Morgunblaðið - 27.03.1962, Síða 23
Þriðjudagur 27. marz 1962
MORGUISBLAÐIÐ
£3
Rafspennan steig hömlu-
laust nokkrar mín.
— sprengdi rafmagnstæki
RAUFARHÖFN, 26. marz — Um
eitt l'eytið í nótt bilaði hraðastill-
ir á Dieselvél í rafstöðinni hér á
Raufarhöfn. Steig spennan hömlu
laust í nokkrar mánútur og
sprengdi öryggi og eitthvað af
rafmagnstækjum, sem voru í
gangi. Fólk, sem var á ferli, varð
vart við að ljósin urðu skyndi-
lega bjartari, þar til perurnar
6prungiL
Ekki er gott að gera sér grein
fyrir skemimidujm, því aðeins einn
rafmagnsmaður er á staðnum og
hefur hann eklki getað kannað
þær. Munu rafmagnsmótorar
hafa bnmnið yfir í einhverjum
kælisikápum og eins í olíukyndi-
tækjum. En þegar þetta varð
tók að suða hátt í tækjunum og
munu þá margir haÆa kippt þeim
úr sambandi og bjargað þeim.
Ekki er þó vitað hvort það er
spennirinn, sem farið hefur, og
mótorarnir þá heilir eða hvort
mótorarnir sjálfir hafa farið.
Mestar skemmdir á símstöðinni.
Mest mun tjónið þó hafa orðið
á símstöðinni. Þar hafa senni-
lega farið lampar í fjölsímiatæk-
inu, en þar eru nokkrir tugir
lamipa, og eru það nokikuð dýr
taeki. Landssíminn mun hafa sent
menn af stað norður í dag tiil að
rannsaka skemmdir.
Einnig urðu einhverjar skemrnd
ir á mótornum í blásurum í hita-
kerfi síldarverkismiðjunnar. En
eins og áður er sagt er ákaflega
erfitt að átta sig á skemmdum,
fyrr en rafmaignstækin hafa ver-
ið rannsökuð af fagmönnum.
Einn sveitabær hefur rafmagn
frá stöðinni hér, og er nú raf-
magnslaust þar. — Einar.
Björgunarskipið Salvator með þyrilvængjuna á bátadekkl.
Myndin var tekin við bryggju á Akureyri, er skipið kom
þar irin. Ljósm.: St.E.Sig.
Sendiherrann heim
En Tékkar og Rúmenar hlýddu aðeins
fyrirskipunum frá Moskvu
París og Mosfevu, 26. marz
(NTB).
FBANSKA stjómin kallaði á
sunnudag sendiherra sinn í
Moskvu, Maurice Dejean, heim
til Parísar. Er þetta gert tU að
mótmæla því að stjórn SovétrÆj-
anna hefur veitt útlagastjórninni
í Alsír viðurkenningu. Ekki hafa
verið gerðar neinar ráðstafanir í
París til að visa sendiherra Sovét
ríkjanna, Sergei Vinogradov, úr
landi, og mun hann sjálfur ráða
brottför sinni.
i Þegar franska stjórnin ákvað
að kalla sendiherra sinn heim,
skýrði hún frá því að m.argsinnis
hafi verið óskað eftir því að Vin-
ogradov sendiherra gæfi sfeýr-
ingu á viðurkeimingiu Sovétstjórn
arinnar á útlagastjórninni í Alsír.
En engin skýring hafi verið gef-
in.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins i Moskvu vildi ekki í dag gefa
neina yfirlýsingu varðandi heim-
köllun franska sendiherrans.
Kvaðst hann ekki vita hver yrðu
viðbrögð Sovétstjórnarinnar við
þessari ráðstöfun Frakka. En bú-
izt er við opinberri til-kynningu
í Moskvu á næstunni. Rússnesku
blöðin minntust ekki einu orði á
heimköllun sendiherrans í morg-
un.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í París að Frakkar
muni ekki grípa til neinna ráð-
stafana gagnvart Rúmeníu og
Tékkóslóvakíu, sem einnig hafa
við'urkennt útlagastjórnina.
