Morgunblaðið - 17.03.1962, Blaðsíða 20
Fréttasímar Mbl
— eftir loknn —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Norðurlandaráð
Sjá bls. 11
64. tbl. — Laugardagur 17. marz 1962
Fulltrúar atvinnulífs-
ins fylgjast meö efna-
hagsbandalaginu
NF.FND sú, sem ríkisstjórnin kall
aðí sér til ráðuneytis í maí í
fyrra um efnahagsbandalagsmál
iíS hefur af og til fram að þessu
i'ttitt embættismenn og ráðherra,
en í nefndinni eru fulltrúar frá
hagsmunasamtökunum. Þessari
nemnd hefur nú verið skipt í
starfshópa og eru beir fimm að
tölu. Fyrir sjávarútveg, landbún-
að, iðnað, félags- og atvinnumál,
viðskipta og tollamál.
Fulltrúar hlutaðeigandi starfs
greina starfa með embættismönn
um að athugun og áhrifum efna
hagsbandalagsins á íslenzkt at-
vinnulíf og er þannig undirbúin
hugsanleg þátttaka okkar í þessu
efnahagssamstarfi.
Kviknaði í Cometþotu
á Keflavíkurflugvelli
KEFL A VÍKURFLU G VELLI, 16.
marz. — Klukkan liðlega 8 í
kvöld var Comet-farþegaþota
frá kanadíska flughemum að
aka af flugvélarstæði á Kefla-
víkurflugvelli eftir suður-öku-
braut, þegar flugmaðurinn til-
kynnti flugtuminum að kvikn-
að hefði í hjólaútbúnaði flugvél-
arinnar.
Flugtuminn gerði þegar
4 verkfallstojrarar
í Reykjavík
í GÆR landaði togarinn Geir í
Reykjavík 120—130 ‘ lestum af
fiski. Hann fer ekki út aftur og
bætist í hóp verkfallstogaranna,
sem nú eru alls orðnir 4 talsins.
Enginn sáttafundur var boðað
ur í gær.
Inflúenzan |
af B-stofni
t
MARGRÉT Guðnadóttir, lækn
Ir á Keldum, hefur að und-
anförnu unnið að rannsókn-
um á því hvaða tegund af
inflúenzu gengur hér. Hefur
hún ræktað sýkilinn og tjáði
blaðinu í gærkvöldi að útlit
væri fyrir að hér væri um
svokallaðan B-stofn að ræða.
Þó ætti hún eftir að taka blóð
próf því til staðfestingar. f
Er sú inflúenza ein af al-"
gengarí tegundunum. Hefur
B-stofnsflenza gengið í Banda
ríkjunum að undanförnu og
því sennilega þaðan komin
hingað. Hefur veikin yfirleitt
verið heldur væg. Sú inflú-
enza sem gengið hefur í ná-
grannalöndunum, svo sem
Noregi, er af öðrum stofni. Og
þess má geta að Asiuinflúenz-
an fræga var af A-stofni.
Tollvörugeymsla
á Laugarnestanga
FYRIR síðasta fundi borgarráðs
lá bréf frá Tollvörugeymslunni
h.f.: með umsókn um lóð á Laug
arnestanga. Mun hlutafélagið,
sem Verzlunarráð beitti sér fyr
ir á sínum tíma, hafa fallið frá
því áformi að kaupa verksmiðju
hús Glerverksmiðjunnar og
koma þar upp tollvörugeymslu.
Var umsóknin um lóð á Laug
arnestanga vísað til borgarverk
fræðings og hafnarstjórnar.
slökkviliði vallarins aðvart og
var það komið á vettvang inn-
an tæpra tveggja mínútna og
tókst því að slökkva eldinn
samstundis.
Skemmdir munu þó einhverj-
ar hafa orðið á hjólaútbúnaðin-
um og mun flugvélin tefjast á
Keflavíkurflugvelli þar til við-
gerð hefur farið fram. Með
flugvélinni voru 37 farþegar og
11 manna áhöfn og dveljast þeir
í flugvallarhótelinu. — B. Þ.
