Morgunblaðið - 17.03.1962, Page 18
18
MORGITSBLAÐ1Ð
Laugardagur 17. marz 1962
Svíþjóð vann tsland
IJnglingalandsliðið vekur mikla athygli
í GÆRKVÖLDI lék Unglinga-
landsliðið í handknattleik sinn
fyrsta leik á Norðurlandameist-
aramótinu. Léku piltarnir gegn
Svíum og fór keppnin fram í
Köge að viðstöddum miklum
fjölda áhorfenda. Þrátt fyrir
það, að Svíar ynnu þennan leik
með 14 mörkum gegn 10, þykir
frammistaða okkar manna mjög
góð og hljóta þeir mikið lof
fyrir leik sinn. Svíar eru álitnir
líklegastir sigurvegarar á móti
þessu. Formaður danska Hand-
knattleikssambandsins, Freds-
lund Pedersen, setti mótið.
Gangur leiksins
r víar skoruðu fyrsta markið,
en Kristján Stefánsson jafnaði
samstundis með mjög fallegu
skoti. Liðu nú nokkrar mínútur,
án þess að mark væri skorað,
en síðan komu þrjú mörk frá
Svíum. Aftur svarar Kristján
og bætir stöðuna í 2:4. Hörður
Kristinsson kemst nú inn í send-
ingu Svíanna og brýzt einn upp
völlinn til að skora, 3:4. Stuttu
seinna jafnar svo Kristján. Öll
2 skíðamót
um helgina
UM helgina verða tvö skíðamót
haldin við KR-skálann í Skála-
felli. Á laugardaginn kl. 4 hefst
brunmót (Reykjavíkurmót). 1
Skálafelli er mjög skemmtileg-
ar brekkur fyrir brun og munu
reykvískir skíðamenn leiða þar
saman hesta sína á laugardag-
inn eftir hádegi.
Stefánsmótið (svigmót) hefst
f. h. á sunnudaginn (einnig við
KR-skálann í Skálafelli). Mót
þetta er haldið til minningar
um Stefán heitinn Gíslason,
einn aðalhvatamann úr skíða-
deild KR.
í báðum þessum mótum
keppa um 50 manns frá fjórum
félögum: Ármanni, KR, ÍR og
Víking. — Beztu skíðamenn
Reykjavíkur eru meðal þátttak-
enda í þessu móti.
í drengjaflokki eru um 20
drengir skráðir og er skemmti-
legt að sjá hve mikill áhugi er
kominn hjá drengjtmum við
þessa skemmtilegu íþrótt.
Reykvískir skíðamenn! Fjöl-
mennið á mót þessi um helgina
mörk íslenzka liðsins voru mjög
glæsileg og fallega skoruð. —
Næst kemur það, að grófleg'a er
brotið á Hörð uppi við mark
Svíanna og er íslendingum
dæmt vítakast, sem Kristján
skorar úr, og þar með hefur ís-
Frímann Gunn-
laugsson dæmir
ÞÆR fréttir bárust í gærkvöldi
frá Köge, að íslenzkur dómari,
Frímann Gunnlaugsson, muni
dæma tvo leiki á Norðurlanda-
meistaramótinu í handknattleik
unglingia. Er þetta í fyrsta sinn,
sem íslenzkur dómari dæmir
landsleik í karlaflokki, og er ís-
lenzkum dómurum og handknatt-
leiknum í heild mikill sómi og
traust sýndur með með þessari
ráðstöfun.
Áður hafa 3 íslenzkir dómarar
dæmt landsleiki kvenna, þeir
Frímann, Valgeir Ársælsson og
Valur Benediktsson, en þessir
menn eru allir með alþjóðarétt-
indi.
Leikirnir, sem Frímann dæmir,
eru Noregur—Svíþjóð, sem fer
fram í dag, og Svíþjóð—Finn-
land á morgun.
Finninn vnnn
MAENTYRANTA, Finnlandi,
vann 15 km gönguna á Holmen-
kollenmótinu í fyrradag. Tími
hans var 50 mín. 58 sek. Hann
hafði forystuna frá upphafi til
loka.
Harald Grönningen, Noregi,
varð annar á 51.12 mín. og Lars
Olsson, Svíþjóð, þriðji á 51.19
mín.
Maentyranta er heimsmeist-
ari í 30 km göngu.
land yfir í fyrsta sinn, 5:4. Sví-
ar fá nú dæmt vítakast, sem
þeir jafna úr. Enn skorar Krist-
ján fallegt mark, en Svíar fylgja
fast eftir og jafna.
