Morgunblaðið - 17.03.1962, Page 19
Laugardagur 17. marz 1962
MORGUISBLAÐIÐ
19
Hið ísl. bókmenntafélag
flytur starfsemi sína í Bóka
verzl. Sigfúsar Eymundssonar
FORRÁÐAMENN Hins íslenzka
bókmenntafélags kölluðu frétta-
«nenn á sinn fund í gær og
ekýrðu þar frá ýmsum breyting-
uim, sem gerðar hafa verið hjá
félaginu, svo og bðkaútgáfu.
Einar Ól. Sveinsson próf., seim
gegnir nú íorsetaembætti í fé-
laginu, minntist fyrst fyrrver-
andi fonseta félagsins, Matthías-
ar Þórðarsonar, sem lézt 20. des.
6.1. Með Eimari eru nú í stjóm
Alexander Jóhannesson ritari
©g Einar Bjarnason gjaldlkeri.
Forseti félagsins skýrði frá
því, að nú hefði verið gerður
6amningur við bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundissonar um sölu og
dreifingu á bókum Hins ísl. bók-
menntafélags. Hefði mikið verið
rætt um það innan félagsins að
nauðsyn bæri til að hafa bæk-
urnar á einum og sama stað, og
væri bókaverzlun Eymundsson-
«r hin ákjósanlegasta. Bóka-
geymsla félagisins var áður, og
reyndar frá upphafi, á kirkju-
lofti Dómkirkjunnar, en það hús
mæði væri nú ekki lengur falt.
Um félagsbækurnar 1961 sagði
prót Einar, að út væru koannar
Skirnir og Annálahefti, sem út
kemur fyrir tvö ár í senn. Yænt-
anleg væri bók um Baldrvin Ein-
arsson, er Nanna Ólafsdóttir rit-
aðL
Þá gat prótfessorinn þesis, að
rnjög aðkallandi værf að láta
Ijósprenta ýmsar atf hinum eldri
bókum félagsins, svo sem Skírni,
en nú hefði 135. árg. hans kornið
út. Ýmislegt annað væri í deigl-
unni, svo sem að ljúka við Ann-
álana og Fornbréfasafnið.
Að lokinni ræðu Einars Ól.
— Við sprengjum
Frh. af bls. 1.
• FÍLL OG ASNI.
Hann ræddi nokuð stjórnar-
far í Bandaríkjunum og Sovét-
ríkjunum. Gagnrýndi hann
itveggja flobka kerfið í Banda-
rikjunum og sagði að þótt flokk-
arnir væru tveir væru báðir full
trúar einokunar og verksmiðju-
eigenda. Rússar hefðu bundið
endir á það fyrir komulag árið
1917. Hann sagði að eini mun-
urinn á flokkunum í Bandarikj-
unum værf að annar hefði fíllinn,
sem flokksmerki hinn asnann.
Hefðu bandarískir kjósendur
því ekki um margt að velja.
Krúsjeff spáði því í ræðu
einni að kommúnisminn bæri
eenn sigur af hólmi gegn auð-
valdsstefnunni og fór mörgum
orðum um friðarvilja Rússa.
Á SÍÐASTA borgarráðsfundi
voru lagðir fram uppdrættir að
tfyrirhuguðum barnaskóla við
ÁlftamýrL Á þessari teikningu,
sem ekki hefur enn verið sam
þykkt, eru m.a. nýjungar varð-
andi salerni og fatageymslur,
þannig að gert er ráð fyrir að
ihver skólastofa hafi fatageymslu
og salerni út af fyrir sig, og sé
gengið úr kennslustofunni þang
að.
Blaðið leitaði í gær upplýsinga
um þessar fyrirhuguðu skólabygg
ingu hjá Jónasi B. Jónssyni,
tfræðslustjóra. Sagði hann að í
Álftamýrinni væri verið að
byggja upp stórt hverfi og gert
ráð fyrir að á næsta vetri verði
þar tilbúnar á þriðja hundrað
íbúðir. í barnaskólabyggingunni,
eem fyrirhuguð er á horni
Kringlumýrarvegar og Miklu-
brautar, er gert ráð fyrir a.m.k.
12 kennslustofum og verða 8 af
þeim byggðar í fyrsta áfanga.
Sveinssonar tók til máls dr. Hall-
dór Halldórsson, sem niú er rit-
stjóri Skírnis, en það tímarit
er elzt á Norðurlöndum. Skírnir
var stofnaður árið 1827 að til-
hlutan Kristjáns Rasks og var
í fyrstu sem nokkurs konar dag-
blað. Birtjst líka mikið atf erfi-
ljóðum og kvæðum í honum. Ár-
ið 1890 var fyrst farið að gefa
Skírni út hér á íslandi og þá
í sama búningi og hann er nú.
Að sjálfsögðu hafa ritstjórarnir
verið margir og efnið margvís-
legt, en ávallt hefði verið leitast
við að gera Skirni þannig úr
garði, að hann mætti verða til
eflingar íslenzkri menningu og
tungu. Mikið hetfði verið birt af
kvæðum, sögum og um þjóðleg
fræði. Hann er nú 18 arkir og
allfjölbreytilegur að efni.
