Morgunblaðið - 27.03.1962, Qupperneq 22
22
MORC INTi T/AÐÍÐ
Þriðjudagur 27. marz 1962
mm.
Guöni Sigfússon
erfiðustu keppni
Vel heppnuð svigkeppni Reykja-
vikurmótsins
SKÍÐAMÓT Reykjavíkur hélt
áfram á laugardag í Hamragili
við ÍR-skálann.
Skíðadeild ÍR sá um mótið,
Mótstjóri var Sigurjón Þórðar-
son. Brautarstjóri var Þórarinn
Gunnarsson. Keppt var 1 svigi í
öllum flokkum.
Keppnin hófst kl. 16,30 og var
lokið kl. 18,30.
Keppt var samtimis á tveim
brautum, en það hefur ekki
tíðkazt áður á skíðamótum hér,
enda gekk mótið mjög fljótt
fyrir sig.
Keppendur voru 61.
Reyk j avíkyrmeistari karla
varð Guðni Sigfússon, ÍR, en
það er í fjórða skipti sem hann
verður það; fyrst varð Guðni
Reykjavíkurmeistari 1947, en
hann hefur verið með beztu
skíðamönnum Reykjavíkur í
þau 19 ár, sem hann hefur
keppt.
Reykjavíkurmeistari kvenna
varð Marta B. Guðmundsdóttir,
KR. —
Sigurvegari í drengjaflokki
varð Júlíus Magnússon, KR.
Veður og færi var ágætt og
nægur snjór er við ÍR-skálann,
Marta B. Guðmiundsdóttir, KR
IR vann KFR 8
og stúdentar Ármann
MEISTARAMÓTI íslands í körfu
knattleik var haldið áfram um
helgina. Á laugardagskvöldið
fóru fram 3 leikir. í 3. fl. vann
KFR Ármann, í 1. flokki var lei'k
inn upp einn leikur, milli Á og
ÍR og sigruðu nú Ármenningar
43:34. Áður hafði ÍR unnið þenn-
an leik, en sá leikur var kærður
og dæmdur ógdldur. í m.fl. unnu
KR-ingar stúdenta 60:52.
Á sunnudagskvöld voru leikn-
ir tveir leikir Á og Stúdentar í
1. fl. og ÍR og KFR I meistara-
flokki.
1. fl. Stúdentar Ármann 53:38
Eftir sigur sinn yfir ÍR á laugar
dag virtust Ármenningar hafa
tryggt sér sigur í 1. fl. Áttu þeir
eftir að leika við Stúdenta, sem
höfðu tapað báðum fyrri leikj-
um sínum í mótinu. Er ekki ólík-
legt að Á bafi vanmetið and-
stæðinginn og verið öruggir um
sigur fyrirfram. Það óvænta
skeði að stúdentamir höfðu allt-
af undirtökin í leiknum og sigr-
uðu verðskuldað. í hálfleik var
staðan 24:15. í síðari hálfleik
höfðu Stúdentarnir oftast um 10
stiga forskot. Seint í leiknum
Ibreytti Á um leikaðferð og lék
maður á mann, en leikur þeirra
var allur í molum og juku stú-
dentarnir enn forskotið og sigr-
uðu 53:38.
Lið stúdenta sýndi nú sinn
bezta leik í mótinu. Sigurgeir var
stigahæstur með 17 stig, Konráð
11 .Þór átti góðan leik og skor-
aði 7 stig. f liði Ármanns voru
’beztir Jón Þ. Hannesson og Ámi
Samúelsson. Dómarar voru Hólm
steinn Sigurðsson og Einar Ólafs
son og dæmdu vel.
Eftir er nú einn leikúr í 1. fl.
ÍR:KFR. Það liðið sem þá sigr-
ar, þarf að leika aukaleik við Á,
til að úrslit fáist. Er því ekki
óhugsandi að ÍR Á leiki þá 3.
leik sinn.
