Morgunblaðið - 19.06.1962, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. júní 1962
6
Æskulýös- og
málaráðstefna
d vecrum. landssambandsins gegn.
dfengisbolinu
Ótakkaða frímerkjaörkin. Spegilprentunin sést vel.
Merkilegt afbrigði
íslenzkra frimerkja
EITT a1 Reykjavíkurblöðunum
skýrði frá því á sunnudag að
frimerkjasafnari einn hérlenidis
hefði undir höndum eina örk af
15 aura Geysisfrímerkjum, ó-
tökkuðum, með spegilprentun á
baki. Vegna þessarar fréttár
hafði Mbl. tal af Jónasi Hall-
grímssyni, frímerkjafréttaritara
blaðsins, og bað hann segja sitt
álit á máli þessu.
Jónas sagði að það vaeri úti-
lokað að segja til um verðmæti
slíkra afbrigða vegna þes að þau
eru hvergi skráð með verði í al-
þjóða frímerkjaverðlistum og að
iþað væri sjaldgæft að finna kaup
anda að slíkum misprentunum.
Fyrir nokkrum árum var örk
(50 stk. af merkjum þessum, sem
ótökkuð voru, en ekki spegil-
prentuð, til sölu hjá erlendum
frímerkjakaupmanni og seldi
hann hvert einstakt merki á 7500
krónur og þótt þessi örk, sem
um getur, sé talin vera spegil-
prentuð, má telja það næstum
útilokað að virða örkina á eina
milljón kr., sbr. frímerki frá
öðrum löndum, sem þekkjast
spegilprentuð. Hinsvegar sagði
Jónas að því væri ekki að neita
að hér væri um að ræða „raritet"
af íslenzkum frímerkjum, en
hvenær og hvar kaupandi fynd-
ist væri ekki hægt að segja um
eins og væri.
Fyrir nokkrum árum var ó-
takkað 15 aura Geysismerki
skráð í dönskum frímerkjaverð-
lista á 1200 danskar krónur
stykkið, sem eftir núverandi
gengi er 7.500 kr. ísl. og eins og
kunnugt er, þá er í flestum til-
fellum ekki hægt að selja ís-
lenzkt frímerki á verðlistaverði
heldur er verð það, sem þar er
skráð, miðað við skipti á frí-
merkjum milli safnara en sölu-
verð er ávallt lægra en verðlista-
verðið. Eftir þessari verðskrán-
ingu ætti því örkin af ótökkuð-
um 15 aura Geysismerkjum að
kostp 376 þúsund kr. og má full-
yrða að vart sé hugsanlegt að
finna kaupanda, sem væri fús
til að greiða þetta verð fyrir
örkina, jafnvel þótt hún sé spegil
prentuð.
Jónas gat þess að hann liti svo
á að örk þessi væri bezt komin
í hendur íslenzku póststjórnar-
innar til þess að vera til sýnis
frímerkjasöfnurum og öðrum,
sem áhuga hafa á frímerkjum, ef
póststjórnin kæmi upp póst-
minjasafni.
I>ess má geta, að umrædd
Geysismerki voru prentuð í Bret
landi og gefin út 1. apríl 1938.
Þegar frímerkin eru tökkuð eða
götuð eru notaðar til þess vélar
og í þær látið nokkuð magn af
örkum í einu. Ef arkirnar, sem
látnar eru í vélina hverju sinni,
eru of margar, getur það átt sér
stað að götunarkambarnir nái
ekki í gegnum neðstu arkirnar
þannig að þá komi út ótökkuð
örk, sem síðan sleppur framhjá
endurskoðun á merkjunum. Þessi
götunaraðferð er talin gamal-
dags, því að nútíma frímerkja-
prentunar og götunarvélar eru
þannig gerðar að engin örk fer í
gegnum þær án þess að takkast
því það er gert um leið og prent-
un merkjanna fer fram. Er því
útilokað með öllu að slíkar ótakk
aðar frímerkjaarkir sjái dagsins
Ijós, séu þær prentaðar í ný-
tízku vélum.
