Morgunblaðið - 30.01.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.01.1962, Blaðsíða 13
ÞriðjurJagur 30. jan. 1962 MORCTITSBL AÐIÐ 13 IÐNADUR 1961 Eftir Braga Hannesson framkvstj. Landsamb. iðnaðarmanna í NOKKUR ár hefur verið gerð grein fyrir þróun iðnaðarins hér í blaðinu um áramót og skýrt frá framvindu helztu hagsmunamála !hans á liðnu ári. Þetta starf er Iþó þeim mikla annmarka háð, að skýrslusöfnun um iðnaðarfram- leiðsluna er skammt á veg komin hér á landi. svo að þróun iðnað- arins verður ekki sýnd í heild með tölum Hins vegar eru jafn- an fyrirliggjandi um áramót ýmsar upplýsingar um fram- kvæmdir innan nokkurra iðn- greina og fjölda iðnnema, og verð ur hér á eftir greint frá þessu, ésamt framvindu helztu hags- muna- og áhugamála iðnaðarins é sl. ári. Atvinna og framkvæmdir Atvinna hefur yfirleitt verið næg hjá iðnaðarmönnum árið j 1961, þótt hún hafi eins og áður verið misjafnlega mikil eftir iðn greinum og landshlutum. Hagstof ön safnaði reglulega upplýsing- um um tölu starfsmanna hjá 59 iðnfyrirtækjum á árinu, og hafa jþessar athuganir verið birtar í Hagtíðindum. Af þeim má sjá, að nolckuð hefur starfsfólki fjölgað hjá flestum af þessum iðnfyrir- tækjum, en þau eru í matvæla- iðnaði, drykkjarvöruiðnaði, vefj- ariðnaði, skó- og fatagerð, tré- smíði á verkstæðum og húsgagna gerð, pappírsiðnaði. prentun, bókbandi og prentmyndagerð, skinna og leðuriðnaði, kemiskum iðnaði, steinefnaiðnaði, málm- smiði, smiði og viðgerðum raf- magnstækja og smíði og viðgerð- um flutningatækja. Á sl. ári var lokið við smíði á 541 íbúð í Reykjavík að meðal- stærð 333 rúmrn., en um 850 íbúð ir eru í smíðum, þar af 500 fok- heldar eða meira. Á árinu 1960 var hins vegar lokið við smíði á 642 íbúðum að meðalstærð 341 rúmm. og þá voru i smiðum um 1000 íbúðir. Á sl. ári hefur verið lokið við smíði á um 185 þús. rúmm. af skólum, félagsheimil- um, kvikmynda.húsum, verzlun- ar- og skrifstofuhúsum, stálgrinda húsum o. f 1., en 1960 var lokið við smíði á um 128 þús. rúmm. af sams konar húsum í Reykjavík. Á Akureyri var lokið við smíði é 52 íbúðum, en 47 íbúðir eru í smíðum. Um áramótin í fyrra var hins vegar lokið við smíði á 77 íbúðum og þá voru 95 íbúðir í smíðum. Samkvæmt upplýsing- um fré byggingafulltrúanum á Akureyri var meira byggt af verzlunar- og iðnaðarhúsum en órið áður. Á Akranesi v«r lokið við smíði á 45 íbúðum í 26 húsum samtals um 19.000 rúmm., en 76 íbúðir eru í smíðum. Auk þess voru hyggðir um 10.000 rúmm. af öðr- um húsum í fyrra voru hins veg ar teknar þar í notkun 37 íbúðir um 17.000 rúmm. samtals. f Vestmannaeyjum voru byggð 20 íbúðarhús með 23 íbúðum sam tals 10.039 rúmm. og svipuð rúm- metratala hefur verið byggð þar af öðrum byggingum á sl. ári. í fyrra var aftur á móti lokjð við samtals 16.524 rúmm. af íbúð erhúsnæði. Ekki hefur tekist að afla tölu- legra upplýsinga um bygginga- framkvæmdir í öðrum kaupstöð um, en af þessu og viðtölum við iðnaðartmenn má þó ráða, að fbúðarhúsabyggingar hafa dreg- ist nokkuð saman, en byggingar onnarra húsa