Morgunblaðið - 27.04.1962, Síða 22
22
MOTtGT^niÁÐIÐ
Fðstuclagur 27. apríl 1961
oomarinn á Griffith og tókst
með va'ldi að koma vitinu fyr-
ir hann og stöðva leikinn.
Paret komst aldrei til með-
vitundar og lézt noítokrum dög-
um síðar. Hann lét eftir sig
barnshafandi toonu og son.
Tekjurnar sem hann hafði
haft fyrir marga sigra í hnefa-
leik, sem hann hafði unnið
síðan hann hætti að skera syk
urreyr á Kúbu fyrir dollars
laun á dag, virtust hafa gufað
einhvern veginn upp. Hann
átti lítið eftir af sínum millj-
ónum, nema litLa útborgun í
húsi, bíl Og smáupphæð í
banika. Efnahagur hans virðist
leiða greinilega í ljós, að það
eru aðrir en hnefaleikamenn-
irnir sjálfir, sem hirða mest
af hagnaðmum.
En líf Parets vakti heim-
inn. Öldurnar gegn banni
hnefaleika — Og þá einikum
atvinnúhnefaleika — risu
strax hétt og eru engan veg-
inn fallnar. Fjölmargar þjóðir
ræða í fullri alvöru um bann.
Meðal þeirra eru Danir og
mm.
Páfastóllinn kvað upp einna
harðastan dóminn — en
kannski sannastan: „Þetta er
glæpur“.
Griffith hefur fengið ótelj-
andi hótunarbréf. Meirihluti
þeirra er frá Kúbumönnum.
Þar er því hótað að hann verði
skötinn, hvenær sem hann fari
aftur í hringinn til að berj-
ast.
Griffith er á báðum áttum.
Segist vart geta hugsað sér
að keppa aftur.
Framkvæmdastjórinn er á
öðru máli eins og í upphafi
segir. Hann bendir á aðra
heimsmeistara, m. a. Sugar
Ray Robinson, sem orðið hafi
manni að bana í hringnum,
en aftur varið heimsmeistara- '
titil sinn, án þess að fyrra
Slys nafi háð honurn.
En mótmælaaldan gegn
hnefaleikum hefur stórum
eflz. í þessum leik var farið
langt yfir þau takmörk, sem
hnefaleikaíþróttin setur — en
Höggin sem bönuðu Paret, vöktu heiminn
„Þetta er glæpur"
er dómur páfagarðs
HÖGGIN sem dynja á varnar-
lausum og meðvitundarlaus-
um manninum á stóru mynd-
inni, leiddu til dauða hans
nokkrum dögum eftir þennan
kappleik, sem háður var um
heimsmeistaratitil .í veltivigt.
En þessi högg vöktu milljón-
ir manna um heim alian til
meðvitundar um hættuna sem
af hnefaleikum stafar. Sá, sem
laminn var, er Kúbumaðurinn
Paret. Hann lét lífið — einn
af mörgum — fyrir vonina um
frægð og fé.
Sá sem lemur er Bandaríkja
maðurinu Griffith. Hann hef-
ur vart verið mönnum sinn-
andi eftir lát andstæðings síns.
Hann veit sjálfur ekki hvort
hann á — eða getur — keppt
aftur í hnefaleik, en fram-
kvæmdastjóri hans vill ólmur
að hann keppi aftur sem fyrst.
Telur hann, að það verði eina
lækningin. sem Griffith getur
fengið í hugarangri sínum!! ** ***"' \
Eins og menn muna gekk ^
Griffith berserksgang í kapp- *
leiknum. Hann eygði sigurinn
Og lét höggin dynja á andstæð
ingnum og skeytti engu um
eða heyrði ekki aðvaranir
dómarans. Kúbumaðurinn
hétok uppistandandi aðeins af
því, að kaðlarnir umhverfis
pallinn héldu honum uppi,
eins og sjá má. Löks flaug
Paret lá eftir í hringnum og sá aldrei dagsins ljós fram-
ar. Hér er munnvarnargúmmjið tekið úr munni hans.
Englendingar. Aðrar vilja
strangara eftirlit, breyttar
reglur, sem veiti hnefaleika-
mönnum meira öryggi í keppn
það tákmartk að vinna á rot-
höggi leiðir alltaf heim hætt-
una á hryllilegum afleiðingum
fyrir þann sem tapar.
—
íslandsmeistara-
mdt í badminton
íslandsmeistaramótið í bad
minton fer fram nú um
helgina og hefst það kl. 2 a
laugardag í XR-husinu við
Kaplaskjólsveg. Tennis- og
badmintonfélag Reykjavík-
ur sér um framkvæmd móts-
ins. — Mikill fjöldi kepp-
enda er skráður til leiks,
eða nálægt 50 samtals, í 1.
flokki og meistaraflokki.
Núverandi fslandsmeistarar í
badimington eru allir meðal
Skráðra keppenda en þeir eru:
Óskar Guðmundsson og L#ovísa
Sigurðardóttir í einliðaleik; Lár-
us Guðmundisson og Ragnar
Thorsteinsson í tvíliðaleik karla
og Hulda Guðmundsdótir og
Rannveig Magnúsdóttir í tvíliða-
leik kvenna, en Júlíana Isebarn
og Wagner Walbom í tvenndar-
keppní.
Þrátt fyrir vaxandi fjölda iðk-
enda og vinsældir badminton-
íþróttarinnar víða um l’and, vill
svo til að þessu sinni, að engir
keppendur búsettir utan Reykja-
víkur hafa tilkynnt þátttöku.