Að lokum var þess getið, að
félagsmenn fengju nú 20% af-
FÖSTUDAGINN, 16. marz var
gerður samningur á milli ríkis-
stjórna Bandarikjanna og ís-
lands um kaup á bandarísk-
um landbúnaðarafurðum gegn
greiðslu í íslenzkum krónum.
Samninginn undirrituðu James
K. Penfield, sendiherra Banda-
ríkjanna, og Guðmundur í Guð-
mundsson, untanríkisráðherra.
Hér er um að ræða sams kon-
ar samning og gerður hefur ver-
ið undanfarin firnm ár við ríkis-
stjórn Bandaríkjanna.
í hinum nýja samningi er gert
ráð fyrir kaupum á hveiti, 'maís,
byggi, hrísgrjónum, tóbaki og
soyu- og bómullarfræsolíum
fyrir alls 1,745,000.— dollara eða
75 milljónir króna.
Andvirði afurðanna skiptist í
tvo hluta. Annar hlutinn, 75%
af andvirðinu, gengur til lán-
veitinga vegna framkvæmda
hér á landi. Hinn hlutinn, sem
er 25% af andvirðinu, getur
Bandaríkjastjórn notað til eigin
þarfa hér á landi.
Frétt frá ríkisstjóminni..
Um vörukaupasamninga íslands
og Bandaríkjanna.
Yörukaupasamningar, eins og
sá, er undirritaður var föstu-
Varðandi fatageymslur og sal-
erni með hverri kennslustofu,
sagði Jónas, að þetta fyrirkomu
lag væri notað í ýmsum nýjum
skólum í Þýzkalandi og í Banda
ríkjunum. Þykir öruggarri fata
geymslan og betri umgengni, ef
þessi háttur er á hafður, og er
hentugra og hreinlegra að hafa
salernin sér, og þá hægt að hafa
betra eftirlit með að krakkarn
ir þvoi sér um hendurnar. Hefur
verið gerð tilraun með slíkar
fatageymslur í Hlíðarskóla og
gefizt vel. Auk salerna með
hverri stofu er að sjálísögðu
gert ráð fyrir útisalemi.
Teikningarnar að þessum skóla
sem Gísli Halldórsson arkitekt
hefur gert, hafa verið lagðar fyr
ir bæjarráð, eins og áður er sagt
og verða nú sendar til fræðslu-
málastjóra. Ef menntamálaráðu-
neytið staðfestir þær, verður
fyrsti hluti verksins boðinn út
°g byggingarframkvæmdir hafn
slátt af eldri bókum, en meðal
bóka, sem nú væru tiil í Bóka-
verzlun Eymundssonar væru
Annálar 1400—1800, Ari fróði
eftir dr. Einar Arnórisson, Á
Njálsbúð eftir dr. Einar Ólaf
Sveinsson, Ferðabók Tómasar
Sæmundssonar, Fornaldarsaga
eftir Hallgrim Melsted, íslenzk-
ar æviskrár eftir Pál E. Ólaison,
Kvæðasafn eftir ísl. menn frá
miðöildum og síðari öldum, Njála
í íslenzkum skáldiskap eftir Matt
hías Jóhannessen. Um íslendinga
sögur eftir Björn M. Ólsen, Um
isl. þjóðsögur eftir dr. Einar Ól.,
Upphaf leikritunar á fslandi eftir
dr. Steingrím Þonsteinsson, Upp-
runi mannlegs máls eftir dr. Al-
exander Jóhannesison, Hannes
biskup Finnsson í Skálho'lti etftir
dr. Jón Helgason, Vínlandstferð-
irnar eftir dr. Matthías Þórðar-
daginn 16. marz af ríkisstjórnum
íslands og Bandaríkjanna, hafa
einkum tvo kosti:
1) íslendingum er heiifnilt að
kaupa bandarískar landbúnað-
arafurðir fyrir íslenzkan gjald-
eyri.
2) islendingar geta fengið að
láni meirihluta þeirrar upphæð-
ar, sem vörukaupunum nemur,
til ýmiss konar framkvæmda í
landinu.
Slíkir samningar hafa verið
undirritaðir reglulega síðan ár-
ið 1957, og nemur verðmæti
þeirra nú samtals rúmlega 13
milljónum bandarískra dollara.
Samkvæmt þessum samningum
er íslenakum innflytjendum heim
ilt að kaupa eftirtaldar banda-
rískar afurðir fyrir íslenzkan
gjaldeyri: hveiti, mjöl, rúgur,
hrísgrjón, tóbak, baðimull, gripa
fóður og fóðurkorn, ferskir,
þurrkaðir og niðursoðnir ávext-
ir og ávaxtasafar, grænmetiis-
olía og fleira. Eins og áður seg-
ir, þurfa þeir ekki að taka af
erlendum gjaldeyrisforða lands-
ins til þessara kaupa.