Fjarvistir minni í
gagnfræðaskól-
unum
í GÆ.R hófst kennsla aftur í
skólum gagnfræðastigsins. —
Fræðslustjóri skýrði blaðinu svo
frá í gær, að útkoman eftir morg
uninn hefði verið miklu betri
en áður en kennslan var felld
niður og yrði haldið áfram
kennslu. í Vogaskóla vantaði
10% nemenda, í Langholtsskóla
15,5%, Verknámið 20%, Haga-
skóla 10%, Laugarnesskóla 8%,
Lindargötuskóla um 20%, Rétt
arholtsskóla 10—11%, Kvenna-
skóia 6—7%.
Barnaskólarnir hefja svo
kennslu aftur á m/ánudag.
Tilraun til árásar
á leigubílstjóra
Tveir menn í gæzluvarðhaldi
FYRIR nokkrum dögum var
gerð tilraun til árásar á leigu-
bílstjóra úr Kópavogi, er hann
var að aka með þrjá menn
skammt frá Hafnarfirði. Voru
tveir ungir menn úr Kópavogi
úrskurðaðir í gæzluvarðhald í
gær í sambandi við árásina.
Mennirnir þrír stöðvuðu leigu-
Mótmæli skipverja
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavík-
ur hefur fengið svohljóðandi
skeyti frá skipverjum á Pétri
Halldórssyni:
„Vér skipverjar á b/v Pétri
Halldórssyni skorum á Sjómanna
félag Reykjavíkur að mótmæla
algerlega tillögu útgerðarmanna
um nokkrar breytingar á vökulög
um á íslenzkum togurum."
Frú b/v Þorsteini Ingólfssyni
barzt svohljóðandi skeyti:
„Við mtómælum eindregið
þeim breytingum á vökulögun-
um, sem útgerðarmenn fara fram
á:“
Þá hafa skipverjar á Geir skrif
að alþingi mótmæli gegn breyt-
ingu vökuiaganna.
bílinn á Reykjanesbraut. og ók
bílstjórinn með þá áleiðis til
Hafnarfjarðar. Höfðu þeir ein-
hver vopn, a. m. k. barefli og er
einn þeirra reiddi það til höggs,
mun annar hafa komið í veg fyr-
ir að hann hitti og talið að sá
hinn sami hafi komið því til leið-
ar að bílstjórinn losnaði við menn
ina.
Hefur málið verið í rannsókn
hjá lögreglunni í Kópavogi und-
anfarna daga og í gær voru menn
irnir tveir úrskurðaðir í gæzlu-
varðhald.
Verzlunarskólanemendur á-
varpa hér Skúla Magnússon,
búnir hátíðaklæðum, og krakk
arnir horfa undrandi á þessa
athöfn. f gær var sem sagt
hinn svokallaði peysufatadag
ur hjá fjórða bekk Verzlunar
skólans og fóru nemendur að
vanda syngjandi um bæinn,
stelpurnar klæddar íslenzk-
um búningum og strákamir í
kjól og hvítt.
Tjarnarbíó heitir
Tjarnarbær
TJARNARBÍ ÓIÐ gamla á fram
vegis að heita Tjarnarbær. Þetta
var ákveðið á fundir borgarráðs
s.l. þriðjudag. Þar voru lagðar
fram tillögur, er framkvæmda-
stjóri æskulýðsráðs hefur samið
í samráði við fræðslustjóra u-m
hagnýtingu Tjarnarbíós til æsku
lýðsstarfsemi.
í mótsögn við vilja Alþingis
Mótmæli ASÍ gegn kröfu logaraútgerðar-
manna um skerðingu vökulaganna
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands-
ins hefur á fundi sínum 15.
marz síðastliðinn gert svohljóð-
andi ályktun:
Lögin um hvíldartíma sjó-
manna á togurum — vökulögin
— eru einn mesti menningar-
legur sigur, sem verkalýðs-
hreyfingin hefur unnið.
Nú hafa togaraútgerðarmenn
ritað Alþingi og farið fram á,
eins og í bréfi þeirra segir:
„ . . . að vaktir á ísfiskveið-
um verði 12 klukkustundir á
þilfari og 6 klukkustundir hvíld
og máltíða sé neytt í vinnu-
tímanum“.