Saknað er t.d. tilfinnanlega kepp
enda frá Umf. Snæfelli í Stykkis-
hólmi, sem frá upphafi hafa sett
svip á íslandsmótin og Oft farið
heim með bróðurpartinn af
meistarastigunum. Meðal kepp-
enda nú mun þó að finna nokkra
fyrrverandi Hólmara, sem vegna
búsetu hér keppa nú undir merkj
um T.B.R. Má þar nefna kvenna-
meistarann Lovísu Sigurðardótt-
ur, og ennfremur Jón Höskulds-
son, leitomann í fremstu röð, sem
ásamt nokkrum öðrum upprenn-
andi leikmönnum, mun veita Ósk
ari Guðmundssyni harða keppni
um meistaratitil karla. En þótt
ætla megi, að núverandi meistar-
ar verji titla sína af miklum dugn
aði, er yfirleitt spáð mjög tví-
sýnum og spennandi leikjum í
flestum eða öllum badminton-
greinunum.
Þátttakendur eru flestir úr T.
B. R., en notokrir frá Skandin-
avisk Boldklub í Reykjavík.
Eins og áður er sagt, verður
mótið sett kl. 2 e.h. laugardaginn
28. þ.m., en úrslitaleikir fara
fram daginn eftir á sama tíma.
Ungír piltar á réttri leið
Handknattleiksmótið, sem
lauk rétt fyrir páskana, var
stærsta og fjölmennasta iþrótta-
mót sem hér hefur verið haldið.
Það ieiddi í Ijós stöðugt vax-
andi vinsældir handknattleiks-
ins og hina brýnu þörf fyrir
nýtt íþróttahús, sem reyndar er
í byggingu.
Síðasti leikur mótsins var um
„fallið“ niður í aðra deild. Var
hann leikinn síðasta vetrardag
og hefur ekki verið getið áður.
Það voru KR og Valur sem átt-
ust við og lauk leiknum með
öruggum og verðskulduðum
sigri KR með 21—16. Valsmenn
leika því næst í 2. deild.
Það er dálítið athyglisvert að
baráttan um „fallið“ skuli
standa milli þessara gömlu og
góðu félaga, ekki sízt af því að
í Enska knaftspyrnan
S. L. þriðjudag fóru nokkrir leikir
fram I ensku deildarkeppninni og urðu
úrslit þessi:
1. deild.
Birmingham — Everton 0:0
Leicester — Bolton 1:1
N. Forest — Aston Villa 2:0
Sheffi*Id U. — Manchester U. 2:3
W B A — Fulham 2:0
2. deild.
Leeds — Bury 0:0
Middlesbrough — Walsall 3:0
Rotherham — Sunderland 0:3
Scunthorpe — Hddersfield 1:3
Stoke — Liverpool 0:0
Swansea — Plymouth 5:0
Staðan er nú þessi (efstu og neðstu
liðin)
Wolverh 41 13-10-18 71:83 36 st.
N Forest .... 41 13-10-18 62:77 36 —
Fulham 40 12- 7-21 62:70 31 —
Cardiff 40 9-13-18 45:71 31 —
Chelsea 41 9- 9-23 66:93 27 —
2. deild.
Liverp 39 25- 8- 6 92:36 58 st.
L. Orient ... 41 21-10-10 67:40 52 —
Sunderl, 41 22- 8-11 84:49 52 —
Scunth 41 21- 7-13 85:67 49 —
Leeds 41 11-12-18 47:71 34 st.
Swansea ... 40 11-11-18 55:80 33 —
B. Rovers ... 41 13- 7-21 53:79 33 —
Brighton .... 41 10-11-20 45:84 31 —
1. deild.
Ipswich .... 41 23- 8-10 91:67 54 st.
Burnley 40 21 -10-9 100:61 52 —
Tottenham . 40 19 H rH 1 o 82:65 48 —
Everton .... 40 18- 11-11 76:49 47 —
Sheff. U 41 19- 9-13 61:67 47 —
Mikill spenningur er í I. deild, bæði
í toppinum og botninum, Burnley á
eftir 2 ieiki þ.e. við Sheffield W. úti
og Chelsea heima, en Ipswich ú eftir
að leika við Aston Villa heima. Er því
ekki gott að segja hvort liðið muni
sigra, en Burnley hefur betra marka
hlutfail.
þessi félög eru þau einu í Rvík,
sem hafa komið upp góðum og
nýjium íþróttasölum, þeim
stærztu í bænum. Salirnir hafa
ekki fært þeim þann árangur
sem allir vænta með sérstöðu
þeirra hvað viðvíkur gott hús-
næði, — ekki í elzta aldursflokki
En félögin , einkum þó Valur,
má þó allvel við una sinn hag
er handknattleik varðar. Valur
vann íslandsmeistaratitil í m.
fl. kvenna og í 3. flokki karla,
einmitt í úrslitum við KR,
Og keppnin í 3. flokki var
sérstaklega ánægjuleg og verð-
skuldar vel að hennar sé minnzt,
tTrslitaleikurinn í 3. flokki milli
Vals og KR var ákaflega jafn og
tvísýnn. Bæði liðin áttu góðan
leik, eiga góða pilta sem kunna
handkattleikinn.
Valsmenn voru þó vel að sigri
komnir, því lið þeirra var betur
leikandi, átti fjölbreyttari leils
og glæsilegri upphlaup. Þetta
er flokkur pilta sem vekur bjart
sýni hjá unnendum handknatt-
léiksins og með slíka pilta á
uppvaxtarskeiði þarf handknatt-
leiksíþróttin ekki að bera kvíð-
boga fyrir framtíðinni. Leikur
þeirra í úrslitum í 3. flokki var
að mörgu leyti betri en t.d,
úrslitaleikurinn í 2. fl.
Þessa er gaman og rétt aS
minnast, þó þess gæfist ekki
kostur í önnum dymbilvikunnar.