Morgunblaðið - 19.06.1962, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
JÞriðjudagur 19. júní 1962
f»AÐ ótrúlega hefur gerzt
í Alsír: Serkir og OAS
hafa samið. Loksins hefur
orðið lát á blóðugum bar-
dögum, morðum og eyð-
andi sprengingum, sem
segja má að verið hafi
daglegt brauð í Alsír síð-
ustu 7 árin. Eftir erfiðar
hafa vaknað, þótt margt
sé enn í óvissu.
í hinu nýja samkomulagi,
sem enn er eftir að ganga frá
til fulls, felast m. a. þessi
atriði:
• Báiðir aðilar taka hönd-
um saman um að binda
enda á blóðsútheílingar,
sprengjuárásir og kyn-
stofni í Alsír verði tryggð
ur í hinu nýja Alsír-ríki:
M.a. verða evrópskir
menn teknir í lögreglulið
landsins.
• OAS gefur stuðningsmönn
um sínum fyrirmæli um
áð hætta þegar hryðju-.
verkum og eyðileggingu
og hvetur alla evrópska
landnema til að „beina
öllum kröftum sínum að
því að endurskapa hið
alsírska föðurland sitt.“
Mönnum hefur létt mjög
við fregnina um samikomulag
þetta, þótt margt sé enn í
óvissu. Ekiki fer hjá því, að
ýmisir erfiðleikar muni gera
vart við sig, þegar að því
kemur að ganga endanlega
frá samkomulaginu. Jafnvel
þótt allt fari að óskum þang-
að til. Heitar ástríður, hat
ur og úfin sár, hljóta
að gera allsherjareiningu
mjög erfiða. En fyrsta — og
’-.annske stærsta sporið er
arverk OAS hafa hrakið frá Alsír.
ttamannastraumurinn frá Alsír upp á síð kastið hefur verið gífurlegur. Er jafnvel tal-
ið að næstum fjórðungur allra manna af evr ópskum uppruna hafi yfirgefið landið, ým-
ist sjóleiðis eða með flugvélum. Þessi mynd var tekin á hafnarbakkanum i Algeirsborg
og' sýnir grátandi móður hlaupa með börn sí n til skips. Hún er ein beirra lánsömu, sem
hefur fengið far.
viðræður, sem hvað eftir
annað virtust vera runnar
út í sandinn, var loks á
sunnudag tilkynnt, að sam
komulag hefði náðst milli
fulltrúa Serkja og OAS-
leynihersins. Nýjar vonir
þáttahatur.
Serkir heita evrópskum
mönnum, þ.á.m. þeim,
sem tekið hafa þátt í of-
beldisverkum OAS, fullri
sakaruppgjöf. Jafnframt
lýsa þeir yfir, að hlutur
manna af evrópskum
þegar stigið. Hörmungarnar
eru á enda, a.m.k. um sinn.
Þegar OAS kom til skjalanna.
Yonin um frið í Alsír vakn-
aði fyrst fyrir alvöru í marz-
mánuði sl., þegar samkomulag
um vopnahlé náðist milli
frönsku stjórnarinriar og als-
írskra þjóðernissinna. En þá
varð það, sem OAS-hreyfing-
in kom til skjalanna, Leiðtog-
ar hennar voru bæði sárir og
gramir yfir að hafa ebki átt
neina aðild að samningavið-
ræðunum við Serki — og, það
sem mestu máli skipti: Þeir
voru í grundvallaratriðum
mótfallnir stefnu DeGaulle
varðandi framtíð hinnár
frönsku nýlendu.
Síðustu mánuðina hefur því
hvert hryðjuverkið rekið ann
að af hálfu OAS manna: Sak
laus börn, fólk á bezta aldri,
konur jafnt sem karlar, og
varnarlaus gamalmenni hafa
verið brytjuð niður miskunn-
arlaust. Skólar, sjúkrahús,
skrifstofubygingar og íbúðar-
hús hafa verið sprengd í loft
upp. Engu hefur verið þyrmt
— og hin yfirlýsta stefna OAS
hreyfingarinnar hefur verið
að jafna við jörðu allt, sem
byggt hefur verið upp í land-
inu.
Það er því sízt að undra,
þótt fólk í Alsír sé svolítið
hugarrórra, eftir að náðst héf
ur — þó ekki sé nema eins-
konar bráðabirgðasam-
komulag sem gefur vonir um
að ógnaröld þessi sé nú á
enda. Sú gleði, sem eflaust rík
ir innra með alsírsku fólki,
héfur þó ekki enn fengið nema
takmarkaða útrás. Því er
ljóst, að í röðum beggja samn
ingsaðila eru öfgamenn, sem
enn hafa á sínu valdi að
spilla samkomulaginu. Flótta-
mannastraumurinn, sem síð-
asta mánuðinn hefur fært á
2. hundrað þúsund manns yfir
til Frakklands, heldur því
b,, . Framhald á bls. 15.
Hliðið lokast fyrlr framan þær; þær verða að bíða næstu
skipsferðar yfir tii Frakklands.
Fáir munu gleðjast meira en de Gaulle, forseti Frakklands, ef nú næst endanlegt sam-
komulag um frið í Alsír. Fyrir og um helgina ferðaðist de Gaulle um suðausturhluta
Frakklands og hélt þar ræður á nálægt 40 stöðum. Hann var í Montbeliard á sunnudag-
inn og lýsti þá yfir: „Ég held að mér sé óhætt að segja ykkur, að tímamót séu að verða
í samskiptum múhameðskra manna og kristinna í Alsír. Eftir allt, sem þar hefur verið
sagt og gert, er mér víst óhætt að segja að þar sé að nást samkomulag. Hafandi varpað
fyrir borð þeim fáu glæpamönnum, sem eftir eru, munu þeir allir gera skyldu sína og
leysa af höndum verkefni sitt — sem er að byggja upp, allir í sameiningu, nýtt Alsír“,
Serkir og OAS semja