Morgunblaðið - 30.01.1962, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 30. jan. 1962
MORGVNBLAÐIÐ
17
Mótmæla aukafundi
Oryggisráðslns
Þannig var umhorfs er tekist hafði að ráða niðurlögum eldsins á Reykjavíkurflugvelli í gær.
(Ljósm. Sveinn Þormóðsson)
<*,----------------------------------------------------------------
Sinfóníutónleikar
færaskipun, og strengjasveitin
var átakanlega fáliðuð á móti
málmblásurunum, einkum í
lokaþættinum.
Jón Þórarinsson.
Bergen, 23. jan. (NTB) —
Ú tgerðarfélagið I. Geiertsen í
Bergen er nú að koma sér upp
síldarverksmiðju í Pisaqua í
Chile. Á verksmiðjan að vera
fullbúin í haust.
Lagos, 29. jan. (AP)
ÞJÓÐARLEIÐTOGARNIR
19, sem saman eru komnir í
Lagos í Nígeríu, sendu í dag
símskeyti til Sameinuðu þjóð
anna í New York og mót-
mæltu því eindregið, að Ör-
yggisráð samtakanna yrði
kallað saman á miðvikudag,
eins og boðað hefur verið —
til þess að ræða Kongómálið.
Það er Valerian Zorin, aðal-
fulltrúi Rússa, sem krafizt hef-
ur aukafundar Öryggisráðsins á
þeim grundvelli, að Mosie
Thsombe aðhafist ekkert til að
framfylgja samþykktum Öryggis
ráðsins um brottflutning er-
lendra málaliða úr her Katanga
—- og ennfremur þar sem líf
Antoines Gizenga sé í hættu.
Ákveðið var fyrir helgi, að
fundur ráðsins skyldi haldinn á
miðvikudag, en margar þjóðir
samtakanna hafa lýst sig and-
vígar þessum fundi — talið
hann vita ástæðulausan, enda
gangur mála í Kongó með bezta
móti. Adoula, forsætisráðherra
miðstjórnarinnar í Leopoldville,
hefur einnig mótmælt fundinum
— Hann segir, að Tshombe sé
einmitt nú að vinna að því, sem
þeir urðu ásáttir um á fundin-
um í Kitona á dögunum og
Antoine Gizenga sé engin hætta
búin. Hann sé ekki í fangelsi
heldur í gæzluvernd og væsi
ekki um hann á neinn hátt. —
Þingið hafi tekið ákvörðun um
að mál hans og framkoma
Miklirflutningar
á Afríkuleiðum
— Stórbruni
Framh. af bls. 8.
ar hjálpuðu til að flytja tæki og
útbúnað úr turninum — og all-
mikill hluti ratsjárinnar var
meira að segja rofinn úr sam-
bandi og fluttur út í sendiferða-
bíl í einu vetfangi. Þarna voru
mörg mjög verðmæt tæki og var
seinlegt að fást við sum þeirra.
Fjarritar veðurstofunnar héldu
áfram að sknfa enda þótt mikill
reykur væri kominn í húsakynn-
in, menn hlaupandi út og inn
með fangið fullt af ýmsum útbún
aði.
Bjuggust allir við að þurfa að
yfirgefa bygginguna — og töldu
menn mikla heppni, að búið var
að flytja umferðarstj-órnina á
N.-Atlantshafi út í nýja turn-
inn. Húsakynni veðurstofunnar
í nýja turninum eru líka tilbúin.
Samsöngur Þjóð-
leikhússkórsins
' Þ JÓÐLEIKHÚSKÓRINN efndi
til samsöngs í Kristskirkju í
Landakoti 1 fyrradag til heiðurs
hinum látna stjórnanda sínum,
dr. Viktor Urbancic, og til
styrktar minningarsjóði hans.
Kórinn söng undir stjórn Her-
berts Hriberscheks, Árni Arin-
bjarnarson lék einleik og ann-
aðist undirleik á orgel, og ein-
söng sungu Eygló Viktorsdóttir,
Snæbjörg Snæbjarnar og Hjálm
ar Kjartansson. Efnisskráin, sem
var mjög fjölbreytt, hófst með
t>ví, að kórinn flutti þrjá þætti
úr messu fyrir þríradda kór eft-
ir dr. Urbancic, og var það fal-
legt og vel við eigandi upphaf
á þessum tónleikum. Önnur við-
fangsefni voru eftir ýmsa ágæta
höfunda, flest trúarlegs efnis, og
var hátíðablær yfir tónleikun-
tun, svo sem við átti. Allir, sem
þarna komu fram, leystu verk-
efni sín vel af hendi og sumir
með ágætum.
Jón Þórarlnsson.
10% fækkun
ferðamanna
Berlin, 29. jan. — NTB Reuter.
STJÓRNMÁLASPENNAN í Ber-
3ín hefur haft það í för með sér
að fjöldi erlendra ferðamanna
þangað hefur minnkað um 10%.
