Morgunblaðið - 27.03.1962, Qupperneq 5
Þriðjudagur 27. marz 1962
MORGVTSBLAÐlb
5
Sophia priniðessa af Grikik-
landi, sézt hér dansa þjóð-
dans áisaimt gníisíkium henmönn
um. Myndin var tekin er hún
heimsótti flugvölil nálægt
Agropoiis ásamt kommgishjón
unum foreldruim sínum og
Cönstantine krónprinis bnóð-
ur sínum, er þau vonu á ferða
lagi um Norður-Grikkland.
Sophia er trúloifuð Don Juan
Canlos, syni fyrrv. Spánar-
konungs og náðgert er að þau
gangi í hjónaband í Aþenu í
maí n.k.
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug:
Gullfaxi er væntanl. til Rvíkur kl.
16:10 í dag frá Khöfn og Glasg. Fer
til sömu staöa kl. 08:30 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað fljúga
til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða,
Sauðárkróks og Vestm.eyja. Á morgun
til Akureyrar, Húsavíkur, ísafjarðar
og Vestm.eyja.
Loftleiðir hf.: 27. marz er Leifur Ei-
ríksson væntanlegur frá NY kl. 08:00.
Fer til Osló, Gautaborgar, Khafnar og
Hamborgar kl. 09:30.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja er í
Rvík. Herjólfur fer frá Vestm.eyjum
kl. 21 í kvöld til Rvíkur. Þyrill er
á Norðurlandshöfnum. Skjaldbreið fer
frá Rvlk kl. 20 í kvöld vestur um
land til Akureyrar. Herðubreið er
væntanleg í kvöld að vestan úr hring
ferð. Baldur fer frá Rvík í dag til
Rifshafnar, Gilsfjarðar- og Hvamms
fjarðarhafna.
Ækuslóðir
Hugurinn fetar fornar leiðar
finnur stað og unir sér
þar, sem yfir allar heiðar
Eiríksjökull hjálminn ber.
har ég átti æskukynni,
unað löngum finn ég þar,
geymt ég hef í hugarinni
helgar æskuminningar.
Vel ég sjónar hæzta hólinn,
í heiði sólin fögur skín,
þaðan fjöll og byggðabólin
bera fyrir hugarsýn.
Lít í fjarska fjaUatinda
fjarri lágum heimaslóðum.
Fegurð laugar listamynda
ljómi af björtum sumarglóðum.
Rísa sveipuð sólareldi
í suðurátt að baki heiða
jörmunhvítu jöklaveldi.
Jafnan að sér sjónir leiða
I»egar ljóma löngu kvöldin
lýsa yfir grund og hjalla,
Tröllakirkja tekur völdin
tigulegust vesturfjalla.
Víðidals- og Vatnsnessfjöllin
vafin skarti fagurhlíða.
Utar standa Stranda tröllin
storka mætti norðanhríða.
Úti um Flóann bjarta blika
bárufaldar ljósum tröfum.
— Sífelt vakir kólgan kvika
köld frá úfnum Norðurhöfum.
Elta bárur eigin skugga,
aldrei hljóðnar þeirra niður,
því má bezt í hörmum hugga
hafmeyanna strengjakliður.
Af fjarðarströnd til fremstu dala
friðsæld býr í sumarró,
glitrar sólin græna bala,
grundir, ár og berjamó.
Fyrlr sjónum sveitin prúða
gviphýr brosir gestum við,
svásum búin sumarskrúða,
signuð kvöldisins dýrðarfrið.
Árnar niða. Út f sjóinn
áfram liðast þungur flaumur.
Innar glymur gljúfraþróin,
geisar á flúðum léttur straumur.
Fossar þruma þungum rómi,
þeytast fram um djúpa hylji.
eins og kveði Urðarorði
örlaganna meginvilji.
Golan þýtur. Gneistar sólin
geislum yfir Nesið fríða,
þar sem una byggðabólin
blómleg milli lágra hlíða.
Ber mig fyrst að býli lágu
byggðu í snotrum lækjarslakka,
æskusporin léttu lágu
um lautir, mela og áarbakka.
Ólst að Bjargi afreksmaður,
eins og forna sagan greinir.
Grettis æsku griðastaður
gestsins huga til sín beinir.
Horfi ég yfir hæð og slakka
Hlíð og Búrfel’ sjónum leiði.
Gifta styður Staðarbakka
studd af nýtum ættarmeiði.
Sumarheiðið Hálsabyggðir
og Heggsstaðanes geislum prýðir,
þarna fyrrum tóku tryggðir
traustir menn og svannar fríðir.
Vfir Melstað, yfir Reykjum
ennþá brennur frægðaglóðin
gekk þar stolt að starfi og
leikjum
sterka, horfna kappaþjóðin.
Býlin góð til beggja handa
bera vott um sveitargæði.
Bjart var oft um Barð og Sanda
búin grænu sumarklæði.
Renni sjónum út að Ósi.
Aldrei gleymi kynningunni,
alltaf veldur hæsta hrósi
heimilið, í minningun/ti.
Ljómar alla Austursíðu,
andar kvöldið ljúfum svala.
Laus úr fjötrum leiða og stríðu
leitar hugur fram til dala.
AUtaf brosir Austurdalur
eins og gamall tryggðavinur.
Ymur kaldur klettasalur
Kambs- er -foss í gljúfrum dynur
Skrýðast bráðum skuggahjúpi
skini rændar austurhlíðar,
ennþá ljómar yfir Gnúpi
aftanskin um dali víða.
Lengi kennast Kormaks ljóðin
og kappans vegir örlögþungu,
kvað hann fyrsta ástaróðinn
ungmeyu í Núpsdalstungu.