M.fl ÍR—KFR 84:62
f fyrsta skipti um langt skeið
var leik þessara liða ekki stillt
upp sem væntanlegum úrslita-
leik. Samt sem áður var leikur-
inn skemmtilegur og mjög spenn
andi, því yfirburðir ÍR komu
ekki í ljós fyrr en undir lokin.
ÍR-ingar náðu fljótlega for-
ystunni og var áberandi hvað
þeir notuðu mikið sveifluskot, og
af 10 fyrstu stigum liðsins voru
8 skomð á þann hátt. KFR náði
tvisvar forystrmni 15:14 og síðan
17:16, en eftir það leiddi ÍR all-
an leikinn. Nokkru fyrir lok fyrri
hálfleiks var staðan 28:25 en bá
tóku ÍR-ingar leikinn í sínar
hendur og skomðu 12 stig gegn
2 og í hálfleik stóð 42:29.
Fyrri hluti seinni hálfleiks
varð mjög skemmtilegur og leit
út fyrir að KFR tækist að vinna
upp forskotið, og var munurinn
lengi vel um 5 stig. Þegar stað-
an var 50:45 fór Guðmundur
Þorsteinsson út af með 5 villur.
Enn hélt baráttan áfram og er
líða tók á hálfleikinn stóðu stig-
in 58:53. En þá kom greinilega í
ljós hvor aðilinn var sterkari í
þessari viðureign.
Með auknum hraða og lang-
sendingum, yfirbuguðu ÍR-ingar
KFR-liðið, sem gat ekki, vegna
úthaldsleysis, veitt neina mót-
stöðu og virtist alveg skipulags-
laust undir lokin. Endanleg úr-
slit 84:62.
í heild var leikur ÍR-liðsins góð
ur, þótt ekki verði þetta talinn
þeirra bezti leikur í vetut. Út-
baldið er gott og skipulag í leik
gæti verið öðrum til eftirbreytni.
Hólmsteinn er enn forfallaður og
veikir það liðið. Þorsteinn var
langbezti maður liðsins og skor-
aði 20 stig. Helgi Jóhannsson
hafði sig nú meira í frammd en í-
fyrri leikjum og var stigahæsti
maður kvöldsins með 24 stig,
flest úr sveifluköstum. Einar
Hermannsson skoraði 10 stig, og
er orðinn traustur leikmaður, en
var hafður of Mtið inn á. Sigúrð-
ur Gíslason, eldri, skoraði 12
punkta og alnafnd hans átti at-
hyglisverðan vamarleik í síðari
hálfleik.
Þótt KFR-liðið hafi átt mjög
misjafna leiki í vetur, hefur þó
úthaldsleysd liðsins aldrei komið
jafn berlega í ljós eins og í þess-
um leik. Það kom t.d. fyrir í síð-
ari hálfleik að 3 menn virtust svo
örmagna að þeir treystu sér ekki
í vörn, eftir misheppnaða sókn-
artilraun. Það var því ekki erfitt
fyrir mótherjana að finna greiða
leið að körfunni. Slíkt úthalds-
leysi sem þetta þolir ekkert 5
manna lið. f KFR-liðinu eru
nokkrir ágætir einstaklingar.
Með samvinnu allra leikmanna
getur liðið náð mun betri árangri.
Einar Matthíasson (23 sfig) og
Ólafur Thorlacius (18 stig) voru
beztu menn Hðsins. Sigurður
Helgason átti allgóðan leik, eink-
um í fyrri hálfleik, en hann þarf
að lagfæra körfuskot sín, _ sem
mistakast óþarflega oft. Ágúst
Óskarsson var bezti maður varn-
arinnar í síðari hálfleik.
Dómarar voru Jón Eysteinsson
og Guðjón Magnússon og höfðu
þeir full tök á leiknum.
V.
en hann hefur verið opinn í 15
daga og þangað hafa komið
töluvert á annað þúsund gestir
á þvi tímabili. Virðist ÍR-skál-
inn ætla að verða mjög vinsæll
skíðastaður, enda skilyrði til
skíðaiðkana þar með ágætum.