Nú kemur Lúðvík Lúðvíks-
son til skjalanna og skorar lag-
lega, en Svíar kvitta fyrir sig
úr vítakasti. Bæta nú Svíar
einu marki við, en skömmu síð-
ar er flautað til leikhlés. Staðan
í hálfleik var þannig 8:7 Sví-
um í vil, en frammistaða ís-
lendinganna hafði vakið óskipta
athygli allra viðstaddra.
Byrjun síðari hálfleiks var
lakasti kafli íslendinganna og
skora Svíar þá þrjú mörk í röð,
sem í raun og veru gerir út lun
leikinn. En nú kemur Ámi
Samúelsson til skjalanna og
skorar fallegt mark með því að
stökkva kröftuglega inn í teig-
inn og í veg fyrir háa svifsend-
ingu frá Hans. Þannig mörk eru
mjög sérstæð og ekki á allra
færi að framkvæma, en áhorf-
endur að Hálogalandi minnast
þess vafalaust, að Árni er
manna leiknastur við þessa að-
ferð. Svíar bæta við tveim
mörkum, en Ámi leikur nú
tvisvar í röð sama bragðið og
áður var lýst. Öll þessi mörk
Áma vöktu sérstaka hrifningu
áhorfenda. Þessi aðferð til mark
skota er lítið þekkt á Norður-
löndum, en okkar menn tóku
hana upp eftir Hassloch, sem
kom hér fyrir nokkrum árum.
Þessum fyrsta leik unglinga-
landsliðsins er lokið, að vísu
með tapi, 10:14, en frammistað-
an er eins og bezt var vænzt og
íslenzkum handknattleik til
sóma. Fararstjórar hinna Norð-
urlandanna létu í ljós mikla
hrifningu yfir leik liðsins og
fóru um drengina lofsamlegum
orðum.
Mörk Islands skomðu: Krist-
ján Stefánsson 5, Árni Samúels-
Billy Wright til Arsenal
ÞAÐ hefir komið eins Og reiðar-
slag yfir brezka knattspyrnuheim
inn, að George Swinden mun láta
af framkvæmdastjórn hjá Arsen-
al í vor. 1 hans stað verður ráð-
inn hinn heimsfrægi knattspyrnu
maður Biliy Wright (Wolver-
hampton), sem lék 104 landsleiki
fyrir England og á heimsmet í
landsleikj af jölda.
í þessu nýja embætti fær
Wright 3000 punda laun, en þessi
staða er ein virðingarmesta inn-
an brezkrar knattspyrnu, því að
þar er Arsenal eins og riíki í rík-
inu.
Swinden hefir þjónað Arsenal
í nær þrjá áratugi, fyrst sem
leikmaður, er heimsfrægð hlaut
á blómaskeiði félagsins og síð-
an sem frarnkvæmdastjóri.
Wright hefir starfað hjá enska
sambandinu og verið aðstoðar-
landsliðs þjálfari, Og sérgrein
hans þar verið: „Enska unglinga-
liðið innan 23 ára aldurs.“ Til
þess er ætlazt af honum, að hann
færi Arsenal aftur í forystusæti
í Lundúnum — og Englandi.
og
son 3, Hörður Kristinsson 1
Lúðvík Lúðvíksson 1.
Kristján Stefánsson, sem er
reyndastur íslendinganna, var
bezti maður vallarins og í sann-
leika sagt stjarna kvöldsins. —
Þorsteini Bjömssyni markverði
og Áma Samúelssyni er einnig
hrósað fyrir góðan leik. Nokk-
urs taugaóstyrks gætti í byrjun
leiksins, en það lagaðist fljót-
lega. í síðari hálfleik gættu Svi-
amir Kristjáns mjög vel, enda
hafði hann í fyrri hálfleik skor-
að 5 af mörkunum 7.
Dómari leiksins var finnskur
og fær hann ekki góða dóma
fyrir sitt hlutverk.
Þeir Gylfi Hjálmarsson og
Bjöm Bjarnason léku ekki með
í þessum leik.
Norðmenn unnu auðveldan
sigur yfir Finnum, 18:11.
Kristján bezti maður vallarins
Svíar vilja ekki banna
atvinnuhnefaleika
SÆNSKA þingið felldi í gær
tillögu um áð banna skyldi at-
vinnumannahnefaleika í Svíþjóð.
1 neðri deild voru 123 á móti
en 54 með. 12 sátu hjá. I efri
deild voru 73 á móti en 37 með.