eins og iðnaðar, verzlunar og samkomuhúsa hafa aukizt. Á sl. ári voru smíðaðir innan- lands 31 bátur samtals 540 rúm- lestir br. að stærð, en órið áður 12 bátar samtals 315 rúmlestir br. að stærð. Nú eru í smíðum um 14 bátar, sem verða samtals um 493 rúmlestir br. að stærð. Um þessar mundir eru að koma út Hagtíðindi, þar sem skýrt er frá iðnaðarvöruframleiðslu nokk urra iðngreina 1956—1960. Meðal þess eru framleiðsluvörur mjólk- urbúa, brauð og kex, skófatn- aður, trésmíðavörur. hampvörur og fiskinet, sement, málmvörur, rafmagnsvörur o. fl. Of langt mál yrði að rekja upp framleiðslu þessarra iðngreina, en augljóst er að nokkur framleiðsluaukning hefur orðið í flestum þeirra. Aðstaða iðnfyrirtækja Ymsar aðgerðir hins opin- bera á tveim síðustu árum hafa verið iðnaðinum hagkvæmar. Má þar nefna afnám fjárfestinga- hafta, breytingar á söluskatti og rétta gengisskráningu. Einnig hefur afnám innflutningshafta verið til bóta, þar sem áður .gekk oft erfiðlega að fá leyfi fyrir vél- um til endurnýjunar og aukning- ar og jafnvel fyrir efni og vara- hlutum. Rekstur iðnfyrirtækja hefur að sjálfsögðu gengið misjafnlega á árinu, þótt erfiðleikar þeir séu úr sögunni, sem að framan er um getið. Hér á eftir verður rætt um lána- og skattamálin, en mik- illa endurbóta er þörf í þeim mál- um. Álagningarheimild iðnaðar- manna og iðnfyrirtækja hefur verið þröngur stakkur skorinn í koma endurgreiðslu aðflutnings- gjalda af efnivörum, sem unnið ýmsum iðngreinum m.a, fékkst ekki að leggja óbreytta álagn- ingarprósentu á útselda vinnu um tíma eftir verkföllin í sumar og kauphækkanirnar. Þá kröfu verður að gera til verðlagsyfir- valdanna. að þau byggi álagning anheimildina á óaðfinnanlegum kostnaðarupplýsingum, en ekki einhverjum handahófsaðferðum. Mikið hefur verið rætt um út- flutning iðnaðarvara, þótt enn sem komið er kveði ek'ki mikið að honum. Það leikur hins vegar ekki á tveim tungum, að aðstaða iðnaðarins til þess að flytja út framleiðsluvörur sínar hefur gjör breytzt með efnahagsaðgerðum núverandi ríkisstjórnar. Bæta má þó aðstöðuna enn með því að er úr til útflutnings, í fastara form, þannig að ákveðnar reglur séu settar varðandi framkvæmd endurgreiðslunnar. Ennfremur ættu iðnfyrirtæki að hafa sam- starf sín á milli í þessum mál- um. þar sem þau verða að keppa erlendis við fyrirtæki, sem mörg hver búa við hagkvæmni stór- reksturs. •fa Lánamál iðnaðarins Verðbólga undanfarinna tveggja áratuga hefur haft mjög óhagstæð áhrif á lánsfjárstöðu iðnfyrirtæaja. Vegna hækkandi verðlags hefur þurft æ fleiri krónur til þess að halda ákveð- inni framleiðslustarfsemi gang- andi, en hins vegar hafa þau ákvæði gilt.um skattlagningu fyr irtækja og verðlagningu, að þau hafa ekki getað aukið rekstrarfé sitt til samræmis við aukna rekstr arfjárþörf vegna hækkunar á verðmæti birgða og annars þess, sem inn í framleiðsluna gengur. Þessi þróun hefur orðið til þess, að eftirspurn eftir lánsfé hefur sífellt aukizt. jafnframt því sem fyrirtækin hafa orðið háðari bönkunum um rekstrarfé. Aðstaða