Stjórnir þesisara rílkja hafi að-
eins farið eftir fyrirskipunum frá
Moskvu, og telji Frafekar þær því
ekfei ábyrgar.
Innbrotsþjófar
fundnip
FYRIR helgina fann rannsófenar-
lögreglan innbrotsþjófa þá er
brutust inn í Hagaskólann 15.
þ.m. og aftur þann 23, en þá var
einnig farið inn í Hástoólabió.
Þann 15. komuist þjófarnir í skrif-
borð skólastjóra og stálu kr. 7.100
sem var sjóður nemenda, en í
seinni innbrotunum var fengur-
inn sama og enginn. Reyndust
þetta vera 3 unglingspiltar, 17 til
20 ára að aldri.
Salvafor á leið með skip-
brotsmenra til Islands
Bergen 26. marz, (NTB)
ÖLL áhöfnin á selfangaranum
„Söndmöringen", sem fó'rst í
ísnum norður í íshafi, er á leið
til íslands um borð í björgun-
arskipinu „Salvator". Björgun
arskipið fór frá ísbrúninni kl.
12 í dag. Eftir slysið var á-
höfnin á „Söndmöringen“ tek-
in um borð í selfangarann
„Polaris", en á sunnudags-
kvöldið var hún flutt yfir í
Salvador með þyrlu.
Björgunarsfeipið Salvator
hefur með höndum aðstoð við
norsku selfangarana í íshaf-
inu. Það hefur áður komið til
Islands með skip, sem lent
hafa í einhverjum erfiðleik-
um. f viðtali sem fréttamað-
ur blaðsins á Afeureyri átti
vorið 1961 við Trygve Daasö,
sem verið hefur skipstjóri á
því í 9 ár, komu fram þær
upplýsingar að selveiði Norð-
manna norður í höfum hefjist
venjulega 13. marz. Þá haldi
35—40 skip út frá Alasundi
Og Tromsö Og norður eftir, Og
koma ekki aftur fyrr en um
5. maí.
Salvator er gott skip, 579
brúttólestir að stærð og 8 ára
gamalt. Skipshöfnin eru 23
menn, þar á meðal eru við-
gerðarmenn, sem aðstoða sel-
fangarana.
Salvator hefur þyrilvængju
á dekki. Hún kemur að góðum
notum við leit að stoipum og
eins til björgunar, eins og í
þetta sinn.
10000*0001*0000000 0000 00* *
Alsir
Framih. af bls. 1.
nánd við pósthúsið og lögregla og
her svöruðu skothríðinni. Til að
dreifa mannfjöldanum vörpuðu
franskar þyrl'ur táragassprengj-
um. Skotið var úr vélbyssum á
eina þyrluna, en hún komst und
an eftir að htrinn hóf skothríð á
mannfjöldann, sem lagði á flótta.
• Jouhaud
í dag var Edmond Jouhaud,
fyrrverandi hershöfðingi og næst
seðsti yfirmaður OAS samtak-
anna í Alsír, færður í Santé-fang-
elsið í París. En Jouhaud var
handtekinn í Oran ásamt 12
tnönnum úr ,herforingjaráði“
hans. OAS samtökin gerðu ár-
angurslausar tilraunir til að ná
Jouhaud úr höndum Fraikka í
Oran og féll a. m. k. einn fransk
ur yfirmaður og nítján hermenn
eærðust þegar OAS menn réðust
é bækistöðvar franska hersins í
borginni.
OAS menn höfðu lofeað öllum göt
um í nágrenni bækistöðva
Frakka áður en árásin var gerð.
Eftir að Frakkar höfðu hrundið
érás OAS var Jouhaud fluttur um
borð í franska herflugvél og flog
ið með leynd til Parísar. Ekiki
var gefin út opinber tilkynning
Um handtöfeu hershöf ðingj ans
Allir í fiskvinnu
á Þorlákshöfn
Bezti afladagur Eyjabdta á laugardag
fyrr en hann var kominn til
Frafeklands.
