Morgunblaðið - 18.01.1962, Síða 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 18. jan. 1962
mwgpnstMiiifrtfr
Otgefandi: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjöri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (álom.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Krisíinsson.
Ritstjórn: 'Vðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
UM HVAÐ VERÐUR
KOSIÐ ?
k NÆSTA ári eiga að fara
fram almennar alþingis-
kosningar. Þá verður fyrst
og fremst kosið um það,
hvort halda eigi áfram við-
reisn íslenzks efnahagslífs og
uppbyggingu bjargræðisveg-
anna, eða hvort hverfa eigi
aftur til styrkja og uppbóta-
stefnu vinstri stjómarinnar,
sem leiddi yfir íslenzku þjóð-
ina verðbólguflóð, gengis-
hrun og fjölþætt önnur vand
ræði. Þá verður ennfremur
kosið um þá framkvæmda-
áætlun, sem núverandi ríkis-
stjóm hefur unnið að með
aðstoð erlendra sérfræðinga.
Engum hugsandi manni
mun blandast hugur um það,
að næstu alþingiskosningar
verða mjög örlagaríkar. All-
ur almenningur man afleið-
ingar verðbólgustefnu vinstri
stjórnarinnar. Spor hennar
hræða. Hún átti engin úr-
ræði önnur en þau að leggja
sligandi álögur á fólkið og
ausa óhemju fjármagni í
óseðjandi hít verðbólgu og
styrkjastefnu.
Þessi ólánsstefna hafði
gengið sér svo gersamlega til
húðar að vinstri stjómin
neyddist til þess að segja af
sér á miðju kjörtímabili. —
Engum kemur til hugar að
Hermann Jónasson hafi sagt
af sér að gamni sínu. Hann
gat ekki annað. Hann hafði
siglt stjórnarskútunni ger-
samlega í strand.
Nú eygir þessi sami mað-
og og aðrir leiðtogar Fram-
sóknarflokksins ekkert úr-
ræði annað en nýja stjórnar-
myndun með kommúnistum.
Afleiðingar slíkrar stjórnar-
myndunar mundu verða ná-
kvæmlega hinar sömu og á
ámnum 1956—1958. Um það
þarf ekki að fara í neinar
grafgötur. íslenzka þjóðin
veit nú, hvað vinstri stjórn
þýðir.
Núverandi ríkisstjórn hef-
ur markað raunhæfa við-
reisnar- og framfarastefnu.
Á miklu veltur einnig að
þjóðin styðji hana til fram-
kvæmdar hinnar miklu upp-
byggingaráætlunar, sem
sennilega verður fullbúin
seint á þessu ári eða um
næstu áramót. í henni felast
mikil og glæsileg fyrirheit
um bjarta framtíð og batn-
andi hag íslenzku þjóðarinn-
ar. Hagnýting auðlinda lands-
ins er hið mikla verkefni
framtíðarinnar. Að lausn
þess verkefnis verða allir
þjóðhollir íslendingar að
Vinna. Um hana munu næsíu
kosningar snúast. Ef þjóðin
ber gæfu til þess að efla við-
reisnar- og uppbyggingar-
stefnuna, þá munu bjargræð-
isvegir hennar verða fjöl-
þættari og færari um að
veita fólkinu raunverulega
bætt lífskjör. Sigur þeirrar
stefnu í næstu alþingiskosn-
ingum felur í sér tryggingu
aukinnar farsældar og stór-
felldrar uppbyggingar og
framfara í landinu.
SIGUR KEKK-
ONENS
17' ekkonen, Finnlandsforseti,
“■ hefur unnið mikinn sig-
ur í forsetakosningunum, sem
fram fóru í Finnlandi nú í
vikunni.
Flokkur hans, Bændaflokkur
inn, hefur að vísu ekki feng-
ið hreinan meirihluta kjör-
manna, en hann hefur eflt
fylgi sitt að miklum mim.
Auðsætt er að mikill fjöldi
fólks úr öðrum stjómmála-
flokkum hefur kosið fram-
bjóðendur hans til þess að
tryggja kosningu Kekkonens.
Þar sem hann á vísan stuðn-
ing kjörmanna frá ýmsum
öðrum flokkum, er kosning
hans örugg.
