra bergið
gengur svo aftur niður undir
löndunum. Nánar er sagt frá
þessu a bls. 3.
haldin er í Prag á vori hverju.
Það, sem þar bar fyrir augu og
eyru, mun seint úr minni líða og
hefir ekki verið fullþakkað.
Hér er nú staddur enn einn
góður gestur úr Bæheimi celló-
snillingurinn Frantisek Smetana.
Hann hélt í gærkvöldi, ásamt
Árna Kristjánssyni tónleika í
Austurbæjarbíói fyrir styrktar-
félaga Tónlistarfélagsins, og
verða þeir endurteknir í kvöld.
Á efnisskranni voru m. a. són-
ata í g-moll eítir enska tónskáld-
ið Henry Eccles (um 1700),
Variations ccnsertantes í D-dúr,
op. 17, eftir Mendelssohn og són-
ata í e-moll, op. 38, eftir Brahms.
Allt eru þctta hrífandi og efn-
ismikil verk, og öll sérkenni
þeirra nutu sin hið bezta í með-
ferð þessara ágætu listamanna.
Á síðari hluta efnisskrárinnar
voru smærri verk eftir tékkneska
höfunda og tveir „spænskir söngv
ar“ eftir Joaquin Nin, sem vöktu
mikla hrifnmgu áheyrenda.
Prófessor Smetana er meistari
síns hljóðfæris. Hann hefir öll
hin margvísiegu blæbrigði þess
á valdi sínu en tæknibrögðin eru
honum ekki takmark, heldur að-
eins tæki i þjónustu þess við-
fangsefnis, sem hann hefir með
höndum hverju sinni. Það er eng-
in yfirlætisbragur á leik hans,
en hæverska hans er eins og
þeirra, sem valdið hafa.
Það hefir rætzt sú ósk, sem
látin var í Ijós hér í blaðinu fyr-
ir skömmu, að Árni Kristjánsson
yrði framvegis tíðari gestur á
tónleikapalhnum en verið hefir
um sinn, og er gott til þess að
vita. Samieikur þeirra próf.
Smetana var nærri undantekn-
ingarlaust með ágætum, en Árni
hefði mátt opna flygilinn til fulls
í sónótunm eftir Brahms, svo
veigamikið sem hlutverk píanó
leikaians er í því verki.
Jón Þórarinsson
Aitio, hlaut 63 kjörmenn eða
20.5%. Kjörmenn Rafaels
Paasio 13% og Emils Skogs
3%. —
Miettunen, forsætisrðáherra
Finnlands, lét svo um mælt,
er úrslit kosninganna voru
kunn orðin, að þær væru
mikill sigur fyrir Kekkonen,
og sýndu ljóslega hvert
traust þjóðin bæri til hlut-
leysisstefnu hans.
— Dominikanska
Framh. af bls. 1.
ræði. Benti ýmislegt til þess, að
verið væri að reyna að hneppa
lýðveldið aftur í fjötra hernað-
areinveldis eins og verið hefði
á dögum Trujillos. — Kveðst
Bandaríkjastjórn ekki sjá fram
á annað en að hún verði að
endurskoða afstöðu sína til
lýðveldisins. — Skammt er um
liðið síðan Bandaríkjamenn
tóku aftur upp stjórnmálasam-
band við lýðveldið. Það var
gert á grundvelli þess, að Bala-
guer forseti vann að því að
tryggja lýðræði í landinu og
hafði heitið að fá völdin í hend-
ur löglega kjörinni stjórn áður
en langt um liði.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins segir, að samkvæmt upp-
lýsingum sem stjórnin hafi yfir
að ráða megi telja víst, að hinn
raunverulegi forystumaður nýju
samstjórnarinnar sé Chavarria
hershöfðingi, yfirmaður her-
mála lýðveldisins. Hafi sá mað-
ur náð skjótum frama í stjórn-
málaöngþveiti síðustu mánaða
og hafi notað sér það til hins
ítrasta — til þess að efla valda-
aðstöðu sína.
Húsbruni í Þykkvabæ
Þykkvabæ, 17. jan.
UM kl. 6 í kvöld brann viðbygg-
ing við bæjarhúsið í Rimakoti
til kaldra kola en aðalhúsinu
varð bjargað sökum þess að
vindur stóð af húsum. Við húsið
var gripahús og hlaða, sem einn-
ig hefðu verið í hættu ef veðrið
hefði ekki verið svona hagstætt.
Viðbyggingin, sem er á einni
hæð og 80 ferm. að stærð er úr
holsteini að útveggjum til en
timbur í gólfi, lofti og skilveggj-
um. í byggingunni bjuggu Anna
Benediktsdóttir og maður henn-
ar Páll Hallgrímsson. Innbú mun
hafa verið lágt vátryiggt.
