Morgunblaðið - 27.03.1962, Page 1
24 siður
Ný stjórn
í Argentínu
Frondizi þó enn
valtur í sessi
Buenos Aires, 26. marz
— (AP-NTB) —
Mynd þessi var tekin s.l. föstudag, þegar Helsingfors sátt málinn var undirritaður í lok 10. þings Norðurlandaráðs*
ins. Eins og kunnugt er af fréttum f jallar sáttmálinn um nánara samstarf Norðurlandaþjóðanna, m. a. á sviði menn-
ingar- og félagsmála. — Á myndinni sjást þeir, sem undir rituðu sáttmálann fyrir hönd landa sinna, en þeir eru,
talið frá vinstri, Viggo Kampmann forsætisráðherra Danmerkur, Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra, Martti
Miettunen forsætisráðherra Finnlands, Helge Sievertsen menntamálaráðherra Noregs og Herman Kling dóms-
málaráðherra Svíþjóðar. (AP mynd).
Barizt í Algeirsborg
OAS leiðtogi handtekinn í Oran
f DAG tók ný stjóm við völd-
OBi í Argentínu og sóru átta ný-
Ir ráðherrar embættiseiða í við-
urvist Arturo Frondizi forseta.
Viðstaddir athöfnina voru m. a.
aðstoðarráðherrar )>eir, sem
fara með mál landhers og flug-
hers, en flotamálaráðherrann,
Gaston Clements aðmíráll, sagði
af sér á sunnudag og skoraði á
Frondizi að gera slíkt hið sama.
Frondizi hefur ekkert sinnt
fjölda áskorana um að hann
eegði af sér. Og í stað þess að
mynda samsteypustjórn, er
hefði stuðning sem flestra þing-
flokka, hefur hann nú myndað
stjórn, sem skipuð er ýmist
flokksbræðrum hans úr Radi-
kala flokknum eða óflokks-
bundnum fulltrúum. Óskipað er
í embætti aðstoðarráðherra, er
fari með málefni flotans, eftir
eð Clements sagði af sér. Venj-
an er að embætti jþetta sé skip-
eð samkvæmt ábendingu flota-
stjórnarinnar. Flotastjómin vill
að Frondizi segi af sér og hefur
því ekki tilnefnt neinn mann í
embættið.
Ekki eru horfur á að til al-
varlegra óeirða dragi í Argen-
tínu fyrst um sinn, þvi leiðtog-
ar hersins hafa fallizt á að
hafa samvinnu við Pedro Eug-
enio Aramburu hershöfðingja
og fyrrverandi forseta, sem
vinnur að þvi að sætta deiluað-
ila í landinu. En komið hefur í
Ijós í viðræðum Aramburus, að
Frondizi nýtur aðeins stuðnings
eigin flokks og eru aðrir flokk-
ar ýmist eindregið gegn Fron-
dizi, eða að þeir telja hann
ekki skipta svo miklu máli sem
forseta, ef með því er unnt að
iryggja framtíð stjómarskrár
landsins.
Stjómarkreppa hefur ríkt í
Argentínu frá því kosningar
fóru þar fram hinn 18. þ. m. í
þeim kosningum tapaði flokkur
Frondizis meirihluta sínum ó
þingi, en stuðningsmenn Perons
fyrrverandi forseta, sem nú
dvelst landflótta á Spáni, imnu
verulega á.
(NTB-AP)
MIKIÐ mannfall varð í ó-
eirðum í Algeirsborg í dag
og er talið að um 50 menn
hafi verið drepnir en 180
særðir. Frakkar hafa um-
kringt borgarhlutann Bab el
Oued, þar sem OAS-menn
hafa aðalstöðvar sínar, og er
20.000 manna franskt herlið
þar á verði. Fjöldi særöra
var fluttur í Mustapha-
sjúkrahúsið, sem hefur aug-
lýst eftir mönnum til að gefa
blóð.
Tilkynnt var í París í dag
að Frökkum hafi tekizt að
handtaka Edmond Jouhaud,
fyrrverandi hershöfðingja,
sem verið hefur hægri hönd
Raouls Salans hershöfðingja
og annar valdamesti maður
OAS-samtakanna í Alsír. —
Jouhaud var handtekinn í
Oran, en hann hafði yfir-
stjórn OAS í vesturhluta
landsins.
Óeirðirnar 1 Algeirsborg hó'f-
ust skömmu eftir hódegið. OAS
samtökin höfðu dreift flugritum
um borgina þar sem skorað var
á íbúana að taka þátt í kröfu-
göngu til Bab el Oued hverfis-
ins, sem umkringt var 20.000
manna heriiði Frakka. Jafnframt
var boðað til allsherjarverkfalls
í borginni til að mótmæla aðgerð
um Frakka gegn OAS. Eftir að
verkfallið hófst, stöðvaðist öll
umferð í borginni og allar vélar
orkuveranna. Safnaðist þá saman
mikill mannfjöldi í miðborginni,
en þyrlur franska hersins voru
á sveimi yfir höfðum mannfjöld-
ans.
