Morgunblaðið - 27.03.1962, Blaðsíða 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. marz 1962
Líkan af Langholtskirkju eins og hún verður fullbyggð Félags-
heimilið, sem er komið, er byggingin til hægri og tengigangur-
inn út að kirkjunni. Kirkjuskipið sjálft verður byggt seinna.
Saf naðarheimili
Langholtskirkju vígt
til messuhalds og KelgiatHafna
A SUNNUDAG vígði biskupinn
yfir íslandi, hr. Sigurbjöm Ein-
arsson, hluta af félagsheimili
Langholtskirkju til messuhalds
og annarra helgiathafna. Séra
Árelius Nielsson predikaði, en
vígsluvottar voru sr. Garðar
Svavarsson, sr. Jakob Jónsson,
sr. Jón Auðuns dómprófastur og
Magnús Jónsson bankastjóri,
sem er safnaðarfulltrúi. Fjöldi
manns var við vígsluathöfnina,
þar á meðal 12 prestar, fyrrver-
andi biskup, vígslubiskup, þjón-
andi prestar og fyrrv. prestar.
Langholtsprestakall var stofn-
að árið 1952. Var skömmu
seinna hafizt handa um undir-
búning að byggingu sóknar-
kirkju fyrir söfnuðinn og ákveð
ið að kirkja skyldi á þann veg
byggð, að þar fengjust góð skil-
yrði til fjölþsptts félags- og
safnaðarstarfs. Húsameistari rík
isins, Hörður Bjarnason, teikn-
aði kirkjuna og 1957 var hafizt
handa um byggingu þess hluta
hennar sem nefndur er safnað-
arheimili. >að er sá hluti sem
vígður var til helgihalds á
sunnudag. Verður aðalsalurinn
notaður þannig, unz aðalkirkju-
skipið er risið, en það verður
samtengt þessum sal og hægt að
opna á milli, þegar þörf krefur.
Innréttingar teiknaði Sveinn
Kjarval.
Sá hluti Langholtskirkju sem
risinn er, er um 630 ferm, en
fullbyggð verður kirkjan 1118
ferm. í aðalsal safnaðarheimilis-
ins eru sæti fyrir 250 manns, en
rúmgott anddyri og hliðarsalir
taka um 3—400 manns í sæti.
Var aðalsalurinn fyrst tekinn í
notkun á aðfangadagskvöld og
munu um 800 manns hafa hlýtt
á aftansöng í salarkynnum bygg
ingarinnar. I risinu yfir anddyri
eru fundar- og vinnusalur fyrir
80—100 manns og er ágætt eld-
hús og rúmgóð syrtiherbergi í
byggingunni. Hefur húsnæði það
sem nú er fengið kostað um 4
millj. kr. Hefur fjár verið aflað
með framlögum safnaðarins,
happdrætti, hlutaveltu og al-
mennum söfnunum.
Níu fermingar í vor
í þeim hluta byggingarinnar,
sem vígður hefur verið, mun
verða fermt 9 sinnum í vor og
fyrsta sinn á sunnudaginn kem-
ur. Má heita að fullskipað hafi
verið við flestar messur í safn-
aðarsal síðan hann var tekinn í
notkun um jól, en Langholts-
prestakall er nú orðið eitt fjöl-
mennasta prestakall landsins
með 9500 sóknarbömum. Hefur
söfnuðurinn hug á að halda á-
fram með kirkjubygginguna.
Þarf fyrst að ljúka anddyri og
loftsal safnaðarheimilisins, en
síðan reisa sjálft aðalkirkju-
skipið og turn kirkjunnar.
Formaður safnaðarins er
Helgi Þorláksson skólastjóri, en
Vilhjálmur Bjarnason forstjóri
er formaður byggingarnefndar.
Safnaðarfulltrúi er Magnús Jóns
son bankastjóri. Frú Ólöf Sig-
urðardóttir er formaður kvenfé-
lags safnaðarins, Sigurður Sig-
urgeirsson bankafulltrúi er for-
maður bræðrafélags, en frú Þor
björg Jensdóttir formaður
kirkjukórsins. — Söngstjóri er
Helgi Þorláksson.