Sé ég alla sveitarprýði,
sumardaga I fullum blóma.
Geymir fyrir grimmd og stríði
guðamáttur, fremd og sóma.
Pétur Ásmundsson.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Genoa. Askja er í Rvík.
Hafskip h.f.: Laxá er i Rvík.
Skipndeild SÍS: Hvassafell esr í
Rvík. Arnarfell er í Rvík. Jökuifell
er á Blönduósi. Dísarfell er á Horna-
firði. Litlafell er'í Rvík. Helgafell er
á Vopnafirði. Hamrafell kemur til
Rvíkur 28. þ.m. Hendrik Meyer fer
í dag frá Gufunesi til Eskifjarðar.
Jöklar h.f.: Drangajökull er á leið
til íslands. Langjökull er á leið til
Mourmansk. Vatnajökull er á leið
til Rvíkur.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er á leið til NY. Dettifoss er í NY.
Fjallfoss er á leið til Rotterdam. Goða
foss er á leið til Rvikur. Gullfoss er
á leið til Hamborgar og Khafnar.
Lagarfoss er í Kleipeda. Reykjafoss
er í Hamborg. Selfoss er í Hamborg.
Tröllafoss er í Rvík. Tungufoss ?r á
leið til Gautaborgar. Zeehaan fer
frá Hull í dag til Rvikur.
80 ára er í dag Guðlaug Pét-
ursdóttir, Baldursgötu 26.
10. þ.m. voru gefin saman í
hiónaband af séra Emil Björns-
syni í kirkju Óháða safnaðarins,
Guðríður Bj arnadóttir, Háaleitis
vegi 38 og Lárus GunnóUsson,
stýrimaður frá Þórshöfn.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Kristín Jónsdóttir,
hárgreiðslunemi, Álfhóisvegi 18a
Kópavogi og Óskar Guðjónsison,
nemandi í Vélstjóraskólanum,
Gunnarssundi 7, Hafnarfirði.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband Svava Gísladóttir og
Erlingur Guðmiundisson. Hieimili
þeirra er að Mávahlíð lö. (Ljós-
mynd: Studio Gests, Lauifásvegi
18).
Vantar nú þegar
þægilega 2tja herb. íbúð í
rólegu húsi, sem næst mið
bænum.
Ingibjörg Signrðardóttir,
kennari. — Sími 13124.
Trésmíði
Vinn allskonar innanhúss-
trésmíði í búsum og á verk
stæði. Hef vélar á vinnu-
stað. Get útvegað efni.
Sanngjöm viðskipti. Sími
16605.
Laxveiðimenn!
Nú er rétti tíminn að
koma með veiðistígvélin í
viðgerð.
Gúmmíiðjan,
Veltusundi 1.
Sniðkennsla
Tvö pláss laus í dagnám-
skeið, sem hefst 29. marz.
Einnig laust pláss í fram-
haldsnámskeið.
Sigrún Á. Sigurðardóttir,
Drápuhlíð 48. Sími 19178.
Athugið!
Allskonar gúmmíviðgerð-
ir. Ennfremur á götuskóm
með svampgúmmí.
Gúmmíiðjan,
Veltusundi 1.
Bandaríkjamaður
óskar eftir kennara í ís-
lenzku. — Þarf að búa í
Keflavík. Sími 2136, Kefla
vík. —
Á fermingarstúlku
Til sölu amerísk kápa og
kjóll fyrir 13—14 ára
telpu, mjög fallegt, selzt
ódýrt. Simi 34570.
Múrverk
Tek að mér múrverk, flís-
lagnir og breytingar. Sími
34892 kl. 12—1 og eftir
kl. 7.
Leiguíbúð
lítil, óskast strax eða fyr-
ir 14. maí. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 5. maí, merkt:
„íbúð 66 — 4309“.
Vantar íbúð
Vantar 2—3 herb. íbúð í
Reykjavík eða nágrenni
fyrir 1. júní. Tiliboðum sé
skilað á afgr. Mbl. fyrir
1. apríl, merkt: „4245“.
Ráðskonu
vantar einhleypan, eldri
mann. Góð íbúð. Tilboð
leggist á afgr. blaðsins
fyrir 1. apríl nk., merkt:
„Reglusöm — 4354“.
Til leigu
4ra herb. nýleg fbúð í
Vogahverfi. Ársfyrirfram-
greiðsla. — Uppl. í síma
33751 eftir kl. 7 á kvöld-
in. —
Góður bíll
óskast, 4—5 manna. Get
útvegað eldhúsinnréttingu
eða annað tréverk. Tilboð,
merkt: „Hagkvæm við-
skipti — 4138“, sendist
blaðinu fyrir 1. apríl.
Stúlkur óskast
til að roðfletta og leggja
niður síldarflök í dósir. —
Uppl. í niðurrsuðuverk-
smiðjunni Mata við Ell-
iðaárvog næstu daga.
4 fermetra
miðstöðvarketill ásamt fýr
ingu og olíudúnk og hita-
vatnsdúnk, til sölu, ódýrt.
Upplýsingar í síma 33227.
Ráðskona óskast
Fertugur maður og tvö
böm í heimili. — Tilboð
merkist: „Miður maí —
4247“, sendist Mbl.
Stúlka,
ekki yngri en 20 ára, ósk-
ast á sveitaheimili í Laug-
ardal. Uppl. í dag (þriðju-
dag), sími 23185.
Til sölu
Trérennibekkur, hjólsög,
bandsög og hefilbekkur.
Barmahlíð 42 (bílskúr) ki.
8—10 e. h.