• Var dulbúinn
Hundruð lögreglumanna tók
þátt í árásinni að skýjafeljúfinn,
þar sem Jouhaud Og aðstoðar-
menn hans héldu til í Oran. Einn
ig var öllum götum í nágrenninu
lofeað og voru þar brynvarðar
bifreiðir á verði. Bkfei vissu
Frakkar í fyrstu að þeir hefðu
náð Joúhaud á sitt vald. Hann
var klæddur borgaralegum föt-
um, hafði safnað skeggi og bar
falsað vegabréf. Gefek hann und-
ir nafninu Angelbert. Talið er í
Oran að tilgangur lögregluárás-
arinnar hafi ekki verið að leita
Jouhauds, heldur að finna leyni-
útvarpsstöð OAS í borginni.
Jouhaud var hershöfðingi í flug
her Frakfea þar til 1960. Hann
var dæmdur til dauða að hon-
um fjarverandi fyrir aðild sína
að apríl-byltingunni , Alsír í
fyrra, en á kröfu á að fá mál sitt
tekið fyrir að nýju. Talið er
að sérstafeur herdómstóll verði
látinn taka mál hans fyrir.
Strax eftir töku Jouhauds til-
kynntu OAS samtökin að Paul
Gardy, fyrrverandi yfirmaður
Útlendingaherdeildarinnar, hafi
verið Skipaður eftirmaður
Johauds. Gengur hann næst
Raöul Salan að völdum í OAS og
er yfirmaður samtakanna í Vest-
ur-Alsír.
TALSVERÐUR afli var um helg-
ina í sumum verstöðvunum. Á
laugardag var mesti afladagur í
Eyjum sem af er vertíð, Og í Þor-
lákshöfn lönduðu fleiri bátar á
sunnudag er. nokkurn tíma áður.
Vinna þar allir sem vettlingi geta
valdið Og er skortur á vinnuafli.
Fréttaritarar blaðsins í Þorláks-
höfn, Vestmannaeyjum og á Akra
nesi símuðu eftirfarandi afla-
fréttir:
Gagnifræðaskólakrakkar
fá fiskvinnufrí
Þorlákshöfn, 26. marz
AFLINN hefur verið ágætur hér
undanfarna daga. Föstudag var
afli 12 báta 224 lestir. Þorlákur
II. var hæstur með 37 lestir. Á
laugardag voru 12 bátar á sjó
og fengu 164 lest. Páll Jónsson
var hæstur með 20 lestir. í gær,
sunnudag, var heildaraflinn’ 200
lestir, en þá iönduðu 15 bátar og
hafa aldrei jafnmargir bátar land
að hér á einum degi. Hæstur var
Leo VE með 22 lestir. Aflinn fer
bæði í frystingu Og salt.
Mikill skortur er hér á vinnu-
afli í svona hrotu. Búið er að
loka gagnfræðaskólanum, flest-
allar húsmæður vinna á kvöldin,
svo og allir aðrir er önnur störf
stunda á daginn.
Mikil ásókn er af Vestmanna-
eyjabátum að fá að landa hér,
en við getum ekki annað því.
Höfum tekið 4—7 báta á dag.
Litskuggamyndir
frá Vatnajökli
Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ efna
Farfuglar til þriðju kvöldlvöku
sinnar að Bræðraborgarstíg 9.
Sýndar verða litskuggamyndir
frá Vatnajöfeli, leiðbeint verður
um nottoun áttavita, sýndir verða
öryggishnútar o. fl. veróur til
skemimtunar.
Flensan hefur verið hér, en hún
var búin þegar hrotan kom. —
— M.B.
1000 lestir á laugardag
Vestmannaeyjum, 26. marz
HEILDARAFLINN á sunnudag
var nokkru minni en á laugardag.
Þá komu á land 847 lestir. Var
Hannes lóðs hæstur með 27 lest-
ir. í kvöld var mjög fáir komnir
að, en þeir sem komnir voru
höfðu lítinn afla, enda munu þeir
hafa verið nær Eyjum. Megnið
af bátunum er 4—5 tíma vestur
og feocma ekki að fyrr en seinna.