• Við Pósthúsið
Brátt kom til átaka milli OAS
manna og franska hersins og
náðu þau hámarki er þúsundir
manna undir forustu OAS réðust
á virki Frakka við aðal-póstihús-
ið. Víða annarsstaðar í borginni
mátti heyra vélbyssuskotlhríð og
sprengingar. Sumsstaðar leituðu
vegfarendur hælis undir bifreið-
um, eða í kjöllurum verzlana.
OAS menn Skutu á frönsku ör-
yggislögregluna frá húsþökum í
Erlendar
fréttir
í stuttu mali
PARÍS, 26. marz (NTB) — Da
Gaulle Frakklandsforseti flutti 1
dag útvarps- og sj ónvarpsávarp
til frönsku þjóðarinnar og skor-
aði á hana að standa meC
stjóminni, „ekki aðeins fyrir
daginn í dag, heldur einnig fyr-
ir framtíðina“, með því að
greiða henni atkvæði í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni hinn 8.
apríl nk. Hvatti hann þjóðina
til að sýna einhug við atkvæða-
greiðsluna og sanna að glæpa-
mennirnir, sem vilja kúga
stjórnina eigi ekki annað fram-
undan en viðeigandi refsingu.
★
MOSKVU, 26. marz (NTB) —
Austur-þýzka stjórnin hefur
lagt til að komið verði á ræðia-
mannasambandi milli Austur-
Þýzkalands og Vesturveidanna.
Tillaga þessa efnis var afhent
sendiherrum NATO-ríkjanna i
Moskvu í dag með milligöngu
mssneska utanríkisráðuneytia-
ins. Fylgdi tillögunni bréf utan-
ríkisráðuneytisins, þar sem tek-
ið er fram að Sovétstjórnin sé
tillögunni fylgjandi.
★
GENF, 26. . marz (NTB) Dean
Rusk, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
ræddust við í dag um Berlínar-
vandamálið. Fundur þeirra stóð
í nærri fjórar klukkustundir, en
ekki er talið að árangur haö
orðið mikill.
★
WASHINGTON, 26. marz (AP)
— Slitnað hefur upp úr viðræð-
um Indónesa og Hollendinga í
Bandarikjunum um framtíð
Hollenzku Nýju-Guineu í bili.
Frh. á bls. 23.
Heilbrigð efnahagsþróun á íslandi
segir Alþjóða
I EINKASKEYTI til Mbl. í
gær frá AP segir að Alþjóða
gj aldeyrissj óðurinn h a f i
framlengt yfirdráttarheimild
íslands að upphæð 1.625.000
dollara, næstu tólf mánuði. í
skeytinu segir að viðreisnar-
stefna íslenzku stjórnarinnar
hafi leitt til batnandi efna-
hagsafkomu landsins og
bættrar gjaldeyrisstöðu.
Hér er um að ræða þann
gjaldeyrissj oðurinn við endurnýjun yfirdráttarlieimildar
hluta af yfirdráttarláni, sem
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
veitti 1960 og aldrei hefur
verið notaður. Alls var sú
heimild 8 millj. dollarar. —
Jafnframt var þá fengin 12
milljón dollara heimild hjá
Evrópusjóðnum. Af henni
voru notaðar alls 7 milljónir
og hafa þær nú verið greidd-
ar að fullu, en fengin ný
heimild að upphæð 5 millj.
dollarar, sem þó hefur ekki
verið notuð.
Skeyti AP er svohljóðandi:
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn til-
kynnti í dag í Washington að
samið hafi verið um yfirdráttar-
heimild fyrir íslenzku stjómina
að upphæð 1.625.000,- dollarar og
gildir heimildin næstu 12 mán-
uði. Sjóðurinn bendir á að þetta
er sama upphæð og í fyrri yfir-
dráttarheimild, sem rann út um
síðustu áramót. en var aldrei not
uð. Upphæðin er sú sama og ónot
uð upphæð samkvæmt samning-
um frá því í febrúar 1960 um
5.625.000 dollara yfirdrátt.
í tilkynningu gjaldeyrissjóðs-
ins í gær segir: Um þessar mund
ir tók íslenzka stjórnin upp víð-
tæka viðreisnarstefnu, sem síðan
hefur verið hrundið í fram-
kvæmd við erfið skilyrði. Hefur
hún leitt til sí-batnandi efnahags-
afkomu landsins og bættrar gjald
eyrisafstöðu.