Morgunblaðið - 27.04.1962, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 27.04.1962, Qupperneq 3
M O R G l) N B L71Ð 1Ð 3 ! Föstudagur 27. apríl 1962 «« •«««!•» Ljósm. Mlbi. Ól. K. M. ÞAÐ mátti segja með sanni, að gamli og nýi tíminn mætt- ust í Reykjavíkurhöfn á fimmtudag. Á stóru myndinni liggja tvö seglskip hlið við hlið; tveir færeyskir kútterar við Grandagarð. Á minni myndunum gefur hins vegar að líta nútíma-veiðiskip, búið öllum nýtízkutækjum. Það er spánnýr þýzkur skuttogari, sem heitir Grönland, enda er honum aðallega ætlað að yrja miðin við Grænland og fsland. Á annarri myndinni sést ofan á vinnudekkið aftan á skipinu. Finnbogi Rútur — Rússar boða Framh. af bls. 1 hæfu tilraunir á nýjan leik, hefur þess verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, hvort þeir myndu gera alvöru úr hótun sinni. Onsök þess, að Rússar stóðu ekki við hótun sína, er af full- trúum vestrænu ríkjanna talin vera afstaða hlutlausu ríkj- anna 8. Á fundinum lýstu fulltrúar þeirra ríkja því yfir, að þeir væru mótfallnir kjarnorkutil- raunum, hver sem hlut ætti að máli, og hvöitu jafnframt stór- veldin til að halda áfram til- raunum til að komast að sam- komulagi um bann og eftirlit. Þótt Rússar muni þannig halda áfram viðræðum í Genf, vildi Tsarapkin ekki tjá frétta- mönnum, hvenær næsti fundur undirnefndarinnar á afvopnun- arráðstefnunni yrði haldinn. — ,Sá tími verður ákveðinn eftir umtali“, sagði hann. Rusk segir Bandaríkin munu leita eftir samkomulagi áfram Dean Rusk hélt í dag fund með fréttamönnum í Washing- ton. Hann kvað Bandaríkin mundu gera allt, sem í þeirra valdi stæði, til þess að konva á banni við kjarnorkutilraunum. Hann bar einnig fram afsakan- ir Bandaríkjamanna vegna til- rauna þeirra, sem nú eru hafn- ar, og gat þess um leið, að þess hefði greinilega orðið vart, af viðbrögðum annarra þjóða, að mikili skilningur ríkti á þeim vandamálum sem Bandaríkin ættu nú við að glíma. Mótmælagöngur og hópfundir í Glasgow gerði hópur manna aðsúg að bústað bandariska ræðismannsins, og réðst síðar inn í bygginguna, til þess að bera fram mótmæli sín. í New York söfnuðust um 3000 manns umhverfis byggingu SÞ. Báru ýmsir mótmælaspjöld, en aðrir hópuðu: „Rússland — Bandaríkin, semjið áður en það er um seinan“. Konur voru fjölmennastar í þeim hópi. Kennedy Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag, að engar opin- berar mótmælatilkynningar hefðu enn borizt sér. Hins veg- ar hefur japanski utanríkisróð- herrann afhent sendiherra Bandaríkjanna í Tókíó mótmæla orðsendingu. ítalir eru meðal þeirra, sem styðja málstað Bandaríkjanna. Auk þess hafa ráðamenn í Thai- landi lýst sig sama sinnis. — Willy Brandt, borgarstjóri V- Berlínar, hefur einnig lýst fylgi sínu við málstað Banda ríkjanna. Blöð á Vesturlöndum hafa mörg talið, að ekki hafi verið annans kostur, úr því sem komið var, en harma hins vegar, að ekki skuli hafa náðst samkomulag. Skoðanir í kommúnistalönd- unum eru hins vegar allar einn veg. — Alsír Framh. af bls. 1 ganga milli bols og höfuðs á OAS hreyfingunni, Hann bað þá gæta stillingar. því að framtíð Alsír væri ekki þess eðlis, að þeir vyrftu neinu að kvíða. Æffi greip íbúa í Algeirsbor Fréttamaður Associated Press skýrði frá því í gærkvöldi, að eftir að hryðjuverk OAS spurð- ust, hefðu borgarar af evrópskum uppruna almennt gripið til vopna, og hefði verið skotið úr gluggum og af húsaþökum í Algeirsborg síðdegis í gær. Vegfarendur, Og þeir sem sátu á gistihúsum, flýðu sem fætur toguðu, í skjól. Það var fyrst eftxr að franska lög- reglan greip til vopna, í götu- vígjum, að kyrrð komst þar á, Stórárás OAS á stöffvar franska hersins í Oran Til stórátaka kom í Oran í kvöld, er OAS-menn, óein- kennisklæddir, en