Úrslit í mótinu urðu þessi:
A-flokkur. 64 hlið, lengd 450 m,
fallhæð 250 m
1. Guðni Sigfússon, ÍR,
62.0 — 60.2 = 122.2
2. Steinþór Jakobsson, ÍR,
58.0 — 64.8 = 122.8
3. Valdimar Ömólfsson, lR,
66.7 — 57.0 = 123.7
4. Bogi Nilson, KR,
61.0 — 63.3 = 124.3
5. Sig R. Guðjónsson, Á,
58.2 — 70.0 = 128.2
B-Hokkur. 57 hlið, lengd 400 m,
fallhæð 200 m
1. Davíð Guðmundsson, KR,
58.0 — 63.0 = 122.0
2. Sig. Einarsson, ÍR,
77.2 — 60.4 = 137.0
Betur má,
ef duga skal
FRAMKVÆMD körfuknatt-
leiksmótsins á sunnudags-
kvöldið var mjög ábótavant.
Keppnin hófst 11 mín. of
seint og hléið milli leikanna'
var allt of langt. Hvort-
tveggja mun hafa stafað af,
dómaraskorti, sem mjög háir
körfuknattleiksmönnum, en
hinsvegar er þess að gæta að
félagið, sem sá um kvöldið,
hafði margra daga fyrirvarai
(og átti því að geta haft
*starfsmenn tiltæka á réttum.
tíma, en ekki að treysta á
síðustu stund og leita að
dómurum í áhorfendahópi.
Mörgum áhorfendum þykir
körfuknattleikur langdreginn,'
og því verða forráðamenn-
irnir að gera sitt til að,
keppnin gangi greiðlega, en
forðast vinnubrögð sem þau,
sem frammi voru höfð
fyrrakvöld. V.
sigraði í
vetrarins
«
3. Þórður Jónsson, Á,
75.4 — 74.0 = 149.4
4. Óli J. Ólason, Vík.,
79.3 — 92.2 = 171.5
C-flokkur. 38 hlið, lengd 250 m,
fallhæð 125 m
1. Björn Ólafsson, Vík.,
45.0 — 45.5 = 90.5
2. Þorgeir Ólafsson, Á,
45.9 — 47.3 = 93.2
3. Einar Gunnlaugsson, KR,
51.0 — 52.1 = 103.1
4. Arngrímur Geirsson, Á,
52.3 — 52.5 = 104.8
5. Herbert Ólafsson, KR,
54.4 — 52.6 = 107.0
Drengjafl. 30 hlið, lengd 200 m,
fallhæð 100 m
1. Júlíus Magnússon, KR,
36.4 — 37.7 = 74.1
2. Þórður Sigurjónsson, ÍR,
37.7 — 41.0 = 78.7
3. Eyþór Haraldsson, ÍR,
45.4 — 42.0 = 81.8
4. Georg Guðjónsson, Á,
44.3 — 49.3 = 93.6
5. Haraldur Haraldsson, ÍR,
47.8 — 62.4 = 110.2
Kvennafl. 39 hhð, lengd 200 m,
fallhæð 125 m
1. Marta B. Guðmundsd., KR,
38.5 — 37.3 = 75.8
2. Jakobína Jakobsd., ÍR,
38.9 — 38.2 = 77.1
3. Eirný Sæmundsd., Á,
53.4 — 52.1 = 105.5
4. KaroHna Guðmundsd., KR,
65.1 — 45.5 = 110.6
5. Auður Björg Sigurjónsd., ÍR,
81.7 — 80.5 = 162.2
Sveitir
A-flokkur ÍR
122.2 — 122.8 — 123.7 = 368.7
C-flokkur Víkings
90.5 — 107.2 — 116.2 = 313.9
Kvennaflokkur KR
75.8 — 110.6 — 205.0 = 391.4
Drengjaflokkur ÍR
78.7 — 81.8 — 110.2 = 270.7
Guðnl Slgfússon, ÍR