Viðbyggingin var brunnin til
kaldra kola laust fyrir kl. 7 í
kvöld. Strax og eldsins varð vart
var hringt á slökkviliðið að
Hvolsvelli og kom það ekki á
vettvang fyrr en 10 mín. fyrir
7 og var þá ekki annað eftir
af viðbyggingunni en sprek og
rústir. Fyrir nokkrum árum var
skipt um tryggingarfélag hér fyr-
ir austan og þá lofað að fullkom-
in slökkvitæki skyldu verða sett
víða. Góður slökkvibíll er á
Hvolsvelli en Þykkvibær gæti
allur verið brunninn til kaldra
kola áður en hann kemur á vett-
vang par sem hann þarf að fara
32 km veg. Okkur hér er því
ekkert, eða lítið gagn að honum.
Loforðin um slökkvitækin koma
okkur því að litlum notum.
Er eldurinn kom upp stóð
vindur, sem fyrr segir af húsum
í Rimakoti og tókst því að verja
húsið með því að ausa á það
vatni úr fötum og rífa veggi við-
byggingarinnar frá aðalhúsinu.
Talið er að kviknað hafi í út
frá ofni. í Rimakoti búa auk
fyrrgreindra hjóna Benedikt Pét-
ursson með fjölskyldu sinni, en
það var dóttir hans og tengda-
sonur sem I viðbyggingunni
bjuggu. Lítilsháttar skemmdir
Urðu á þaki aðalhússins.
Magnús.
Keflavík
BINGÓ-kvöldin hefjast aftur
í kvöld kl. 9 í Aðalveri. Kjör-
bingó. Glæsilegir vinningar,
þar á meðal sjónvarp, ísskiáp-
ur og sjálfvirk þvottavél, —
Aðgangur ókeypis.
Fug'akvikmynd á kv'ölsZ-
vöku FerðafélagsZns
FERÐAFÉLAG íslands heldur<®>
fyrstu kvöldvöku sína á þessu
ári í kvöld í Sjálfstæðishúsinu.
Þar verður sýnd kvikmynd sem
O. S. Pettingill frá Comellhá-
skóla tók hér á landi áirið 1958.
Pettingill er víðkunnur fugla-
fræðingur og myndatökumaður,
sem m.a. dvaldist sumarið áður
en hann kom hingað á Falk-
landseyjum á vegum Walts
Disneys. Sýningartími myndar-
innar frá Islandi tekur röskan
klukkutíma. Myndir ber með
sér að hún er tekin fyrir út-
lendinga, en margt í henni ljóm
andi athyglisvert og skemmti-
legt fyrir íslenzka fuglavini.
Þá verður á kvöldvökunni
myndagetraun og síðan dans.
Kvöldvakan hefst kl. 8.
~y~NA 15 hnútar
V 50 hnútor
X Snjólcoma f OSi ** \7 Skúrir K Þrumur W':it y; KuUaoM Zs4 Hitoski!
H Hm»
L Laot
NORÐANÁTTIN var ' heldur grynnzt vemlega, en ný lægð
að ganga niður í gær,en jafn- var á ferðinni suður af Græn-
framt fór heldur kólnandi. xandi. Ekki var þó talið, að
Lægðin yfir Skotlandi hafði hún mundi hafa áhrif á veður
hér á lancii.
— Klögumál
Frh. af bls. 1.
takist U Thant ekki að finna
lausn á vandanum sé innrás
óh j ák væmileg.
Forystumaður stjórnarandstöð-
unnar í Hollandi Jaap Burger
sagði dag, að æskilegast væri að
Sameinuðu þjóðirnar sendu rann
sóknarnefnd til Nýju-Guineu.
Ungir sjálfboðaliðar
Yfirmaður herstyrks Hollend-
inga í Nýju-Guineu J. E. Reeser
birti i dag skýrslu um orrustuna
á mánudag. Sagði hann, að þrír
tundurskeytabátar hefðu sézt á
radartækjum hollenzkrar Nep-
tune-eftirlitsvélar. Hún hefði
fylgzt með siglingu þeirra inn að
ströndinni. Þegar þeir hefðu ver-
ið komnir inn fyrir 12 mílur,
hefðu þeir skotið á vélina. Kom
þá hollenzkt skip á vettvanig og
lauk viðureign skipanna svo, að
a.m.k. einum tundurskeytabáU
var sökkt. Fimmtíu menn voru.
teknir til fanga og segir Reeser,
að það hafi ekki verið fuUþjálf-
aðir hermenn heldur flestir ung-
ir sjálfboðaliðar. Hinir hand-
teknu hefðu upplýst, að þeir
hefðu átt að komast á land í
eynni og búa um sig í skógunum
og valda þeim spjöllum, er þeir
gætu. Ekki töldu þeir sig geta
staðhæft, hvor aðilinn hefði
byrjað — hafið skotárásina á
mánudag — sögðu að þar mætti
vart á milli sjá.
Þá var tilkynnt í Djakarta í
dag, að Egyptar hefðu heitið því
að banna Hollendingum umferð
um Suez-skurðinn ef til vopn-
aðra átaka kæmi í Nýju-Guineu.