vel búnir vél byssum og handsprengjum, gerðu árás á stöðvar franska hersins, hér í borg. Stóð árásin í eina klukkustund, og allan þann tíma héldu árásarmenn uppi stanzlausri skothríð. Síð- an drógu þeir sig í hlé, eftir hliðargötu, en íbúar fögnuðu þeim, er þeir fóru þar um. Engar fréttir bárust af því, hve margir hefðu látið lífið, eða særzt, í þessum átökum. Franskir hermenn höfðu einnig öflugan vörð á þaki Les- cure-byggingarinnar, í miðbiki Oran. Byggingin er 15 hæðir, og gnæfir yfir aðrar byggingar í nágrenninu. Um 40 OAS- menn, flestir á aldrinum 18—20 ára réðust inn í bygginguna, en um leið var skotið á þak hússins, úr vélbyssum, frá nær- liggjandi húsaþökum. Venjulegir borgarar gripu einnig til vopna, og gekk á ákafri skothríð um stund. Var enn barizt, er síðast fréttist. STAKSTIINAR Bylting í Kópavogi Mikil og álhrifarík bylting virff ist hafa orffiff í flokki kommún- ista í Kópavogskaupstaff. Finn- bogi Rútur Valdimarsson og Hulda Jakobsdóttir, kona hans, sem haft hafa forystu í flokkn- um og bæjarmálum kaupstaðar- ins mörg undanfarin áv, hafa nú bæffi dregiff sig í hlé. Eru þau nú hvorugt á framboðslista flokksins og munu ekki einu sinni veita honum stuðning í kosningunum. Ýmsum getgátum er aff þvi leitt. hver sé orsök þessarar ráffa breytni. Sú skýring er þó talin líklegust, aff Finnbogi Rút ur sé svo hygg- inn maffur aff hann geri sér ljóst, aff fram- undan er stór- fellt tap hjá kommúnista- flokknum. ör- uggt megi telja aff hann glati meirihluta sinum í Kópavogs- kaupstað ©g verffi fyvir margvis legum öðrum áföllum. Áffur en þetta gerist telur Finnbogi Rútur sér heppilegast aff hafa yfirgefiff hiff sökkvandi skip. Ekkert skal þó um þaff fuU- yrt, hvort hann muni stíga skref iff heilt og yfirgefa sjálfan kommúnistaflokkinn. Klofningur í kommúnistaflokknum Þessiar atburðir í Kópavogs- kaupstaff eru enn ein sönnun um þann klofning og glundroða, sem ríkir innan kommúnistadeildar- innaar á islandi um þessar mund- ir. Hér í Reykjavík er ástandið í flokknum litlu betra. Fjöldi kommúnista er nú á framboffs- lista „Þjóffvarnarmanna“ og er þaff þeim „Alþýffubandalags- mönnum" mikiil þyrnir í aug- um. Til þess aff rétta hlut sinn hafa þeir svo fengiff einn effa tvo „Þjóffvarnarmenn“ til þess aff taka sæti á Iista kommúnista. Alit ber þetta vott einstæðri upplausn og ruglingi. Víffa úti um land eru kommún- istar orðnir svo fylgislausir aff þeir þora ekki fyrir nokkurn mun aff bjóða fram og leita sem ákafast eftir samvinnu viff aðra áikafast eftir samvinnu viff affra. Reykvíkingar hafna tætingsliðinu Við hverjar einustu bæjar- stjórnarkosningar, sem fram hafa fariff undanfarna áratugi, hafa hinir svokölluðu vinstri flokkar boðiff Reykvíkingum forystu sína. Þá hefur veriff talaff um „vinstri stjórn“ í Reykjavik, ým- ist undir forystu kommúnista, Framsóknarflokksins effa Al- þýffuflokksins. En Reykvíkingar hafa boriff giftu til þess aff hafna forystu tætingsliðsins. Allar lík- ur benda til þess aff svo muni enn verffa. En enda þótt glund roðinn sé meiri nú en nokkru sinni fyrr innan raffa hinna svo kallaðra vinstri manna, ber brýna nauffsyn til þess, aff Sjálf stæðisfólk j bænum efli samtök sin eftir fremsta megni. Hinn mikli kosningasigur Sjálfstæðis flokksins viff síffustu bæjar- stjórnarkosningar má ekki verffa til þess að skapa andvara leysi og oftrú á fyrirhafnarlítinn sigur nú. Þaff er einnig athyglisvert, aff öll málgögn vinstri ílokkanna hafa lýst því yfir, aff Sjálfstæff isflokkurinn sé viss með að halda meirihluta sinum. Tilgang ur þessara yfirlýsinga er auff- vitað fyrst og fremst sá aff skapa andvaraleysi i röðum Sjálfstæff ismanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.