Björn réöist á eskimóakonu
Flutt stórslösuð til Reykjavíkur
KLUKKAN 9 í gærmorgun
kiom leiguflugvél Flugfélags
íslands til Reykjavíkur með
grænlenzka konu, sem hvíta-
bjöm hafði ráðist á og slasað
illa. í Kulusuk, sem er eyja
á Angmasalikfirði.
Hafði konan farið í kvöid-
göngu á laugardagskvöldið,
ásamt manni sínum og barni.
Fóru þau út á ísinn á firðin-
um. Allt í einu hrópaði barnið
upp að það hefði séð björn,
og í sama bili ráðist bjömin
á þau. Sló hann konuna fyrst
niður, og flettist höfuðleðrið
af við höggið. Síðan beit björn
in hana í handlegginn. Einn-
ig réðist hann á mannánn og
barnið, sem þó sluppu með
skrámur. Fólk úr þorpinu
heyrði óhljóðin, og knm á vett
vang með byssur. En erfiðlega
gekk að miða, því hjörninn
lá að nokkru ofan á fórnar-
lömbum sínum. Loks tókst að
vinna á birninum.
• Mikil aðgerð á Landspit-
alanum
Hringt var til Syðri-Straum
fjarðar um 4 leytið um nótt-
ina, en þar hefur leiguflugvél
F.f. aðsetur og 20 mín seinna
var flugvélin, sem Flugfélags-
menn kalla Nýfaxa, lögð af
stað þvert yfir jökulinn. Lenti
flugvélin í Kulusuk, stanzaði
í 10—15 mín. meðan konan
var flutt um horð, og síðan
var haldið með hana til
Reykjavíkur.
Var konan, sem heitir Emil-
ie Kimile og er 39 ára gömul
flutt á Landspítalann, þar sem
gert var að sárum hennar í
gær. Var það mikil aðgerð,
sem tók langan tíma, en blaðið
fékk þær upplýsingar í gær-
kvöldi að konunni liði sæmi-
lega eftir atvikum og væri
ekki í lífshættu.
Flugstjóri á flugvélinni var
Victor Aðalsteinsson. Sneri
flugvélin við til Grænlands á
sunnudagskvöld.
Kristján Ein-
arsson látinn
LAUST eftir hádegi í gær varð
Kristján Einarsson, framkvæmda
stjóri bráðkvaddur. Kristján hef-
ur um áratugasikeið unnið að mál
efnum sjávarútvegsins og stofn-
aði ýmis fyrirtæki sem til fram-
fara máttu verða á þvtí sviði.
Kristján var fæddur í Stakka-
dal á Rauðasandi árið 1893. Hann
var starfsmaður útflutningisnefnd
ar í Reýkjavík 1918—’21, kaup-
maður í Rvík. 1921—25, aðalum-
böðsmaður Booikless Bro Ltd. 1
Aberdeen á ísilandi 1925—’30,
framkvæmdastjóri Alliance 1930
til 1932, einn af stofnendum Sölu-
sambands ísl. fiskframileiðenda
1932 og fonstjóri SIF síðan. Hann
stxxfnaði Dóisaverkisimiðjuna 1935
og fleiri fyrirtæki á sviði sjávar-
útvegis. Krstján ferðaðist um fjöl-
rnörg lönd í erindum SIF, vann
nýjan mankað í Ameriku fyrir
fistk héðan, þ.a.m. á Kúbu, en
hann var um skeið fuiltrúi Kúbu
á íslandi.
Kristján var kvæntur Ingunni
Árnadóttur prófasts á Stóra
Hrauni Þórarinssonar.
Kona
vann a
mink
Frá vígsluathöfninni á sunnudag í nýja safnaðarheimilinu.
(Ljósm.: Guðm. Ágústsson),
HVERAGERÐI, 26. marz. — ER
húsfrúin á Efri-Grímslœk í Ölf-
usi var á gangi með tvö börn sín
niður að svonefnduim Fiotgröfu-
skurði, varð hún vör við mink
uppi á bakkanuim. Er minkurinn
verðuir var mannaferða, kastar
hann sér í skurðinn.
