Morgunblaðið - 17.03.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.03.1962, Blaðsíða 2
2 MORCVNBLAÐtÐ Laugardagur 17. majz 1962 Klettabeltin við Dagverðareyri. Stofuklöpp, sem álfarnir áttu að bua í, er hamrabeltið fjær, lengst til vinstri á myndinni. Vinnu hætt meöan álfar fluttu AKUREYRI, 16. marz — Krossanes norðan Akureyrar er gamall lendingarstaður. Þaðan voru áður fyrr gerðir út bátar til sjósóknar á Eyja firði og þaðan var einnig gert út til síldveiða á Eyjafirði áð ur fyrr. Á síðari árum eða snemma á 20. öldinni var byggð þar síldarverksmiðja, upphaflega af Norðmönnum og var bún rekin af þeim um margra ára skeið. Síðar lenti hún í eigu íslendinga og und anfarin ár hefur þessi verk- smiðja verið rekin af Akur- eyrarbæ. Gamlar trébryggj- ur voru til löndunar við þessa verksmiðju og eru þær orðn ar mjög úr sér gengnar og lé legar. Á s.l. ári var ákveðið að endurnýja bryggjurnar, byggja nýja öfluga tré- bryggju undir löndunarkran- ana, en setja uppfyllingu sunnan verksmiðjunnar með- fram henni í Glerárbót. Verk þetta var hafið fjnir stuttu og grjót til uppfylling ar tekið úr klöppum vestan vegarins, sem liggur til Krossa ness. Þarna er um að ræða klettaborgir og eru þær lægst ar næst sjónum, en hækka er lengra dregur til landsins. Er farið var að sprengja þessar klappir, höfðu eldri menn er við það unnu, orð á því að þarna mundu var álfabyggðir samkvæmt gömlum sögum og nefnd sérstaklega aðra klapparöðina frá veginum. hafði hún í þeirra ungdæmi verið kölluð Stofuklöpp og var að þeirra sögn talin mikii áilfabyggð á því svæði. Sá er stóð fyrir sprengingunum og grjótvinnslunni taldi rétt að leita til ófreskra manna, um hvort þeir gætu séð nokkuð í sambandi við klappirnar. Kvaðst sjá álfa. Ungur maður, búsettur í ná grenni Akureyrar, kom á þerman stað og skyggndist þar um, en þetta er maður sem frá barnæsku hefur fengið orð ■9",rr/wí 'vwrjv•/■■w.-.-... svif ' ’ r r - ’ ^AvnwrnTPr Sprengingarnar eru nú hafnar aftur í álfaborginni. fyrir skyggnigáfu. Eftir stutta athugun skýrði hann svo frá, að þarna væri mikil álfa- byggð, heilt þorp. Hann hefði skynjað álfana, en aðeins séð einn mann nákvæmlega. Þetta var eldri maður og hafði hann sagt að álfunum væri meina- laust að flytja sig úr klöpp- unum, þar sem þeir vissu að þær yrðu notaðar til nytsamra hluta, en þeir mundu flytja sig í klappir nokkru vestar á sama svæði. Hins vegar fór þessi virðulegi öldungur fram á það að sprengingum og grjótnámi yrði hætt um eins til tveggja daga skeið, svo öllum álfum gæfist tækifæri að flytjast burtu. Þessum til- mæjum kom hinn ungi maður á framfæri og var grjótnám- inu hætt um stundarsakir. Nú hefur verið tekið til grjótnámsins að nýju og verk- inu haldið áfram, án þess nokkur óhöpp hafi viljað tiL En í byrjun verksins urðu smá vegis truflanir á vélum, sem tæknifróðir menn telja að geti stafað af eðlilegum ástæðum. Miklar sögur hafa gengið á Akureyri og nágrenni í sam- bandi við þetta grjótnám og munu þær ekki allar á rökum reistar. Starfsmennirnir við verkið hafa orðið fyrir nokkr- 'um truflunum forvitinna veg- farenda, sem rekja má til sögu sagnanna um huldufólkið. Nú er uppfyllingin við Krossanesverksmiðjuna vel á veg komin