Kekkonen hefur sýnt það,
að hann er vitur og fram-
sýnn stjórnmálamaður. Allir
vita að hann er mikill and-
stæðingur kommúnista og
einlægur lýðræðissinni. En
hann hefur borið gæfu til
þess að skapa sér traust, ekki
aðeins meðal vestrænna lýð-
ræðisþjóða, heldur og hjá
hinum voldugu nágrönnum
í austri. Hann hefur fylgt
þeirri stefnu, sem Paasikivi,
fyrirrennari hans á forseta-
stóli markaði og byggðist
fyrst og fremst á því að
halda góðri sambúð við
Sovétríkin, jafnhliða því að
bægja kommúnistum frá á-
hrifum í innanlandsmálum
Finna.
Embættisferill Kekkonens
síðastliðið kjörtímabil hef-
ur ekki verið dans á rósum.
Rússar hafa gert ítrekaðar
tilraunir til að hafa áhrif á
finnsk innanlandsmál, en
Kekkonen hefur með lagni
og þolgæði tekizt að tryggja
sjálfstæði Finnlands ogkoma
í veg fyrir að Rússar gerðu
það að leppríki sínu, eins og
önnur nágrannalönd sín í
Austur- og Mið-Evrópu.
Lýðræðissinnar á Norður-
löndum og um heim allan
munu fagna sigri Kekkon-
■
Nýtt lyf gegn
timburmönnum
drykkjusýkina.
Þetta lyf getur einnig orðið
lögreglu mjög að liði og vænt-
f RANNSÓKNARSTOFU í ir hann gjöf lyfsins ásamt gjöf
Malmö hefur verið framleitt B-vitamíns væntanlega til
lyf, sem eflaust á eftir að ?Óðf_,áía_n.ÍUrS 1 baráttunni við
verða afskaplega vinsælt og
létta mörgum manninum þung
ar Þrautir. Þeir eru ekki svo anlega orðið m að takmarka
fáir, sem bólva „deginum eftir handtökur ölvaðra manna.
daginn í gær „timburmönniun- Einnig má þá fyrr hraða yfir-
um“ sem lemja mann í haus- beyrzlu manna, sem teknir
... hafa verið undir áfengisáhrf-
ínn svo oþyrmuega eftir , _ . ,
^ , um og iiggur a að spyrja í .
skemmtilcgt kvöld með ljúfar þau]a_ í>á er ekki síður mikils 1
veigar í fallegum glösum. vert, að lyfið hefur reynzt
Lítil tafla, sem rekur á brott ákriíarikt. *egn /mjfS. k0nar
salsykiskostum drykkjusjukl-
alla timburmenn og hefur auk inga Hinsvegar bendir ekkert
þess þann kost, að hafa reynzt til þess að menn verði háðir
áhrifamikið lyf gegn ofnautn notkun þess eins og venjuleg-
áfengis. Lyf, sem ekki inni- um deyfilyfjum.
heldur eiturefni, heldur víta-
mín. Rannsóknarstofnunin í » .
„ . . . .« . . ... Framleiðsla þessa lyfs í rann
Malmo biður nu emimgis leyf- . ,
is heilbrigðisyfirvaldanna til sóknarstofunni í Malmö er
þess, að unnt sé að hef ja eins konar víxlspor stofnunar-
framleiðslu lyfsins í stórum jnnar — en þar var verið að
rannsaka aminosýrur. Hug-
Mikilvægasta efnið í þessu myndin var áður komin frá
nýja lyfi er tegund af gluta- Bandaríkjunum. Þar voru
minsyru, sem hefur þau ahrif, r
að alkohol í líkamanum klofn- n°kkrir menn, sem gafu sig
ar í úrgangsefni í lifrinni. Lyf fram sem sjálfboðaliða, lokað-
ið er kallað „Quiescon" og er jr jnni j herbergjum, þar sem
nokkuð dýrt — framleiðsla þeir átu drukkið eins mikið
hreins glutamms 1 fimmtiu ,
töflur kostar um það bil 700 afenSl °2 Þelr vlldu — vlskl>
kr. íslenzkar. En fyrirhugað er konjak og aðra sterka drykki
að samræma framleiðsluhætti — en þeir urðu jafnframt að
sænskra Og bandarískra vís- neyta matar, sem innihélt ,
indamanna á glutamíni og má glutamín Það reyndist svo, að
þá vænta þess, að verðið lækki mennirnir drukku minna, þeg-
allverulega. ar þeir höfðu neytt matarins
„ ,, » _og sumir vildu alls ekki snerta
Rannsoknum a notkunar- ?