Hér er fram á það farið, að
vinnutími togaraháseta sé lengd
ur stórlega og löghelgaður
hvíldartími þeirra skertur.
Með þessu væru vökulögin að
verulegu leyti afnumin, og
menningarlegt gildi þeirra rifið
niður.
Slíkar kröfur sem þessar eru
í æpandi mótsögn við einróma
vilja Alþingis rétt fyrir jólin,
er það kaus sérstaka nefnd til
að rannsaka hvernig yrði með
beztum árangri komið á raun-
verulegum 8 stunda vinnudegi
verkamanna í landi.
Með þessari einróma ályktun
Alþingis var stefnt í menning-
arátt — en því miður virðist
togarasjómönnum vorum nú ætl
að annað hlutskiptL
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands samþykkir að mótmæla
harðlega hinum fram komnu
kröfum togaraútgerðarmanna
um lengingu á vinnutíma tog-
arasjómanna og treystir því, að
Alþingi íslendinga ljái þeim
ekki eyra, heldur vísi þeim
þegar á bug sem hreinni fjar-
stæðu. (Fréttatilkynning frá
ASÍ)
Bruni í heyhlöðu
Benzín af dráttarvél kveikti í
BÆ, Höfðaströnd, 16. marz. —
Um 4 leytið í gær kom upp eld
ur í hlöðu á Gröf í Hofshreppi.
Ólafur Jónsson, bóndi, var stadd
ur í fjóshlöðu sinni. í öðrum
enda hennar var dráttarvél, en
í hinum heystabbi. Hefur lík-
lega lekið benzín af vélinni og
sjálfsagt verið benzínloft í hlöð
unni, því um leið og Ólafur
setti dráttarvélina í gang, gaus
upp mikill eldur og komst eldur
inn í heyið.
Ekki tókst Ólafi að koma vél-
inni út, því hún drap strax á
sér. En hann gat ausið snjó inn
um dyrnar. Var mesta mildi að
maðurinn slapp, því vélin log
aði mikið.
Franski herinn
burt á 1 ári í stað 3
EVIAN, 15. marz. — AP-
NTB. — Sendinefndir
Serkja og Frakka héldu
með sér níunda fund sinn
í Evian í dag. Munu
frönsku sendinefndarmenn-
irnir hafa fallizt á að
Frakkar dragi her sinn til
baka frá Alsír á einu ári í
stað þriggja, en ekki hef-
ur náðst samkomulag um
hvort miða skuli við upp-
haf vopnahlésins eða þjóð-
aratkvæðið í Alsír. Menn
eiru enn vongóðir um að
samkomulag um vopnahlé
náist innan skamms.
Ólafur var einn heima. Hann
stökk nú inn í bæ og tilkynnti
brunann. Dreif að mannsöfnuð-
ur og var búið að slökkva eld-
inn um 7 leytið. Var vélin mik
ið skemmd og töluvert af hey
inu en hlaðan ekki. — Björn.
Afli bátanna
1 GÆR var heldur tregur afli hjá
Vestmannaeyjabátum, enda veð
ur óhagstætt. Keflavíkurbátar
höfðu sæmilegan afla, Hilmir
hæstur með um 18 lestir.
Fréttaritarinn á Akranesi sím
aði aflafréttir:
AKRANESI, 16. marz. — í gær
bárust á land hér af 22 bátum
samtals 220 tonn fiskjar. Afla
hæstir voru þessir tveir Sæfari
með 17,2 lestir og Reynir með
15,6 lestir. Allir bátar eru á sjó
í dag.
Aflinn er flakaður og hrað-
frystur, og flattur og saltaður,
keilan verkuð í skreið handa
blámönnum í Afríku.
Höfrungur II fór út kl. 4 síðd,
í gær. Vélbáturinn Haraldur
dokar við hér hejma, því nú enx
kominn 8—9 vindstig og storm
ur í Vestmannaeyjum.
í dag var hér flökuð og súra
uð síld handa Svíum. — Oddur.
Varðarkaffi
í Valhöll
í dag kl. 3-5 síðd.