Formaður ferðaskrifstofu Berlín-
arborgar, Dr. Ilse Wolff, segir, að
í mánuðunuim ágúst-nóvemiber sl.
bafi 156.542 manns kcmið til Ber-
línar frá Vestur-Þýzkalandi og
erlenduna þjóðum en á sama
túna árið 1960 voru slíkir ferða-
merm 175.771.
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, sem haldnir
voru í samkomuhúsi Háskólans
sl. fimmtudagskvöld undir
stjórn Jindrichs Rohans, hófust
með því að leikin var „íslenzk
svíta“ fyrir strokhljómsveit eft-
ir Hallgrím Helgason. Svítan er
í sex þáttum, sem allir byggjast
á íslenzkum þjóðlögum, og segir
höfundur í efnisskrá, að hér sé
gerð „tilraun til að sýna hve
mikil auðlegð og einfaldur lag-
línukraftur býr með íslenzku
þjóðlagi".
Þjóðlög okkar eru um margt
merkileg, og í þeim býr vissu-
lega frumstæður kraftur. En
þau eru vandmeðfarin. Hverri
þeirri „útsetningu", sem á að
sýna þau í réttu ljósi, verður að
stilla svo í hóf, að hún færi
ekki í kaf sjálfan lagikjarnann.
Það verður að telja, að í þessu
verki hafi dr. Hallgrími ekki
tekizt sem skyldi sú hófstilling.
Fylgiraddir hans eiga of ann-
ríkt, hafa of margt og mikið að
segja, til þess að hin hljóðláta
rödd þjóðlagsins fái notið sín.
Engu að síður er svíta hans
vandað og vel unnið verk. En
þjóðleg einkenni þess mundu
hafa komið skýrar fram og
verkið um leið orðið áheyri-
legra, ef úrvinnslan í heild
hefði verið íburðarminni en
blæmuWur meiri á meðferð lag-
anna.
Cellókonsertinn eftir Dvorák
var það verk, sem hæst bar á
þessum tónleikum. Einleikarinn,
hinn ágæti cellósnillingur próf.
Frantisek Smetana, og hljóm-
sveitarstjórinn eru báðir sam-
landar tónskáldsins. Þeir stilltu
hér saman krafta sína til þess
að þetta öndvegisverk tékkneska
tónbókmennta fengi notið sín
sem bezt, og tókst með ágætum.
Konsertinn mun verða eitt af
minnisstæðustu viðfangsefnum á
sinfóníutónleikum það sem af er
starfsári hljómsveitarinnar.
„Symphonie fantastique“ eftir
Hector Berlioz er íburðarmikið
verk hið ytra en ekki efnismik-
ið að sama skapi, þrátt fyrir
„prógrammið", sem fylgir því,
og allar þær hamslausu hugar-
hræringar, sem það á að
„túlka“. Rómantíkin ríkir hér
einráð, og ekki í sinni geðfelld-
ustu mynd. Höfuðstyrkur verks-
ins liggur í snilldarlegum rit-
hætti fyrir hljómsveitina (instru
mentation), en einmitt að því
leyti skorti mest á að það nyti
sín að þessu sinni. Hljómsveitin
gerði að vísu allt, sem af henni
verður krafizt með nokkurri
sanngirni, en það var að þessu
sinni ekki nóg: nokkrar breyt-
ingar þurfti að gera á hljóð-
NÝLEGA var hér á ferð Torben
E. Hartvig, aðalfulltrúi belgiska
flugfélagsins SABENA í Kaup-
mannahöfn. Erindi hans var að
endurnýja gömul kynni við Flug
félagsmenn, þvi milli félaganna
er ágæt samvinna og annast Flug
félag íslands farmiðasölu fyrir
SABENA hér.
Fréttamaður Mbl hitti Hartvig
að máli og sagði hann, að í hans
umdæmi væru ísland. Grænland
og Færeyjar. — SABENA fengi
hins vegar enga farþega frá
Grænlandi og Færeyjum, en allt-
af væri slangur af Flugfélagsfar-
þegum, sem færi áfram með
SABENA frá endastöðvum Flug-
félagsins erlendis.
SABENA á nú 5 Boeing-707
þotur, sem eru á flugleiðum yfir
Atlantshaf og til Afríku. Þá á
félagið 8 Caravelle- þotur. sem
eru á flugleiðum innan Evrópu
auk allmikils fjölda af flugvélum
eldri gerða.
Hartvig sagði, að SABENA
hefði verið mjög önnum kafið á
flugleiðinni til Kongó allt síðan
ólætin byriuðu þar, enda væri
þetta ein bezta flugleið félagsins.
Það hefur og nána samvinnu við
hið nýstofnaða flugfélag Air
24 þús. umferða-
slys. 890 létust
Helsingfors, 29. janúar —
NTB — Reuter.
Á ÁRINU 1961 urðu 24 þúsumd
umferðaslys i Finnlandi. Um átta
hundruð manns týndu lífinu og
10.500 særðust meira og minna.
Til samanburðar er þess getið að
árið 1960 hafi umferðaslys verið
22 þúsund 765 manns farizt og
9.716 særzt.