möguleikum þessa nýja lyfs g
verður haldið áfram um Glutamín er flutt inn til Dan
nokkra hríð. Það hefur verið merkur frá Bandaríkjunum og
reynt á nokkrum vistmönn- Japan. Það hefur verið notað
um Karlsviks-drykkjumanna- í matvælaiðnaðinn í smáum ,
hælisins í Danmörku með stíl — einkum til að bragð- '
ágætum árangri. Segir for- bæta kjöt Framleiðsla lyfsins
stöðumaður hælisins Erik Hult verður víst litlum erfiðleik-
en, að þetta lyf virðist geta. um bundin — það er með þetta
orðið mikilvægur áfangi í við- eins og svo mörg önnur lyf,
leitninni til þess að venja rannsóknirnar og tilraunirnar
menn af ofneyzlu áfengis. Seg taka lengstan tíma.
ens, um leið og þeir óska
finnsku þjóðinni gæfu og
gengis í hinni erfiðu bar-
áttu hennar gegn ásælni og
yfirgangi kommúnista, bæði
utan frá af hálfu Sovétríkj-
anna og í landinu sjálfu.
HANDBENDI
KOMMÚNISTA
Svo virðist nú sem til sam-
komulags dragi milli
Kongóstjórnar og Tsjombe,
leiðtoga Katangamanna. En
þá skapast nýtt vandamál,
sem raunar er ekki nýtt. —
Gizenga, varaforsætisráð-
herra, hefur gerzt ber að
fjandskap við Leopoldville-
stjórnina og hefur Adoula
orðið að víkja honum frá
embætti.
Það hefur verið á allra vit
orði undanfarna mánuði, að
Gizenga er algert hand-
bendi Rússa. Hann hefur
engan áhuga haft á að raun-
verulegt samkomulag næðist
milli Tsjombe og Adoula.
Þvert á móti hefur hann vilj-
að nota þau átök til þess að
kynda elda upplausnar og
vandræða í Kongó. Upp á
síðkastið hefur hann hrein-
lega snúizt gegn stefnu Leo-
poldvillestjórnarinnar og
setzt sjálfur að í Stanley-
ville, þar sem hann hefur
fram til þessa notið nokkurs
fylgis.
Þetta atferli Gizenga, sem
er harðskeyttur Moskvu-
kommúnisti, sannar svo að
ekki verður um villzt, að
Sovétríkin reyna eftir
fremsta megni að spilla öll-
um sáttum í Kongó. Þau hafa
reynt að torvelda málamiðl-
unarstarf Sameinuðu þjóð-
anna og nota nú handbendi
sitt til þess að berjast gegn
einingu landsins.
Hvers vegna er hún í fréttun-
um þessi? Jú, einfaldlega af þvi
að hún er nýtízku Afríkustúlka.
Hún gengur í tízkukjól frá
Evrópu og með nýmóðins hár-
greiðslu frá Afríku.
Hjálp til
Sómalíu
vegna flóða
Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unin (WHO) sendi nýlega
375.000 töflur gegn mýrar-
köldu, 15.000 skammta af
þurrkuðu kúabólu-móteitri og
10.000 skammta af móteitri
gegn taugaveiki til Mogadishu
í Sómalíu til að girða fyrir
þær farsóttir, sem búizt er við
að komi í kjölfar flóðanna
þar.
í héruðunum Benadir og
neðra Juba, bar sem stöðugt
hefur rignt j 4 mánuði, er
rúmlega 600.000 manns ógnað
af hungursneyð, en sjúkdómar
sem berast með vatni, eins og
t. d. blóðsótt og taugaveiki,
herja geigvænlega á íbúana,
sem eru orðnir viðnámslitlir
af hungri og þjáningum. Mat-
vælaástandið í landinu er enn
alvarlegra fyrir þær sakir, að
þurrkarnir á s.l. vori eyði-
lögðu uppskeruna á víðáttu-
miklum svæðum.
Flóðin og rigningin undan-
farnar vikur hafa m. a. eyði-
lagt helminginn af banana-
uppskerunni. og alla maís- og
hirsi-uppskeruna. Kvikfénað-
ur hefur drukknað eða soltið
til bana í þúsundadali, þar eð
vatnsflaumurinn hefur eyði-
lagt beitilöndin. Sömuleiðis
hafa villt dýr — fílar, gíraff-
ar, villinaut og antílópur —-
flúið af stórum svæðum. Þá
hafa kvikfjársjúkdómar kom-
ið í kjölfar náttúruhamfar-
anna. Matvæla- og landbún-
aðarstofnunin (FAO) hefur
sent brezkan dýralækni, F.
W. Priestley, á vettvang til
að meta tjónið, sem orðið hef-
ur á skepnum, og gera tillög-
ur um leiðir til björgunar.