Morgunblaðið - 15.04.1962, Qupperneq 24
Fréttasímar Mbl
— eftip 1o k u n —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Reykjavíkurbréf
Sjá blaSsíðu 13.
89. tbl. — Sunnudagur 15. apríl 1962
Vatnið
spiílt
Sjóðið vatnið eða
notið hitaveitu-
vatnið
V E G N A þess að
mikið leysingavatn hef-
ur komizt í yfir-
borðsvatn G v e n d a r-
brunna, er það með öllu
óhæft til drykkjar ósoð-
ið fyrst um sinn. Hefur
Vatnsveita Reykjavíkur
og borgarlæknir beint
því til almennings, að
vatnsins skuli ekki neytt,
nema það hafi verið
soðið áður.
Mbl. átti tal við borg-
arlækni um þetta í gær.
Sagði hann hættu vera
á, að vatnið væri óheil-
næmt. Sýnishorn hefðu
verið tekin. Niðurstöður
rannsókna á þeim verða
komnar á mánudag. —
Borgarlæknir kvaðst
telja ástæðu til þess að
benda fólki á, að íbúar
Kópavogs og Seltjarnar-
ness fá einnig vatn úr
Gvendarbrunnum. Til
matargerðar er sjálfsagt
að nota hitaveituvatn,
meðan svona stendur á.
Tilkynnt verður um leið
og óhætt er að neyta
iGvendarbrunnavatnsins.
Hólsá flæðir langt yfir bakka sína og kemst vai undir brúna. — I.jósm. öl. K. M.
Almenningur vill ekki
hindra kjarabætur
Á öðrum stað í blaðinu er
minnzt á þá fráleitu afstöðu,
sem kommúnLstar hafa tekið til
tillögu ríkisstjórnarinnar um
raunhæfar kjarabætur og hækk
un launa lægstlaunaðra verka-
manna. Sú grein kann að þykja
nokkuð harðorð, en það er ekki
að ástæðulausu.
Listi Sjálfstæðis-
manna á Akureyri
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
manna við bæjarstjómarkosning
ar á Akureyri er á þessa leið:
Jón G. Sólnes, bankastjóri
Helgi Pálsson, kaupmaðux
Árni Jónsson, tilraunastj.
Jón H. Þorvaldoson, bygginga
maður
Gísli Jónsson, menntaskólik.
Jón M. Jónsson, klæðskeri
Sigurður Hannesson, múraram.
Gunnar H. Kristjánsson, kaup
maður
Kristján Pálsson, verkamaður
Bjarni Rafnar, læknir
Ingibjörg Halldórsdóttir, frú
Sigurður Guðlaugsson, rafv.
Kristján Jónsson, fulltrúi
Þórunn Sigurbjörnsdóttir, frú
Steinþór Kr. Jónsson, skipstj.
Viihelm Þorsteinsson, skipstj.
Jón Viðar Guðlaugsson, verzl.
maður.
Málverkasýning
SIGURINGI E. Hjörleifsson opn-
aði málverkasýningu á Sóleyjar
götu 15 (gengið inn frá Braga-
götu) kl. 14 í gær.
Sýnir hann nýjar vetrarmyndir
og einnig myndir frá sumrinu.
Sýningin verður daglega opin frá
kl. 14—20.
Kristdór Vigfússon, verkam.'
Kristján Árnason, prentari
Sigurgeir Sigurðsson, bifr.stj.
Rafn Magnússon, húsasmiður
Jónas G. Rafnar, alþingism.
1 útvarpsumræðumim frá AI-
þingi var m.a. sannað, að at-
vinnuvegimir gátu ekk’i staðið
undir þeim kauphækk unum,
sem framsóknarmenn og komm-
únistar knúðu fram sl- sumar,
enda kvað verðlagsnefnd upp
dóm sinn í þvi efni.
Stjórnarandstæðingar hafa
hamrað á því, að hægt hefði ver
ið að bæta hag atvinnuveganna
með vaxtalækkun og bæta þeim
þannig upp aukinn kostnað
vegna hækkaðra vinnulauna.
Ólafur Thors, forsætisráðherra
benti á, að allar vaxtagreiðslur
í öllum lánastofnunum s.l. ár
hefðu numið 400 millj. kr. Hins
vegar hefðu launahækkanirnar
numið 550—600 millj. kr. Sýndi
hann fram á, hve fráleitt væri
sú fullyrðing, að vaxtalækkun,
sem stjómarandstæðinigar berð
ust fyrir og næmi 70 millj. kr.
Heidur meiri frystur
fiskur en í fyrra
á ári gæti hætt atvinnuvegnn-
um 550—600 millj. kr. tjón.
Eftir vinnudeilumar var ekki
nema um tvo kosti að velja, og
má e t. v. segja, að hvoragur
hafi verið góður. Annars vegar
var samdráttur og atvinnuleysi,
en hins vegar gengisfeUing.