• „Þúa að fyrra bragði“
Kristín Sigfúsdóttir frá
Syðri Völlum skrifar:
Bílstjóri hefur nýlega kvart
að undan því í blaðinu að
fólk þúi sig án leyfis eða að
fyrra bragði. Ja, fyrr má nú
vera dónaskapur. Allur far-
þegahópurinn mundi þó horfa
með undrun ef enginn mættd
víkja frá því að þéra hvern
einasta bílstjóra. Þið megið
trúa því, að sú regla kemst
aldrei á, því bílstjórar eru yf
irleitt alveg dramblausir menn
og mjög hlýlegir í viðskiptum.
Þessvegna ættu allir að um-
gangast þá með hégómalausri
kurteisi og vita að það er
ekki endilega • víst að þeir
kæri sig neitt um þéringar —
að fyrra bragði.
Eitt sinn heyrði ég af vör
um hámenntaðs manns, að
þéringar hefðu upphaflega ver
ið léleg einangrunarkennd
FRÁ föstudeginum 22. júní
til þriðjudagsins 26. júní n.k.
verður haldið í Reykjavík nám-
skeið um æskulýðs og félagsmál
og reynt að kryfja til mergjar
nokkur helztu vandamál ís-
lenzkrar æsku í dag. Sérstaklega
verður ýmis félagsstarfsemi
æskufólks bæði kynnt og rætt
um hugsanlegar leiðir til fjöl-
breyttara og þróttmeira starfs
hinna ýmsu félagssamtaka Á
hverjum degi námskeiðsins
verður flutt eitt eða fleiri fram-
söguerindi um aðalefni dagsins
og síðan verður kaffihlé, frjáls-
ar umræður og fyrirspurnir,
sem þátttakendur eru hvattir til
að taka þátt 1 og loks kvikmynd
Umræðuefni daganna eru: Skóla
æskan í dag, skemmtanalífið,
félagsmál og félagsstörf, áfeng-
isvandamál á atómöld, reglu-
semi, íþróttir og heilbrigði.
Til framsögu um hin ýmsu
efni hafa verið valdir menn, sem
hafa faver á sínu sviði mikla og
trausta reynslu í samibandi við
starf ýmissa félagssamtaka eða
tofnana. Má þar nefna: Helga
Þorláksson skólastjóra, Braga
Friðriksson formann Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur, séra Árelíus
Níelsson, Ólaf Kristjánsson
skólastjóra, Pétur Björnsson
erindreka frá AA-samtökunum,
og Hermann Guðmundsson
framkvæmdastjóra ÍSÍ, fulltrúa
frá SVFÍ, BFÖ, og lögreglunni,
hrokafullra manna, sem heimt
uðu múghylli með valdi. Sams
konar þjóðarvenja þrífst enn
sums staðar og mörgum finnst
gott að grípa til hennar — í
ákveðnum tilgangi, í stað
sannrar virðingar og bræðra-
lags.
Nú er óðum að draga úr
þeirri gerfimennsku að þéra.
Og auðvitað er gáfað og
menntað fólk manna vísast til
þess að taka hlýtt í hönd
hvers smælingja og segja: —
Við erum raunverulega jafn
réttháir þegnar vors þjóðfé-
lags og umfram allt aðeins
menn. Svo skulum við taka
eftir því að engum dettur í
hug að þéra vini sína — ekki
einu sinni mesta og bezta vin
inn okkar allra. Eg skrifa þess
ar línur með kærri kveðju til
allra bílstjóra, sem aldrei hafa
né munu þéra mig.
Kristín Sigfúsdóttir
frá Syðri-Völlum.
prófessor Niels Dungal, Símon-
ía Gabor íþróttaþjálfara og Vil-
•hjálm Einarssion kennara. Má af
þessu sjá að víða er gripið nið-
ur og það er trú og von forstöðu
manna námskeiðisins að við
framsöguerindi og umræður
komi ýmisleg reynsla fram er
að gagni megi koma í þeirri við-
leitni að ráða bót á ýmsu því,
sem betur má fara í uppeldis-
málum vorum í dag.