Vörur seldar islenzíkum hús-
mæðrum og öðrum neytendum
eru hinar sömu og fáanlegar eru
annars staðar í heiminum og
verðið hið sama og á heims-
markaði. Þær eru seldar íslenzk-
um neytendum í matvöruiverzl-
unum í borgum landsins og bæj-
um.
í framikvæmd er áætlun PL
480, sem þessir samningar byggj-
ast á, þannig: Landbúnaðarráðu-
neyti Bandaríkjanna greiðir
bandarískum framleiðendum eða
útflytjend'um í bandanískum
gjaldeyri fyrir vörur þær, sem
íslendingar kaupa í hvert skipti.
Peningarnir, sem hinir íslenzku
neytendur greiða fyrir vörurn-
ar, hvort það eru hrísgjrón, tó-
bak, matarolía, ávextir eða ann-
að, eru lagðir inn á sénstakan
reikning Bandaríkjastjórnar í
Landsbanka ^slands.
Bandaríkjastjórn getur tekið
út úr þessum reikningi sem nem-
ur 25 af hundraði, til greiðslu á
ýmisum kostnaði hennar á ís-
landi. Afganginn, þ.e. 75 atf hund-
raði, lána Bandaríkin síðan is-
lenzku rikisstjórninni til ýmiss-
konar framkvæmda í landinu.
Frá því er samningar þessir
hófust árið 1957, hefur peningun
um aðallega verið varið til ratf-
orkutframkvæmda við Efra Sog
Barnaskóli í Álftamýri
Fatageymslur og salemi með hverri stofu
son.
Vörukaupasamniigur
við Bandaríkin
(72 milljónium ísl. krónur). Und-
anfarið hefur þeim verið varið
til stækkunar á rafmagnskerfi
Reykjavíkurbæjar (5,5 milljón
isl. krónur); stækkunar á hita-
veitukerfi borgarinnar (25 mill-
jónir ísl. krónur); hafnarfram-
kvæmda víða um landið (15
milljón isl. krónur); vinnu við
veginn milli Kefllavíkur og Hatfn-
arfjarðar (10 mdlljón ísl. krón-
ur) og til iðnaðarlána (21.5 mill-
jón ísl. krónur).
(Frá Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna).
HVAÐ er þessi stóri krani
að gera þama við Selfoss?
spyrja menn vafalaust, er
þeir sjá þessa mynd. Og
skýringin er sú, að ekki
dugði minna til að hala
rafsuðumenn í trogi upp
i kraftbómuna, þar sem
þeir voru að gera við. —
Framlengingin var sett á
kranann til að koma mönn
unum upp. Því miður sjást
þeir varla, þar sem þeir
eru uppi i bómunni á Sel-
fossi. (Ljósm.: Sv. Þoim.)
Rússar og Norðmenn
semja um veiðar innan 12 mílna
BIRTAR hafa verið í Ósló
niðurstöður viðræðna Norð-
manna og Rússa í Moskvu
dagana 12.—22. febrúar sl.
um gagnkvæmar undanþág-
ur til fiskveiða innan tólf
mílna fiskveiðilögsögu ríkj-
anna. — Viðræðunefndirnar
urðu sammála um drög að
samningum, sem lögð verða
fyrir ríkisstjórnir landanna.
í tilkyrmingu norska utan-
ríkisráðuneytisins segir að við-
ræðurnar hafi farið mjög vin-
samlega fram og að árangur-
inn hafi orðið góður. Þar er
gert ráð fyrir að samningurlnn
gildi til 31. október 1970. Samn-
ingurinn er að verulegu leyti
byggður á samningi Norðmanna
og Breta frá 17. nóvember 1960,
og gerir ráð fyrir að Rússar fái
að stunda veiðar á ákveðnum
svæðum innan tólf mílna mark-
anna við Noreg og Norðmenn
fá ákveðin veiðisvæði innan
tólf milna markanna í Varnag-
ursfirði og Barentshafi. Þá er
Rússum heimilt að umskipa
fiski í landhelgi við Jan Mayen
allt að 4 mílur frá grunnlínu.
Þá eru í samningnum ákvæði
varðandi gagnkvæmt eftirlit
með fiskiskipum og veiðarfær-
um. —
Dóttir okkar
BERGÞÓRA SIF
verður jarðsuugiu frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 20.
marz n.k. kl. 10,30.
Sigurbiörg Kristfinnsdóttir, Ólafur Júlíusson
Birkimel 10, Reykjavík
Faðir okkar og tengdafaðir,
BJARNFREÐUR J. INGIMUNDARSON
andaðist á Landakotsspitala, þann 16. þ.m. — Jarðar-
förin auglýst síðar.
Börn og tcngdabörn
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við fráfall
PÉTURS ÞORGRÍMSSONAR
stýrimanns,
sem fórst með m.s. Stuðlabergi, 17. febrúar. — Guð
blessi ykkur öll.
Svanhvít Þorgrímsdóttir og synir,
toreldrar, systkini og aðrir vandamenn.