og hið umdeilda grjót hefur verið sett í sjóinn og virðist gegna sínu hlut- verki þar. — St.E.Sig. FÉI.AG ungra Sjálfstæðismanna í Árnessýslu heldur aðalfund n.k. sunnudag. Fundurinn verður haldinn í Landsbankahúsinu á Selfossi og hefst kl. 4 e.h. Hafnarfjörðu Á mánudagskvöld he Sjálfstæðiufélagið Vonbo fund í Sjálfstæðishúsinu hefst hann kl. 8:30. Auk v legra fundarstarfa verður uð félagsvist og kaffi 1 reitt. — Félagskonur eru 1 ar til að fjölmenna og með sér gesti. — Smyglið Framh. af bls. 1 ferðir álhafnar Goðafoes, en bætti því við að það Væri „hugsan- legt en ekki sennilegt" að skipið yrði hindrað í að halda áætlun Og fara frá New York föstudag- inn 23. þm. En þá á Goðafoss samkvæmt áætlun að sigla til Reykjavíkur, Rotterdam, Ham- borgar ög Dýflinnar áður en hann siglir aftur til Bandaríkj- anna. Aðspurður hvort nokkrar þær upplýsingar lægju fyrir sem bentu til að skipið hefði áður verið notað til að smygla happ- drættismiðum til Bandaríkj- anna, sagði Fleishman að því gæti hann ekki svarað. Hann sagði að tollyfirvöldin væru undrandi yfir því að Eimskipafélag fslands skuli vera flækt í þetta máá. „Við viljum taka það fram að við erum mjög undrandi yfir að þetta (mið arnir) skuli hafa komið með síkipi Eimskipafélagis íslands, vegna þess að það er Skipafélag sem við berum algjört traust til. Við urð- um mjög undrandi.“ Goðafoss flutti írsk-t kjöt til Bandaríkjanna. Fleisman sagði að kassarnir með happdrættis- miðunum hafi ekki verið á fanm- skránni. Miðarnir voru fyrir sept- emberdráttinn í írska sjúkrahús- happdrættinu. Pétur hafði 159 BÍLDUDALUR, 16. marz. — í aflafrétt yfir febrúarmánuð átti að standa að Pétur Thorsteins- son hefði fengið 159 lestir í stað rúmar 150, eins og stóð í frétt frá 13. þ.m. — Hannes. . _ Hlaut 50 þús. kr. verð- laun fyrir skipulag á miðbæ Hafnarfjarðar HAFNARFIRÐI — A fundi með fréttamönnum í gær var skýrt frá hugmyndasamkeppni um skipulag miðbæjar Hafnarfjarð- ar. — Ákveðið var 12 maí 1960 að efna til hugmynda- samkeppni um skipulag miðbæjar Hafnarfjarðar í sam- vinnu við skipulagsnefnd ríkis ins og skipulagsstjóra ríkisins. Það svæði, sem hér um ræðir, takmarkast af Reykjavíkurvegi, Hverfisgötu, Lækjargötu, Brekku götu, Suðurgötu og Mýrargötu. Jafnframt var til þess ætlast, að fram kæmu tillögur að frum drögum að skipulagi hafnarinn- ar að svo miklu leyti, sem það hefur áhrif á skipulag miðbæj arins. Var tilgangur samkeppn- innar að fá fram hugmyndir að byggingafyrirkomulagi og nýt- ingu þessa takmarkaða miðbæj- arsvæðis og aðliggjandi hafnar- svæðis. Stjórnar- kreppa VELI Kaare Merikoski prófessor og fyrrverandi formaður Finnska þjóðarflokksins, sem á mánudag var falið að reyna að mynda nýja ríkisstjórn, tilkynniti í dag að hann treysti sér ekki til að mynda stjórn á þeim grundvelli, sem fyrir hann var lagt. Merikoski var falið að mynda stjórn án þátttöku sisíalista og hefur hann sfcýrt Kekkonen. for- seta og fulltrúum hinna flokk- anna frá því að hann treysti sér ekki til þess. Merikoski skýrði jafnframt frá því að sér hafi bor- izt til eyrna að Sænski þjóðar- flokkurinn Jhiafi látið í Ijós efa- semdir við Kekkonen forseta um að harrn væri fær um að gegna embætti forsætisráðherra. Segir