iðnaðarins í lánsfjár- málum hefur orðið ennþá óhag- stæðari vegna forréttindalána sjávarútvegs og síðar landbúnað- ar í formi sjálfkrafa endurkaupa afurðavíxla þessarra atvinnu- greina. í ítarlegri skýrslu um lána- mál iðnaðarins, sem nefnd skip- uð af iðnaðarmálaráðherra gerði og afhent hefur verið ráð- herra, er skýrt frá því mis- rétti, sem þegar er orðið í þjón- ustu bankanna við einstaka at- vinnuvegi. í niðurstöðum nefnd arinnar er m. a. lagt til, að reglubundin endurkaup víxla af hálfu Seðlabankans verði í fram tíðinni takmörkuð við víxla með veði í útflutningsframleiðslu, jafnt iðnaðar sem sjávarútvegs og landbúnaðar. Jafnframt verði reglubundin endurkaup annarra afurðavíxla eða víxla með veði í væntanlegum af- urðum afnumin í áföngum. 1 stað þess taki Seðlabankinn, eftir því sem ástæður leyfa, upp nýja tegund útlána til við- skiptabankanna, þar sem ekki pgöngu iðnaðarmálaráðherra, og 1 árlega hlýtur nú sjóðurinn 2 millj. kr. í framlag á fjárlögum. Með þessu hefur fyrsta skrefið verið stigið til þess að efla þennan stofnlánasjóð iðnaðarins að nokkru ráði. En ekki má láta staðar numið, því að bæði þarf að vinna það upp, sem áð- ur átti að vera búið að gera, auk þess sem iðnaðurinn er í örri þróun og því mjög þurf- andi fyrir fjármagn til fjárfest- ingar. Miklir erfiðleikar hafa jafnan verið á því fyrir skipasmíða- stöðvarnar að afla lánsfjár til skipabygginga. Það var því fagnaðarefni öllum þeim, sem að þessari iðn standa, þegar samþykkt voru á Alþingi fyrir rúmu ári lög, sem heimiluðu Fiskveiðasjóði að veita stöðvun- um lán til smíði fiskiskipa. Því miður hefur sjóðurinn ekki getað leyst úr lánamálum inn- lendu stöðvanna' sem skyldi og má ekki við svo búið sitja. Að dómi sérfróðra manna eiga skipasmíðar að geta átt mikla Unnið að logsuðu sé gert upp á milli atvinnu- greina, heldur stefnt að því að sjá viðskiptabönkunum fyrir hæfilegu rekstrarfé til að veita öllum atvinnuvegum þjóðarinn- ar eðlilega fyrirgreiðslu. Þótt starfsemi Iðnaðarbank- ans hafi bætt nokkuð úr rekstr- arfjárskorti iðnaðarins, er hitt Ijóst, að bankann verður að efla til muna á næstunni, ef hann á að geta leyst hlutverk sitt af hendi. Frumvarp það til laga um breytingu á lögum um Iðnaðarbankann, sem flutt var á Alþingi af iðnaðarmálaráðherra í desember, þar sem lagt er til, að fellt verði niður lögákveðið hámark hlutafjár bankans, en hluthafafundi fengið ákvörðun- arvald um hlutafjáraukningu, er spor í rétta átt og ætti á- samt bættri starfsaðstöðu bank- ans á þessu ári að auðvelda honum störfin. I haust var Iðnlánasjóði út- vegaðar 21,5 millj. kr. að for- framtíð fyrir sér hérlendis, en ekki er búið í haginn fyrir þá þróun, meðan um 11. fiskiskip samtals 1705 rúml. br. eru í smíðum erlendis, samtímis því sem innlendar stöðvar eiga erfitt með að byggja vegna lánsfjár- skorts. Menntun iðnaðarmanna Samtök iðnaðarmanna hafa mikinn áhuga á því, að iðn- fræðslumálunum sé komið í betri horf en nú er. Á undan- förnum Iðnþingum hafa mál þessi verið ítarlega rædd og samþykktir