Hundur hafði slegist með í
ferðalagið. Var hann ekki lengi
að stöklkva út í skurðinn á eftir
bráð sinni. Eftir örskamma
stund koma bæði seppi oig mink-
urinn upp á bákkann aftur. Þar
beið húsfrúin með spýtu og
gerði út af við dýrið. Var þetta
stór og fullorðinn minkur.
Skv. upplýsingu Engilberts
Hannessonar bónda á Bakka, hef
ur varla sést minkur þar um
slóðir fyrr en nú nýverið að far-
ið er að bera heldur meira á hon-
um. — Georg.
Fiskverkunarstöð í
Þorlákshöfn brann
Þorlákdhöfn, 26. marz
í GÆR, sunnudag, um kl. 17,30
kom upp eldur í fiskverkunar-
stöð Guðmundar og Friðrilks
Friðrikssonar hér í Þorláksihöfn.
Kom eldurinn upp í kaffistöfu og
hreiddist síðan út eftir þaki búss-
ins. Enginn maður var í húsinu
er eldurinn kom upp, en er menn
sáu reykinn var brugðið skjótt
við og eldurinn slökktur með
brunadælu þorpsins. Unnu starfs
menn verkunarstöðvarinnar við
það.
Fidkverkunarstöð þessi hefur
í vetur unnið afla Mb. Frðiriks
Sigurðssonar, en hann er eign
þeirra bræðra Guðmundar og
Friðriks. Var mikill saltfiskur
þarna Og talsvert skemmdir urðu
á honum og þó mest á línufisk-
inuim, en ekki er búið að kanna
tjónið. Fiíkurinn var lágt vá-
tryggður eða fyrir kr. 500 þús.
hjá Samvinnutryggingum. Afli
bátsins í vetur, sem í salt hefur
farið, er um 300 lestir af óslægð-
um fiski. Stór hluti af þaki húss-
ins er ónýtur, en útveggir eru úr
steinsteypu. Húsið var byggt 1
sumar og er um 420 ferm. að
flatarmáli. Eldurinn mun hafa
kviknað út frá rafmagnstöflu.
— M.B.
Riskup syngur klassíska
messu með stúdentum
DR. RÓBERT A. Ottóson hofur
í vetur kennt stúdentum Guð-
fræðideildar Háskólans klassisk-
an kirkjusöng, en dr. Robert er
sem kunnugt er hámenntaður á
því sviði, enda varði hann dokt-
orsritgerð sína um það efni.
f kvöld gangast stúdentarnir
fyrir messu þar sem þeir syngja
hin fornu tónlög, bæði fornkirkju
leg og eftir Lúter. Biskupinn,
herra Sigurbjörn Einarsson, ann
ast altarisþjónustu, en deildar-
forseti, dr. Þórir Kr. Þórðarson,
prédikar. Fluttir verða allir þeir
þættir hinnar klassisku messu,
sem flytja má á föstunni og hefur
dr. Róbert útbúið messuformið.
Er forvitnilegt að bera það sam-
an við þá gerð messunar, sem
birtist í hinni nýúfkomnu messu-
bók eftir sr. Sigurð Pálsson.
Guðaþjónustan verður 1 Há-
gkólakapellunni í kvöld og hefst
kl. 20,i:5. öllum er að sjálfsögðu
velkominn aðgangur.
KLUKKAN 11 í gær var NA
átt hér á landi með smáéljum
nyðra. Frost var uim allt land.
Á veðurkortinu var ekkert
það sjáanlegt er gæfi vonir
um að norðanáttin stæði ekki
nokkra daga.
Veðurspáin, kl. 10 í gærkvöldi
SV-mið: Austan eða NA átt,
sums staðar stinningskaldi,
smáél.
SA-land til Breiðafjarðar,
Faxaflóamið og Breiðafjarð-
armið: NA stinningskaldi,
bjartvirði.
Vestfirðir og miðin: NA
stinningskaldi, él norðan til.
Norðurland tii Austfjarða
og norðurmið til SA-miða: NA
stinningskaldi, éljaveður.
SA-land: NA kaldi, víða létt
gkýjað.
Horfur á miðvikudag:
Norðlæg átt, él norðan
lands, einkum austan til. Þurrt
og bjart á Suðurlandi, frost
um land allt.
4L