prófessorinn að iþetta eyðileggi möguleika á myndun meirihluta- stjórnar án þátttökiu sósíalista. Alls bárust 8 tillögur og liggja nú fyrir niðurstöður dómnefnd ar. 1. verðlaun, 50 þús. kr., hlaut Jón Haraldsson (Björnssonar leikara) arkitekt. Aðstoðarmenn hans voru Benedikt Bogason verkfr., Selfossi og Sigurður Thoroddsen stud. arch., Hafnar firði. Önnur verðlaun, 30 þús. kr. hlaut Ormar Þór Guðmundsson, stud. arch., Stuttgart, Þýzka- landi. Þriðju verðlaun, 20 þús. kr„ Þorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt, Khöfn. Verða sam- keppnisuppdrættirnir almenn- ingi til sýnis í öldutúnsskóla laugard. og sunnud. kl. 2—10 og næstu viku kl. 4—10. Dómnefndina skipuðu Stefán Gunnlaugsson bæjarstjóri, Aðal- steinn Júlíusson, vitamálastjóri, Friðþjófur Sigurðsson mælinga- maður, Gunnlaugur Pálsson, arkitekt og Gunnlaugur Hall- dórsson arkitekt. Um 1. verðlaun segir dóm- nefnd m.a.: I tillögu Jóns Haraldssonar er lögð aðalumferðaræð á uppfyll ingu utan miðbæjarkjarna og breytir núverandi Strandgötu I göngugötu. Aðalumferðaræðar eru vel leystar, en breiddir þeirra ófullnægjandi. Samband- ið við athafnasvæði norðurhafix arinnar mætti vera betra. Not höfundar af Austurgötu í sam- bandi við miðbæjarkjarnann er ágæt fyrir aðkeyrslu og bíla- stæði. Aðgreining miðbæjarkjarn ans með gróðurbelti er fallega leyst, en kostnaðar-samt í fram kvæmd. Nýting miðbæjarkjarnans virð ist ekki vera meiri en svo að nægja myndi 10 þús. manna bæ, enda leggur höfundur áherzlu á lága byggð við Strandgötu. Staðsetning opinberra bygg- ing-a er góð, og útsýnis- og veit ingastaður syðst á svæðinu er vel og skemmtilega leyst. Gert er ráð fyrir mikilli aukn- ingu hafnarmannvirkja með- fram allri strönd hafnarinnar. Framan miðbæjarkjarnans eru ráðgerð vöruhús og flutninga- skipaafgreiðslur, sem þá væru i nánum tengslum við hann. Séð er fyrir möguleika á tengslum hafnarhlutanna með sérstakri umferðaræð framan Starndgötu. KuUa»hH H .Hmt X Snjikomo 17 Skúrir » OSi K Þrumur V. nunasrrn rr , nmo Hifotkit L™ Lmgi V.orain /6.1/962 k/ // 7 NA /5 hnúior SV SOhnútor Eins og kortið ber með sér, var hlýtt loft frá hafinu vest ur af Áfríku komið norður fyr ir 60. breiddargráðu í gær. Var 8 st. hiti á veðurskipinu Indía, en 14 st. á írlandi. Hér var einnig mjög tekin að mild ast veðráttan, og var 4 st. hiti í Rvík kl. 14. Regnsvæðið á skilum hlýtempraða og sval- tempraða loftsins var skammt fyrir sunnan land, en hér mátti heita úrkomulaust, nema hvað smáél var á Klaustri kl. 14. Frost var hart é Norðausturlandi í gærmorg un, þó ekki eins og í fyrra- morgun. Kaldast var í Möðru dal, lágmarkið eftir nóttina- 26 stig. Veðurspáin kl. 10 I gærkvöldi: SV-mið og Faxafl.mið: All hvass austan, lítils háttax rign ing. SV-land til Vestfj., Breiða fjarðarmið og Vestfj.mið: — Áustan og SA-kaldi, skýjað en víðast úrkomulaust. Norðurland til Austfj. og miðin: Hægviðri og síðar SA gola, víðast skýjað, hlýnandi á morgun. SA-land og miðin: Austan stinningskaldi, skýjað, dálítil slydda og síðar rigning vestan til. Horfur á sunnudag: SA-læg átt og þöðviðri um allt land, sums staðar rign- ing eða súld sunnan lan-ds.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.