6 sátu hjá og 35 voru fjarver-
andi. Langar umræður urðu um
tillöguna í báðum deildum áður
en kom til atkvæðagreiðslu.
Fjöldi þingmanná tók þátt í
umræðunum. Kom fram að í
Svíþjóð eru sjö atvinnuhnefa-
leikamenn og verði atvinnu-
grein þeirra bönnuð myndu
þeir aðeins flytja í annað land
og iðka atvinnu sína þar. En
þungamiðjan í málflutningi
þeirra er tillöguna felldu var
að ekki bæri að setja höft eða
takmarkanir á íþróttaiðkun
manna.
Athygli skal vakin á að til
Fræðslufundur
um íþróttir að
Selfossi
UNGMENNAFÉLAG Selfoss
efnir til almenns fræðslu- og
kynningarfundar um íþróttir og
æskulýðsmál í dag bl. 5 síð-
degis í Selfossbíói.
Benedikt Jakobsson mun
flytja erindi um gildi íþrótta og
þjálfun almennt, og sýna skugga
myndir til skýringar. Þá mun
síra Lárus Halldórsson flytja
ræðu um æskulýðsmál. Síðan
verða sýndar kvikmyndir: Frjáls
íþróttamynd og mynd frá heims
meistaramóti í knattspyrnu árið
1958.
Öllum er heimill ókeypis að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
Enska knattspyrnan ■:■
1. deild (England)
ÚRSLIT í nokkrum aukaleikjum,
sem fram hafa farið:
Aston Villa 1 — W. Bromwich 0
Cardiff 1 — Bumley ........ 1
Sheffield Utd. 1 — Everton .. 1
Tottenham 1 — Ipswich .... 3
2. deild:
Sunderland 4
Charlton
Skotland:
Bikarkeppnin (endurt. leikur)
Third Lanark 0 — Celtic ..
1. deild:
Airdrieonians 2 — Dunf. line 1
Dundee 0 — Rangers ......... 0
Hibernian 1 — Motherwell .. 2
Raith Rovers 2 — Kilmarock 2
Stirling Albion 0 — Dundee U. 1
umræðu var tillaga gegn at-
vinnuhnefaleikum. Að banna
hnefaleika datt engum í hug.
Gerda Harb-
ig látin
NÝLEGA barst okkur til eyma
sú frétt, að frú Gerda Harbig
hafi látizt eftir stutta en þunga
legu hinn 24. febrúar sl. f
sjúkrahúsi í Berlín, aðeins 42
ára gömul.
Gerda Harbig var ekkja hins
fræga íþróttamanns, hlauparans
Rudolfs Harbig. Hún var ís-
lenzkum íþróttamönnum kunn
og þá sérstaklega frjálsíþrótta-
mönnum og fulltrúum Islands f
Ólympíunefnd. — Frú Harbig
hafði jafnan stuðlað að sam-
skiptum íslenzkra óg austur-
þýzkra frjálsíþróttamanna, og
stóð hún fyrir rausnarlegum
boðum til íslenzkra þátttakenda
á alþjóðamót það, sem haldið
er árlega í frjálsíþróttum f
Dresden og kertnt er við minn-
ingu látins eiginmanns hennar,
Rudolf Harbig.
Gerda Harbig var mjög þekkt
í heimalandi sínu fyrir hið
mikla og fómfúsa starf hennar
þar í þágu íþróttalífsins og upp-
byggjngu þess ásamt útbreiðslu
íþróttastarfseminnar og þá sér
í lagi fyrir barna- og kvenna-
íþróttaiðkanir. Hún átti sæti f
Ólympíunefnd Austur-Þýzka-
lands frá stofnsetningu nefnd-
arinnar 1951.
Þeir, sem liynntust frú Gerdu
Harbig, tóku strax eftir hinum
sérstöku persónueiginleikum
hennar, sem komu einkum
fram í meðfæddum mannkær-
leika og hjálpsemi við náung-
ann. Hún lifði fyrir annað æðra
takmark en að fórna íþrótta-
starfseminni líf sitt, en það var
að sjá fyrir að ala upp einka-
bam sitt, sem var aðeins reifa-
bam, þegar Rudolf Harbig lézt,
Með þessum fáu línum kveðj-
um við Gerdu Harbig og þökk-
um fyrir að hafa átt því lánl
að fagna að kynnast henni og
hafa átt samstarf við hana á
undanförnum árum.
Frjálsíþróttasamband Islands.