Á laugardag var mesti afladagur-
inn til þessa, komu á land rúm-
ar 1000 iestir. — Björn
Sæfaxi fékk net í skrúfuna
Akranesi, 26. marz
HEILDARAFLI bátanna hér i
laugardag var 181 lest. í gær,
sunnudag, gerði norðanrok.. —
Fengu þeir þó samtals 142 lest-
ir. Ekki nærri allir voru á sjó
hvorugan daginn. Aflahæstir i
gær voru Reynir með 19,2 lestir,
SigurvOn 15,4 og Keilir 14,5 lest-
ir. Höfrungur I. kom hingað í
nótt austan af Selvogsbanka með
220 tunnur af síld. Síldin var öll
flökuð og súrsuð fyrir sænskan
markað.
Hér er útlent skip við hafnar-
garðinn og lestar allar eftirstöðv-
ar af saltsíld, sem hér eru.
Vélbáturinn Sæfaxi fékk
þorskanet í skrúfuna í gær, Varð
skipið Óðinn kom með Sæfaxa
hingað í togi í morgun kl. 9.
Froskmaður Akurnesinga, Haf-
steinn Jó'hannsson var staddur í
Hafnarfirði og ætlaði að leggja
af stað til að hreinsa skrúfuna á
Sæfaxa, en froskmenn um -borð
í Óðni tóku af honum ómakið og
luku verkinu. — Oddur.
— Kierkar i klipu
Frarnh. af bls. 12.
er hraður en þó býsna öruggur
og heildarsvipur yfirleitt góð-
ur. Sjálfur fer Steindór með
hlutverk séra Toop’s, í forföll-
um Karls Sigurðssonar sakir
veikinda er æfingum var langt
komið. Er leikur Steindórs af-
bragðsgóður og skemmtilegur
svo sem vænta mátti, því að
hann skipar nú sess meðal okk-
ar beztu leikara.
Prestsfrúna Penelopu, leikur
Auður Guðmundsdóttir. Hlut-
verkið er mikið og allvanda-
samt, en Auður gerir því hin
ágætustu skil. Hún hefur léttar
og eðlilegar hreyfingar og mjög
athyglisvert er hversu skýr og
eðlileg er framsögn hennar. —
Sérstaka athygli vakti einnig
ágætur leikur Margrétar Magn-
úsdóttur í hlutverki ungfrú
Skillon’s, ekki sízt þegar ung-
frúin gerðist ölvuð í meira lagi.
Var leikur Margrétar þá svo
sannur að öllu leyti að hvergi
skeikaði. — ídu, vinustúlkuna
á heimili prestshjónanna, leikur
Svana Einarsdóttir vel og fjör-
lega. — Þá leikur Valgeir Óli
Gíslason séra Arthur Humps-
hrey, aðkomu-prest. Er leikur
hans eitt með því bezta, sem
þarna er gert, borinn uppi af
hæglátri kímni, sem aldrei miss
ir marks og framsögn hans er
skýr og greinileg, þó að hann
tali aldrei hátt. Ragnar Magnús
son leikur Clive Winton, korpor
al, vin prestsfrúarinnar, en nær
ekki verulegum tökum á hlut-
verkinu, — leikurinn oftast
fremur þvingaður, en þó dá-
góður á köflum. — Biskupinn
leikur Sigurður Kristinsson. Sig-
urður á langan leikferil að baki
sér, en enn vantar hann þó
nokkuð á að sýna fyllilega
frjálslegan og lifandi leik. —
Minni hlutverk, þýzkan stroku-
fanga og enskan sergeant, leika
þeir Sverrir Guðmundsson og
Gunnlaugur Magnússon og gera
þeim sæmileg skil.
Leiktjöld Bjarna Jónssonar,
eru smekkleg og vel gerð, enda
er hann ungur og efnilegur
listamaður.
Ævar R. Kvaran hefur þýtt
leikinn á lipurt og lifandi mál.
Leikhúsgestir tóku leiknum
með miklum fögnuði.
Sigurður Grimssott.