Þó er það forstöðumönnum
námskeiðs þessa vel ljóst, að
það stendur og fellur með því,
að áhugamenn sæki það og leggi
þannig sinn skerf til þessara
mikilvægu mála. Á það skal
lögð sérstök áherzla að nám-
skeiðið er öllum opið og mjög
æskilegt að sem flestir áhuga-
samir menn og konur, uppal-
endur, kennarar, forystumenn
Lömb flæðir uppi
í vatnavöxtum
VOPNAFIRÐI, 18. júní. — Hér
hefur verið slæm tíð og stór-
rigningar. Töluvert hefur farizt
af lömbum vegna veðurfarsins,
en ekki er vitað enn, hve mikið
það er. Nokkur hafa farizt þann-
ig, að ár hafa flætt yfir bakka
og lömb flætt uppi.
— Sigurjón.
• Málið til að
„ná sambandi“
Eg held að það gæti nokk
urs misskilnings á eðli þér-
inga hjá bréfritara. Þó er á-
gætt að fá enn einu sinni um
ræður um þetta. Þéringar, eða
réttara sagt þessi óvissa sem
nú ríkir í þéringa-málinu,
skapar hreinustu vandræði í
daglegri umgengni manna.
Eg hefi ætíð talið það góð
an sið að þéra ókunnuga, sem
ég ekki á nema óbein við-
skipti við, enda jafn eðlilegt
að þéra þá og að þúa þá sem
ég þekki betur, það á ekkert
skilt við hroka, „háa og lága“
eða neitt slíkt. Aftur á móti
þýðir ekkd að berja höfð-
inu við steininn með það, að
svo margir kunna ekki orðið
að þéra og er það svo óeðli-
legt, að ekki er hægt að kom
og leiðtogaefni yngri sem eldrl
láti ekki þetta tækifæri til heil
brigðrar fræðslu ónotað. Fram-
sögumenn eru ekki úr neinum
ákveðnum félagssamtökum eða
með fyrirfram ákveðnar sam-
hljóma skoðanir. Þeir eru vald-
ir úr ýmsum stéttum og stofn-
unum og ræða um ólíka þætti
þessara mála.
Tekið er á móti umsóknum
og nánari upplýsingar veittar i
sima Áfengisvarnarráðs. Vér
treystum því að áhugafólk um
félagsmál láti þetta tækifæri
ekki framhjá sér fara.
N ORÐURL ANÐ AMÓTINU I
bridge er nú lokið og urðu úr-
slit þessi:
Opni flokkurinn
1. Svíþjóð 25 stig
2. Danmörk 20 —
3. Noregur 14 —
4. Finnland 11 —
5. ísland 10 —
A-sveit íslands vakti mikla
athygli fyrir góða frammistöðu,
enda fékk sveitin öll stig ís-
lands.
Kvennaflokkur
1. Danmörk 8 stig
2. Noregur 7 —
3. Svíþjóð 7 —
4. Finnland 5 —
5. ísland 3 —
ast í samband við þá í sím-
tali, þegar byrjað er á að
þéra. Og þegar á allt er litið,
er þá ekki hið talaða mál til
þess gert að gera mannlegum
verum fært að tjá sig hver
við aðra og „ná þannig sam-
bandi“.
En það er þetta óvissa á-
stand, sem gerir alla bölvun
ina. Mér er í rauninni alger
lega sama hvort ég þéra eða
þúa manneskju, sem ég tala
við í fyrsta sinn. En ég veit
bara ekki ætíð hvort hún kann
betur við. Stundum byrjar
maður á að þéra og hinn að
“9 ilinn verður eins og feiminn
skólastrákur, og ef þúað er
umsvifalaust, á maður það
á hættu að viðmælandinn þéri
og finnist sér misboðið. Þau
eru ófá hlægilegu samtölin,
sem tveir aðilar eiga, er báð
ir hafa ákveðið að láta hinn
ákveða hvort formið eigi að
nota og báðir forðast eins og
heitan eldinn að nota annar
ar persónu fornafnið.
Og það versta er, að fólk
sem ekki temur sér hvort
tveggja verður svo óöruggt i
framkomu við ókunnuga og
veit ekkert hvað það á að
segja við þá.