gerðar, þar sem bent hefur verið á æskilegar breytingar. Það er því fagnaðar- efni, að menntamálaráðherra skuli hafa skipað nefnd til að endurskoða gildandi lög um iðnskóla og iðnfræðslu. Meðal verkefna nefndarinnar eru allflest þau mál, sem lðn- þingin hafa gert samþykktir um, varðandi iðnskóla og almenna Bragi Hannesson iðnfræðslu. Þannig á nefndin að kanna, hvort unnt sé að sam- ræma eða sameina verknáms- skóla gagnfræðastigsins og for- skóla fyrir væntanlega iðnnema. Auk þess á nefndin að gera til- lögur um, hvaða breytingar séu æskilegar á núverandi tilhögun iðnfræðslunnar, bæði að því er tekur til verklega námsins og iðnskólanna, enda sé höfð hlið- sjón af þeim breytingum í þess- um efnum, sem átt hafa sér stað í nálægmn löndum. Enn- fremur verði athugað, að hve miklu leyti sé æskilegt að auka verklegt nám í iðnskólum og þá í hvaða greinum og hvort hagkvæmt virðist að kenna ein- hverjar iðnir að öllu leyti í skólum. Eins og af framansögu er ljóst, hefur ekki lengi verið ráðizt í eins víðtæka endurskoð un á iðnfræðslumálunum og hér er gert. Sú breyting var gerð á kennslutilhögun í Iðnskólanum í Reykjavík í haust, að skólan- um var skipt í þrjár deildir: Bygginga- og smíðadeild, raf- magns- og málmiðnaðardeild og almenna deild. Deildaskipting þessi á að auðvelda skólanum að fylgjast með nýjungum í iðnunum og hagnýta þær við kennsluna. Verknámskennsla hef ur aukizt í skólanum m. a. er nú í fyrsta sinn verkleg kennsla fyrir málmiðnaðarnema. Áður var komin aðstaða til verknáms fyrir prentnema, málaranema, rafvirkjanema og húsa- og hús- gagnasmíðanema. Þótt þannig hafi tekizt að koma upp vísi að verknámskennslu í Iðnskólanum í Reykjavík, er þeirri þróun þó takmörk sett, þar sem ekki var gert ráð fyrir slíkri fræðslu innan veggja skólans, þegar hann var byggður. Nú hefur ríkið og Reykjavíkurbær aukið framlag sitt til byggingar nýrr- ar álmu í vestur frá skólanum og standa vonir til, að þar geti framkvæmdir hafizt á næstunni. Verður bygging þessi sftiðin að þörfum verknámskennslu. Sú breyting hefur verið gerð á iðnskólunum utan Reykjavík- ur, að iðnskólarnir á Akureyri iog Akranesi hafa breytzt í dag- jskóla. Er það mjög heppilegt, þar sem brýna nauðsyn ber til að efla iðnskólana í stærstubæj- unum. Samkvæmt upplýsingum frá Iðnfræðsluráði voru um 1800 staðfestir námssamningar um sl. áramót, en voru fyrir ári um 1610. Flestir eru iðnnem- arnir í Reykjavík en þar eru um 1050 staðfestir námssamn- ingar. Nefnd sú, sem vann að samn- ingu reglugerðar fyrir meist- araskóla við Iðnskólann íReykja vík lau kstörfum á s.l, ári. Eins og auglýst var átti meistaraskóli t fyrir húsasmiði og múrara að vera tekinn til starfa nú, en fresta varð skólaha±di vegna lítill j ar þátttöku. Þetta þýðir þó að- eins frestun á þessu þýðingar- mikla máli, þar sem hér eftir fá menn ekki byggingaleyfi, nema þeir hafi lokð námi í meistara- skólanum Og áfram verður haid ið. þar til allar iðnir verða kenndar til meistaraprófs. ' Framhald á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.