Ríkisstjórain tók þann kostinn,
sem betri var. Hún skráði rétt
gengi, treysti efnahaginn á ný
og þar með grundvöll þann, sem
lagður hefur verið að heilbrigðri
efahagsþróun í líkingu við það,
sem bezt hefur reynzt í þeim
nágrannalöndum okkar, þar sem
framfarimar em mestar.
Þegar kommúnistar berja sér
nú á brjóst og reyna að knýja
fram óraunhæfar kauþhækkanir
verða menn að hugleiða það
öfgalaust, að hér hafa kjörin
batnað minna en í öðrum lönd-
um, einmitt vegna þess að stoð-
unum hefur æ ofan í æ verið
kippt undan efnahagslegum
framförum í landinu. Þess vegna
vilja menn ekki einu sinni enn
hindra raunhæfar kjarahætur
með pólitískum verkföllum.
Heimdollur
FYRSTU 3 mánuði ársins voru
unnar í frystihúsunum 11.541,6
lestir af fiski, sem er heldur
meira en í fyrra, þá 10.110,7 lest
ir, skv. upplýsingum frá Sölu-
miðstöð Hraðfrystihúsanna. —
Mest af frystu framleiðslunni til
marzloka er þorskur, 7.117,4 lest
ir, 6.084,5 í fyrra.
Ýsan er minni núna eða 1.838,4
lestir í frystingu á móti 2.039,9
lestum í fyrra og karfinn miklu
minni, 251,6 lest á móti 551,3 lest
uffl í fyrra. Frystur steinbítur
nemur þessa þrjá mánuði 1.030,2
lestum, á móti 794,8 í fyrra. Hitt
er ufsi, 473,3 lestir, langa 394,2
lestir, ( aðeins 5,3 lestir í fyrra),
FONDURNAMSKEEÐ
þorskhrogn 511,9 lestir og ýsu i Heimdallar heldur áfram mánu-
hrogn 11,6 lestir. I dagskvöld kl. 8.30 í Valhöll.
Framboðslisti Sfálfstæð-
ismanna í Olafsfirði
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
manna í Ólafsfirði í bæjarstjóm
arkosningunum, sem fram fara
27. maí, hefur verið ákveðinn.
Hann skipa:
Ásgrímur Hartmannsson, bæj-
arstjóri
Jakob Ágústsson, rafveitustj.
Þorsteinn Jónsson, vélsmiður
Sigvaldi Þorleifsson, útg.m.
Magnús Gamalíelsson, útg.m.
Jónmundur Steflánsson, verka
maður
Lárus Jónsson, bæjargjaldtkeri
Guðmundur Þór Benediktsson,
bókari
Sigvaldi Baldvinsson, útg.m
Jón Ásgeirsson, véflistjóri
Sigurfinnur Ólafsson, Skipstj.
Finnur Björnsson, bóndi
Halldór Guðmundisson, sjóm.
Jón Þorvaldsson, verzl.m.
Ljósfælnir
kommún-
istar
MOSKVUMÁLGAGNI® skýr-
ir frá því í hneykslunartón í
gær, að það hafi reynt
ná sambanidi við togarann
Karlsefni, en þeir Karlsefnis-
menn hafi ekkert viljað hafa
með blaðamenn þess að gera.
Það kom því vel á vondan,
þegar kommúnistastjómin i
Dagsbrún varð til þess í gær
að lýsa því yfir, að hún hefði
a.m.k. eins mikið að fela og
þeir Karlsefnösmenn, að sinu
eigin áliti, þvi að bæði Eðvarð
Sigurðsson formaður Dags-
brúnar og Guðm. J. Guðmunds
son varaformaður félagsins,
harðneituðu að veita blaða-
manni Morgunbl. aðgang að
fundi félagsins, sem haldinn
verður í Iðnó kl. 2 í dag. Bar
Eðvarð því við, að á fundin-
um yrðu „aðallega rædd fé-
lagsmál“, en var svo óhepp-
inn að málgagn hans segir
samHægurs: „aðalmálið er
kaupg jaldsmálin“!
Koma þessi viðbrögð komm
únistastjórnarinnar í Dags-
brún vissulega mjög á óvart.
þar sem ,að hefur aldrei gerzt
áður, að hún hafi gripið til
þess ráðs að meina blaða-
mönnum aðgang að fund-
um félagsins. Meira að segja
í verkföllunum í fyrra-
sumar treystust þeir ekki til
annars en heimila blaðamönn
um aðgang að fundum félags-
ins. Bendir þetta háttemi
vissulega til þess, að kommún
istarnir í Dagsbrún telji sig
stanida jafnvel enn hallari fæti
en þá var — og er það vissu-
lega rétt mat.
Bíldekkjum stolið
á Akranesi
AÐFARANÓTT föstudags var
brotizt inn í bdlskúr á Aikranesi
og stolið þremur dekikjum. Tvö
þeirra vx)ru af gerðinni Gislaved
á 5 gadda felgutm af Ford Zodiac.
en hið þriðja General, soðið j
kantinn, en annars nýtt.