! Congo. Hafa Kongómennirnir
fengið gamlar flugvélar frá
SABENA svo og tæknilega að-
stoð.
Hið belgiska flugfélag flýgur
til tveggja borga á Norðurlönd-
um, Kaupmannahafnar og Stokk
hólms, á Caravelle.
— Keflavik
Framhald af bls. 3
hana áfram til yfirstjórnar
þeirra svæða, sem flugvélin
fer um eða til.
Þeir 70 íslendingar, sem
starfa við flugafgreiðsluna á
Keflavíkurflugvelli hafa unn-
ið mörg snör handtök við
þessa flugvél, sem við höfum
afgreitt hér á síðunni. Nettó-
tekjur af flugafgreiðslunni
voru 4.7 milljónir 1959. Þess
má geta, að starfsfólkið þarna
syðra á heimsmet í fljótri af-
greiðslu á þotum PAA flug-
félagsins. Það voru 25 mín. frá
því hreyflar stöðvuðust og þar
til vélin var ræst á ný.
Það er mjög nauðsynlegt
að flugaígreiðslan á vellinum
sé ávallt í góðu lagi. Það er
bæði fjárhagslegt atriði og
eins einu kynni fjölda fólks af
landi voru og þjóð. Þótt til-
koma hinna stóru farþegaþota,
sem fljúga viðstöðulaust yfir
Atlantshuf. hafi dregið tölu-
vert úr umferð um völlinn, þá
eru alltaf í notkun minni vél-
ar hjá iitlu flugfélögunum,
sem þuría á þjónustu vallar-
ins að -lalda Ef þessi þjónusta
er ekki fyrsta flokks, þá beina
flugfélögin vitaskuld umferð
sinni til annarra flugvalla, því
að samkeppnin um flugum-
ferð er ekki minni, en sam-
keppnin um farþeganna milli
flugfélaga. — J.R.
skyldi rannsökuð og muni í öllu
verða fjallað um það samkvæmt
lögum landsins. Adoula er nú á
leiðinni heim til Leopoldville
en fer þaðan beint til New
York og gefur forseta Öryggis-
ráðsins skýrslu.
Alls eru það um fjörutíu
þjóðir sem hafa lýst sig and-
vígar þessum fyrirhugaða auka-
fundi Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna.
%%%%%%%%%%%%
4. umferð í sveitarkeppni meist
araflokks hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur fór fram s.l. þriðju
dagskvöld og urðu úrslit þessi:
Sveit Stefáns vann sveit Hilm-
ars 80:56 (6—0).
Sveit Agnars vann sveit Jó-
hanns 76:47 (6—0).
Sveit Júlíusar vann sveit Egg-
rúnar 89:53 (6—0).
Sveit Brands vann sveit Þor-
steins 85:17 (6—0).
Sveit Einars vann sveit Elínar
93:54 (6—0).
Að fjórum umferðum loknum
er röð 6 efstu sveitanna þessi:
Sveit Einars Þorfinnss. 24 stig
Sveit Agnars Jörgenss. 23 stig
Sveit Stefáns Guðjohnsen 18 stig
Sveit Júlíusar Guðm.dss. 17 stig
Sveit Jóhanns Láruss. 12 stig
Sveit Brands Brynjólfss. 12 stig
5. umferð fer fram n.k. þriðju
dagskvöld í Skátaheimilinu við
Snorrabraut.
FYRRI hálfleikurinn í leiknum
milli Belgíu og Englands á
Evrópumótinu í Torquay var
mjög jafn og skemmtilegur. Að
hálfleiknum loknum var staðan
35:30 Belgíu í vil og sést á því,
að Belgíuemennirnir hafa ekkert
gefið eftir.
í síðari hálfleiknum tóku Eng-
lendingarnir vel á, og tókst þeim
þá að yfirbuga andstæðingana
og unnu leikinn með miklum
yfirburðum eða 108 gegn 44.
Spilið, sem hér fer á eftir er úr
fyrri hálfleiknum og var útkom-
an sú sama á báðum borðum. En
það sem einkum er skemmtilegt
við spilið er mismunandi sagnir
til að ná lokasögninnL
A K-8-3
V A-D-10-7-6-3
♦ A-9-2
A 2
A A-4
V —
♦ K-10-8-5-4-3
A Á-K-10-9-6
Á borðinu þar sem Belgíu-
mennirnir voru N.—S. gengu
sagnir þanmg:
Suður Norður
1 Tígull 1 Hjarta
3 Lauf 4 Tíglar
4 Spaðar 5 Hjörtu
5 Grönd 6 Tíglar
Þar sem Englendingarnir sátu
.—S. gengu sagnir þannig:
Suður Nórður
1 Tígull 1 Hjarta
2 Lauf 2 Spaðar
3 Tíglar 5 Tíglar
6 Tíglar Pass
Spilið vannst á báðum borðum
og „féll“ því spilið eins og mörg
önnur í fyrri hálfleik. Skemmti-
legt er að bera saman sagnir og
virðast sagnir ensku spilaranna
öllu rólegri, að minnsta kosti í
byrjun.